Tíminn - 23.10.1962, Side 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrír
augu vandláfra blaSa-
lesenda um allt land.
Tekid er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræti 7, sími 19523
237. tbl. — ÞriSjudagur 23. október 1962 — 46- árg-
BÍoSfÍöE
ar í öku-
skírteinin
MB — Reykjavík, 22. okt.
Tímanum er kunnugt um
það, að merkri uppástungu
hefur verið komið á fram-
s'æri við dómsmálaráðuneyt-
ið. Fjallar hún um það, að
fnamvegis verði blóðflokkur
ökumanns skráður j öku-
skírteini hans.
Það var Judith Gunnars-
son, kona Ólafs Gu.nnarsson-
ar sálfræðings, sem átti
þessa uppástungu. Maður
hennar sagði Baldri Möller
ráðuneytisstjóra frá henni
og leizt Ba'ldri þegar vel á
uppástu.nguma. Hann ræddi
í dag við löigreglustjórann í
Reykjavík um má'lið og leizt
löigreglustjóranum einnig
vel á uppástungu Judith.
— Það er sennilegt, að
lagabreytingu þurfi til þess
arna, sagði Baldur Möller í
viðtali við blaðið. Við mun-
um ræða þetta mál við ráð-
herr.a og Blóðbtankann.
Verði þetta gert, verða a.
m. k. tvær flugur slegnar í
einu höggi. Hægt er að sjá
samstundis og ökumaður
hefur orðið fyrir slysi, í
hvaða blóðflokfei hann er,
og hægt að igefa honum blóð
samStundis. Einnig myndi
Bló'ðbankinn með þessu geta
stóraukið apjialdskrá síua og
yrði því miklu auðveldara
en nú, að ná í fólk til þess
að gefa blóð.
— Eru fleiri nýjungar á
döfinn'i?
— Við fyligjumst nú með
athugunum, sem Danjr eru
að gera á því, hvort gera
eigi bflstjórum skylt að læra
hjálp í viðlögum. Danii
munu vafialítið taka þetta
upp i einhverri mynd, og
senni'legt að það verði sam
Þingsályktunartillaga Framsóknarmanna um skipun milliþinganefndar
Lánveitingar til íbiíða
endurskoðist frá rótum
TK-'Reykjavík, 22. okt.
Níu þingmenn Framsókn-
arflokksins hafa nú lagt fram
á Alþingi tillögu til þings-
ályktunar um endurskoðun
laga um lánveitingar til íbúða
bygginga- Kveður tillagan á
um, að kosin verði fimm
manna milliþinganefnd til
þess að endurskoða öll gild-
andi lög um lánveitingar til
íbúðabygginga í landinu og
skal nefndin leggja tillögur
sínar fyrir næsta reglulegt al-
þingi- M.a. skulu tillögur
nefndarinnar hafa þetta mark
mið:
★★ að auka lánveitingar til bygg-
inga nýrra íbúða, svo að
unnt verði að lána til hverr-
ar íbúðar af hófleigri stærð,
hvar sem er á landinu, tvo
þriðju hluta af byggingar-
kostnaði.
★★ að jafna aðstöðu manna til
til lánsf jár, þanniig, að heild-
.ar'lán get’i orðið svipuð til
hvers manns, miðað við sömu
stærð íbúðar, hver sem hann
er og hvar sem ha.nn býr.
★★ að greiða fyrir mönnum með
lánveitingum til að endur-
bæta íbúðir svo og kaupa
íbúðir til e'igin nota.
í greinargerð, sem tillögunni
fylgir, koma m.a. fram þær upp-
lýsingar, að á árunum 1956 til 1958
var byrjað' á samtals 4847 íbúð-
um í landinu, en á árunum 1959
til 1961 var aðeins byrjað á 3399, á þessu síðara tímabili eða 29.9% I Nánar er skýrt frá tillögu þessari
búðum, þ. e. 1448 íbúðum færri I minna þrátt fyrir aukna þörf. I á þingsíðu blaðsins, bls. 6.
KUBA I HERKVI
Voice of America - 22. okt.
í RÆÐU þeirri, sem Kenn-
edy Bandaríkjaforseti hélt í út-
varp og sjónvarp í Bandaríkjun-
um í gærkvöldi, skýrði hann
frá því, að Bandaríkjamenn
hefðu nú í höndum óhrekjandi
sannanir fyrir því, að á Kúbu
væru nú staðsettar árásareld-
flaugar, sem gætu bori'ð kjarn
orkusprpngjur til margra
stærstu borga Bandaríkjanna.
Af þeirri ástæðu hefði hann nú
ákveðið að grípa til gagnráð-
stafana og myndi verða sett
herkví á Kúbu, þannig að öll-
um skipum, sem flyttu árásar-
vopn til Kúbu yrði snúið við.
Þá myndi Bandaríkjastjóm
krefjast- þess að Öryggisráðið
kæmi saman .pg .öll árásarvopn
yrðu flutt burt frá Kúb'u undir
eftirliti Sameinuðu þjóðanna.
Kennedy sagði, að ef eldflaug-
um yrði skotið frá Kúbu á eitt-
hvert annað ríki myndi það
verða skoðað sem árás á Banda
ríkin.
Vitað væri að nú væri unnið
að því á Kúbu fyrir atbeina
Sovétríkjanna að koma upp
eldflaugastöðvum fyrir enn
Framhald á 4. sí5u
DROGU BATINN
LOGANDI I HÚFN
SK — Vestmannaeyjum, 22. okt.
Þegar skipverjar á Sjö-
stjörnunni, VE-92, voru aS
draga línuna um 4 mílur norð
vestur af Súlnaskeri um hálf-
ellefu leytið í morgun urðu
þeir varið við mjög magnaðan
eld út frá rafmagnstöflu
skipsins. Fengu þeir ekki við
eldinn ráðið og hálfri klukku-
stundu síðar urðu þeir að yf-
irgefa bátinn, enda var ótt-
ast að sprenging myndi verða,
þar eð eldurinn var við olíu-
tankinn.
Áður en skipverjar yfirgáfu bát
inn, höfðu þeir gengið frá slef-
‘tógi og festu þcir belg viff það,
| svo hægara yrði fyrir skip, sem
'koma kynni á vettvang, aff draga
VEGIRNIR SPILLTUST
VESTRA OG NYRDRA
MB-Reykjavík, 22. okt.
Geysilegt úrfelli gekk
yfir mikinn hluta landsins
frá föstudagskvöldi síðast-
liðnu til laugardagskvölds
og olli það víða miklum
skemmdum á vegum. Rign-
ingin jókst eftir því, sem
vestar dró, og mest úrkoma
-nældist í Kvígindisdal, en
þar mældist hún 94 mm
frá því klukkan 18 á föstu-
dagskvöldi til jafnlengdar
á laugardegi.
Þótt dregiff hafi úr úrkomu á
laugardagskvöldinu rigndi samt
enn víða drjúgt á sunnudags-
nóttina, t. d. í Kvígindisdal, en
þar mældist úrkoman 27 mm.
á sunnudagsnóttina.
Samkvæmt upplýsingum Páls
Bergþórssonar veðurfr. voru
orsakir þessarar miklu úrkomu
mjög hlýtt og rakt loft, sem
hingað barst langt sunnan úr
höfum, og kaldara loft, sem var
að ryðja sér til rúms úr vestri.
Sem dæmi um hlýindin má
nefna það, að á föstudag mæld
ist hvorki meira né minna en
19 stiga hiti á Dalatanga og 18
stiga hiti var á Akureyri á laug
ardaginn. Sagði Páll, að svo
mikil hlýindi væru mjög ó-
venjuleg á þessum tíma árs.
Tíminn spurði Jón Víðis, a
Vegamálaskrifstofunni um vega
skemmdir. Þær hafa orðið mik.'
ar ,einkum á Vestfjarðakjálk-
anum. Á Hjallahálsi og Klett-
hálsi komu skörð í veginn. i
Djúpafirði rofnaði vegurinn á
mörgum stöðum. Galtará og
Eyrará í Kollafirði, sem eru
óbrúaðar, hafa grafið sig nið-
ur og Fjarðarhornsá hefur rif-
ið veginn sundur á 10 metra
kafla, rétt við brúna, Ræsihefur
bilað hjá Illugastöðum ogSkálm
ardalsá hefur hlaupið úr far-
vegi sínum og rofið stórt skarð
í veginn. Þar hefur einnig ræsi
bilað. Ekki mun unnt að gera
ÍFramhald á 4 síðu)
bátinn til hafnar. Þegar skipverj-
ar höfðu verið um hálfa klukku-
stund í gúmbát komu Drangajök-
ull og m.h. Sigurfari frá Vest-
mannaeyjum á vettvang, og voru
skipverjarnir, 4 að tölu, teknir
um boi’ð í Sigurfara.
Um klukkan 11.30 komu svo
Lóðsinn frá Vestmannaeyjum
(hafnsögubáturinn) og m.b. Jón
Stefánsson frá Vestm.eyjum á
vettvang og drógu Lóðsinn og Sig-
urfari hinn brennandi bát til hafn
ar. Þeir komu hingað á ytri höfn-
ina um klukkan 13.00 og tókst þá
fljótlega að slökkva eldinn, en að
þvf unnu menn frá báðum hátun-
um.
Miklar skemmdir urðu í vélar-
rúmi bátsins og aftur í, m.a. eyði
lögðust mörg dýr tæki.
Sjöstjarnan er 55 tonna eikar-
bátur, byggður í Danmörku árið
1916. Skipstjóri var Sveinn Valdi-
marsson. Engin slys urðu á mönn
um í bruna þessum.
Loksins skatt-
stjóri í Eyjar
SK — Vestmannaeyjum, 22. okt.
Nú hefur verið skipaður skatt-
stjóri hér í Vestmannaeyjum, en
skipun skattstjóra hér hefur eitt-
hvað staðið í viðkomandi yfirvöld-
um. Fyrir valinu varð Friðþjófur
G. Johnsen, héraðsdómslögmaður,