Tíminn - 12.10.1962, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs-
ingastjóri: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu-
húsinu. Afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur í Banka-
stræti 7. Símar: 18300—18305. — Auglýsingasími: 19523. Af.
greiðslusími 12323. — Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h.f. —
Verðbólguvottorð
Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1963 hefur verið lagt
fram, og er það að sjálfsögðu mikilvægur atburður, enda
gefur fjárlagafrumvarp jafnan góða vísbendingu um
tvennt, sem borgarar landsins hljóta að láta sig miklu
skipta:
1, Á tölum fjárlagafrumvarpsins má gerla sjá í höfuð-
dráttum hver áhrif stjórnarstefna og stjórnarathafnir
hafa haft á fjárhagskerfi landsins og þjóðarhag á því
ári, sem er að líða.
2. Það segir til um það, hver er stefna og fyrirætlanir
stjórnarinnar á komandi ári.
Ef litið er til þess, sem frumvarpið segir okkur um
fyrra atriðið, nemum við fyrst staðar við það, að niður-
stöðutölur þess eru 2126 milljónir króna, og fara íslenzk
fjárlög þá í fyrsta sinn yfir 2 milljarða, og hafa hækkað
úr 1752 millj. frá næstu fjárlögum á undan og um meira
en helming, eða 1,2 miljarða, í tíð þessarar ríkisstjórnar
síðan 1958.Er þafi mesta hækkun, sem sögur fara af á
jafnskömmum tíma.
Þessar tölur — ekki sízt síðasta hækkunin — staðfesta
þá staðreynd, að hér ríkir nú sívaxandi dýrtíð og verð-
bólga. Tölur fjárlaga eru nú sem fyrr örugg vísitala um
þetta. Þetta var einmitt það, sem ríkisstjórnin hét að
stöðva, en undir lok kjörtímabilsins sannar hún sjálf
með fjárlögum sínum, ekki aðeins það, að þetta hafi með
öllu mistekizt, heldur einnig, að verðbólguþróunin er
hraðvaxandi, svo að heita má að nú sé allt komið úr
böndum í þessu efni.
í öðru lagi hljóta menn að staðnæmast við það, að
innflutningssöluskatturinn, sem lýst var yfir að skyldi
verða til bráðabirgða, og heitið að afnema, er enn við
lýði og á að afla ríkissjóði 259 milljóna á næsta ári. Þetta
er votforð um alvarlegar brigðir.
í þriðja lagi hlýtur talan 1785,6 milli. kr. að stinga í
augu — það eru skattar, skyldur og tollar þjóðarinnar til
ríkissjóðs — og hafa hækkað um rúman milljarð síðan
1958 — í þessari stjórnartíð>. Eitt helzta loforð þessarar
stjórnar var að lækka skatta og skyldur á fólki, og
stjórnin hefur síðan sýknt og heilagt klifað á því, að þetta
hafi hún gert í ríkum mæli. En menn munu spyrja: Hvern-
ig geta skattar manna lækkað, þegar heildarupphæð
þeirra á fjárlögum hefur meira en tvöfaldazt? Hér blasir
við annað staðreyndarvottorð um það, að allt fleipur
stjórnarinnar um skattalækkun á fólki er ekki aðeins
staðlausir stafir, heldur öfugmæli.
Sé litið á síðara atriðið, sem nefnt var í upphafi, eru
þessi einkenni frumvarpsins einna skýrust:
1. Ekkert lát verður á samdrættinum i verklegum fram-
kvæmdum ríkisins, þær eiga enn að minnka. Margir
helztu framkvæmdaliðir eru óbreyttir að krónutölu þrátt
fyrir stórhækkaðan framkvæmdakostnað. Má í því sam-
bandi nefna óbreytt framlög til vega og brúa, og er slíkt
einna hatrammlegast. Benzín- og bifreiðaskattar stórauk-
ast hins vegar og bilið milli þeirra ríkistekna og vega-
fjárins breikkar enn.
2. Embættiskerfi ríkisins þenst út og þar með allur
kostnaður ríkisins, þrátt fyrir loforð um meiri hagkvæmni
í ríkisrekstri.
3. Þrátt fyrir risatölurnar eru áætlanir um kostnað
augsýnilega óraunhæfar, t .d. má nefna, að ekkert er
áætlað til að mæta launahækkunum opinberra starfs-
manna, en þær eiga að koma til framkvæmda 1. júlí n.k
Hér hefur verið drepið á fáein atriði og staðreyndir,
sem fjárlagafrumvarpið staðfestir. Það blasir óumdeil-
anlega við, að hér er um að ræða mestu verðbólgu-
fjárlög, sem þjóðinni hafa nokkurn tíma verið sýnd —
afleiðing óðadýrtíðar og hraðvaxandi verðbó'cw sem
nú flæðir um þjóðina — og stíflumeistarana sjálfa.
Fólk, sem talað er um
FÁIR atburðir á þessu ári hafa
vakið meiri athygli en átökin
um skóliavist b'iökkumannsins
James H. Meredith í Oxford í
Mississipipi ,svo oig endalok þess
máls. Almennt mun talið, að
Kennedy Bandaríkjaforseti
hafi komið þar fram af skyn-
semi og festu, sem leitt hafi til
þess, að mikilvægur áfangi á
leiðinni til jafnréttis hvítra og
svartru hafi náðst. Að vísu kost-
aði þetta a.m.k. tvö mannslíf,
en varla er við því að búast, að
slíkir áfangar náist í þessu
mikla hitamál'i án fórna. Þess-
ar myndir eru úr nýútkomnu
Time oig eru frá átökunum.
Efsta myndin sýnir bandiaríska
samveldishcrmenn verjast að-
iSQikn múgsins. Þeir beita tára-
gasi. Myndin hér á miðri síð-
unni er af James H. Meredith,
þar sem lrann cr að Iáta innrita
sig í háskó'lann og undirritar
háskólaskuldbindingu sínia. —
Neðsta myndin sýnir menn,
sem særzt haf.a í upþotinu, og
eru hjálparsve'itir hersins að
búa um meið'sl þeirra.
Eins og mörg undanfarin ári
hefur Íslenzk-ameríska félag-í
ið milligöngu um útvegun
námssfyrkja til Bandaríkj-
anna. Er hér um tvenns kon-j
ar styrki að ræða:
Annars vegar eru styrkir fyrir
íslenzka framhaldsskólanemendur
til eins árs náms við bandaríska
menntaskóla á skólaárinu 1963—
1964 á vegum American Field Ser-
vice. Styrkir þessir nema skóla-
gjöldum, húsnæði, fæði. sjúkra-
kostnaði og ferðalögum innan
Bandaiikjanna, en nemendur búa
hjá bandariskum fjölskyldum í
námunda við viðkomandi skóla.
Ætiazt er til, að þeir. er styrkina
hljóta, greiði sjálfir ferðakostnað
frá íslandi til New York og heim
Námsstyrkir í Bandaríkjunum
aftur. Ennfremur þurfa þeir að
sjá sér fyrir einhverjum vasapen-
ingum. Umsækjendur um þessa
styrki skulu vera framhaldsskóla-
nemendur á aldrinum 16 til 18 ára,
jafnt piltar sem stúlkur. Þeir
þurfa að hafa góða námshæfi-
leika, prúða framkomu, vera vel
hraustir og hafa nokkurt vald á
enskri tungu. Á þessu hausti fóru
17 námsmenn tii Bandaríkjanna
til eins árs dvalar, en frá því er
styrkir þessir voru fyrst veittir
fyrir sex árum. hefur alls 71 ís-
lenzkur framháldsskólanemandi
hlotið s'yrkina til náms við banda
ríska menntaskóla á vegum fé-
lagsins.
Hins vegar eru námsstyrkir
fyrir íslenzka stúdenta til náms
við bandariska háskóla, en ís-
lenzk-ameríska félagið hefur um
mörg undanfarin ár haft samband
við stofnun þá i Bandaríkjunum
Institúte of International Edu
cation, er annast fyrirgreiðslu
um útvegun námsstyrkja fyrir er
lenda stúdenta, er hyggja á há
skólanám vestan hafs. Styrkjr
þessir eru veittir af ýmsum há-
skólum í Bandaríkjunum, og eru
mismunandi, nema skólagjöldum
og/eða húsnæfii og fæði. o.s.frv
Styrkirnir eru eiiigöngu ætlaðn
námsmönnum, er ekki haía lokið
(Framhhld á 12. síðuj
T í M I N N, föstudagur 12. októbcr 1962. —
7