Tíminn - 11.10.1962, Page 1

Tíminn - 11.10.1962, Page 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrír augu vandláfra biaða- lesenda um allt land. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 i Banka- stræti 7, sími 19523 r’ FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ FYRIR ÁRIÐ 1963 LAGT FRAM Á ALÞINGIIGÆR: Á setningarfundi Alþingis í gær var fjárlagafrumvarp fyrir árið 1963 lagt fram. Eru þetta hæstu fjárlög, sem lögð hafa verið fram og komin yf- ir 2 milljarða en samt eiga framlög nýrra framkvæmda að minnka miðað við aukinn tilkostnað vegna dýrtíðarinn- ar og heildarhækkun fjár- laga. ★ Heildarútgjöld fjárlaga nema 2 milljörðum og 126 þús. krónum og hækka um 378 milljónir frá gildandi fjárlögum. ★ Frumvarpið gerir ráð fyr- ir að öllum tolla- og skatta- álögum verði haldið og þar á meðal innflutningssölu- skattinum nýja, sem heitið var að aðeins skvldi verða til bráðabirgða (259 millj.) Fjárlögin hafa nú með þessu frumvaroi hækkað um 1 milliarð oq 244 milljónir síðan 1958 og er þá reiknað með útgjöldun- um, það sem var notað í niðurqreiðslur utan fjár- laga 1958 og tölurnar með því gerðar sambærilegar. ★ Embættiskerfið þenst út. ★ Verklegar framkvæmdir eiga enn að minnka sam- kvæmt frumvarpinu, mið- TK-Reykjavík, 10. okt. — Alþingi var sett í dag. Þingsetningarathöfn- in hófst meS guSsþjónustu í Dóm- kirkjunni kl. 13,30. Séra Emil Björns son prédikaSi. AS guSsþjónustunni lokinni gengu þingmenn til Alþingis hússins og er myndin tekin viS þaS tækifæri. Forseti íslands las upp forsetabréf um samkomudag Alþing is og siðan tók Gísll Jónsson, aldurs forseti þlngslns viS forsetastörfum Minntist hann tveggja fyrrverandi alþingismanna, sem látizt hafa frá síSustu þingslitum, þeirra Jóns Kjartanssonar sýslumanns og Er- lings Friðjónssonar, fyrrum kaup- félagsstjóra á Akureyri. Risu þing- menn úr sætum og vottuðu þannig hinum látnu virðingu sína. Þá var þingheimi skipt i kjördeildir og rannsökuð kjörbréf þriggja vara. þingmanna, er nú taka sæti á Al- þingi. Ragnar Guðleifsson tekur sæti Emils Jónssonar, sem nú dvelst erlendis; Björn Þórarinsson, bóndi í Kýlakoti tekur sæti Jónasar G. Rafnar, og Sigurður Bjarnason tek- ur sæti Atfreðs Gíslasonar í Kefla- vík. Kjörbréf varamanna voru sam- þykkt samhljóða og undirrituðu þeir Björn Þórarinsson og Ragnar Guðleifsson eiðstafinn, þvi þetta er I fyrsta sinni að þeir taka sæti á Alþíngi. Að þessu loknu var fundi slitið og boðað til næsta fundar kl. 13,30 á morgun, en þá fer fram kjör forseta þingsins og starfs- manna. (Ljósm.: Tíminn—RE). Verkamenn á Akureyri segja upp samningum MB — Reykjavík, 10. okt. Tvö stærstu verkalýös- félögin á Akureyri, Verka mannafélag Akureyrar- kaupstaðar og Iðja, félag verksmiðjufólks, hafa nú fyrir skömmu sagt upp kaupgjaldsákvæðum kjarasamninganna. Síðastliðinn föstudag og laug- ardag fór fram allsherjaratkvæða greiðsla í Verkamannafélagi Ak- m-ovrarkaupstaðar um það, hvort segja ætti upp kaupgjaldsákvæð- um samninga. Var þar samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða, 68 atkvæðum gegn 6, að segja þeim upp. Á sunnudaginn hélt Iðja, félag verksmiðjufólks svo félagsfund um þetta sama mál og var þar einnig samþykkt að segja samn- ingunum upp. Blaðið átti í kvöld tal við Jón Ingimarsson, formann Iðju, og spurði hann, hverjar kaupkröfur væru. „Það er ekki enn búið að ganga frá þeim,“ sagði Jón, „en við munum leggja þær fram innan hálfs mánaðar, og ég reikna með því, að hið sama gildi um verka- mennina. Við teljum okkur nauð- synlegt að sporna eitthvað við áhrifum dýrtíðarinnar frá því að við sömdum i júni sl. Samkvæmt samningunum eru kaupgjalds- ákvæðin uppsegjanleg, ef vísital- an hækkar um fimm stig til 1. desember eða sjö stig til 1. júní. Hún hefur þegar hækkað um sex stig, og okkur hérna finnst þessi sex stig eins slæm og tólf stig voru, samkvæmt gömlu vísitöl- unni.“ Þá átti blaðið einnig tal við Eðvarfj Sigurðsson, form. Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar í Reykjavík í kvöld. Eðvarð kvað þessi mál hafa verið til umræðu innan félagsins að undanförnu, en engin ákvörðun hefði enn verið tekin um þetta mál, enda hefði það ekki verið rætt á félagsfundi. Ákvörðun um þetta mál yrði vænt anlega tekin nú allra næstu daga. Sanimingar verkalýðsfólaganna eru uppsegjanlegir með eins mán aðar fresti. Sé þeim því sagt upp nú um miðjan mánuðinn, renna Þeir út um miðjan nóvember og eftir þann tíma getur verkfall skollið á fyrirvaralaust, ef nýir samningar verða ekki gerðir. að við aukinn tilkostnað vegna dýrtíðarinnar og heildarhaekkun fjárlaga og eru margir framkvæmda- liðir óbreyttir að krónu- tölu í frumvarpinu, t.d. framlög til nýrra vega og brúa. ir Ekkert er áætlað í frum- varpinu til að mæta launa- hækkun opinberra starfs- manna, sem koma eiga til framkvæmda frá 1. júlí n.k. ir 5kattar og tollar til ríkis- sjóðs hafa skv. fjárlaga- frumvarpinu hækkað um 1 milljarð og 87 milljónir síðan 1958, þ. e. úr tæpum 700 milljónum í 1 milljarð og 785 milljónir og þá enn í því dæmi tekið með það, sem notað var í niður- qreiðslur utan fjárlaga 1958 og tölurnar þar með gerðar sambærilegar. *

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.