Tíminn - 18.05.1962, Page 14

Tíminn - 18.05.1962, Page 14
 Fyrrí hlutí: Undanhald, eftír Arthur Bryant. Heimildir eru STRIÐSDACBÆKUR ALANBROOKE sem fyrr alvarlegt í annarri viku júlímánaðar, þá hafði Brooke samt enn meiri áhyggjur út af þeirri ti’lhneigingu forsætisráðherr ans að hefja árás of fljótt og hann lagði á sig mikið erfiði til að hindra það. Þag var eins með Winston Churchill og hund, sem losnað hefur úr klónum á stærri og sterkari hundi og hugsar um það eitt að ráðast tafarlaust aftur á óvin sinn og bíta hann á bark- ann. Þann 11. júlí átti Brooke við mikla erfiðleika að etja vegna „óþægilegs símskeytis“, er hann hugðist senda Auchinleek, þrátt fyrir miklar og ítrekaðar tilraunir hins háttvísa Ismay hershöfðingja til að telja hann frá að gera slíkt. Daginn eftir gat Brooke um annað langt „símtal við forsætisráðherr- ann eftir morgunverð . . . þar sem hann féllst loks á að breyta símskeyti sínu“. Samtímis var bog ag til herforingjafundar, til þess að ræða enn annað áform um innrás í Noreg. í þetta shipti lagði forsætisráðherrann það til, að Kanadamönnum yrði falig að framkvæma innrásina. En Churchill var heldur ekki sá eini, er hafði árásaraðgerðir í hyggju, en skipakosturinn var enn sem fyrr alltof takmarkað- ur og leiðin til Mið-Austurlanda ótryggð. Þeir, sem ákafast kröfð- ust tafarlausra hernaðaraðgerða og erfiðast var að standa á móti, voru Bandaríkjamenn. Þeir voru nú orðnir mjög óánægðir með af- stöðu Breta, sem þeir töldu bæði seinlæti og hentistefnu og kröfð- ust þess að endanleg ákvörðun yrði tekin þegar í stað. Þeir gátu með engu móti skilið hik banda- manna sinna. Ag þeirra áliti var hik og tafir einungis merki um hálfvelgju. Það hafði verið sam- þykkt í Washington, að meðan víðtækur undirbúningur yrði gerð ur ag innrás í Frakkland árið 1943, með hraða og krafti, skyldu einnig gerðar tilraunir til að sigr ast á þeim örðugleikum, sem við sókn yfir sundið árið 1942 voru bundnir. Ag vísu átti samkvæmt beiðni Churchills að íhuga og meta möguleikana á hernaðarleg- um aðgerðum í Norður-Afríku, Noregi eða á Pyrenea-skaganum. En í miðjum júlí voru þeir Mars- hall og Stimson aðstoðarmaðux hans farnir að verða þreyttir og reiðir yfir hinni stöðugu óákveðm brezku embættisbræðranna og sí- felldum endurtekningum þeirra á þeim erfiðleikum, sem tefja myndu og e. t. v. hindra með öllu framkvæmd árásar yfir sundið, jafnvel árið 1943. Þeir hvöttu þvi forsetann með eindregnum stuðn- ingi King aðmíráls, sem eftir sig- urinn við Midway hafði ávallt hvatt til stórárásar a Japani til að setja Bretum tvo kosti, annað hvort að gera innrás í Frakkland þá um haustið eða að meginhluti bandarísks herstyrks á Atlants- hafinu yrði fluttur til Kyrrahafs- svæðisins . . . Viðbrögg Roosevelts sjálfs ein- kenndust öll af miklu meira jafn- vægi og rökfastri íhugun. Hann hélt því enn fram, að Þýzkaland væri höfuðóvinurinn og yrði að sigrast áður en Bandaríkin gætu einbeitt sér gegn Japan. Hann neitaði algerlega að trúa því, að Bretar væru á báðum áttum við- víkjandi innrás á meginlandið, i enda þótt hann fengi naumast skilið tregðu þeirra og hik við að hefjast handa þegar á þessu ári. En þar sem hernaðaraðgerðir ein hverrar tegundar væru nauðsyn- legar á árinu 1942, til að hjálpa Rússum, þá hélt hann því fram, ag ef ekki yrði hægt að fram- kvæma innrásina á meginlandið fyrir veturinn, ætti að kanna möguleikann á t.afarlausri milli- göngu Bandaríkjanna annaðhvort í frönsku Norður-Afríku eða Egyptalandi. „Ég hef ekki trú á því“, sagði hann við Hopkins, — „að vig getum beðið með það til ársins 1943 að ráðast á Þýzkaland. Ef við getum ekki gert innrás á meginlandið, verðu.m við að gera það næstbezta — og það er ekki Kyrrahafig.........Gymnast“ (en það var nafnið á ensk-amerískri landgöngu í Marokkó) . myndi tryggja Vestur-Afríku og vernda hafnarborgirnar fyrir óvinunum; það myndi verða upphafið að endanlegum yfirráðum á Miðjarð arhafinu; það er stytzta aðflutn- ingsleiðin". Það sæði, er Churchill sáði í Washington, hafði fallið i frjósaman jarðveg. Daginn eftir fengu þeir Hopk- ins, Marshall og King fyrirmæli um það að fara tafarlaust til London. Þeir áttu að ræða við yfirforingja landhers og flota Bandaríkjanna, sem þangað voru komnir, þá Eisenhower, Mark Clark, Spaatz og Stark — og brezka hershöfðingja, um :nögu- leikana á framkvæmd „Sledge- hammers“ (en það var heitið á ensk-amerískri innrás á megin- land Evrópu) og gera allt. sem í þeirra valdi stæði til þess að koma henni i framkvæmd. En ef þeir sannfærðust um það. að tiún væri ekki framkvæmanleg ve'gna óbifanlegrar andstöðu, þs — og þá aðeins — áttu þeir að ákveða einhvern annan stað, þar sem bandarískar herdeildir gætu bar- izt á árinu 1942. „Ég vonast eftir algeru samkomulagi“, sagði for- S2 setinn að lokum — „innan einnar viku frá komu ykkar . . “ Með þessi fyrirmæli lögðu sendi menn hans af stað daginn eftir í flugferð yfir Atlantshaf'ð, lentu í Prestwick árla morguns þann' 18. júlí og héldu tafarlaust af stag með sérstakri lest til London. „Þetta verður undarlegur hópur“, skrifaði Brooke, „þar sem Harry Hopkins er algerlega fylgjandi aðgerðum í Afríku, Marshall i Evr ópu og King á Kyrrahafinu“. Þann 17. júlí skrifaði hann í dagbók sína: „Herforingjafundur haldmn til þess að undirbúa heimsókn þeirra Harry • Hopkins, Marshalls og Kings, sem eru nú á leiðinni hing- ag og eru væntanlegir snemma í fyrramálið. Þeir koma hingað vegna þess, að þeir eru ekki ánægðir með stuðning okkar við áformaða innrás í Frakkland árið 1943 og ef mögulegt reynist, 1942. Að mínum dómi er árið 1942 úti- lokað og algerlega vonlaust. Árið 1943 hlýtur að verða undir því komið, hvag fyrir Rússland kem- ur. Ef það fellur og bíður lægri hlut, getur ekki orðið um neina innrás að ræða og þá ætlum við ag vera því viðbúnir að halda í þess stað inn í Norður-Afríku. En Marshall virðist vilja einhverja stranga áætlun, sem við séum skuldbundnir að fylgja, hvað sem öðru líður . . . “ Klukkan 7,50 f. m., laugardag- inn 18. júlí, fór Brooke til Euston til þess ag taka á móti hinum virðulegu gestu.m, er höfðu ákveð ið að verja helginni til skrafs og ráðagerða við bandarísku ráðgjaf- ana í London og hafði hann því afþakkað boð Churchills um að dvelja í Chequers. Seinna sat hann á löngum herforingjafundi til að ákveða ýmis atriði, er rædd skyldu við þá á mánudag. „Klukk an 4 e. m.“, skrifaði hann, — „þegar ég var að enda við vinnu mína og var farinn að hugsa til heimferðar, var mér tilkynnt, að BJARNI ÚR FIRÐI Stúdentinn j Hvammi 52 óþvinguð í návist hennar, en vita; þó og skilja, að amma má ekkert j ljótt sjá og laga sig eftir því. Hún er og góg við litlu börnin ráðs- mannsins. En þau eru samt sem áður ekki börn á sama hátt og hin. Þetta sjá allir. Hún finnur þag líka, en getur ekki hvikað frá eðli sínu. Hún nýtur þess, að yfirleitt finnst fólki þetta eðlilegt. Meira að segja móður litlu barn- anna. Ráðsmaðurinn einn kennir nokkurra sárinda vegna sinna eig- in afkvæma, en lætur þó ekki á neinu bera. Hann, sem um ára- tugi hafði gengið fram, er honum þóttu hinir tignu húsbændur halla á lítilmagnann, fann s'ig ekki mann til þess að rétta hlut sinna eigin barna. II. Hvammur hefur nú í rúman ára- tug verið höfuðból sveitarinnar. Þar býr sýslumaðurinn, sem nú er sagður vera einn af ríkustu búendum landsins. Hann á tvær dætur. Er sú eldri 12 ára, en hin tæpra 10 ára. Eru það hvort tveggja efnisbörn hin mestu. Frú Ragnheiður Torfadóttir er nú rúmlega fimmtug. Og er því von- laust um fleiri börn. Sýslumaður hefur ekki lengur von um að eign ast son með konu sinni, en sá hcfur verið óskadraumur hans. Draumurinn nóttina myrku á Stóru-Völlum kemur aftur og aft- ur í hug hans. Var sá draumur markleysa ein? Látum sýslumanninn einan um hugsanir sínar og hugsanaflækjur Guðmundur sýslumaður er í senn mikill hugsuður og maður, sem framkvæmir fyrirætlanir sínar og lætur þær draumsýnir rætast, sem hann vill að rætist. Hverfum nú að framkvæmdum hans og reyn- um jafnframt að skyggna hugarþel þessa rismikla höfðingja. Sýslu- maður hefur nýlega hýst bæ sinn ag verulegu leyti. Hann hefur rif ið gestastofuna og byggt á grunni hennar og fleiri framhúsa staðar- ins tvö mikil, samstæð burstahús með heilstöfnum úr timbri, sem vita fram á hlaðið. Annað húsið var- svo mikil gestastofa, ag hún átti vart sinn líka á þessari öld á sveitasetri hér á landi. Yfir stof- unni var svefnloft, sem rúmaði nálægt 20 gesti. Hitt húsið, sem var miklu minna að flatarmáli, var skrifstofa sýslumanns með geymslulofti yfir, þar sem sýslu- maður geymdi vínföng, silfurmuni og ýmiss konar varning sem hann greip til, þegar meira lá við. Þar stóðu stórir, ramgerðir geymslu- skápar. Frúin hafði einkaaðgang að einum slíkum geymsluskáp, stórri, járnbentri kistu og birgða- skrínu. Bregðum nú upp nýrri mynd. Nokkru eftir lát Guðrúnar í Ási gerðist sá atburður eina nótt, að sýslumaður reig á úrvalsgæðingi sínum einhesta á kirkjustaðinn, þar sem Guðrún var grafin os sat hjá leiði hennar lengi nætur. Tveir drengir. sem vöktu yfir vell inum. urðu hans varir og sögðu frá. Annar drengjann* átti heima á kirkjustaðnum. Sýslumaður gekk til fundar vig hann. gaf hon um pening og bað hann að segja ekki frá þangaðkomu =inni. nema á hann væri leitað af öðrum. sem hefði spurnir af ferðinni En hinn drengurinn á næsta bæ. sem sá til sýslumanns um nóttina, sagði frá. Var þag til þess, að leitað var á vökusvein kirkjustaðarins og allt upplýstist. Spannst út nf þessu heilmikig skraf í allri sveit inni. Og lögðu menn ýmsan skiln- ing í framferði sýslumanns. Kirkjustaður þessi var ekki í sókn sýslumannsins, þó að hann væri í sveitinni, þar sem sýslumaður bjó. Sá orðrómur komst á kreik, ag sýslumaður hefði oftar vitjað grafar fyrstu ástmeyjar sinnar. Þar hefði hann eitt sinn hitt Þór- odd. Krossað yfir leiði Guðrúnar og rætt svo um stund við Þórodd og börnin hans. Solveig sýslu- mannsfrú var þá ekki á kirkju- staðnum. Og var um það rætt, hvort sýslumaður hefði gengið að gröf Guðrúnar í návist frúarinn- ar. Það duldist engum, að gamla frúin gat aldrei hrakið það úr huga sínum, að sýslumaður hefði verið óþarfur Ásheimilinu og vald ið þar straumhvörfum, allt annað en góðum. III. Fimm árum eftir dauða Guðrún- ar í Ási var ag gerast það í Hvammi, sem gekk nær ró hús- ráðenda og reyndar fleiri heima- manna en allt annað, sem hingað til hafði raskað ró sýslumanns- hjónanna. Stofustúlkan í Hvammi, hin kornunga, fagra mær. frænka sýslumannsins, stúlkan, sem allir sveinar héraðsins renndu augurn til og þráðu með brennandi hug, þó ag flestir vissu, að það var von laus þrá, gekk með barni Og þó að enginn vissi þá um barnsföður inn, grunaði ýmsa sýslumann Sigþrúður hét hún þessi unga kona. Þetta sumar var hún nítján ára. Og þetta var annað árið henn ar í Hvammi. Ilún var langt að komin. En þag vissu menn, að þau sýslumaður og hún voru að; öðrum og þriðja að frændsemi. I Hafði amma Sigþrúðar verið syst- ir Guðmundar, föður sýslumanns. Foreldra sína báða hafði Sigþrúð- ur misst sama árið. Þá skrifaði hún frænda sínum og spurði hann ráða. Brá sýslumaður fljótt við, heimsótti frænku sína og kom með hana að Hvammi. Var hún þar sem ein úr fjölskyldunni. leik systir sýslumannsdætranna og að- stoðarstúlka frúarinnar Kenndi frúin henni hannyrðir, en sýslu- maður bókleg fræði Enginn varð var við óeðlilegan samdrátt milli Sigþrúðar og nokkurs karlmanns á heimilinu. Það þótti því með ólíkindum, er heimasætan unga tók að þykkna undir belti. Fyrst gátu griðkonur sem fyrstar upp- götvuðu ástand Sigþrúðar, sér til að Guðmundur Björnsson væri barnsfaðirinn. Hann var maður á bezta aldri og mennilegasta hjúið í Hvammi En er Guðmundi Björnssyni sást ekki bregða, þó að glósum eða tvíræðum setning- um væri að honum beint. féll grunu.r á sjálfan húsbóndann, og óx hann. er það var sýnt, að frú Ragnheiður gerðist annarleg í sama nnind. er þungi Sigþrúðar | gerðist áberandi, sem var síðsum- I ars. Sýslumannshjónin áttu þá margar og langar viðræður og tíðar göngur saman upp í hvamm- inn góða. Þar munu málin hafa verið ráðin til lykta. Einn dag undir haust í indælu veðri fóru þær frú Ragnheiður og fröken Sigþrúður, eins og þær voru jafnan ávarpaðar, á göngu til næsta bæjar, sem hét Dæld. Seint um kvöldið kom frúin aftur, en fröken Sigþrúður var eftir. Þóttust menn þá vita, að þar ætti hún ag ala bamið. Og varð sá grun ur ag fullvissu, er Guðmundur Björnsson var sendur daginn eft ir að Dæld með farangur Sigþrúð- ar. Áður en hann færi þessa ferð, kallaði frúin hann á einmæli fram í gestastofu. Er hún hafði lokað ag sér hurð stofunnar og boðið Guðmundi sæti, sagði hún: — Guðmundur. Þú hefur lengi litið fröken Sigþrúði vonaraugum. Guðmundur spratt úr sæti og spurði hvatskeytlegar en hann átti vanda til: — Á ég að skilja org þín þannig, að þú kennir mér þunga þann, sem stúlkan gengur með? — Nei, Guðmundur minn, sagði frúin. — Barnið, sem fröken Sigþrúður gengur með, verður 14 TÍMINN, föstudaginn 18. maí 1962

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.