Alþýðublaðið - 09.01.1940, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 09.01.1940, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ARGANGUR. ÞRIÐJUDAGUR 9. JAN. 1940. 6. TÖLUBLAÐ RAssar ger slgraðlr f annað sln n á vfgstððvnnnm vlð Suomussalml .. <>.. Lelfarnar af her peirra par hafa íMið inn i skégana bœði vopnlausar og vistalausar Annar rússneskur her um- kringdur norður við Salla? ...... vív«v.v .. Mannerheim, yfirhershöfðingi Finna. Vorosjilov, yfirhershöfðingi Rússa. ¥erð á kjðti hækkar með deggimim í dag. I ..——. Meirl hækknn væntanleg um næsti ntánaðamót? KJÖTVERÐLAGS- NEFND ákvað í gær nýtt verð á kjöti. Fyrsta flokks freðkjöt hækk- ar úr kr. 1,60 kg. upp í kr. 1,75. Raunveruleg hækkun að þessu sinni er því lítil, vegna þess, að kjöt hefir öll undanfar- in ár hækkað eftir nýár, eða síðar, eða um næstu mánaða- hækkunar á kostnaði við g'eymslu í frystihúsum. Þannig hækkaði fyrsta flokks freðkjöt í janúar í fyrra úr kr. 1,60 upp í kr. 1,70 kg. Hækkunin nemur 9% eða sem svarar gengishreytingunni. Hinsvegar hefir heyrst, að gert sé ráð fyrir meiri hækkun síðar, eða um næsta mánaða- mót. Mun því vera haldið fram, að sú hækkun sé nauðsynleg vegna geymslukostnaðarins í frystihúsum, því að kolsýra og önnur efni til þess hafi hækkað mjög. Þá er þess að gæta, að óvenjulitlar kjörbirgðir eru til í landinu. Saltkjöt er til dæmis svo að segja alveg búið, nema að svolítið er til af stórhöggnu kjöti. Loks er von á hækkuðu verði á kjöti á erlendum markaði, ef mögulegt verður að flytja það út, því að engir kvótar eru nú til fyrirstöðu, hvorki í Englandi né á Norðurlöndum, nema salt- kjötskvótinn í Noregi. Saltkjötið var selt miklu hærra en í fyrra og freðkjöt í Englandi er lítið eitt hærra en í fyrra og Norðurlandaverð á freðkjöti er miklu hærra en í fyrra. Hækkar mjölkin EFTIR því sem Al- þýðublaðið hefir frétt mun mjólkurverð- Iagsnefnd koma saman á fund í dag og ræða um v'erðlagsbreytingu á mjólk. Má fyllilega gera ráð fyrir því að mjólkin hækki eitt- hvað í verði, en nú er eftir því beðið af öllum almenn- ingi, að sjá hve miklu hækkunin nemur. ^###############################J Af þessum sökum segjast kjöteigendur hafa selt kjÓt á innanlandsmarkaði undir verði í allt haust og í vetur. Mann tekir fyrir borð á „Lagarfossr. SÍÐASTLIÐINN sunnudag vildi það slys til, að 1. matsvein á Lagarfossi, Geir Hinriksson, tók fyrir borð. Var 'skipið milli landa, er slys- ið bar að höndum. Geir var ókvæntur og hafði lengi verið starfsmaður á skipinu. Fjársöfnun til Finnlands í Danmörku er bomiin 'upp í eina milljön og 600 þús. kr., en henni heldur áfram. FÚ. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. ’C* INNAR hafa unnið nýjan stórsigur á rauða hernum við austurlandamærin, skammt frá Suomussalmi. Tókst þeim eftir margra daga látlausa orustu að tvístra gersamlega 44. herfylki rússneska hersins, samtals 17 þús- und manns. Mikill meirihluti þess er talinn hafa fallið, 1000 manns voru teknir til fanga, en leifarnar af herfylk- inu hafa flúið inn í skóga, sem engar líkur eru til að þær komist lifandi út úr aftur, þar eð þær hafa hvorki vopn né vistir. Orustusvæðið er þakið líkum rússneskra hermanna, en vopnin hafa verið tekin herfangi af Finnum. Eru það mestu vopnabirgðir, sem fallið hafa í hendur þeirra hing- að til, eða 102 fallbyssur, 43 skriðdrekar, 10 brynvarðar bifreiðar, 1 flugvél, 20 dráttarvélar, 278 flutningabílar, þar á meðal 16 útbúnir loftvarnabyssum, 45 vélbyssur og þess utan 1170 hestar og 47 hermannaeldhús. Þetta er mesti sigurinn, sem Finnar hafa unnið í allri styrj- öldinni og ennþá meiri en sigurinn, sem þeir unnu við Kianta- járvi, nokkru fyrir norðan Suomussalmi, rétt fyrir áramótin, þegar þeir eyðilögðu 163. herfylki Rússa. Það er fullyrt, að her Rússa á vígstöðvunum við Suomus- salmi hafi með þessum sigri Finna verið gereyðilagður, þannig að útilokað sé, að þeir geti hafið þar nokkra sókn á ný fyrst um sinn. En frá vígstöðvunum við Salla, sem eru við austurlanda- mærin, rúmum 200 kílóm'etrum norðar, er fullyrt að Finnar hafi nú einnig umkringt mikinn rússneskan her eftir margra daga látlausa orustu, og stöðvað alla aðflutninga til hans, þannig að þess geti ekki verið nema skammt að bíða örlög hans verði þau sömu og 44. herfylk- isins hjá Suomussalmi. Færi svo, eru allar fyrirætl- anir Rússa um að hrjótast frá austurlandamærum Finnlands vestur að Helsingjabotni og kljúfa landið í tvennt, farnar út um þúfur, að minnsta kosti þangað til þeim hefir tekizt að flytja nýtt lið til þ'essara víg- stöðva. Það er tekið fram í tilkynn- ingu finnsku herstjórnarinnar um sigurinn við Suomussalmi, að hinir finnsku skíðamanna- flokkar hafi átt verulegan þátt í honum. Þeir eru fljótari 1 ferðum en nokkrar hersveitir Rússa og eru að staðaldri á ferli á bak við þær til þess að loka samgönguleiðum þeirra og stöðva aðflutninga fyrir þeim bæði á vopnum og vistum. Það er nú einnig staðfest, að skíðamannaflokkar Finna hafa á mörgum stöðum komizt alla leið austur að Murmansk- brautinni og valdið miklum skemmdum á henni. En það hindrar Rússa algerlega í því, að flytja her í stærri stíl á (Frh. á 4. síðu.) Finnskir hermenn athuga kortið. SQérnarkosning I Dags brún hefst p. lS.|anúar —.——*---- Sameigitilegur listi allra verkamanna, sem fylgja lýðræðisflokkunum? Þjóðverjar stððva i- talskar fligvélar til Finnlands. Samkvæmt ösk Rússa. LONDON í gærkveldi. FÚ. AÐ er nú staðfest, að Þjóðverjar hafa stöðv- að flutning á ítölskum flug- vélum, sem sendar voru frá Ítalíu yfir Þýzkaland, og áttu að fara til Finnlands. Vekur það undrun, að stöðv- aður skuli flutningur frá þjóð, sem Þjóðverjar hafa jafn nána samvinnu við og ítali, en hér hefir jverið farið að óskum Rússa, sem hafa lagt að Þjóð- verjum, að stöðva þennan flug- vélaflutning. Ennfremur segir í brezkri fregn um þetta, að nokkrir (Frh. á 4. síðu.) T\ AGSBRÚNARKOSN- ^ INGAR standa fyrir dyrum. Samkvæmt félags- lögum eiga þær að hef jast 18. janúar n.k. Þessum kosningum er jafnan fylgt með óskiptri athygli, síðan verkalýöshreifingin klofnaði fyr- ir tilverknað Héðins Valdimars- sonar. öllum verkalýðssinnum þykir mikils um vert, er petta fjíöimenna og áður eitt öflugasta verkamannafélag landsins gengur til allsherjaratkvæðagreiðslu og kýs stjórn sína. En alveg sérstaklega þykir verkamönnum í Reykjavík skipta mxklu' hvernig tekst til nú, þar sem félagið, ’ eftir tveggja ára pólitíska östjórn, er ruið iran að skyrtunni og hefir á s. 1. ári ekk- ert gert í þeirn málum, er varða hagsmuni verkamanna. Það er því síður en svo undar- legt, þó að verkamennirnir í Dagsbrún hafi leitað fyrir sér um miöguleika til þess að skapa lýð- ræðisstjórn í félaginu, sem fyrst og fremst hugsaði um dagleg hagsmunamál verkamanna og léti þau sitja fyrir pólitísku brölti, jafnframt því sem fjársóunin yrði stöðvuð, en félagssjóður hefir á s. 1. tveimur árum verið notaður til framdráttar landráða- flokki kommúniista og klofnings- Deila milli sjömanna og útgerðarmanna i Heflavik. ....» ——— Félagsdómur hefur pegar feng* m mállð til drskurðar. D' iEILA STENDUR YFIR í Keflavík rnilli Verkalýðs- og sjómannafélags K'efiavíknr og útgerðarmanna. Samningar eru til milli aðilja, og samkvæmt þeim bar að segja þeim upp fyrir 1. nóvember síð- astliðinn, ef þeir áttu að falla úr gildi. Það var ekki gert, og sam- kvæmt skilningi Verkalýðs- ' og sjómannafélagsins eru samning- arnir enn í gildi. Sjómenn heimta hlutaskipti (Frh. á 4, síðu.) f############################### 1 milljón króna safnað á einnm degi f Svfþjóð handa Finnlandi! Daginn, sem verkamenn gáfu dagkaup sitt. Frá fréttaritara Alþ.bl. KHÖFN í morgun. AÐ var tilkynnt í Stokkhólmi í gær, að á laugardaginn eða þrett- ánda í jólum hefði safnast yfir 1 milljón sænskra króna til Finnlands, en þann dag gáfu verkamenn um alla Svíþjóð vinnulaun sín til Finnlandssöfnunar- innar. Áður hafa safnast 7 milljónir króna í Svíþjóð, síðan Finnlandssöfnunin hófst þar. i ^ #»#############################J starfsemi þeirra í verkalýðsfélög'- unum. Verkamenn í Dagsbrúin, sem aðhyllast mismunandi stjómmála skoðanir, hafa þvi valið nefndir til að athuga samvimrumöguleika um stjórn. Andstæðar pólitískar Iífsskoð- anír eiga ekki að stjórna þannig tiMnningum þeirra, að öll raun- hyggja hverfi og sjónarmið Dags- brúnarverkamannsins þoki fyrir pólítísku ofurkappi. Verkamenn hafa séð, starfsemi kommúnista, hvert hún leiðir, á- hrif þeirra þurfa að þurrkast út í ” verkálýðshreifingunni, annars fæst ekki starfsfriður, og það væri hörmúlegt, ef þeim með lýðskmmi sínu og blekkingum tækist að sundra svo röðum verkamanna að drottnun þeirra yrði enn tryggð í félaginu að meira eða minna leyti vegna (Frh. á 4. síðu.) \

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.