Tíminn - 16.06.1962, Blaðsíða 14

Tíminn - 16.06.1962, Blaðsíða 14
Fyrrí hluti: Undanhald, eftir Arthur Bryanl Heimildir eru STRIDSDACBÆKUR ALANBROOKE kjark og sjálfstraust ítala og hleypa öllu í uppnám á Balkan- skaga og kannske koma Tyrklandi í stríðið. Jafnframt skyldi haldið uppi látlausum sprengjuárásum á þýzk iðnaðarsvæði og samgöngu- leiðir og sí'ðar, þegar mótspyrna Möndulríkjanna í Afríku væri úr ■sögunni, skyldi gera sprengjuárás ir á Suður-Evrópu frá Afriku. Jafnframt skyldi dreginn saman mikill brezk-bandarfskur her í Bretlandi, til árásar yfir sundiö árig 1944. „Það er skoðun okkar“, skrifuðu brezku hershöfðingjarn- ir, sem að þessari áætlun stóðu, — „að þessi stefna muui verða Rússlandi til skjótari og meiri hjálpar, bæði beint og óbeint, en flestar aðrar, sem til mála hafa komið . . . “ Þann 12. janúar lagði fórsætis- ráðherrann svo af stað til fundar ins við hi'na bandarísku banda- menn með fjölmennu föruneyti. Upphaflega hafði verið ráðgert, að þeir skyldu fara með beitis'kipi, en vegna hinnar sívaxandi kaf- bátahættu var horfið frá þvi ráði. Það var því nokkrum erfiðleikum bundið að útvega svo fyrirvara- laust nægilega stóra og lang- fleyga flugvél til að flytja þennan fjölmenna og háttsetta hóp manna 1400 mílna vegalengd yfir opnu hafi. Ferði'nni lýsti Brooke svo í dagbók sinni: „12 janúar 1943, 1400 mílur... Mér var þá sagt, að öll fyrri áform hefðu breytzt . . . Við áttum ekki að fara með beitiskipi, eins og gert hafði verið ráð fyrir í upp- hafi, heldur með Liberator-flug- vél. Við lögðum af stag frá Lond- on klukkan 7,30 e. m. og ókum níutíu mílur í myrkrinu til flug- vallar skammt frá Swindon. Það- an fórum við svo klukkan 2 e. m. og fengum mjög góða og þægilega ferð. Við urðum að klæðast flug- búningi til að verjast kuldanum og í hinum skinnfóðruðu fötum leið okku.r mjög vel . . . “ „í London“, bætti hann við síð ar — „hafði brottför okkar verið haldið merkilega leyndri og við vissum jafnvel ekki sjálfir, til hvaða flugvallar við vorurn að fara. en ég held, að það hafi hlot- ið að vera Lyneham. Þar þurftum við ag. bíða lengi, meðan verið var að útvega okkur flugbúninga og fræða okkur á því hvað vig ættum að gera, ef við lentum í sjónum. Loks fórum við um borð í eina af hinum óþægilegu Liiberator-flug- vélum. Eg svaf á gólfinu i káet- unni aftast í flugvélinni og gólf- félagi minn, — ef svo mætti órða það — var Dickie Mountbatten. Hann var ekki sérlega góður rekkjunautur, vegna þess að hann' lagðist bókstaflega ofan á mig í hvert skipti, sem hann velti sér við, og ég varg að verja hið af- mælda gólfrúm mitt með hnjám og olnbogum. 13. janúar: Komum til Casa- j blanca klukkan 11 e. m. eftirj skemmtilegt flug meðfram strönd j inni. Hér dveljum við í mjög j þægilegu og nýtízkulegu gi-stihúsi I rétt fyrir utan borgina, með j tveimur dásamlegum sveitasetrum j í nágrenninu, öðru fyrir Winston j og hinu fyrir Roosevelt en hann! er væntanlegur hingað á morgun. Við erum mjög fjölmennir — for- sætisráðherranní Leathers lávarð- ur, þrír háttsettir hershöfðingjar, 72 i „Pug“ Ismay, Mountbatten, Jak- ob, John Kennedy, Slessor, ég og margir fleiri. Með forsetanum koma Marshall, King, Arnold, Cooke, Sommervell, Clark, Eisen- hower, Leaky, Dill og Harriman . . . Auk þess koma þeir Alex- ander og Tedder á morgun . . . Klukkan 4,30 e. m. sátum við fund með Dill, þar sem hann út- skýrði fyrir okkur sjónarmið Bandaríkjamanna. Klukkan 6 e.m. fundur með forsætisráðherranum. Því næst miðdegisverður með Marshall og langar viðræður við hann að miðdegisverði loknum. Er nú þreyttur og mjög syfjaður, en verð að búa mig undir ávarp mitt á 'sameiginlegum herforingjaráðs- fundi um ástandið í heiminum og þá stefnu, sem við Bretar leggjum til að valin verði í samræðum okkar um framtíð- araðgerðir á Miðjarðarhafssvæð- inu höfðum við lengi rætt um það atriði, hvort við skyldum heldur gera innrás á Sikiley eða Sardiniu, þegar vig hefðum lokið við að hreinsa Norður-Afríku. Kg gat ekki séð marga kosti við það að velja Sardiniu og hafði mælt ein dregið meg Sikiley; fjarlægðin var minni, lending auðveldari, og hún var á beinni siglingaleið til Ítalíu. Eg mætti talsverðri and- stöðu meðal félaga minna, sem mæltu með Sardiniu og töldu meginkosti hennar vera þá, ag mótstaðan á ströndunum yrði minni og flugvélar yrðu betur settar á Sardiniu til þess að gera loftárásir á Ítalíu.. Mér hafði loks tekizt að ná samkomulagi um Sikiley og ég átti að leggja áætl- un um landgöngu þar fyrir Banda ríkjamenn sem næsta takmark okkar . . . “ Á þessum kvöldfundi lýsti for- sætisráðherrann því fyrir þeim, hvernig hann vildi, að þeir hög- uðu viðræðum sínum við Ameríku mennina. Þeir áttu ekki að flýta sér eða reyna ag knýja fram sam- þykki, heldur gefa sér nægan - ............................... tíma. Jafnframt ætlaði hann að beita sömu aðferð í viðræðum sín- um vig forsetann. Hann bætti því við, að það væri ósk sín, að full- komið samkomulag næðist, ekki aðeins um ag hreinsa strönd Norður-Afríku og hernema Sikil- ey á árinu 1943, heldur einnig að endurheimta Burina og gera und- irbúnings-innrás í Frakkland. Ekk ert minna fannst honum sæmandi tveimur stórveldum og skuldbind ingum þeirra við Rússland. Næstu fimm dagana reyndu hinir brezku og bandarísku full- trúar að komast að samkomulagi á morgun- og kvöldfundum sínum. Dill, sem hafði meg veru sinni í Washington öðlazt fullkomið traust Marshalls og starfsfélaga hans og skildi sjónarmið þeirra, útskýrði það fyrir brezku erind- rekunum ,.14. janúar, klukkan 2 e. m. Mjög langur og erfiður dagur. Morgunverður klukkan 8,30 og síð an tveggja klukkustunda undir- búningur fyrir fyrsta fund okkar og bandarísku herforingjaráðs- mannanna Klukkan 10,30 f. m. hófst fundurinn með þvi að ég hélt klukkustundar erindi, þar sem ég lýsti skoðunum okkar á núverandi stríðshorfum og þeirri stefnti, er við teldum, að fylgja bæri framvegis. Vig gerðum fund arhlé til að borða hádegisverð og hittumst svo aftur klukkan 2,30 e m. Eg mæltist þá til þess, að þeir útskýrðu cjónarmið sín King aðmíráll gerði það, og það kom þá undir eins í ljós, að hann vildi fyrst og fremst beina hern- aðaraðgérðunum gegn Japönum. Hanh stakk því náest upp á því, að 30% allra hernaðaraðgerða yrðu á Kyrrahafssvæðinu, sem við gátum meg engu móti sætt okkur við . . . Fundi slitig um klukkan 5 e.m. og drukkið te. Fór því næst í stutta gönguferð með John Kenn- edy niður á ströndina til þess að horfa á fugla. spillti fyrir. Sigurður dannebrogs maður var vínhneigður og sat oft að sumbli. Drengurinn sótti mjög til hans. Og lék orð á því, að hann næði í bragð, þegar á bernskualdri. Foreldrum hans, ein'kum móðurinni, var það hið mesta áhyggjuefni. XXXVI. Nú runnu upp ,þau tímamót, að Guðmundur yngri í Hvammi komst á fermingaraldur. Sýslumannshjó'nin höfðu jafn- an bæði fylgt dætrum sínum til spurninga. En þennan vetur var það sýslumaður einn, sem fylgdi syni sínum, er hann gekk til prestsins. Ef gott var veður og færi fóru þeir gangandi, stundum á skíðum eða jafnvel skautum eftir ánni. En þegar veðurútlit var viðsjált eða slæm fæfð, fóru þeir riðandi. Sýslumaður hafði jafnan þrjá hesta á eldi, stundum fleiri. Voru það allt orðlagðir gæðingar. Hann hafði hið mesta yndi af góðhest- um og hirti reiðhesta sina sjálfur, þ. e. a. s. gaf þeim, strauk þá og leit eftir básnum þeirra. En einn vinnumaðurinn þreif hesthúsið. Og var þag eina hjúið, sem varð fyrir aðfinnslum húsbóndans, ef eitthvað þótti út af bera um snotra umgengni. Sögðu sumir, að hestar sýslu- manns segðu honum til, ef eitt- hvað amaði að þeim. Þá hneggj- uðu þeir meg annarlegum hreim, eða létu hann á fleiri vegu skilja hvað að var. Hitt mun þó sönnti nær, að hann gætti svo vel að hverju sinni, að ekkert fór fram hjá honum. Það vissu allir, að sýslumaður fylgdist alís staðar vel með allri hirðingu og umgengni bæði utan [ heimilis og innan. Á hvítasunnudag var fermt. Allt heimilisfólkig í Teigi fór til kirkj unnar, nema Rúna og Margrét j litla. Hjónin fóru ríðandi, en eldri j systkinin gengu og eins vinnuhjú-| in. Hjónin voru vel ríðandi og í komust brátt langt á undan hinu fólkinu. Er þau áttu skammt ófarig til kirkjunnar, mælti Guðmundur: — Þú hefu.r munað eftir fermingar- gjöfinni, góða mín? — Já, sagði Sigþrúður. — Hann fær sjálfsagt stærri gjafir frá öðr um en mér, blessaður drengur- inn. — Kannske, sagði Guðmundur — Hvag gefur þú? — Þú veizt það, góði minn, sagði Sigþrúður. — Passíusálm- ana, sem þú varst svo góður að gefa mér fyrir harih í skraut- bandi, fingravettlinga, tvenna þelsokka, klofháa reiðsokka, lit- aða sauðskinnsskó meg rósaillepp-l um. — Þú gefur melra, sagði Guð-| mundur. — Nei, Guðmúndur. Eg gef ckki meira. — Þú gefur honum fyrirbænir góðar, ástríkrar móður. Það er ósvikin fermingargjöf, sagði Guð- mundur. Þessu svaraði Sigþrúður engu. Alltaf var það svo, að hún stóð í varnarstöðu vegna drengsins síns í Hvammi. Guðmundur hélt þannig á því viðkvæma máli, að hún mátti oftast vel vig una. En það duldist henni ekki, að hon- um þótti hún hafa látið of mikið af hendi við barnsföður sinn. Og dulvitiind hennar sló stöðugt á þá strengi, ag bónda hennar fynd ist hún vera öðrum þræði öðrum birndin en sér. Þetta var fyrir löngu búið að hitta hana í hjarta- stað. Það lamaði lífsgleði hennar og lífshamingju. Hún hafði oft beðig guð að hverfa þessari dul- skynjan. Hún elskaði bónda sinn og börnin þeirra. En það var henni átakanlega sárt að geta ekki áunnið sér óskorað traust eiginmannsins. Ag finna það ætíð og alltaf, að skuggi fortíðarinnar steypti myrkri sínu og ófögnuði, yfir sælu þeirra. Syndin lætur, ekki að sér hæða. Hún liggur aldr- ei kyrr í gröf sinni, hversu vand- lega, sem Um er búið. Hún- veit- ist ag þeim, sem vakti hana til lífsins, og teygar mlskunnarlaust þá lífsveig, sem heitust er í barmi og má sízt af öllu missast, ef lífið á að halda heilbrigði sinni. Þessi ófögnuður skildi aldrei við Sig- þrúði, þrátt fyrir allar bænir og yfirbætur. Hann kvaldi hana hvað sem hún reyndi, og útjaskaði lífs þrótti hennar og lífsgleði. Er hjónin höfðu þagað um 'Stund, sagði Guðmundur: — Mér dettur í hug, hvort þú viljir ekki gefa nafna mínum, fermingar- drengnum, þennan bleika. . Hann teyjndi fimm vetra fola, sem hann hafði alið hvern vetur og tamið í eitt ár. Þessi gull- fallegi ungi foli var afkvæmi hryssunnar frá Hvammi, sem Sig- þrúður reið í hlaðið á Teigi dag- inn, sem þau hjónin komu þangag í fyrsta sinn saman. — Guðmundur minn, sagði Sig þrúður — Þú átt folann en ekki ég. Eg vonaði, að þú vildir eiga hann, svo mikið hefur þú lagt af mörkum við þennan unga hest. Er þér alvara? — Já, mér er alvara, sagði Guðmundur. Folinn er slíkur, að BJARNI ÚR FIRÐI: Stúdentinn í Hvammi fermingardrengurinn þinn mun gleðjast. Með þessari gjöf færir þú honum betri fermingargjöf en, sjálfur sýslumaðurinn. í fjórtán, ár hefur hann harkað það af sér | að viðurkenna hann son sinn. Hjarta Sigþrúðar bargist ótt — Það ert þú, sem átt folann, Guðmundur. Eg hélt þú vildir eiga hann framvegis, segjum sem gjöf frá mér. Hann strýkur heim. Ertu undir þag búinn að sjá hann sóttan að Teigi? Kannske aftur og aftur? — Jú. Eg hef hugsað það allt. Þú hefur þráð heimsókn drengs- ins öll æviár hans. Eg er heldur ekki laus vig þá löngun að hann komi. Eg hef ekki viljað bjóða honum heim. En ef hann kapmi af sjál|sdáðum, myndi ég fagna hon um. Heimþrá folans gæti kann- 'S'ke stuðlag að heimsókn drengs- ins. t — Elsku Guðmundur minn. Eg er ráðþrota. Þú átt folann. Eg gaf hann engum öðrum en þér. Hafi ég átt hann, gef ég þér hann á þessari stundu. Og vitarilega er þér heimilt ag gera við hann hvað sem þér sýnist. Ef þú gefur hann eða selur, vil ég ekkert vera við það riðin. — Þá þakka ég gjöfina, sagði hann og brosti til konu sinnar. Nú var haldið áfram um hriö. Þá sagði Guðmundur: — Þú ert þó ekki hrædd við folann? Hann er vel taminn. — Nei, góði Guðmundur. Eg er ekki hrædd við folann. Ef ég er hrædd við nokkuð, þá er ég hrædd við hugaróra mína og mein lokur. Eg er syndug kona, og tek því aldrei á heilli mér. — Sigþrúður. Þetta máttu ekki segja, sagði hann. — Þú ert eng- ill. — Ef ég er engill þá er ég fall inn engill, sagði hún. — Hafir þú einhvern tíma ver- ið sek, þá ertu búin að afplána sékt þína, og það fyrir löngu, sagði hann. Þau vóru nú að koma í lautina góðu við túnjaðarinn á kirkju- 'Staðnum. Guðmundur sté af baki, lýfti konu sinni úr söðlinum og kyssti hana um leið. — Sjáig þið helvízkan karlinn. Kyssir hann ekki Sigþrúði. Hann ætti að vera betri við hana hvers dagslega. þá þyrfti hann ekki að flírast við hana nú vegna kirkju- athafnarinnar, sagði roskin kona, sem var ag skipta um föt í laut- T I M I N N , laugardaginn 16. júní 1962 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.