Tíminn - 25.10.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.10.1962, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu vandlátra blaða- lesenda um allt land. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- stræti 7, sími 19523 Heldur hefur dregið úr hættunni á stórfelldum átökum út af siglingabann- inu á Kúbu, þótt ástandið sé enn mjög alvarlegt, þar sem Rússar hafa ekki, svo vitað sé, stöðvað flutninga skip sín eða snúið þeim við. Ýmislegt bendir til að stjórn Sovétríkjanna ætli að láta undan síga, enda sögðu síðustu fréttir í gær- kveldi, að þótt flutninga- skipin tuttugu og fimm, sem eiga að vera á leiðinni, hafi hvorki stanzað eða snúið við, hafi þau fremstu þeirra sveigt af stefnunni til að forðast að komast í námunda við bandaríska flotann. ★ Siglingabann Bandaríkja- hers gekk í gildi kl. 14 í gær. ★ Rússnesku skipin sem næst voru Kúbu, hafa sveigt af leiS, og h,afa ekki komið in,n á hættusvæðið. k Hin rússnesku skipin hialda enn áfram stefnu á Kúbu. ★ Suður-Ameríkuríki hafa boðið Bandaríkjunu.m hern- aðaraðstoð. ★ Bandaríkin eru ekki t'il við- tals um hrossakaup út af Kúbu. ★ Sovétrík’n endursendu orð- sendingu Bandiríkjannia án þess að svara. ★ Krústjoff segir, að koma verði í veg fyrir stríð, og að fundur æðstu manna sé nú æskilegur. k Hlutiausu ríkin í Öryggis- ráðinu, Ghana og Egypta- KORTIÐ er af KÚBU og hættusvæðinu umhverfis eyna. Það var á þessum slóðum, sem búizt var við aö kæmi til átaka í gær, en þau flutningaskip Rússa, sem komin voru næst Kúbu sneru af lelð. land, leiggja til, að Uússar snúi við skipunum og Bandaríkjamenn láti um leið af siglingabanninu, NTB-24. október. KLUKKAN 14 í dag gekk í gildi siglingabann það, sem Kennedy Bandaríkjaforseti hef ur sett á öll skip, sem flytja vopn til Kúbu. Frá þeirri stundu voru flugvélar frá banda ríska flughernum og banda- ríski sjóherinn tilbúinn til þess að hef ja þær aðgerðir, sem nauðsynlegar kunna að verða til þess að koma í veg fyrir, að vopn verði flutt til eyjar- innar. Bæði flugher og sjóher hef- ur verið skipað að rannsaka sérhvert skip, sem á leið til Kúbu hverrar þjóðar, sem það er, og einnig að stöðva og snúa aftur sérhverri flutninga- flugvél Sovétrrkjanna, sem kann að vera á leið til eyjunn- aM Karabíska hafinu. í gærkvöldi skýrði landvarn- arráðherra Bandaríkjanna, Ro- bert McNamara, frá því, að 25 sovézk skip væru á leið til Kúbu. Sagði hann, að eitt þess ara skipa yrði stöðvag stuttu eftir að siglingabannið gengi í gildi, þar eð það væri komið mjög nálægt Kúbu. Talið er fullvíst, ag nokkur þessara 25 skipa flytji árásarvopn, sagði ráðherrann. Ekki lét McNamara neitt uppi um það, hvernig Banda- ríkjamenn myndu fara að því að stöðva sovézkar flutninga- Framh. á 15. síðu ALEKSEI ADSJUBEI Máligagn sovézku stjórmar innar Izvestija, fjallar í gær um Kúbumáiið, í grein, sem ritstjóri þess og tengda sonur Krustjoffs, Aleksei Adsjúbei, skrifar. Þar seg- ir, að ekki megi hleypa jörð inn'i í bál og brand. Grei,nin var fremur mildi Iaga skrifuð, og telja menn, að hún sé staðfesting á því, að Sovétstjórnin vilji kom- ast hjá því, að ástandið versni. Segir blaðið enn fremur, að menn um allan heim séu hrifnir af þeim styrk og þeirri ró oig skyn- semi, sem fram kom í yfir- lýsingu Sovétstjórnarinnar um Kúbumálið á þríðjudag- inn. f þeirri yfirlýsingu var nua. óskað eftir mótmælum við gerðir Bandaríkja- manna. Hins vegar hafa eng ir mótmælt stöðvun Banda- ríkjamanna á flutningi rúss Framh. á 15. síðu SA wVtflóo MYNDI'N er tekin af bandarískri flotadeild á siglingu á iíkum slóðum og herskip eru nú í varðstöðu undan ströndum KÚBU

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.