Tíminn - 09.10.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.10.1962, Blaðsíða 3
ráttarvé Þeir verSa nú stöSugt fleiri, sem leggja ferS sína út í geiminn. Næsti áfanginn er aS sjálfsögSu tungliS, enda hafa tvær aSai geimþjóSirnar, Bandaríkjamenn og Rússar heitiS aS fara slíka för. Fjöldi mynda hefur veriS t'ekinn út í geimnum af jörSinni okkar. En til marks um þaS, aS geimfarar eru raunar ekki ýkja fjarri er sú staSreynd, aS enn hafa ekki borizt myndir, sem ná yfir alla jörS, þannig aS hún komi út eins og kringla. Enn eru þetta aSeins blettir og blettir af jörSinni, sem sjást, og bungulagaSir hlutar. Þessi mynd er tekin i mikilli hæS af strandlengju nokkurri, en skýjaflókar sýnast éins og bómullarnoSrar yfir landinu. SE-Egilsstaðir, 8. okt. Laust eftir kl, 5 á sunnu- daginn varS Axel Ágústsson, 13 ára drengur frá SeyðisfirSi, undir dráttarvél, sem valt í skurð á Finnsstöðum í Eiða- þinghá. Pilturinn mjaðmargrindarbrotn aði, rifbrotnaði, og talig var, að kambar á tveim hryggjarliðum hefðu laskazt. Haukur Magnússon héraðslæknir var kvaddur til, og pilturinn var svo fluttur i körfu í sjúkraskýlið á Egilsstöðum. — Laust eftir klukkan 9 um kvöld- i? var Björn Pálsson kominn að sækja hann, og á miðnætti var pilturinn kominn til Reykjavík- ur. Hann var fluttur á Lands- spítalann. Axel var gestkomandi á heim- ili Jóhanns Jóhannssonar bónda á Finnsstöðum. Slysið vildi til með þeim hætti, að Ferguson-, dráttarvél, sem Axel ók á skurðbarmi, valt og hvolfdist í skurðinn og Axel varð undir aurbrettinu. Hann hafði farið með syni bóndans og öðrum pilti á dráttarvélinni til að sækja eitt hvað á nýrækt. Sonur bónda ók drá.ttarvélinni af stað, en lét und an beiðni Axels um að fá að stýra. Hinir piltarnir tveir stóðu á beizlinu fyrir aftan Axel, þeg ar vélin hvolfdist: Þeir hrukku báðir aftur af og sakaði ekki. Líðan Axels er sögð eftir von- um, en meiðsli hans eru ekki fullkönnuð. Plötum stolið Á laugardagsnóttina var brotizt inn í heildsölu Eiríks Helgasonar í Mjóstræti 3 og stolið þar 100— 200 glymskrattaplötum. Á þeim voru mestmegnis danslög. OEIRDIR UT AF MATAR- SKORTI í RÚSSLANDI? Reykja- foss lask aöist í ásiglingu JK—Reykjavík, 8. okt. Reykjafoss lenti í ásigl- ingu við danskt skip í Kiel- arskurði á sunnudagskvöld- ið og laskaðist dálítið á bak- borða. Samkvæmt upplýsingum Eimskipafélagsins munu talsverðar skemmdir hafa orðið á skjólborði og stytt- um bakborðsmegin á Reykja fossi. Danska skipið, sem heitir Lemnos og er eign Sameinaða gufuskipafélags- ins, mun vera ábyrgt fyrir árekstrinum. Reykjafoss var á leið frá Framh. á 15. síðu NTB-Washington, 8. okt. Bandaríska utanríkisráðu- neytið hefur fengið tilkynn- ingu um, að óeirðir hafi átt sér stað í Rostov-héraðinu í Sovétríkjunum nú í ár. Allar fréttir af þessum atburðum eru mjög óljósar og erfitt að afla þeirra, en allt bendir til þess, að nokkurt mannfall hafi orðið í óeirðum þessum. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins hefur neitað að láta nokkuð frekara uppi að svo stöddu, en því hefur verig haldið fram opin- berlega, að vitneskja hafi borizt víða að um talsverðar óeirðir, þar sem nokkrir hafi látig lífið. Mestar óeirðir eiga að hafa orð ið í Novotsjerkassk, sem er iðnað arbær um 32 km. norðaustan við Rostov. Ástæðan til þeirra mun hafa verið óánægja íbúanna út af matarskorti og vegna verðhækk- ana á smjöri og kjöti. Tala þeirra, sem féllu, er álitin vera á milli 12 og 100, en fréttir eru mjög óljósar, eins og fyrr segir. Flestir óeirðarseggjjanna eru taldir hafa verið unglingar og stúdentar, en þeir munu vera um •sjötti hluti íbúa Novotsjerkassk. Ástæðan til þess, að ætlað er, að þeir hafi stofnað til óeirðanna, er sú, að 22. júlí var sett útgöngu bann á unglinga undir 16 ára aldri, og skal það standa í tvö ár. Rostov-héraðið hefur annars verið lokað útlendi'ngum í sumar. „LIFI LYÐVELDID“ HRÓPAD I JEMEN NTB—Sanaa, 8. október. Abdullah Sallal hershöfð- ingi hefur nú greinilega völd- in í Jemen í hendi sér, en hvarf Mohammed konungs er óupplýst sem fyrr segir í skeyti frá fréttaritara Reuters, sem trúlega er fyrsti fréttarit- arinn frá Vesturlöndum, sem komizt hefur inn í betta litla í konungsríki í sex ár. § Sallal var áður lífvarðarforingi' konungs, en hann hefur nú öll völd í Sanaa og Taiz, en báðar þess ar borgir eru höfuðstaðir ríkisins. Þó er ekki fyrir það að synja, að konungi hafi tekizt að flýja frá höll sinni í Sanaa og komast til æ>ttflokka, sem eru honum trúir norðar í landinu. Það eina, sem bendir til átaka í Sanaa, eru sprengjuskörð í höllinni og nær- bggjandi húsum. Sallal og fylgis menn hans fullyrða, að konungur- inn sé grafinn undir hallarrústun- um, en þrír fréttamenn frá Vest- urlöndum, sem hafa dvalizt í Sanaa undanfarna þrjá daga, þykjast ekki hafa fengið sannanir til stuðn iogs þessari fullyrðingu. Aðeins tvær efstu hæðir hallar- innar eru eyðilagðar og því heldur ótrúlegt að Mohammed kóngur sé g>-afinn í rústunum. Annars bend- ir flest til, að uppreisnin hafi heppnast og að þjóð'in styðji nýju stjórnina. Fátt bendir til, að fregn ir um gagnbyltingu hafi við rök eð styðjast, og fréttamennirnir Framh. á 15. síðu Óp undir {trumuræðu NTB-New York, 8. okt. — Dorticos Kúbuforseti flntt'i þrumuræðu gegn USA á a'llsherjarþingi S. Þ. í kvöld. Ræð.a hans dnikknaði hvað § eftir aunað í ópum frá áhorf endapölíunum og urðu þin.g verö'irnir að kasta mörgum þeirra út. Fulltrúav komm- únistaríkjanna klöppuðu hi.ns vegar ákaft. Alsír einróma í S. Þ. NTB-New York, 8. okt. — Alsír var í dag samþykkt í Sameinuðu þjóðirnar með samhljóða atkvæðum- allra ríkjanna. FuIItrúi Frakk- Iands bauð' síðan Alsír vel- komið í samtökin. Mótmæli í Beriín NTB-Berlín, 8. okt. — Vesturveldin mótmæltu í dag hinu grófa broti á her- námssamkomulaiginu j Ber- lín, er brezkur sjúkravagn var hindraður í að fara særð um flóttainanni til hjáLpar við múrinn á Iaugardaginn var. Uganda sjálfstætt NTB-Kampala, 8. okt. — Ugainda verður sjálfstætt ríki I nótt, og er þá hið 33. í röðinni af Afríkuríkjum. Heath ræðir vi@ E8E NTB-Bruxelles, 8. okt. — Viðræður Heath, efnahags- bandalagsráðherra Bret- lands, við ráðherranefnd bandal.agsi.ns hófust aftur í dag og kynntj Heath þá hina nýju afstöðu Breta eft ir Samveldisfundinn á dö>g- unum. Ráðhernar sexveld- anna tóku ekki strax afstöðu til ræðu Heaths, en ákveðið. var að hálda þrjá egla fjóra ráðherrafundi um málið fyrir jól. Börn í vopnabirgóir NTB-Moirana, 8. okt. — 15 norskir hermenn fóru í dag til Nord-Rana í Noregi til þess að f jarjægja gamlar þýzkar vopnabirgðir, sem börn höfðu fundlð og flutt inn í m’itt þorpið á hjólbör- um. Ofboðslegt fap B0AG NTB-Lo.ndon, 8. okt. — Brezka flugfélagið BOAC tapaði nú á einu ári sem svarar nær 2000 milljónum íslenzkra króna, aðallega vegna óhagstæðs Atlants- hafsflugs. fÍMINN, þriðjudagurinn 9. okt. 1902. — N. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.