Tíminn - 24.10.1962, Blaðsíða 5
|||í:|||p:::Í:i:Í: í o «
IpRC TTIR >i$iii::í:::;;:i£*£* Í í$::i: Sg ggg: iiiig g £ iPku
.••Xv:-::-:: ^XvX-i-XíiXiXiíívX;:;:::;:::::;:;:;:;:: WíííííííííííÆ^gSftí % "^^xííííííSvX^Xtv'XíX'XW.-Xvyxk .;.;:v:;:v:v:v:;:;:::::::
•
RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON
Armann kom á óvart gegn Fram
Reykjavíkurmeistaramótið í
handknattleik hófst að Há-
logalandi um síðustu helgi.
Mótið var sett af Andreasi
Bergmann, í fjarveru Bald-
urs Möller formanns ÍBR. —
Þetta mun vera í 17. sinn sem
mótið fer fram og er þátttak-
an í því mjög góð — lætur
nærri, að þátttakendur séu
um 440 að tölu. Mótið mun
standa yfir í átta vikur og
Ijúka væntanlega 9. desember
n.k. Til samanburðar má geta
þess, að í fyrsta sinn sem mót-
ið fór fram, fyrir sautján ár-
um, voru þátttakendur 25 að
tölu, og stóð mótið þá yfir í
átta daga.
Leikirnir um helgina voru yf-
irleitt góðir og vel leiknir. Á laug-
ardaginn fóru fram þrfr leikir í
meistaraflokki karla — þá mætt-
ust Valur og Víkingur, Fram og
Ármann og KR og Þróttur, einn-
ig fór fram ieikur í 3. flokki milli
Fram og Ármanns.
Eins og búast mátti við, beind-
ist athygli flestra að leik íslands-
meistaranna Fram og Ármanns.
Framarar voru engan veginn ör-
uggir um sigur í leiknum — það
vþru Ármenningar sem leiddu
mest allan leikinn, og í hálfleik
liöfðu þeir tvö mörk yfir. Þeir
byrjuðu seinni hálfleikinn vel og
um tíma komust þeir þrem mörk-
um yfir — en leikreynsla Fram-
ara og betra úthald þeirra kom í
veg fyrir sigur Ármanns — og
með góðum lokaspretti tókst Fram
urum að jafna bilið og komast
yfir og sigruðu með 12:10.
Ármannsliðið kom á óvart í
þessum leik — það er að mestu
skipað ungum piltum sem voru
kjarninn í unglingalandsliðinu í
fyrra. — Leikur liðsins er léttur
og hraður og oft á tíðum skemmti-
legur — en úthald vantar í liðið
og það má segja, að það hafi fyrst
og fremst gert út um leikinn.
Hinir meistaraflokksleikirnir
voru ekki eins spennandi og leik-
ur Fram og Ármanns — Víkingur
sigraði Val með 11:9, og nýliðarn
ir í fyrstu deíld á næsta ári, Þrótt-
ur, sigraði KR með 11:10.
Víkingur—Valur 11:9
Lið Víkings náði sér aldrei veru
lega á strik í leiknum við Val. —
Víkingar höfðu þó yfir allan tím-
ann, og þótt markamunurinn hafi
ekki oiðið meiri, var sigur þeirra
íyllilega verðskuldaður. Víkingar
- á Reykjavíkurmótinu í handknattleik. Leikreynsla
Islandsmeistaranna (ærði þeim þó nauman sigur
eð undanförnu fyrir leik sinn í
Evrópubikarkeppninni, og því fróð
legt að sjá styrkleika þeirra gegn
Ármenningum.
Það liðu nær fjórar mínútur
áður en mark var skorað í leikn-
um — það var Hörður Kristins-
son sem skoraði fyrsta markið fyr-
ir Ármann. Ingólfur Óskarsson
jafnaði skömmu síðar með góðu
skoti fyrir Fram. Ármenningar
náðu 2:1, en Karl Benediktsson
jafnaði rétt á eftir. Framarar náðu
svo forustu — í eina skiptið í
hálfleiknum — þegar Guðjón Jóns
son skoraði eftir skemmtilegan
samleik. Annars var fyrri hálfleik
urinn nokkuð jafn og skiptust lið-
in á að skora. Framarar fengu tvö
vítaköst sem þeir misnotuðu gróf-
lega — annað varði Þorsteinn
markvörður Ármenninga, en hitt
fór í stöng. 1 hálfleik höfðu Ár-
menningar yfir 7:5.
Ármenningar voru ákveðnir í
byrjun seinni hálfleiks og á
skömmum tíma ná þeir þriggja
marka forskoti, 9:6. Á þessum tíma
var engu líkara en að Framarar
hefðu misst allar áhuga fyrir
leiknum, og níunda markið sem
Ármenningar skoruðu, kom ein-
göngu vegna þess, að leikmenn
Fram hirtu ekki um að koma aft-
ur í vörnina eftir að hafa misst
Framh á 15 síðu
Hinn snjalli „IínuspUari“ hjá Fram, Sigurður Einarsson, er kominn frír inn á línu, en er hindraður
af Árna, og tekst ekki að senda knöttinn í neti'ð. (Ljósm.: Bjarnleifur).
Dáðu forustunni strax í byrjun —
Pétur Bjarnason skoraði og litlu
síðar bœtti Sigurður Hauksson
öðru marki við. Hilmar Magnússon
skoraði fyrir Val, en Víkingar
svöruðu með að auka forskotið
4:2, — Jóhann Gíslason og Sig-
urður Hauksson. Yfirleitt höfðu
Víkingar eitt og tvö mörk yfir og
í hálfleik var staðan 7:6 fyrir þá.
í síðari hálfleik bættu Víking-
ar fljótlega þrem mörkum við,
10:6 — Stemar, Sigurður og Pét-
ur. Valsmenn náðu 7:10 — það var
Gylfi Jónsson sem skoraði á línu
eftir góða sendingu frá Sigurði
Dagssyni. Geir Hjartarson bætti
| tveim mörkum við fyrir Val á
skömmum tíma — staðan var 10:9
fyrir Víking og rúmlega tvær mín-
útur til leiksloka. En Víkingar |
hristu af sér slenið og léku vel!
síðustu mínúturnar og rétt áður I
en dómarinn flautaði til leiksloka
i skoraði Jóhann Gíslason 11:9 fyr-
! ir Viking.
Lið Víkings náði ekki saman
í þessum leik — grip og sendingar
voru óöruggar og allt of mikið
reynt af lágskotum sem fóru ofan
garðs og neðan. Vörnin, með Pét-
ui Bjarnason sem sterkasta mann,
var að vanda nokkuð traust Helgi
i markinu var góður — en lang-
skemmtilegastan leik sýndi þó
Sigurður Hauksson. Er áreiðan-
legt að þarna er efni á ferð sem
mikið á eftir að láta kveða að sér
á næstu árum.
Lið Vals var sundurlaust og
greinilega í lítilli æfingu. Beztir
voru Sigurður Dagsson og Gylfi
fónsson — báðir ungir drengir
nýkomnir í hðið. Dómari var Karl
Johannsson og dæmdi vel.
Fram—Ármann 12:10
Menn biðu með nokkurri eftir-
væntingu eftir leik Fram og Ár-
manns, einkum vegna þess að vit-
að var að Framarar hafa æft vel
" nT~ i""' i—ii— i ■inrin—ii—m
Á sundmóti í Melbourne í gær
setti Dawn Fraser nýtt heimsmet
í 100 m. og 110 yarda skriðsundi,
er hún synti vegalengdina á einni
mínútu réttri Eldrj met hennar
voru 2/10 lakari. Á sama móti
setti Dawn Fraser nvtt heimsmet
nýtt lieimsmet í 220 yarda flug-
sundi, synti á 2:09,7 mín.
2.05 m.
j
í sambandi við frásögn af hinu
nýja met; Jóns Ólafssonar í há-
slökki innanhúss, 2,06 metrar.
j skal það tekið fram, að met hans
utanhúss er 2,05 metrar.
Otto Rieder sýnir skíðamyndir
Hinn kunni austurríski
skíðakappi, Otto Rieder, kom
hingað til lands í fyrradag og
mun dvelja hér í hálfan mán-
uð og mun hann nota þann
tíma meðal annars til að viða
að sér efni í doktorsritgerð
auk þess, sem hann mun miðla
íslenzkum skíðamönnum af
tíma sínum.
Otto Rieder er íslenzku
skíðafólki mjög kunnur, enda
lunMMMamnaai
hefur hann greitt götu þeirra
á ýmsan hátt á undanfömum
árum. Hann kom hingað til
lands í fyrsta sinn 1955 og
þjálfaði þá íslenzka skíðamenn
fyrir vetrarólympíuleikana
1956. Ánð 1961 var hann hér
aftur á terð og sá þá meða)
annars um iagningu á braut
um á landsmótinu. sem haldið
var á Ísaíirði
Rieder hefur nú rnikinn hug
á því að aðstoða íslendinga i
sambandi við vetrarólympíu-
leikana, sem haldnir verða í
Innsbruck í Austurríki 1964 og
vill reyna að kappkosta að
sem flestir íslenzkir skíða-
menn geti sótt þá
með kvikmyndir
Rieder nafði hingað með séi
nokkrar skíðamyndir. sem
hann hyggst sýna bæði hér í
Reykjavík og eins úti á landi
Blaðamönnum gafst í gær
kostur að sjá þessar myndir
á fundi með Rieder. Þetta eru
mjög fróðlegar og skemmtileg
ar kvikmyndir meðai annar?
frá skíðaæfingum fyrir sfðustr
Dlympíuleika svo og kennslr
myndir -em eru einstaklega
skýrar. Verður íslenzkum
skíðamönnum áreiðanlega mik
ill fengur að kynnast þessum
myndum.
Þá skýrði Rieder frá því á
blaðamannafundinum í gær, að
undirbúningi fyrir næstu
Ólympiuieika væri að mestu
lokið — og eftir því. sem næs>
verður komizt ætti framkvæmd
þeirra að eeta tekizt með ágæt
um, enda Austurríkismenn
kunnir skipuleggjendur skíða
móta.
T I M I N N, miðvikudaguriun 24. okt. 1962