Tíminn - 05.10.1962, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir
augu vandlátra blaða-
lesenda um allt land.
Tekið er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræti 7, simi 19523
221. tbl. — Föstudagur 5. okt. 1962 — 46. árg.
Ljósmyndari TIMANS, RE, tók þessa mynd inni í húsinu um hálf tólfley'fið í gaerkvöldi, þegar slökkviliðið
hafði að mestu ráðið niðurlögum eldsins. Slökkviliðs menn biðu samt viðbúnir til vonar og vara, ef eldur-
inn kynni að brjótast út að nýju.
NAUM BJORGUN
MB-Reykjavík, 4. okt. — Um
hálftíuleytið í kvöld varð vart við
eld í kjallara hússins nr. 34B við
Laugaveg, sem er tvflyft báru-1
járnsklætt timburhús á steyptum'
kjallara.
í kjallara hússins var lampa-
verkstæði, en á Iiæðunum fyrir
ofan bjuggu bræðurnir Ársæll og
Sigursteinn, synir Guðsteins Eyj-
ólfssonar klæðskera. Enginn var
heima á efri hæðinni, en Pálina
kona Ársæls, sem býr á neðri hæð-
inni, var í húsi tengdaföður síns
að þvo þvott. Skrapp hún yfir í
húsið, þar sem tvö börn hennar
sváfu, til þess að gá að hvernig
liði. Þegar þangað kom var allt
fullt af reyk og tókst henni með
herkjubrögðum að bjarga börnum
sínum út úr húsinu, og mun þar
ekki hafa mátt tæpara standa.
Börnin voru 5 og 7 ára.
Framh. á 15. síðu
DOMIFRESTAÐ
MB—Reykjavík, 4. okt.
Félagsdómur tck í dag að
nýju fyrir deilu Landssam-
bands íslenzkra verzlunar-
manna og Alþýðusambands
íslands um það, hvort LÍV ætti
heimtingu á því að verða að-
ili að ASÍ.
Landssamband íslenzkra verzl
unarmanna sótti um upptöku í
ASÍ fyrir Alþýðusambandsþingið
1960. Þá var inntaka þess felld
á þinginu samkvæmt tillögu
stjórnarinnar, vegna þess að skipu
lagsmál samtakanna væru enn í
deiglunni, eins og það var orðað.
Áður hafði Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur sótt um inngöngu
í ASÍ a.m.k. tvisvar sinnum, árin
1950 og 1954, en umsókn þeirra
hlaut lík örlög og umsókn LÍV.
LÍV kærði neitun Alþýðusam-
bandsþingsins árið 1960 fyrir Fé-
lagsdómi. Úrskurður Félagsdóms
varð á þá leið, að hann vísaði kröf
unni frá, að kröfu ASÍ, á þeirri
forsendu, að hann væri ekki bær
að fjalla um málið. í Félagsdómi
eiga sæti fimm menn og voru fjór
ir þeirra sammála um þessa niður
stöðu, en einn var á móti.
Ekki vildi LFV sætta sig við
þessi málalok. Dómi Félagsdóms
verður ekki áfrýjað til Hæsta-
réttar, en hins vegar er hægt að
kæra málsmeðferð þar fyrir
Hæstarétti. Þann hátt hafði LÍV
á og urðu úrslit mála þau fyrir
Hæstarétti, að hann fyrirskipaði
Félagsdómi afj kveða upp efnis-
dóm í málinu. Verður þess því
Framh. á 15. síðu
UTSVOR
í ÓEFNI
JK-Reykjavík, 4. okt.
Ágreiningurinn um, hvort
Reykjavík eða Akureyri beri
tekjuútsvarið af verksmiðjum
SÍS á Akureyri, hefur vakið
athygli manna á sérkennilegu
ákvæði í nýju útsvarslögun-
um. Þetta ákvæði getur haft
víðtækar afleiðingar, því víðs
vegar um land hafa félög og
fyrirtæki starfsemi á fleiri en
einum stað, og getur orðið
mikið álitamál, hvar eigi að
leggja útsvarið á.
Ákvæði þetta getur haft bein
áhrif á atvinnulífið, því að það
kemur misjafnt niður á sveitar-
félögum og yfirleitf á kostnað
hinna smærri en í þágu hinna
stærri. Einnig getur það orðið til
þess, að sveitarfélög setji hömlur
á annan atvinnurekstur hjá sér en
þann, sem er sérfyrirtæki á staðn-
um.
Ákvæði laganna um þetta er
svona: „Á aðra aðila, en einstak-
linga skal lagt í því sveitarfélagi,
þar sem aðalstarfsemi þeirra fer
fram. Þar i sveít skal útsvar
gjalda, sem það var á lagt, og í
hún allt útsvarið." „Eigi verður
útsvar lagt á aðila nema í einu
sveitarfélagi á sama ári.“
Margir útgerðarmenn hafa um-
svif á fleiri stöðum en einum.
Vestfirzkur útgerðarmaður legg-
ur á sumarsíldveiðunum e. t. v.
ýmist upp á Raufarhöfn eða á
Siglufirði. Á Suðurlandssfldiinni
leggja bátar hans e. t. v. upp á í
Akranesi, og annarri vertíð á ein-!
hverjum öðrum stað.
Nú segja ákvæði laganna, að
aðeins einum stað beri útsvar fyr-
irtækis. Hvaða stað ber það? Því
kauptúni á Vestfjörðum, þar sem
útgerðarmaðurinn er heimilisfast-
ur? Reykjavík, þar sem aðalskrif-
stofur fyrirtækisins eru? Eða því
plássi, þar sem mesta verðmætið
er lagt upp?
Nú hefur komið á daginn, ajð
víða um land hefur ekki verið lagt
á kaupfélögin í samræmi við nýju
lögin. Mörg kaupfélög hafa víða
útibú, og Tíminn hefur aflað sér
þeirra upplýsinga, að yfirleitt hef-
ur verið lagt á þau í hverju hrepps
félagi fyrir sig, eftir verzluninni
á staðnum. Selfosshreppur hefur
t.d. aðeins lagt útsvar á þann hluta
starfsemi Kaupfélags Árnesinga,
sem fer fram á Selfossi sjálfum.
Kaupfélag Héraðsbúa hefur
mikla starfsemi bæði á Reyðar-
firði og á Egilsstöðum, og þessir
Framh. á 15. síðu
RAÐHERRA
MISNOTAR
Fjármálaráðherra hefur nú skip
að marga skattstjóra eftir nýju
skattalögunum. Hefur ráðherrann
í því sambandi gert sig sekan um
stórfellda hlutdrægni og látið í
fleiru en einu dæmi pólitiskt of-
stæki ráða gerðum sínum.
f Austurlandsumdæmi gengur
ráðherra fram hjá Vilhjálmi Sig-
urbjörnssyni, skattstjóra í Nes-
kaupstað, sem gengt hefur skatt-
stjóraembætti með prýði og skip-
ar í staðinn fyrrverandi erindreka
Sjálfstæðisflokksins á Austur-
landi, sem ekkert hefur komið ná-
lægt skattamálum.
í Reykjanesumdæmi gengur ráð
herra framhjá þremur ágætum
skattstjórum, Eiríki Pálssyni í
Ilafnarfirði, Hilmari Péturssyni í
Keflavík og Guttormi Sigurbjörns-
syni í Kópavogi, og skipar reynslu
Iausan mann í embætti skattstjóra
Reykjanesumdæmis þess í stað.
— Pólitík enn og ranglæti.
I Suð-Vesturlandsumdæmi geng
ur ráðherra fram hjá Kristjáni
Jónssyni, sem rækt hefur skatt-
stjórastarfið með ágætum. Það má
teljast alveg nýlunda, að menn séu
sviptir stöðum sínum í opinberri
þjónustu og formbreyting ein not-
uð til að koma slíku í framkvæmd
— eins og hér er gert. Ranglæti
og pólitískt ofstæki þeirra Sjálf-
stæðismanna ríður ekki við ein-
teyming.
Félagsdómur í dómsal í gær. — Talið frá vinstri: Ragnar Ólafsson; Einar Baldvin Guðmundsson; Hákon Guðmundsson; Gunnlaugur Briem og Penedikt Sigurjóusson. __________________
-........................ (Ljósmynd: TfMINN—RE).,