Tíminn - 11.10.1962, Qupperneq 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrír
augu vandláfra biaða-
lesenda um allt land.
Tekið er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 i Banka-
stræti 7, sími 19523 r’
FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ FYRIR ÁRIÐ 1963 LAGT
FRAM Á ALÞINGIIGÆR:
Á setningarfundi Alþingis
í gær var fjárlagafrumvarp
fyrir árið 1963 lagt fram. Eru
þetta hæstu fjárlög, sem lögð
hafa verið fram og komin yf-
ir 2 milljarða en samt eiga
framlög nýrra framkvæmda
að minnka miðað við aukinn
tilkostnað vegna dýrtíðarinn-
ar og heildarhækkun fjár-
laga.
★ Heildarútgjöld fjárlaga
nema 2 milljörðum og 126
þús. krónum og hækka um
378 milljónir frá gildandi
fjárlögum.
★ Frumvarpið gerir ráð fyr-
ir að öllum tolla- og skatta-
álögum verði haldið og þar
á meðal innflutningssölu-
skattinum nýja, sem heitið
var að aðeins skvldi verða
til bráðabirgða (259 millj.)
Fjárlögin hafa nú með
þessu frumvaroi hækkað
um 1 milliarð oq 244
milljónir síðan 1958 og er
þá reiknað með útgjöldun-
um, það sem var notað í
niðurqreiðslur utan fjár-
laga 1958 og tölurnar með
því gerðar sambærilegar.
★ Embættiskerfið þenst út.
★ Verklegar framkvæmdir
eiga enn að minnka sam-
kvæmt frumvarpinu, mið-
TK-Reykjavík, 10. okt. — Alþingi
var sett í dag. Þingsetningarathöfn-
in hófst meS guSsþjónustu í Dóm-
kirkjunni kl. 13,30. Séra Emil Björns
son prédikaSi. AS guSsþjónustunni
lokinni gengu þingmenn til Alþingis
hússins og er myndin tekin viS þaS
tækifæri. Forseti íslands las upp
forsetabréf um samkomudag Alþing
is og siðan tók Gísll Jónsson, aldurs
forseti þlngslns viS forsetastörfum
Minntist hann tveggja fyrrverandi
alþingismanna, sem látizt hafa frá
síSustu þingslitum, þeirra Jóns
Kjartanssonar sýslumanns og Er-
lings Friðjónssonar, fyrrum kaup-
félagsstjóra á Akureyri. Risu þing-
menn úr sætum og vottuðu þannig
hinum látnu virðingu sína. Þá var
þingheimi skipt i kjördeildir og
rannsökuð kjörbréf þriggja vara.
þingmanna, er nú taka sæti á Al-
þingi. Ragnar Guðleifsson tekur
sæti Emils Jónssonar, sem nú dvelst
erlendis; Björn Þórarinsson, bóndi
í Kýlakoti tekur sæti Jónasar G.
Rafnar, og Sigurður Bjarnason tek-
ur sæti Atfreðs Gíslasonar í Kefla-
vík. Kjörbréf varamanna voru sam-
þykkt samhljóða og undirrituðu
þeir Björn Þórarinsson og Ragnar
Guðleifsson eiðstafinn, þvi þetta er
I fyrsta sinni að þeir taka sæti á
Alþíngi. Að þessu loknu var fundi
slitið og boðað til næsta fundar kl.
13,30 á morgun, en þá fer fram
kjör forseta þingsins og starfs-
manna.
(Ljósm.: Tíminn—RE).
Verkamenn á Akureyri
segja upp samningum
MB — Reykjavík, 10. okt.
Tvö stærstu verkalýös-
félögin á Akureyri, Verka
mannafélag Akureyrar-
kaupstaðar og Iðja, félag
verksmiðjufólks, hafa nú
fyrir skömmu sagt upp
kaupgjaldsákvæðum
kjarasamninganna.
Síðastliðinn föstudag og laug-
ardag fór fram allsherjaratkvæða
greiðsla í Verkamannafélagi Ak-
m-ovrarkaupstaðar um það, hvort
segja ætti upp kaupgjaldsákvæð-
um samninga. Var þar samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða, 68 atkvæðum gegn 6, að
segja þeim upp.
Á sunnudaginn hélt Iðja, félag
verksmiðjufólks svo félagsfund
um þetta sama mál og var þar
einnig samþykkt að segja samn-
ingunum upp.
Blaðið átti í kvöld tal við Jón
Ingimarsson, formann Iðju, og
spurði hann, hverjar kaupkröfur
væru.
„Það er ekki enn búið að ganga
frá þeim,“ sagði Jón, „en við
munum leggja þær fram innan
hálfs mánaðar, og ég reikna með
því, að hið sama gildi um verka-
mennina. Við teljum okkur nauð-
synlegt að sporna eitthvað við
áhrifum dýrtíðarinnar frá því að
við sömdum i júni sl. Samkvæmt
samningunum eru kaupgjalds-
ákvæðin uppsegjanleg, ef vísital-
an hækkar um fimm stig til 1.
desember eða sjö stig til 1. júní.
Hún hefur þegar hækkað um sex
stig, og okkur hérna finnst þessi
sex stig eins slæm og tólf stig
voru, samkvæmt gömlu vísitöl-
unni.“
Þá átti blaðið einnig tal við
Eðvarfj Sigurðsson, form. Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar í
Reykjavík í kvöld. Eðvarð kvað
þessi mál hafa verið til umræðu
innan félagsins að undanförnu, en
engin ákvörðun hefði enn verið
tekin um þetta mál, enda hefði
það ekki verið rætt á félagsfundi.
Ákvörðun um þetta mál yrði vænt
anlega tekin nú allra næstu daga.
Sanimingar verkalýðsfólaganna
eru uppsegjanlegir með eins mán
aðar fresti. Sé þeim því sagt upp
nú um miðjan mánuðinn, renna
Þeir út um miðjan nóvember og
eftir þann tíma getur verkfall
skollið á fyrirvaralaust, ef nýir
samningar verða ekki gerðir.
að við aukinn tilkostnað
vegna dýrtíðarinnar og
heildarhaekkun fjárlaga og
eru margir framkvæmda-
liðir óbreyttir að krónu-
tölu í frumvarpinu, t.d.
framlög til nýrra vega og
brúa.
ir Ekkert er áætlað í frum-
varpinu til að mæta launa-
hækkun opinberra starfs-
manna, sem koma eiga til
framkvæmda frá 1. júlí
n.k.
ir 5kattar og tollar til ríkis-
sjóðs hafa skv. fjárlaga-
frumvarpinu hækkað um
1 milljarð og 87 milljónir
síðan 1958, þ. e. úr tæpum
700 milljónum í 1 milljarð
og 785 milljónir og þá enn
í því dæmi tekið með það,
sem notað var í niður-
qreiðslur utan fjárlaga
1958 og tölurnar þar með
gerðar sambærilegar.
*