Tíminn - 31.08.1962, Qupperneq 12

Tíminn - 31.08.1962, Qupperneq 12
ÍÞRDT MTSTJÓRI HALLUH SÍMONARSON Nýr úrslitaleikur Reykjavíkurmðtsins Aukaleikirnir í knattspyrn- unni hlaðast upp. í fyrrakvöld léku Fram og Valur leik sinn frá í vor í Reykjavíkurmótinu, það er leiknum, sem ekki tókst að ljúka þar sem annar línuvörðurinn hætti störfum í hálfleik Fram sigraði í leikn um með 1—0, en það þýðir, að KR og Fram eru jöfn að stigum og verða að leika að nýju til úrslita í mótinu. Fram sigraði í Reykjavíkurmótinu í fyrra. Ekki er gott að segja hvenær af þessum aukaleik getur orðið, en það verður sennilega ekki fyrr en íslandsmótinu er lokið, en síð- asti leikur þess á að fara fram 23. september millj Akraness og KR. Þó er hugsanlegt ef KR og Fram hafa enga möguleika lengur í íslandsmótinu eftir leikina 9. september, að leikurinn geti farið fram fyrr. Leikurinn í fyrrakvöld var heldur slakur knattspyrnulega séð. því lítið sást af skemmtileg- um samleik. Hins vegar var hraði á köflum mikill — og báðir mark- menn liðanna sýndu góða mark- vörzlu, og voru báðir greinilega of góðir fyrir slakar sóknarlínur liðanna, ei.ns og eina markið í leiknum gefur til kynna. Vals- menn voru skárri fyrri hálfleik- inn, þrátt fyrir það. að nokkra af beztu mönnum liðsins. vantaði t.d. Áma Njálsson, Ormar Skeggja son og Matthías Hjartarson. Þó tókst Valsmönnum ekki að skapa sér verulega góð marktækifæri. f síðari hálfleiknum snérust hlutirnir við. Þá voru Framarar miklu ákveðnari og tókst nokkr- um sinnum að komast í færi. Mark- ið lá í loftinu, en Framliðið hélt þó aðdáendum sínum volgum fram til hins síðasta, því aðeins rúm- um fimm mínútum fyrir leikslok tókst liðinu að skora sigurmarkið. Útherjinn Ásgeir Sigurðsson var þar ag verki méð föstu skoti af stuttu færi, sem lenti innan á stöng, í varnarleikmann Vals og þaðan í markið. Hjá Fram lék nýr miðherji að þessu sinni, ungur drengur úr 2. flokki, Baldvin Baldvinsson, en hann skoraði flest mörk 2. flokks Frara í Danmeirkurförinni. Bald- vin er fljótur og harðfylginn mið- herji en skortir enn betri knatt- meðferð. Mikill ávinningur er þó fyrir Fram af Baldvini, því að hann var beztur sóknarmannanna. Hins vegar virlist sem uppstilling framlínunnar hafi ekki verið rétt, þvf að Hallgrímur Scheving varð að víkja fyrir Baldvini, en Hall- grímur hefur þó verið einn skársti maður framlínunnar í sumar. Þenn an galla ættu Framarar ag laga fyrir leikinn við Akureyringa í ís- landsmótinu. Hjá Val lék Björn Júlíusson með að nýju og var allsterkur í vörninni, þrátt fyrir að hann hef- ur bætt á sig allt of mörgum kílóum frá því hann var einn efni- legasli varnarleikmaður okkar fyr ir tveimur árum. En Valsliðinu er mikill styrkur af Birni. Þá vakti einnig ungur piltur, Ásgeir Einarsson, talsverða athygli sem vinstri framvörður og virðist þessi leikur hans spá góðu um framtíð hans á knattspymusvið- inu. Dómari í leiknum var Magnús Pétursson, Þrótti, og dæmdi að venju vel. En staður var hann og | virðist — eins og Björn — hafa I bætt á sig nokkuð mörgum kílóu — og því liðtækur í betra lagi þungavigtina. islandsmeistarar FRAM 1962 — taka þeir þátt í Evróp ubikarkeppnlnnl í handknattleik. ramarar vilja vera með í vrdpubikarnum í handbolta — en gsáftfoka fíeirra í keppnínni hefur ennþá ekki verið tílkynnt. Keppnin hefsf i nóvember ur áfram Eins og skýrí hefur verið frá hefur ísienzkum hand- knattleiksmönnum verið boð- in þátttaka í Evrópuhikara- keppninni í handknattleik, sem hefst seinni hlutann í nóvember. Rétt íil þátttöku í | keppni þessari af IsTands hálfu hafa íslandsmeistararn- ; ir Fram. Nokkur mistök munu I hafa átt sér stað um að til- kynna Frömurunum frá keppninni, þannig að þeir fengu tilkynninguna ekki fyrr en viku eftir að þátttökutil- kynningarnar áttu að hafa Sorizt. Kostnaður við þátttöku í keppni sem þessari virðist ekki vera mik- ill, og myndu Framarar ekki þurfa að greiða nema lítinn íiluta ferða- kostnaðar, ef t. d. þeir myndu leika fyrsta leikinn úti. Hins vegar myndu Framarar þurfa að greiða mikinn hluta ferðakostnaðar liðs. er kæmi' hingað til keppni.’’ Til- högun keppninnar er þannig, að fyrsta umferð er einföld, og myndu þá einhver tvö þátttökulið draga um, hvort þau léku fyrsta leikinn heima eða heiman. Ef, svo færi, að Fram léki fyrsta leikinn hér heima, væri ekki úti- lokað, að þeir fengju liðið sem kæmi í heimsókn, til að leika hér nokkra aukaleiki til að standa fctraúm af kostnaðinum við ferðir iiðsins. Fullvíst má telja, að góð aðsókn myndi verða að þeim leikj um, enda eru einungis úrvalslið frá hverju landi, sem taka þátt í keppninni. Einn hængur virðist þó vera á, sem útilokað gæti þátt- töku íslands, en það er, að við höfum ekki upp á neinn löglegan leikvöll að bjóða. Uppfyllir hinn stóri leikvangur á Keflavíkurflug- velli, sem notaður hefur verið í leikjum við erlend lið, ekki þau skilyrði, sem gerð eru um stærð leikvallar í alþjóðlegri keppni. — Völlurinn á Keflavíkurflugvelli mun ná tilskilinni breidd, en vanta allt að 8—10 metrum á lengdina. Þetta sýnir okkur enn betur, við hve ófullkomnar aðstæð- ur við eigum að búa, því gamja húsið að Hálogalandi, þar sem fs- landsmótið í handknattleik fer fram, stenzt engan samanhurð að stærð við völlinn á Keúavíkurflug velli, sem þó vantar þetta upp á löglega stærð. Sennilegt má þó telja, að við fengjum undanþágu með að nota Keflavíkurflugvöllinn vegna sérstöðu okkar. En eins og fyrr segir, er þátt- tökufresturinn löngu útrunninn, og Framarar ekki búnir að senda þátttökutilkynningu. Er því ekki víst, að þeir fái. að taka þátt í keppninni, en fullur áhugi er af' þeirra hálfu að taka þátt í henni. A. Þ. Enn varð jafntefli VÍKINGUR og Breiðablik léku í fyrrakvöld öðru sinni í bikar- keppni Knattspyrnusambands ís- lands. Ekki fengust úrslit frekar að þessu sinni, því jafntefli varð, 3:3 og þurfa félögin því að leika þriðja leikinn, þar sem um útslátt- arkeppni er að ræða. Fyrsta leikn- um lauk á,n þess mark væri skor að — en í leiknum í fyrrakvöld, sem fór fram í Hafnarfirði, voru leikmenn beggja liða á skotskón- .um, því mörkin urðu ekki færn en sex og leikurinn all skemmtilegur í kvöld verður bikarkeppn- inni haldið áfrani og leika Valur B og Þróttur B á Mela- velli og hefst leikurinn klukk- an 7. Þessi lið áttust við fyrir nokkru og skildu jöfn, 4—4, eftir skemmtilegan leik. Það lið, sem sigrar, mun síðar leika gegn Keflvíkingum. Á laugardag leikur Fram B á Akranesi gegn ÍA B og hefst leik- urinn kl. 5. Er þetta fyrsti leikur- inn í 2. umferð, en vegna endur- tekins jafnteflis hjá Breiðabliki og Víking, fyrst 0:0 og síðan á mið- vikudag 3:3, verður leikur ÍBH gegn öðru hvoru þessara ]iða, að bíða. Um aðra helgi leikur KR B gegn Tý og fer sá leikur fram í Vest- mannaeyjum. Úrslit í landsmótunum Lokið er keppni í landsmótun- um í 3., 4. og 5. flokkum og fara úrslitaleikirnir í þessum mótum fram eftir helgina. Verða þeir all- ir leiknir á Melavelli. I 5. flokki leika Víkingur og Val ur mánudaginn 3. sept. og hefst leikurinn kl. 6,00. Strax á eftir leika í 4. flokki Víkingur og Fram. Á þriðjudag leika Valur og Fram til úrslita í 3. flokki og hefst leikurinn kl. 7,00. Hefinsia byrjar 1. sept Enska. þýzka franska danska. sænska hókfæ-rsls rpiVrúngur Harry Vilhelmsson Haðarstíg 22. Sími 18128 Mikilsverð mái bíða úrlausnar þings íþréttasambandsins ÞingiÓ verður 14. og 15. september. — Nýr forseti fyrir sambandió veróur kosinn íþróttaþing íþróttasambands íslands verður haldið í húsa- kynnum Slysavarnafélags ís- lands á Grandagarði í Reykja- vík, dagana 14. og 15 sept- ember n.k. Þingið verður sett kl. 4 e. h., föstudaginn 14. sept. af forseta íþróttasambandsins, Benedikt G Waage. A íþróttaþinginu munu itiæta fulltrúar héraðssambanda og sér- sambanda innan ÍSÍ, og er gert ráð fyrir mikilli þátttöku, vegna þeirra mikilsverðu mála er bíða úrlausnar þingsins, svo og sökuin þess að íþróttaþing þetta ber upp á 50 ára afmælisár íþróttasam- bandsins, en eins og kunnugt er, varð ÍSÍ 50 ára 28. janúar 1962. Auk fulltrúa munu ýmsir gestir sitja þingið. Dagskrá fþróttaþings ÍSÍ 1962 er þannig: j FÖSTUDAGINN 14 sept. kl. 4 e.h. 1 Þingsetning, forseti ÍSÍ. 2 Kosning 5 manna kjörbréfa- ' nefndar. 3. Kosning 1. og 2. þingforseta. 4. Kosning 1. og 2'. þingritara. 5. Lögð fram skýrsla framkvæmda stjórnarinnar. 6 Lagðir fram endurskoðaðir reikningar. 7 Umræður og fyrirspurnir um störf sambandsráðs og fram- kvæmdastjórnar. 8. Kosnar nefndir: a. Kjömefnd, þriggja manna. b. Fjárhagsnefnd, fimm manna. c. Allsherjarnefnd. fimm manna d Aðrar nefndir. 9 Teknar fyrir tillögur um mál. sem lögð hafa verið fyrir þing- Framhald á 15. síðu. 12 T I MI N N, föstudaginn 31. ágúst 1962

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.