Tíminn - 29.09.1962, Blaðsíða 1
Augfýsing í Tímanum
kemur daglega fyrír
auga vandlátra blaða-
lesenda um allt land.
Teki® er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræti 7, sími 19523
216. tbl. — Laugardagur 29. september 1962 — 46. árg.
Sfiasta blafl okhar ■
MYND hællir að koma út
sísw n
DAGBLAD DEYR
IÞG—Reykjavík, 28. sept.
Dagblaðið MYND, óháð—of-
ar flokkum, tilkynnti í dag að
þetta væri síðasta eintakið.
Banamein biaðsins er fjárhags-
skortur. Mynd fór myndarlega
af stað, og þótt vitað væri að
teflt væri á tæpt vað, hvað fjár
haginn snerti, bjóst enginn við
svo snöggum endalokum, eftir
aðeins 28 tölublöð.
Mynd átti strax í nokkrum
erfiðleikum með prentvél og
varð um tíma að koma út að
morgninum, þótt það ætti að
vera síðdegisblað. Færir blaða-
menn höfðu verið ráðnir til
þess í upphafi, er höfðu starf-
að á öðrum blöðum árum sam-
an. Mynd var sett upp af þýzkri
fyrirmynd og má vera að geng-
isleysi þess hafi m.a. stafað af
því, að lesendum hafi ekki lík-
að uppsetningin. Hvað um það,
dagblað er úr sögunni og þar
með tilraun, sem vakti athygli
fjöldans og átti gott skilið.
NATTURUFRÆÐI
VILJA FA
LUDWIG
ERHARD
NTB—Kirchheim, V-Þýzka-
Iandi, 28. sept.
Þingmenn Kristilegra demó-
krata í Bayern í Þýzkalandi
lýstu því yfir á þingfundi í dag,
að þeir hefðu útnefnt Ludwig
Erhard, uúverandi fjármálaráð
herra, sem eftirmann Adenau-
ers, kanzlara.
Adenauer, sem nú er 86 ára
að aldri, hefur lýst því yfir, að
hann muni draga sig í hlé með
góðum fyrirvara fyrir næstu
þingkosningar, sem verða ár-
ið 1965, til þess að eftirmaður
hans fái nægilegt tækifæri til
þess að kynna sér störf kanzl-
ara.
LUDWIG ERHARD
DEILD MA
STOFNUÐ?
KH—Reykjavík, 28. sept.
Menntaskólinn á Akureyri
gerir nú alvöru úr því í haust
að leggja niður miðskóla-
deildina, þannig að í vetur
verður enginn I. bekkur, að
ári verður enginn II. bekkur,
og að tveimur árum liðnum
verður miðskóladeildin sem
i sagt úr sögunni. Steindór
| Steindórsson vinnur nú að at-
hugun á möguleikum þess að
stofna náttúrufræðideild við
skólann.
Þörarinn Bjqrnsson, skólameist-
ari, sagði í stuttu viðtali við Tím-
ann í dag, að aðsókn væri alltaf
mjög mikil að skólanum, og ekki
væri unnt að veita nærri öllum
heimavist, sem þess óska. Nemend
ur í vetur verða alls um 450, og
er það svipað og í fyrra, enda
varla mögulegt að taka fleiri. ’ í
III. bekk verð'a nú tæplega 130
nemendur, sem skiptast í 5 deild-
ii, IV. bekkur verður fjórskiptur,
en V. og VI. bekkur hvor um sig
þrískiptur.
Búfræðinemar frá Hvanneyri
stunda nám við skólann í vetur.
Verða þeir í sérdeild og læra þar
II. og IV. bekkjar efni í íslenzku,
ensku, dönsku og stærðfræði.
1 heimavist vefða tæplega 180,
eða eins margt og unnt er að taka,
en við mötuneytið borða 230—40
manns, og varð mörgum frá að
vísa.
Ekkert hefur verið unnið að
byggingarmálum skólans í sum-
ar, að orð séu á gerandi, enda er
rkkert nýtt í vændum í þeim mál-
um.
Tveir fastir kennarar láta af
störfum í haust, þau Friðrika
Gestsdóttir og Skarphéðinn Pálma
son, en í þeirra stað hafa verið
ráðnir Friðrik Sigfússon og Helgi
Jónssoh. Stundakennarar hafa
verið ráðnir Hörður Kristinsson.
Hólmgeir Björnsson og séra Há-
kon Loftsson, sem kemur nú aftur
•?ð skólanum eftir nokkurt kennslu
hlé.
Steindór Steindórsson, náttúru-
fraeðikennari við M.A., er nú rétt
ókominn úr utanlandsför, þar sem
hann sat þing líffræðikeflnara í
Sviss. í leiðinni hafði hann áform-
að að koma við í Danmörku og
Noregi og kynna sér fyrirkomu-
lag náttúrufræðideilda við skóla
þar, en Steindór hefur lengi haft
áhuga á að koma slíkri deild á
við M.A.
Tíminn spurði Þórarin skóla-
meistara að lokum um álit hans
á því máli. — Jú. ég hef vissulega
áhuga á því, sagði Þórarinn. Slík
Framh. á 15. síðu
KEYRDU SKIPID
STJÚRNIADST
ER TADG BRASI
BÓ-Reykjavík, 28. sept.
Kl. rúmlega 10 ( gær-
kvöldi kom Jökulfellið á
yfri höfnina með Pétur
Ingjaldsson RE 378 í drætti
austan frá Hornafirði. Ferð
in tók 34 klukkustundir, en
báturinn slitnaði tvívegis
aftan úr á leiðinni, í seinna
sinnið f vonzkuveðri út af
Herdísarvík.
Pétur Ingjaldsson strandaði
í ósnum á Hornafirði 18._þ. m.,
en hann var þá að leggja af
stað með ísvarinn fisk í þriðju-
söluferð til Grimsby. Orsökin
var vélarbilun. Jökulfellið var
svo fengið til að taka Pétur í
drátt á miðvikudaginn, en það
var þá að koma frá Riga.
Blaðið hafði í gær tal af
Ólafi Stefánssyni, skipstjóra á
Pétri Ingjaldssyni. Ólafur
sagði, að lagt hefði verið af-
stað á hádegi á miðvikudaginn.
Báturinn var dreginn að Jökul-
fellinu, sem beið úti fyrir
Hornafirði. Stýrið hafði þá ver
ið tekið af bátnum, en aftan í
hann var bundin draga af
gúmmíhringjum til að betra
væri að halda stefnunni.
Veður var gott þegar lagt var
af stað, logn en dálítil alda, en
eftir tveggja tíma keyrslu slitn
aði taugin milli skipanna. Það
var á milli hlekkur í akkeris-
keðju Péturs, sem bilaði, en
dráttartaugin var fest við akk-
eriskeðjuna. Eftir rúmlega
hálftíma töf var búið að festa
taugina að nýju. Veðrið hélzt
gott allan þann dag og um nótt-
ÓLAFUR STEFÁNSSDN
ina, og bar ekkert til tíðinda
fyrr en á fimmtudagsmorgun-
inn.
Skipin voru stödd út af Her-
dísarvík, þegar taugin slitnaði
í annað sinn. Þá var komið
hvassviðri. Pétur Ingjaldsson
var tómur og Jökulfellið með
svo til enga hleðslu, svo bæði
ultu mikið í sjóganginum. Þeir
á Pétri settu þá vélina í gang
og reyndu að snúa skipinu und-
an, en það tókst ekki, þar sem
Framhald á 15. síðu.
PÉTUR INGJALDSSON. Myndin er tekin ef+ir að hann komst
200 ÞUS. FLÆMINGJAR GANGA
SJA 3. SIÐU