Tíminn - 29.09.1962, Síða 4
BUNDRAFÉL SELDI
FYRIR 727 ÞÚS. KR.
Aðalfundur Blindrafélags-
ins var haldinn 3. ágúst 1962,
að Hamrahlíð 19.
Gefin var skýrsla um störf og
rekstur 1961. Lagðir fram endux-
skoðaðir reikningar og þeir sam-
þykktir, og eru helztu niðurstöður
þessar: Hrein eign í árslok kr.
2.950.000, tekjuafgangur kr. 766
þús. Félagi'nu barst í gjöfum og
áheitum kr. 81 þús. og er þar í
kr. 50 þús. frá Samvinnutrygging-
um.
Þá afhenti félagsmálaráðuneytið
Blindrafélaginu til eignar gjöf
Torfhildar 'Þorsteinsdóttur Hólm
skáldkonu, er hún á sínum tíma
ánafnaði blindum mönnum á ís-,
landi. Gjöfin er kr. 126 þús. og
barst félaginu á dánardegi skáld-
konunnar 14. nóv. s. 1. Ákveðið
var, að ein íbúð Blindraheimilis-
inS beri nafn Torfhildar og hefur
félagið látið gera mynd af henni,
er sett hefur verið í íbúðina.
Auk þessa naut félagig styrks
FYRIR SKÖMMU afgreiddi BifreiSaumboS GarSars Gfsiasonar 208. Austin
Gipsy landbúnaðarjeppann, sem umboðið hefur selt frá þv! fyrir jól í
fyrra. Eigandinn er Árni Þórhallsson frá Kirkjubóli á Norðfirðl. Alls
hafa á fjórða hundrað pantanir borizt fyrirtækinu frá því Innflutningur frf R'ey\ya7íkuíbÖrg"Ög "Alþingi
hófst, og flestir bílanna hafa farlð í Eyjafjörð og á Akureyrl, en einnig veffbyggingarstyrk kr. 150 þús.
marglr á Austfirðt. Afgreiðslufrestur er tveir mánuðir, en verksmiðjurn- | sfgusfu fjárlögum. Fjárhagsaf-
ar f Bretlandi hafa vart undan að framleiða þessa tegund bifrelða fyrir koma ársins var því hagstæð, Og
brezka herinn. 1 var á árinu unnið áð því að ljúka s
■impíg-
Fréttir M landsbyggðinni
við það, sem á vantaði að hús'ið
væri fullgert, og er nú verið að
ljúka við loftræstingarkerfi í
vinnustofu, en eftir að setja lyftu
í húsið. Um áramót hafði félagið
varið ‘ til byggingarinnar um 3,5
miUj. kr.
Vörusala frá Blindravinnustofu
nam á árinu kr. 727 þús. og tekju
afgangur varð kr. 80 þús. í vinnu
stofunni eru hin ákjósanlegustu
starfsskilyrði og húsrými mikið,
svo að hægt er ag auka rnijög fjöl-
breytni í framleiðslu á næstu tím
um. Vinnuvélakostur jókst nokk-
uð á árinu, og verður bætt við
hann innan skamms. Hjá félaginu
starfa að meira eða minna leyti
12 blindir menn.
Fundurinn beindi ag lokum
miklu þakklæti til allra, sem veitt
hafa félaginu stuðning, bæði ein-
staklingum og opinberum aðilum.
Að sjálfsögðu bíða fjölmörg
verkefni, er leysa þarf á næstu
tímum, og áður en mjög langt um
líður mun þurfa að auka íbúðar-
húsnæði, og er því bygging á
seinni hluta- hússins það stærsta,
er fyrir liggur, en með hliðsjón
af því er þegar hefur verið fram-
kvæmt, og með tilliti til þess góð-
vilja og velvildar, er félagig hefur
notið alla tíð, eru félagsmenn
bjartsýnir á framtíðina.,
Blindrafélagig tók ásamt öðr-
um öryrkjafélögum í landinu þátt
í stofnun Öryrkjabandalags fs-
lands á árinu.
í stjóm voru kosnir: Margrét
Andrésdóttir, Rósa Guðmundsdótt
ir, Guðmundur Jóhannesson, Kr.
Guðmundur Guðmundsson og
Hannes M. Stephensen.
ANDLATSFREGN
manns. Áætlað er að slátra í því
sláturhúsi um 36 þúsund fjár.
Pilkar reynast,. það sem af er, í
góðu meðallagi.
Hjá Verzlunarfél. Skagfirðinga
hófst slátrun þann 15. þessa mán-
aðar og mun áætlað að slátra þar
um 12 þúsund fjár. — G.Ó.
lllviSri í göngum
Þórshöfn, 20. sept.
Slátrun hófst hér í morgun og
er áætlað að slátra hér um 14.500
fjár og er það með alflesta móti.
Ekki er hægt að segja enn þá með
neinni vissu, hvernig dilkarreynast
en senniLega verða þeir í með'al-
lagi. Hér er rífandi atvinna, má
segja að allir, sem vettlingi geta
valdið vinni nótt og dag, enda
veitir ekki af, því dýrt er örðið að
lifa.
Héðan róa nokkrir litlir dekk-
í sláturhúsinu vinna um hundrað bátar og trillubátar með línu og
hafa þeir aflað ágætlega undan-
farið'.
Gangnamenn fengu hið mesta
illviðri í göngunum um dáginn á
Hvammsheiði og Dalsheiði, nema
síðasta daginn. Úrkoman var að
vísu lítil, en veðurhæð mun hafa
verið 8—9 stig og frost um 10
stig. Fé var alls stað'ar í skjóli og
þjóðlegt efni. Um útgáfu þess sjá 1 vart sást kind á beit, en heimtur
þeir Jón R. Hjálmarsson, skóla-; munu þó sæmilegar.
Helgi Flóvents hæstur
Húsavík, 20. sept.
Sjö bátar voru gerð'ir út á síld-
veiðar héðan í sumar og eru þeir
allir hættir veiðum. Afláhæstir
voru Helgi Flóventsson með 25.
300 mál og tunnur og Náttfari með
17.500 mál og tunnur.
Hér var í sumar saltað í 10.613
tunnur á þremur söltunarstöðvum.
Mest var saltað á söltunarstöð
Kaupfélags Þingeyinga, 4125 tunn-
ur, hjá Barð'anum h.f. í 3688 tunn
ur og hjá Höfðaveri í 2800 tunnur.
Síldarbræðslan hér bræddi í sum-
ar 20.600 mál og í frystihúsi K.Þ.
voru fryst 87 tonn síldar. — Þ.J.
36 og 12 þúsund
Sauðárkróki, 20. sept.
Slátrun hófst hér hjá Kaupfé-
lagi Skagfirðinga hinn 12. sept og
er slátrað um 1400 fjár á dag, en
Nýtt tímarit um
þjóðleg efni
f nóvember mun koma á mark-
aðinn nýtt tímarit. Nefnist það'
Goðasteinn, og á að fjalla um
40 þúsund slátraó
Húsavík, 20. sept.
Haustslátrun hófst hjá Kaupfé-
lagi Þingeyinga á Húsavík 17. þ.
m. Áætlað er að slátra hér um 40
þúsund fjár, eða um þrem þúsund-
um fleira en í fyrra. Á Húsavík
verður slátrað um -34 þúsundum,
en í Flatey og á Ófeigsstöðum tæp-
um sex þúsundum.
Áætluð tala slátuifjár gefur
ekki tilefni til að álíta að bændur
ætli að fækka fé sínu almennt, þó
má búast við að einhverjir muni
þurfa að minnka bústofn sinn
vegna lélegrar sprettu og óþurrka
í sumar. — Þ.J.
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 4. júní
1. andaðist á sjúkrahúsi í Vict-
oria, B. C., Brandur Brandson
byggingameistari. Hann var fædd-
ur þar í borg 9. nóv. 1890 og bú-
settur þar að undanteknum nokkr-
um árum, er hann vann að húsa-
smíði í Burlingame í Kaliforníu. Á
stríðsárunum fyrri var hann und-
irforingi í kanadíska sjóhernum.
Foreldrar Brands voru Einar
Brandsson (f. 15. nóv. 1861, d. 25.
júní 1933) og kona hans, Sigríð-
ur Einarsdóttir (f. 9. júní 1859,
d. 6. nóv. .1928). Þau fluttust vest-
ur um haf til Norður-Dakota 1886,
en árið éftir til Victoria, B.C., og
áttu þar heima ævilangt. Foreldr-
ar Einars voru Brandur Einarssqn,
bóndj í Reynishjáleigu í Mýrdal
og Kristín Einarsdóttir kona hans;
en Sigríður var dóttir Einars
Bjarnasonar bónda á Hvoli í Mýr-
dal og Ingveldar Andrésdóttur
konu hans.
Brand Brandson lifa ekkja hans,
Muriel, ein dóttir, Linda, sem
stundar nám í Victoria College, og
ein systir, Margaret Jacobina, Mrs.
Richard Beck, Grand Forks, N.-
Dak. Enn fremur lætur Brandur
Heyskap er hér nú alls staðar
lokið eða að ljúka og er hann
langt undir meðallagi. — Ó.H.
Snjóaði í fjöll
Kópaskeri, 20. sept.
Haustslátrun er hafin fyrir
nokkru hjá kaupfélaginu hér og
er áætlað að slátra hér um 27.400
fjár. Dilkar hafa reynzt heldur
illa, meðalvigt er hálfu til heilu
kHói minni en í fyrra, en þá var
hún ekki meiri en í meðallagi.
Um helgina gerð'i hér vont veð-
ur og snjóaði í fjöll, en síðustu
daga hefur verið gott veður og
snjó tekið aftur upp. Heyskap er
hér nú að mestu lokið, þótt illa
koma út tvisvar á ári. Að þessu liti út fyrir skömmu, hefur rætzt
sinní kemur þó aðeins eitt hefti. úr síðustu dagana. — Þ.B.
stjóri í Skógum, og Þórður Tóm-
asson, safnvörður þar.
Tímaritinu er ætlað að flytja
ýmsan menningarsögulegan fróð-
leik, sem útgefendurnir telja, að'
síðustu forvöð séu nú í mörgum
tilfeUum, að bjarga. Einnig verða
í því greinar um bókmenntir og
sagnfræði, og svo Ijóð og lausa-
vísur.
Meginhluti efnisins verður að
öllum líkindum úr Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu, en einnig
verður tekið við efni frá öðrum
stöðum á landinu, og aðsendu efni
veitt viðtaka til birtingar.
Goðasteinn verður í Skírnis-
broti 50 tO 60 blaðsíður, og á að
22 íbúðarhús reist
ú Akureyri í sumar
ED-Akureyri, 27. sept.
Á þessu ári hafa verið byggð
3. prentsmiðjan
ER-Akureyri, 27. sept.
Hér er nú verið að setja upp
nýja prentsmið'ju og eru a. m. k.
fjórir prentarar komnir hingað að
sunnan, eða væntanlegir. Hin nýja
prentsmiðja nefnist Valprent h.f.
og eru eigendur fimm. Prent-
smiðjustjóri verður Valgarður Sig-
urðsson. Prentsmiðjan verður til
húsa í Gránufélagsgötu 4.
Prentsmiðjan hefur fengið
4 nýjar prentvélar frá V-Þýzka-
landi og mun aðallega annast smá
prent og umbúðaprentun, en mun
tii að byrja með ekki kaupa setj-
aravélar.
Hér voru fyrir starfandi tvær
rótgrónar prentsmiðjur, POB og
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
22 íbúðarhús á Akureyri. í þeim
erd 30 íbúðir. Auk þess er unnið
við ýmsar stærri byggingar fé-
laga, svo sem Tilraunastöð S. N. E.
a Rangárvöllum, Samkomu- og
verzlunarhús Akurs h.f. við Gler-
árgötu, stækkun á húsnæði Pósts-
c.g síma, Útvegsbankann, og hafin
er bygging bifreiðaverkstæðis við
Norðurgötu. Þá byggir KEA verzl
unarhús við Glerárgötu, Sjálfs-
bj'örg annan áfanga við félags-
heimili sitt við Hvannavelli og
Stengjasteypan h.f. byggir hús yf-
ir starfsemi sína.
Fataverksmiðjan Hekla er ný-
búin að taka 1 notkun stórbyggingu
og Veganesti h.f. hefur reist benz-
inafgreiðslu og verzlun við Hörg-
árgötu.
Þessar upplýsingar eru frá bygg-.
ingarfulltrúa Akureyrar, Jóni Geir
Ágústssyni.
eftir sig fjögur bræðrabörn (börn
Guðmundar Einars bróður hans):
Mrs. Ian Anderson, Nanaimo, B.C.;
Mrs. Brian Sessions, Victoria, B.
C.; James Einar Brandson, Van-
couver, B.C.; og William F. Brand-
son, Montreal, Quebec. Brandur
varð langlífastur fimm sona
þeirra Einars og Sigríðar Brands-
son. Tveir bræður hans, Kristján
eldri og Kristján yngri, dóu í
æsku; hinir voru Bjarni (d. 1951)
og Guðmundur Einar (d. 1956).
Brandur Brandson var prýðis-
vel gefinn og hagleiksmaður mik-
iR, bæði húsa- og bátasmiður,
er það til marks um smíðahæfi-
leika hans, að hann gerði ejálfur
uppdrættina að húsum þeim og
bátum, er hann smíðaði, og var
hann þó að miklu leyti sjálfmennt
aður .Hann var hógvær í lund, fá-
skiptinn um annarra hagi, en vel
metinn og vinsæll af þeim, er hon
um kynntust.
Jarðarför Brands fór fram föstu
daginn 8. júní frá útfararstofu
McCall Brothers í Victoria, að
viðstöddum hópi ættingja og vina.
Séra A. Calder jarðsöng og flutti
fögur kveðjumál. Brandur var#
iagður til hinztu hvíldar í Ross
Bay grafreitnum í Victoria, —
skammt frá hvílustað foreldra
hans og bræðra. En um langt
skeið hafði hann haft með hðnd-
um umsjón með upphleðslu leiða
og uppsetningu þar í grafreitn-
um, og þar hafði Einar faðir hans
verið grafreitsvörður áratugum
saman.
Svo kveð ég hinn prúða tengda-
bróður minn með eftirfarandi Ijóð
línum:
Ég sá þig aðeins einu sinni,
en yl ég fann í hendi þér,
er geymist síðan mér í minni,
sem morgunhlýja, er dagur ber.
Þér kveðju sendir systir þín,
og söm er líka kveðjan mín.
Richard Beck.
TÍMINN, laugardaginn 29. sept. 1962 —
I
I