Tíminn - 14.10.1962, Síða 1

Tíminn - 14.10.1962, Síða 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu vandlátra blaða- lesenda um allt land. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- sfræti 7, sími 19523 230. tbl. — Sunnudagur 14. okt. 1962 — 46. árg. ÆTLA AÐ HALDA ÁFRAM EF VEL GENGUR MEÐ 79 JK—Reykjavík, 13. október. Edda Film ætlar ekki að láta við svo búið standa, ef ís- lenzka kvikmyndin „79 af stöð inni" verður vinsæl, heldur sækja fram á sömu braut og taka ný íslenzk verkefni til kvikmyndunar. Guðlaugur Rósinkranz skýrði frá þessu í Háskólabíói í gær- kvöldi, er hann flutti inngangsorff að frumsýningunni á „79 af stöð- inni“, þar sem viðstaddir voru þeir, sem unnu við kvikmyndina, forsetahjónin, alþingismenn, am- bassadorar erlendra ríkja og aðrir gestir. Guðlaugur sagði, að eina leiðin til kynningar íslenzkri leiklist meðal erlendra þjóða, sé með kvikmyndum, og það væri jafn- framt áhrifamesta leiðin til þess að kynna bókmenntir þjóðarinnar, GuSlaugur Rósinkranz að flytja ávarpsorð sín í Háskólábíói. menningu, og landið sjálft, vegna þess að vinsæl kvikmynd nær til íjöldans. Guðlaugur lauk ræðu sinni með þessum orðum: „ . . . fari svo, að vel gangi, mun Edda Film ekki láta hér staðar numið, heldur halda fram á leið og taka ný verk- efni til með'ferðar. Því má þó slá föstu, að með gerð þessarar kvik- myndar og sýningu hennar, er brotið blað í sögu islenzkrar leik- listar, sem hér hefur haslað sér völl á nýjum og víðari vettvangi." Eitt fjölmennustn kirkju.þing kaþólsku kirkjunnar stendur nú yfir í Róntaborg, og sækja það fulltrúar 85 landa. f gær var kosið í nefndir þingsins, en síð an munu þingstörf hefjast. í fyrradag ávarpaði páfi þing- heim og bað menn að minnast þess, að eitt sinn skyldi hver ma'ður ganga fyrir hinn æðsta dómara, og því skyldu þeir ein beita sér að því að koma á friði í heiminum og halda hann. — Hér sést páfinn í Sankti Péturs kirkjunni í Róm við setningar- athöfn Þingsins. ALDREI BETRA UTLIT •• FYRIR SOLU A SILD JK-Reykjavík, 13. okt. Hraðfryst síld er að verða mikil framtíðarvara, sem nýir og stærri markaðir opnast stöðugt fyrir. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur nú gengið frá fyrirframsölu á um 220 þúsund tunnum síldar, sem er miklu meira en nokkru . sinni áður. Fyrirframsamnjngar um Suður-! Jandssíldina hafa gengið mjög vel j í haust, og er skemmst að minn- j ast þess, að tekizt hefur að selja I 110 þúsund saltsíldartunnur tilj Rúmeníu, Póllands, A- og V-Þýzka lands, sem er meira en þrjsvar sinnum meira en í fyrra. Yfír 10 þá$. Einkaskeyti frá Kaupmannahöfn, 13. okt. Mislingafaraldurinn, sem geng- 49 manns lézt úr henni. Hefur | því einn þriðji hlutj grænlenzku þjóðarinnar fengið mislinga að i« hefur í Grænlandi er nú afstað- þessu sinni. Mislingafaraldurinn inn. AUs tóku 10,771 veikina og lagðist sérstaklega þungt á fólk í Umanak- og Angmagssalikhéruð- unum, en þar kom hann fyrst upp. Aðejns Thule, Upernavik og Scor- esbysund losnuðu við að fá vejk- ina. — Aðiis. Síldveið'iflotinn er ekki enn farinn á vejðar. í gærkvöldj hélt sáttasemjari fyrsta fund sinn með dejluaðilum. Lögðu þeir þar fram sjónarmið sín, en ekkert mun hafa þokazt í samkomulagsátt. Annar fundur hefur ekki verið boðaður. SH sendi í dag út fréttatilkynn- jngu um sölurnar á hraðfrystu síldinni. Guðmundur Garðarsson skrifstofustjórj sagð'i blaðinu í dag, að þessi fyrirframsala væri r.ieiri heldur en öll salan í fyrra- vetur. Fyrirframsalan núna er um 20 þúsund tonn, en öll salan í fyrra var 19.317 tonn. Guðmundur sagði, að enn væri eftir að ganga frá miklum samningum, m. a. á gamla markaði. Nú er verið að vinna að frekari sölum, og eru horf ur góðar á, að takast megi að selja enn meira magn, þegar líður fram é vetur. Samið hefur verið bæði um sölu á heilfrystri og flakaðri Suður- landssíld. Til Austur-Evrópu fara 8,700 tonn og til Vestur-Þýzka- lands 9,600 tonn, auk 1,900 tonna af hraðfrystum síldarflökum. Tal- ið er, að um 10 síldartunnur fari í tonnið af heilfrystri síld, en 20 tunnur í tonnið af frysrtum síldar- í samningúnum er gert ráð fyr- ir; að mikill hluti umsamins magns sé afgreiddur fyrir áramót, og telur SH afar áríðandi, að unnt sé að fullnægja þessum ákvæðum, þar sem um aukna markaði er að ræða, sem verður að halda í. Horfurnar í síldarsölunni hafa sem sagt aldrei verið betri, — svo framarlega sem flotinn kemst einhvern tíma á veiðar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.