Tíminn - 15.12.1962, Page 6

Tíminn - 15.12.1962, Page 6
Tveirmenní myrkri og ís í 15 mánuði SvaSilför FriSþjófs Nansens og Johansons Indland í eldlínu heimsátaka. Indland í eldlínu heimsátaka Vissulega verður meg sanni sagt um bók Sigurðar A. Magnús- sonar „Við elda Indlands" Indland hefur í augum okkar fslendinga löngum verið land óumræðanlegra töfra, land ríkra fursta og irtidursamlegra einsetu- manna, land fílanna og tígrisdýra, land Gandhis og Nehrus. í þrjá mánuði ferðaðist Sigurður um þetta stóra og sérkennilega land, fór þús undir kílómetra, norðan frá Himalajafjöllum og suð ur á syðsta odda landsins, talaði við æðstu mennta- menn landsins og hin furðulegustu úrhrök þjóð- lífsins, hitti fakíra að máli og kynntist vel „hinum vaknandi fíl“, en svo er Indland stundum kallað í blöum hinar síðustu vikur. Bók Sigurð'ar er prýdd 40 stórum myndasíðum. Ura þessa bók segir Páll V. G. Kolka í Mbl. að hún sé ein fróðlegasta ferða- bók, sem hann hefir lesið. að þar er á ferðinni tímabær bók. íslenzkir höfundar að barna og unglingabókum Fjórir íslenzkir höfundar eru hver með sína bama og ung- lingabók hjá fsafold á þessu ári: Allt eru þetta þjóðkunnir höf undar: Ragnheiður Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Sigrún Guð jónsdóttir og Kári Tryggvason Enn fremur gefur ísafold út drengjabók eftir eitt bezta skáld Norðmanna, Gabriel Scott. Bokin heitir „Hollenzki- Jónas“, (Sigrún Guðjónsdóttir þýddi). Bók frú Ragnheiðar Jónsdótt- ur heitir,, Katla þrettán ára“ og er þriðja bókin um Kötlu. Bók Kára heitir „Skemmti- legir skóladagar“ og er fjórða Dísubókin. Bók Sigrúnar heitir „Af hverju er himinninn blár?“ mjög fallegt ævintýri með myndum. Og bók Margrétar Jónsdóttur hins þjóðkunna fyrrv. ritstjóra „Æskunnar" heitir „Á léttum vængjum“, ljóð með teikning- um eftir Þórdísi Tryggvadótt- ur. „A8 kvöldi" Minningabækur islenzkra bændahöfðingja hafa jafnan verið eftirsótt lestrarefni hjá alþýðu manna hér á landi. Um bók sína „Að kvöldi“ segir bóndinn á Geitaskarði, Þorbjörn Björns son: „Ekki skal því neitað, að efnilegt innihald þessarar bókar er ýmislegt og með ólíkindum, líkt og veðrið frá degi til dags. Til furðu þarf þag ekki að teljast, þótt maður, sem gengið hefur langa götu og kríkótta, og horft til beggja hliða, hafi ýmissa þeirra hluta var orðið, sem vert væri að minnast á og um að spjalla.“ Baksvipur mannsins Guðmundur L. Friðfinnsson frá Egilsá er hugmyndaríkt skáld, athugull og orðhagur vel. Þessir miklu kostir Guðmundar koma sérstaklega vel fram í sögum hans í þessari bók. Sögurnar fjalla um sundurleitt efni, ástir og vín verkamenn og bændur, bæjarfólk og sveitafólk. Fyrri bækur Guðmundar eru flestar uppseldar eða um það bil uppseldar eins og t.d. „Saga bóndans í Hrauni“, „Hinum meg- in við heiminn" og „Máttur lífs og moldar“. Bókin „f ís og myrkri“ eftir norska landkönnuðinn heims- fræga Friðþjóf Nansen er kom in út á forlagi ísafoldarprent- smiðju h.f. Þessi mikla bók er yfir 300 bls. í stóru broti, prýdd mörgum tugum mynda. í bókinni er sagt frá ein- hverri ævintýralegustu svaðil- för allra tíma, fimmtán mánaða ferð þeirra Nansens og Johan- sons í norðurskautsísnum. Þeir lögðu af stað frá íshafs- skipinu „Fram“ á 85. breiddar- gráðu og héldu í norður. Ætl- uðu þeír að freista þess að komast ainir síns liðs til norð- urskautsms. — Eftir márgra vikna hetjulega baráttu urðu þeir að snúa við. Og nú byrjaði heimferðin yfir ísinn, í stór- viðrum norðursins, tveir menn með hundasleða. Smátt og smátt týndu hundarnir tölunni og var þá tekið til skíðanna. í fimmtán ævintýralega mánuði voru Nansen og Johanson einir á ferð, skutu ísbirnj og rost- unga sér til matar og náðu að lokum heilu og höldnu heira tilf Noregs. . .aíibii g Sannarlega sögulegt ferðalag, sem verður stórkostlegt í frá- sögn Friðþjófs Nansens, eins merkasta Norðmannsins, sem uppi hefur verið fyrr og síðar. Verð kr. 240,— „Mærin gengur á vatninu". Skáldsagan „Mærin gengur á vatninu“ eftir finnsku skáld- konuna Evu Joenpelto mun vekja sama áhuga fyrir Finn- landi og finnsku þjóðlífi eins og sagan „Silja“ eftir Sillanpaa gerði á sínum tíma. Þetta er stórbrotin finnsk skáldsaga. ísafold gefur út á þessu ári skáldsögur eftir þrjár frægustu skáldkonur á Norðurlöndum. Auk bókarinnar „Mærin geng- ur á vatninu" er komin út skáld sagan „Herragarðslíf" eftir norsku skáldkomuna „Anitu“ og sagan „Fríða á Súmötru“ eftir dönsku skáldkonuna Hel- ene Hörlýck“. Allt eru þetta mjög góðar bækur. f fyrra kom út bókin „Silki- slæðan“ eftir Anitu, og er „Herragarðslíf" óbeint fram- hald af þeirri bók. „Silkislæð- an“ seldist að mestu upp i fyrra. MANNFAGNAÐUR, eftir dr. Guðmund Finnbogason. Dr. Guðmundur var afburðasnjall ræðumaður, enda oft beðinn um að flvtja ræður við hin ólík legustu tækifæri. Honum lét jafn vel að flytja ræðu af réttarvegg, eins og að flytja minni prentara. Hann talaði af miklum kunnugleik um stefnur i skáldskap og stjórnmálum, og var léttur I máli, þegar hann flutti minni kvenna. Flestir fslendingar munu geta lært af ræðum dr. Guðmundar ræðustíl, þó fáir muni geta tamið sér hina óviðj afnanlegu orðleikni hans. Margar ræður dr. Guð- mundar fjalla um þjóðkunna menn, íslenzka og erlenda og má bar nefna m. a. Björnstjerne Björns- son og dr. Vilhjálm Stefánsson, Kjarval og Kristmann Guðmundsson, sr. Matthías, Hannes Haf- stein, Guðmund Friðjónsson, Stephan G. og Jónas Hallgrímsson. Bók dr. Guðmundar er falleg gjöf og henfug, öllum sem yndi hafa af fögru íslenzku máli, og vilja temja sér afburða ræðustíl. BÓKAVERZLUN ÍSAFOLDAR JÓNAS JÓNSSON frá Hriflu SVERRE D. HUSEBY: SKÍÐA- KAPPINK Saga um drengi og fþróttir Bókin er í þýðingu Stefáns Jónssonar, námstjóra Kr. 77.00 ALDAMÓTAMENN III SR. STANLEY MELAX; GUNAR HELMINGUR Snilldarlega vel skrifuð skáld- saga, sem gerist í sjávarþorpi á Vestfjörðum. Kr. 160,00 15 ævisöguþættir og nafnaskrár yfir öll 3 bindin. Kr. 170.00 FYRIRBURÐIR Sagnaþættir úr Húnavatnsþingi eftir Magnús Björnsson á Syðra Hóli, sr Gunnar Árnason, Bjarna Jónsson í Blöndudals- hólum o. fl. Þetta er 5. og síð- asta bindið í sagnaflokknum „Svipir og sagnir" og fylgir ná- kvæmt registur yfir öll 5 bind in. kr. 230. MAGNEA FRÁ KLEIFUM: KARLSEN STÝRIMAÐUR íslenzk skáldsaga i.'JIÖV Kr. 95.00 ffi BÓKAFORLAGSBÆKUR BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR T í MIN N, laugardaginn 15. desember 1962

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.