Tíminn - 01.05.1962, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.05.1962, Blaðsíða 5
Arnór Hannibalsson, safnvörður, áœtlað', að hún komi út á næsta ] ári. Alþýðusambandinu var auðvitað fullljóst, þegar það tók við þessari gjöf, að henni fylgdi mikil ábyrgð, — sú ábyrgð, að hugmynd gefand- ans kæmist í framkvæmd. Það var því þegar farið að safna áskrifend- um að þessari bók eftir áramótin og hafa verkalýðsfélögin um allt land starfað að söfnuninni og orðið vel ágengt. Hugmyndin er, að áskrifendur geti greitt bókina með afborgunum og verði hún þannig seld fyrirfram. Er vonazt til, að byggingarsjóðurinn verði orðinn það mikill innan tveggja ára, að I gerlegt verði að hefja byggingar- ; framkvæmdir. Það er auðvitað von okkar, að listunnendur og allir þeir, sem hafa áhuga á framgangi þessara mála, gerist áskrifendur að þess- ari bók og leggi þannig fram sinn skerf til byggingar listasafnsins, sem verður að öllum líkindum ! fyrsta listasafnið í Evrópu, sem er í eigu verkalýðsfélaga. — Er búið að ákveða safninu 'Stað? — Nei, ekki enn þá. En það er í athugun, hvar heppilegast myndi að hafa það, og umsókn hefur ver- ið lögð fyrir borgarstjórn. Safnið verð'ur að vera staðsett í strætis- vagnaleið, en þó ekki þar sem um- ferg er mikil og það, sem af henni ihlýzt: Hávaði og vélastybba. Það jverður að vera í fögru og kyrrlátu umhverfi, þar sem tært loft og gróður ræður ríkjum, svo að fólk geti notið náttúrunnar um leið og það nýtur listarinnar og þeirra menningarverðmæta, sem þessi væntanlega stofnun á að geta boð- ið upp á. Þessi stofnun yrði ekki Fyrsta alþýðulistasafn Evrópu Enn einu sinni er 1. maí runninn upp með öllum sínum kröfuspjöldum, ræðuhöldum, fólksmergð og hornablæstri. Vinnandi fólk gerir upp reikn ingana við liðið ár og horfir fram til nýrra tíma með brostn ar vonir, nýjar og ófæddar. — En hvað sem líður sviknum loforðum og allri kjarabaráttu, þá hefur alþýðu íslands hlotn azt ein gjöf án allrar baráttu af hennar hálfu, sem vert er að hafa í heiðri á þessum degi: Gjöf Ragnars Jónssonar, — Listasafn Alþýðusambands ís- lands. Fréttamaður blaðsins fann for- stöðumann listasafnsins, Arnór Hannibalsson, að máli á dögunum í skrifstofu og geymslu safnsins að Laugavegi 18. — Hann sat við skrifborð sitt með útsýn yfir mið- bæinn og blá sundin á aðra hönd, I en andspænis rekkverk mikið, þar sem málverk íslenzkra meist- ara standa hlið við hlið og bíða eftir þeim degi, þegar þau fá að snúa andlitinu að heiminum. — Hafa málverkin ekki góð á- hrif á þig? — Jú það- er ákaflega heilsu- samlegt að vera í návist þeirra, enda eru þau gerð fyrir mann- fólkið. — Hvernig eru framtíðarhorf- urnar viðvíkjandi safnbygging- unni? — Svo sem öllum er kunnugt var það hugmynd Ragnars, að Al- þýðusambandið reisti byggingu og starfrækti í henni stofnun, þar j sem þetta safn væri kjarninn. j Hann tilkynnti jafnframt, að' með' málverkagjöfinni væm gefin fimm þúsund eintök af mikilli og veg- legri listaverkabók, sem innihéldi yfirlit um sögu íslenzkrar mynd- listar og myndir af helztu verkum safnsins og ætti andvirði þeirrar bókar að renna til safnhússbygg- ingarinnar. Það er Björn Th. Björnsson, sem sér um útgáfu bók- arinnar. Hún verður hátt á fjórða hundrað síður — eða með öðrum orðum, stærsta listgverkabók, sem komið hefur út á íslenzku, og er ósvipuð Louisiana-safninu, sem er rétt utan við Kaupmannahöfn, þar sem fólk getur ríotið hvíldar frá önnum dagsins. Það safn sækja um 220—230.000 manns á : ári, og er það' sex sinnum meiri aðsókn en að ríkislistasafninu, sem er í hjarta Kaupmannahafnar. Jafnframt því, sem fólk mun geta skoðað listaverkin á safninu, jverður lögð áherzla á ýmsar list- kynningar. Kaffistofa, bókasafn og lestrarsalur verða einnig í þessu heiminum. sama húsi. — Þetta er í samræmi við viðhorf Ragnars til lista. Hann hefur alltaf lagt á það megin- áherzlu, að listin eigi ekki að vera byrgð undir mælikeri, heldur eigi hún að vera lifandi menningar- þáttur í lífi fólksins. Þetta viðhorf hans hefur meðal annars verið ráð- andi í Tónlistarfélaginu, enda lief- ur það unnið geysimikið starf í þágu lista og almenninss. — Er ætlunin að lialda sýningar á málverkunum út um land í sum- ar? — Já, við höfum í hyggju að halda sýningar víða um landið, svipaðar þeirri, sem haldin var á Selfossi. Það er ætlun okkar að flytja þessi verðmæti, sem við höf- um yfir að ráða til fólksins. Sýn- ingin á Selfossi tókst mjög vel og hlaut mjög góðar undirtektir. ,1 sambandi við þá sýningu kom fram sú nýjung, að' fluttur var fyr- irlestur um íslenzka málaralist. Gerði það Björn Th. Björnsson, og jafnframt var sýnd snilldar vel Framhald á 15 síðu as&zsm l dag verður loks opnað hið nýja verkamannaliús við höfn ina, með ræðu borgarstjóra. Húsið stendur við Tryggvagötu vestan Loftsbryggju. r.lun hús- ið verða til sýnis almenningi lsl. 6—9 e.h. á morgun. Bygging þessa húss hefur tek ið rúm þrjú ár, en það á sér nriklu lengri forsögu. Árum saman báru fulltrúar minni- hlutans í bæjarstjórn fram til- lögur um að reist yrði nýtt verkamansiaskýli við höfnina. Meirihlutinn hundsaði þessar tillögur ár eftir ár. Þörfin var brýn og þessar tillögur fundu sterkan hljómgrunn meðal verkamanna og loks treysti í- haldið sér ekki til að standa á móti þessurn kröfum lengur og lét einn af fulltrúum sínvm. Einar Thoroddsem, skipstjóra sem nú hefz . ve ' látinn víkjs ■?f .arnboðsllstanum. be"f> frajr tillögu um verkamannahús. — Þannig er um öll frá '■"•ami’ h" ’ rðsta^e-jns, tfllögurnai koma fyrst fram ájá minnihlut anun og aðein ugri bar un væra meí .ibbitasvefni. át.. „g sífri ri hefur tekizt að í hinu nýja verkamanna- og fá íhaldið ti! að rum - f hin sj' nnahúsi er all stór veit- ingasala biðsalur fy u verka- rúmum. Einar Sveinsson arki- menn, sjómannastofa og gisti- tekt teiknaði húsið herbergi fyrir sjómcnn met. 20 (Ljósm. TÍMINN G.E.). T I M I N N , þriðjudaginn 1. maí 1962 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.