Tíminn - 25.10.1962, Síða 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir
augu vandlátra blaða-
lesenda um allt land.
Tekið er á móti
auglýsingum frá
kl. 9—5 í Banka-
stræti 7, sími 19523
Heldur hefur dregið úr
hættunni á stórfelldum
átökum út af siglingabann-
inu á Kúbu, þótt ástandið
sé enn mjög alvarlegt, þar
sem Rússar hafa ekki, svo
vitað sé, stöðvað flutninga
skip sín eða snúið þeim
við. Ýmislegt bendir til að
stjórn Sovétríkjanna ætli
að láta undan síga, enda
sögðu síðustu fréttir í gær-
kveldi, að þótt flutninga-
skipin tuttugu og fimm,
sem eiga að vera á leiðinni,
hafi hvorki stanzað eða
snúið við, hafi þau fremstu
þeirra sveigt af stefnunni
til að forðast að komast í
námunda við bandaríska
flotann.
★ Siglingabann Bandaríkja-
hers gekk í gildi kl. 14 í
gær.
★ Rússnesku skipin sem næst
voru Kúbu, hafa sveigt af
leiS, og h,afa ekki komið
in,n á hættusvæðið.
k Hin rússnesku skipin hialda
enn áfram stefnu á Kúbu.
★ Suður-Ameríkuríki hafa
boðið Bandaríkjunu.m hern-
aðaraðstoð.
★ Bandaríkin eru ekki t'il við-
tals um hrossakaup út af
Kúbu.
★ Sovétrík’n endursendu orð-
sendingu Bandiríkjannia án
þess að svara.
★ Krústjoff segir, að koma
verði í veg fyrir stríð, og
að fundur æðstu manna sé
nú æskilegur.
k Hlutiausu ríkin í Öryggis-
ráðinu, Ghana og Egypta-
KORTIÐ er af KÚBU og hættusvæðinu umhverfis eyna. Það var á þessum slóðum, sem búizt var við
aö kæmi til átaka í gær, en þau flutningaskip Rússa, sem komin voru næst Kúbu sneru af lelð.
land, leiggja til, að Uússar
snúi við skipunum og
Bandaríkjamenn láti um
leið af siglingabanninu,
NTB-24. október.
KLUKKAN 14 í dag gekk
í gildi siglingabann það, sem
Kennedy Bandaríkjaforseti hef
ur sett á öll skip, sem flytja
vopn til Kúbu. Frá þeirri
stundu voru flugvélar frá banda
ríska flughernum og banda-
ríski sjóherinn tilbúinn til
þess að hef ja þær aðgerðir, sem
nauðsynlegar kunna að verða
til þess að koma í veg fyrir,
að vopn verði flutt til eyjar-
innar.
Bæði flugher og sjóher hef-
ur verið skipað að rannsaka
sérhvert skip, sem á leið til
Kúbu hverrar þjóðar, sem það
er, og einnig að stöðva og
snúa aftur sérhverri flutninga-
flugvél Sovétrrkjanna, sem
kann að vera á leið til eyjunn-
aM Karabíska hafinu.
í gærkvöldi skýrði landvarn-
arráðherra Bandaríkjanna, Ro-
bert McNamara, frá því, að
25 sovézk skip væru á leið til
Kúbu. Sagði hann, að eitt þess
ara skipa yrði stöðvag stuttu
eftir að siglingabannið gengi í
gildi, þar eð það væri komið
mjög nálægt Kúbu. Talið er
fullvíst, ag nokkur þessara 25
skipa flytji árásarvopn, sagði
ráðherrann.
Ekki lét McNamara neitt
uppi um það, hvernig Banda-
ríkjamenn myndu fara að því
að stöðva sovézkar flutninga-
Framh. á 15. síðu
ALEKSEI ADSJUBEI
Máligagn sovézku stjórmar
innar Izvestija, fjallar í
gær um Kúbumáiið, í grein,
sem ritstjóri þess og tengda
sonur Krustjoffs, Aleksei
Adsjúbei, skrifar. Þar seg-
ir, að ekki megi hleypa jörð
inn'i í bál og brand.
Grei,nin var fremur mildi
Iaga skrifuð, og telja menn,
að hún sé staðfesting á því,
að Sovétstjórnin vilji kom-
ast hjá því, að ástandið
versni. Segir blaðið enn
fremur, að menn um allan
heim séu hrifnir af þeim
styrk og þeirri ró oig skyn-
semi, sem fram kom í yfir-
lýsingu Sovétstjórnarinnar
um Kúbumálið á þríðjudag-
inn. f þeirri yfirlýsingu var
nua. óskað eftir mótmælum
við gerðir Bandaríkja-
manna. Hins vegar hafa eng
ir mótmælt stöðvun Banda-
ríkjamanna á flutningi rúss
Framh. á 15. síðu
SA wVtflóo
MYNDI'N er tekin af bandarískri flotadeild á siglingu á iíkum slóðum og herskip eru nú í varðstöðu undan ströndum KÚBU