Tíminn - 29.09.1962, Blaðsíða 5
ÍÞRDTTIR
Leika Fram og Valur
til úrslita á morgun?
Tveir þýðingarmiklir leikir
í íslandsmótinu í knattspyrnu,
I. deild, fara fram um helgina
og kann svo að fara að fáist
loksins úrslit í mótinu, en þó
má ekki mikið þt af bregða til
þess, að mótið geti enn staðið
vel fram á haustið. Eins og
staðan er nú, þá eru Valur
og Fram í efsta sæti með 13
stig og hafa lokið leikjum sín-
um, en Akurnesingar hafa 11
stig og eiga einn leik eftir,
gegn KR. Takist Ákurnesing-
um að sigra KR-inga blanda
þeir sér enn í baráttuna um
íslandsmástaratitilinn og
verða þá að leika að nýju við
Fram og Val.
Leikur KR og Akraness verður
í dag á Laugardalsvellinum og
hefst klukkan fjögur. Þessir gömlu
keppinautar berjast nú ekki inn-
byrðis um íslandsmeistaratitilinn
eins og síðustu fimm árin. KR
hefur enga möguleika til sigurs í
mótinu, en eins og áður segir geta
Akurnesingar náð Val og Fram
með því að sigra í dag.
— KR og Akranes leika í dag, og nái KR-ingar
stigi af Akurnesingum, verður leikur Fram
og Vals hreinn úrslitaleikur í ísiandsmótinu.
Leikurinn er því mikill baráttu-
leikur fyrir þá og ekkert nema
sigur getur bjargað deginum. En
Akurnesingar standa verr að vígi,
en s.l. sunnudag, þegar fresta varð
leik þessara liða vegna óveðurs.
Helgi Damelsson, markvörður
liðsins, er kominn til Skotlands og
mun leika þar sinn fyrsta leik í
dag í varaliði Motherwell, sem
leikur gegn Partich Thistle í
Glasgow. Helgi hefur aðeins þrí-
vegis verið fjarverandi úr marki
Skagamanna frá því 1956 og þeir
hafa því engan markvörð, sem
rokkra reynslu hefur í stærri leikj
um. Þetta getur orðið örlagaríkt
fyrir liðið gegn jafn góðu liði og
KR er á okkar mælikvarða. KR
hefur heldur ekki alveg sínu bezta
liði á að skipa, Gunnar Felixson,
markhæsti maður liðsins, leikur
ekki í dag, en hann er nú staddur
erlendis. Gunnar hefur skorað
nær helming af þeim mörkum,
sem KR-liðið hefur skorað í sum-
ar, og kann því svo að fara, að
hans verð'i saknað illilega því aðr-
ir framlínumenn hafa yfirleitt
ekki verið á skotskónum í sumar.
En hvað sem öllum bollalegging-
um líður, þás ætti leikurinn í dag
að minnsta kosti að geta orðið
skemmtilegur og líklegt að hinir
fjölmennu aðdáendur Akraness-
J’ðsins mæti vel í dag og hvetji
sína menn.
hvort félagið hljóti íslandsmeist-
aratitilinn 1962 verður hinn nýi
Islandsbikar afhentur í fyrsta
smn.
Valur
Fram
Á sunnudag leika svo Valur og
Fram. Leikurinn verður einnig á
Laugardalsvellinum og hefst kl.
fjögur. Ef KR hefur krækt í stig
gegn Akurnesingum verður þetta
hreinn úrslitaleikur — en þessi
lið hafa ekki barizt innbyrðis um
íslandsmeistaratitilinn síðustu 15
árin. Verði liðin jöfn að leik lokn-
um verður framlengt í tvisvar sinn
um fimmtán mínútur — það er að
segja, ef möguleikar Akraness eru
úr sögunni. Fáist úr því skorið
Danir irnnu
HoUendinga
Á miðvikudaginn léku Danmörk
og Holland landsleik í knattspyrnu
og var hann háður á Idretsparken
í Kaupmannahöfn. Danir unnu
meg 4—1 eftir að flestir menn
liðsins höfðu sýnt mjög
leik. Mörk þeirra skoruðu
ing Enoksen, tvö; Ole Madsen og
Carl Berthelsen. Enoksen misnot-
aði vítaspyrnu — spyrnti knettin-
um í þverslána. Þetta er fjórði sig
urleikur Dana í röð, þar sem þeir
hafa skorað 19 mörk gegn 4, sem
er mjög glæsileg markatala. Og
það merkilega er, að sömu leik-
menn hafa tekið þátt í öllum
leikjunum — en það hefur aldrei
komið fyrir áður, að sama lands-
lið léki fjóra leiki [ röð, en auð-
vitað á það mikinn þátt í árangr-
mum.
VESTMANNAEYJAR OG KEFLA-
VÍK I BIKARKEPPNINNI í DAG
Fyrsti leikur úrslitakeppninnar og fer hann
fram á Hafnarfjarðarvellinum kl. tvö.
Fyrsti Ieikurinn í úrslita-
keppni Bikarkeppni Knatt-
spyrnusambands íslands fer
fram í dag og leika þá Kefl-
víkingar við Vestmannaeying.a,
en Týr frá Vestmannaeyjum
hefur komið mjög á óvart '
keppninni og unnig þrjá Ieiki í
undankeppninni með saman
lögðum mörkum, tíu gegn
engu, og hafa þó ekki mætt
lakari liðum en meistaraflokki
Þróttar og B-liðUm KR og
Fram.
Keflvíkiugar liafa einnig unn
ið sína leiki í undankeppninni
með yfirburðum flesta — en
þess má geta, að þcir hafa unn
ið sér rétt til að leika j 1. deild
næsta sumar. Leikurinn í dag
verðUr á knattspyrnuve'Ilinum
í ifafnarfirði, og má búast við
skemmtilegum og jöfnum leik.
Ganwn verður að fylgjast með
því hvort utan deildanna —
því Vestmannaeyingar tóku
ekki þátt í deildakeppnjnni
surnar — leynist lið, sem gæf'
1. deildar liðunum ekkert eftir
En úr því fæst skorið i dag.
Hér er myndasería frá keppni
Liston og Piatterson — eða Öllu
frekar frá lokum kepipninnar. Á
efstu myndinni til vinstri hitlir
Liston keppinaut sinn með Vinstri
hnefa og slær liann út j kaðlana.
Síðan fylgir Liston eftir með
hægrj handar höggi, og lýkur
keppniuui með Vinstri hantlav
húkki. Síð'an sést Pattcrson falla
ifyrir fætur hins nýja meistara.
Þetta gekk svo fíjótt fyrir sig, að
áhorfendur höfðu varia áttað sig
fyrr en keppn'inni var lokið.
Gene Tunney,, hinn frægi heims-
meistari, sem dró sig til baka úr
hringnum 1920, ósigraður, sagði
eftir leikinn. „Keppnj eins og
þessi mun fljótlega dre>pa hnefa-
leikana. Patterson fór inn i hring-
inn dauð'hræddur — hann var svo
hræddur ag hann reyndi ekki einu
sinni að boxa. Og ef þeir mætast
aftur i hringnum mun samj fclut-
urinn ske“. Þetta aaigði hinn mikii
meistari Tunney, og hann veit á
reiðanlega hvað hamí syngur.
TÍMINN, Iaugardaginn 29. sept. 1962
5