Tíminn - 19.10.1962, Síða 1

Tíminn - 19.10.1962, Síða 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu vandlátra blaSa- lesenda um allt land. 234. tbl. — Föstudagur 19. okt. 1962 — 46. árg. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- stræti 7, sími 19523 Myndin er af norska skuttogaranum „Hekketind". Ef íslendingar eignast fiskiramtsóknaskip, verður það að líkindum svipað útlits. — VON Á SKUTTOGARA TIL FISKIRANNSÓKNA? JK—Reykjavík, 18. október. Enn eiga íslendingar ekkert eiginlegt fiskirann- sóknaskip, en fyrsta slíka skipið verður sennilega skuttogari. Tiltölulega stutt er, síðan farið var að smíða þá, en vinsældir þeirra fara stöðugt vax, andi, og þeir hafa einnig ýmsa kosti, sem fiskifræð ingar telja gagnlega fiski- rannsóknaskipi. Árið 1958 var ákveðið á Alþingi, að viss liluti útflutningssjóðs- gjaldsins skyldi renna til fiski- rannsóknaskips, og hefur gjaldinu verið haldið síðan. Sjóður þessi hefur smám saman gildnað, og nú eru í honum um sjö milljónir króna. 700 tonna fiskirannsókna- skip kostar yfir 30 miljónir, svo að minnst 25 milljónir skortir enn fyrir skipsverðnu. Óstaðfestar fregnir herma, að á næstu vikum kunni að opnast mögulejki á erlendum lánveiting- um, til þess að kleift verði að láta smíða slíkt skip. Ef svo er, mun gamall draumur þar með rætast, l að vera það mikið gleðiefni. | togaralagi er að ytra útliti mjög og ætti öllum viðkomandi aðilum1 Fiskirannsóknaskip með skut- Framh. á 15. síðu Reykjavík, 18. okt. Gylfi Þ. Gíslason upp- lýsti á Alþingí í dag, þeg- ar rætt var um efnahags- málafrumvarp Framsókn- armanna, að frysta spari- féð í Seðlabankanum væri nú orðið um 490 millj. kr. Eysteinn Jónsson fylgdi frum- varpinu úr hlaði meg ýtarlegri ræðu, en megin efni frv. er tví- þætt: í fyrsta lagi verði frystingu sparifjár hætt og í öðru lagi verði vextir lækkaðir í það, sem þeir voru fyrir „viðreisn." Eysteinn Jónsson sýndi fram á, að ójafnvægi í efnahagsmálum og verðbólga hefði aldrei verig meiri en nú, og því hefði það sem átti að nást með „viðreisninni“ ger- samlega mistekizt. Hins vegar hefði tekizt með henni að gera tekjuskiptinguna í landinu miklu ranglátari. Þá sýndi Eysteinn Jónsson fram á að mjög myndi draga úr allri uppbyggingu ef halda ætti lána- samdrættinum áfram því ag miklu meira fé þyrfti nú til allra fram kvæmda en áður. Gylfi Þ. Gíslason svaraði ræðu Eysteins Jónssonar og gaf áður- greindar upplýsingar. Hann hélt því fram að Eysteinn Jónsson hefði mjög snúist hugur síðan hann var í ríkisstjórn. Eysteinn Jónsson sagði að frum varp Framsóknarmanna sýndi hið gagnstæða. Þar væri lagt til að Framh. á 15. síðu 7 beinagrindur finnast viö uppgröft í Fióanum SG—Túni, 17. okt. — f haust þegar Eiríkur bóndi Þorgilsson í Langholti í Flóa, var ag grafa fyrir smá-byggingu austan við ibúðarhús sitt, kom hann niður á mannabein. Var hátt á þri'ðju alin niður á þau. Er svo að sjá, að þarna hafi verig gamali kirkjugarður, en ekki er fólki hér kunnugt um sagnir þess efnis, ag kirkja hafi verig i Langholti, enda sjálfsagt langt siðan, þar sem bcinin eru mjög fúin. Bygging sú, er Eiríkur ætiaði að reisa þarna, átti aðeins að vera 4x5 metrar að ummáli, en samt komu þarna í ljós 7 beina grindur. 5 lágu hiið vig hiið, en tvær f jær. Utan um eina sást aðeins móta fyrir hliðarfjölum í kistu og hefur hún senniiega verið yngst, eða viður þar betri. Lá sú beinagrindin öðruvísi en hinar og venjulegt er. Var hún á hliðinni með höfuðið mjög sveigt aftur og einkennilega kreppt að öðru leyti, og hefur mönnum jafnvel dottið í hug, að þarna hafi verið um kvik- setningu að ræða. En sjálfsagt er ekki hægt að fullyrða neitt um það og enginn til frásagnar um ástæðu til þessarar ein- kennilegu legu. Eiríki þótti ekki vi'ðkunnan- legt að hefja byggingu á þess- um stað vegna þessa fundar og mun ganga frá aftur til hins fyrra horfs. Blaðig aflaði sér í dag upp- lýsinga um það, hvort kunnugt væri um kirkjustað í Langholti til forna, og vir'ðist svo ekki vera, en Þó kvað séra Sveinn Víkingur, sem er maður mjög fróður um slíka hluti, margt benda til Þess, að svo hefði verig í kaþólskum sið. En ör- uggt vir'ðist af lýsingum, að þarna sé um kristinn grafreit að ræða. Um það, hvort þarna geti verið um kviksetningu að ræða, mun erfitt að fullyrða, en ýms ar ástæður telja fróðir menn geta legið til þess, ag Iegan sé undarleg. HEIIVBSÓKN í ÖRÆFIN

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.