Tíminn - 09.10.1962, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir
augu vandlátra blaða-
lesenda um allt land.
Tekid er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræti 7, sími 19523
225. tbl. — ÞriSjudagur 9. október 1962 — 46. árg.
DANSKA KIRKJAN
ER í STRÍÐIVIÐ
TK-Reykjavík, 8. okt.
Eins og mönnum er enn í
fersku minni gaf biskupinn yf
ir íslandi, herra Sigurbjörn
Einarsson, út bækling á veg-
um ÞjóSkirkjunnar í fyrra og
fjalfaði bæklingur þessi um
trúarboSskap og starfsaSferS-
ir trúflokksins „Votta Je-
hóva". Þessi bæklingur vakti
mikla athygli og umtal ásamt
meS blaSaskrifum oo umræS-
um í útvarni og sýndist sitt
hverjum. Ýmsum fannst hér
vegiS aS trúfrelsi landsmanna
og aS höft löqð á frelsi ma.nna
~ttt~aS boSa öSrurp skoSanir
sínar, en biskupinn, herra
Sigurbjörn Einarsson ráðlagði
mönnum, aS vísa áróðurs-
mönnum Votta Jehóva kurteis
lega en einarðlega á dyr.
Nú hefur danska þjóðkirkjan
farið að dæmi herra Sigurbjarnar
Einarssonar og sagt Vottum
Jehóva í Danmörku algert s.tríð á
hendur. Danska þjóðkirkjan hefur
nú ákveðið að láta gera fræðslu-
mynd um starfsemi Votta Jehóva,
er á að vara fólk við útsendurum
þessa trúflokks. Forystu um þessa
kvikmyndagerð hefur séra Har-
ald P. Madsen við Kaupmanna-
hafnardómkirkju og séra Paul
Vedel, prestur í Vendel, Agerup,
og mun hann semja kvikmynda-
handritið. Að þessari kvikmynda-
gerð. stendur einnig danska presta
félagið og landssambönd leik-
manna í Danmörku.
Þþtta er í fyrsta skipti, sem
danska þjóðkirkjan segir svo op-
inskátt trúflokki „stríð á hendur“.
Danska þjóðkirkjan færir þau rök
fyiir því, að ekki sé unnt lengur
að láta starfsemi þessa trúflokks
með öllu afskiptalausa, að Vottar
Jehóva séu hjónabandssþillar,
hafi spillt fjölda hjónabanda og
sundrað heimilum með því að
veiða ístöðulitla og sálarreikula í
Framh á 15. síðu
’*»■*«*r- f#ISÖ
UNGUR
BRETi
HVARF
BÓ-Reykjavík, 8. okt.
Rannsóknarlögreglunni hefur
verið tilkynnt hvarf 20 ára gam-
als Breta, George Drake a'ð nafni,
en hann fór frá heimili sínu, Álf-
heimum 21, um hádegi, mánudag
inn 1. Þ.m., án þess að gera ráð
fyrir óvenjulegyi fjarveru. Síðan
hefur ekkert til hans spurzt. —
George Drake er lítill vexti.
Hann var klædd'ur gráum jakka
fötum og hvítri skyrtu, er hann
fór að heiman. Drake talar sæmi
lega íslenzku. Þeir sem kynnu að
hafa orðið hans varir eftir fyrr-
greindan tíma, eru beðnir að
hafa samband við rannsóknarlög
regluna.
Blaðið hefur fengifi þær upp-
iýsingár, að George Drake sé af
I íslenzkri móður, en fæddur og
uppalinn erlendis. Hann er gift-
ur íslenzkri konu og á með henni
tvö börn. Hvarf hans var til-
kynnt rannsóknarlögreglunni
fyrst i dag, en aðstandendur
mannsins höfðu áður talað við
götulögregluna.
KH—Reykjavík, 8. október.
Samkvæmt upplýsingum
Magnúsar Gíslasonar, náms-
stjóra, hefur verið ákveðið að
starfrækja í vetur í tilrauna-
skyni sérstaka skóladeild, sem
kalla má millideild, því að
hún er ætluð sem millistig
milli II bekkjar unglingastigs-
ins og III bekkjar eða lands-
prófsdeildar. Verða í henni
unglingar, sem ekki hafa náð
tilskildri einkunn til fram-
haldsnáms upp úr II bekk, en
hafa þó hug á að halda áfram
námi.
Sagði Magnús, að lengi hefði
verið áhugi fyrir hendi á stofnun
slíkrar deildar, og á hverju ári
bærust fyrirspurnir unglinga um
möguleika á öðru tækifæri.
Um námsfyrirkomulag í milli-
deild er það að segja, að aðal-
áherzla verður lögð á íslenzku,
ensku, dönsku og reikning, og
verða þau fög bæði kennd sem
upprifjun II bekkjar námsefnis
Framh á 15 síðu
Þessi mynd er tekin af Walter
Schirra, geimkappa, er hann
var að stíga út úr geimhylki
sínu, eftir velheppnaðar hring
ferðir umhverfis jörð. Alls
ur'ðu þær sex talsins. Lending
in gckk með ágætum. Hér er
hann kominn um borð í beiti-
skipið, sem var fyrst á vett-
vang, til að taka hylkið um
borð. Á þriðju síðu erum við
með mynd af jörðinni, sem tek
in er úr geimfari.
VEIKJAST TIL
AÐ MÓTMÆLA ?
IGÞ-Reykjavík, 8. okt.
Áætlað flug Flugfélags ís-
lands til Akureyrar og Vest-
mannaeyja féll niður í gær
sökum veikinda fjögurrá flug-
manna og tveggja varamanna
Reykjavík, 8. okt. — Þessi litla telpa vaið vegavillt á hjólinu sínu
í dag. Hún leitaði á náðir lögreglunnar um tvö leytið og var hjá
þeim á stöðinni fram til klukkan hálf átta, en þá kom pabbi
hennar að sækja hana. Lögreglan Iét vita í útvarpinu, ag hún
væri hjá þeim. Ljósmyndari Tímans, GE, kom og tók þessa mynd,
um það bil er hún var að fara. Hún var hin kátasta litla tátan,
og fór á bak á hjólið sitt svo hægt væri að taka mynd af því líka.
Hún er ekki há í loftinu enn, og varla meira en þriggja ára.
þeirra. Blaðið spurðist fyrir
um það í dag hjá blaðafulltrúa
félagsins, hverju þessi veik-
indi sættu, en skýringin var
ekki á reiðum höndum, enda
mun trúnaðarlæknir félagsins
ekki hafa skoðað þá veiku til
að greina sjúkdóminn.
Tíminn reyndi eftir öðrum
leiðum að afla sér upplýsinga um
orsakir þess, að sex flugmenn
skyldu allt í einu fara í rúmið
meg Þeim afleiðingum, að áætlun
arferðir féllu niður. Hefur blaðið
það eftir heimildum, sem það tel
ur ekki ástæðu til ag véfengja,
að „veikindin" séu mótmælaað-
gerðir flugmanna gegn þeirri á-
kvörðun félagsins að víkja Sverri
Jónssyni, flugstjóra úr starfi, en
honum var sagt upp nú fyrir
skömmu.
Yfir tuttugu flugmenn eru
starfándi hjá flugfélaginu og
munu þeir velflestir samþykkir
mótmælaaðgerðum, eins og þeim
sem urðu i gær, unz félagið hef-
ur gefið upp ástæðu fyrir brott-
vikningu Sverris flugstjóra.
Ekki mun um það að ræða, að
þeir séu með mótmælum sínum,
það er veikindum, að krefjast
þess að félagið taki aftur uppsögn
sína og ráði Sverri á ný í starfið
heldur finnst þeim á skorta. að
Framh. á 15. síðu