Alþýðublaðið - 13.01.1940, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ARGANGUR.
LAUGARDAGUR 13. JAN. 1940.
10. TÖLUBLAÐ
Samkomulag um sameiglnleg«
an lista á móti kommúnistum
við Dagsbrúnarkosninguna.
---«--—
Listinn verður lagður fram á sunnudaginn
iUþýðofloblGfélðg-
ið I hvöld.
ASKEMMTI- OG'
fræðslukvöldi Al-
þýðuflokksfél. í kvöld í
Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu verður fjölda margt
til skemmtunar. Þar verða
skuggamyndasýningar,
upplestur, söngur og er-
indi Haralds um „London
í myrkri“. Haraldur tók
heim með sér gasgrímu
og verður hún til sýn-
is á skemmtikvöldinu.
Fjölmennið, félagar.
Tvð innbrot
í nótt.
En eogn stollð svo
sjáanlegt sé.
INÓTT voru framin tvö
innbrot, en ekki sjáanlegt,
að neitt hafi hafst upp úr
krafstrinum.
Var farið inn í pappírspoka-
gerðina á þann hátt, að brotin
var rúða, reistur upp stigi og
farið inn.
Var farið um allt húsið,
sprengt upp skrifborð, en ekk-
ert fémætt hafði horfið.
Þá var brotist inn í Kexverk-
smiðjuna Frón, að líkindum inn
um opinn glugga. Var þar
leitað um allt húsið, en engu
stolið svo sjáanlegt sé.
ANDSTÆÐINGAR KOMMÚNISTA í Dagsbrun und-
irrituðu í gærkveldi samkomulag um sameiginleg-
an lista við stjórnai*kosninguna í félaginu. Listinn verður
lagður fram á morgun.
Samkvæmt samkomulagi :
þessu skipa verkamenn, sem
fylgja Alþýðuflokknum sæti
formanns og gjaldkera á list-
anum, en verkmenn, sem
fylgja Sjálfstæðisflokknum,
hin þrjú. Ráðsmaður félags-
ins á að verða Alþýðuflokks-
maður. í varastjórn félagsins
verða 2 Alþýðuflokksmenn
og 1 Sjálfstæðismaður, í
stjórn vinnudeilusjóðs 2 og
1, í trúnaðarráði 50 af hvor-
um og í trúnaðarmannaráði,
en trúnaðarmannaráð hefir
æðsta vald um ákvarðanir
varðandi vinnudeilur, verða
5 Alþýðuflokksmenn og 4
S j álf stæðisf 1. verkamenn.
Vitanlega nær samkomulagið
til ýmislegra stjórnarfram-
kvæmda. Meðal annars verður
Dagsbrún sögð úr hinu svo-
nefnda Landssambandi stéttar-
félaganna, öðru nafni kloínings-
sambandi kommúnista. Þá verð-
ur og bætt úr ýmsum lögleys-
um, sem kommúnistar hafa
framið á undanförnum tveimur
árum.
Um leið og gengið var frá
samkomulagi við tilnefningar á
mönnum í trúnaðarstöður innan
félagsins undirrituðu aðilar
svohljóðandi samning um aðal-
atriðin í starfi Dagsbrúnar á
þessu félagsári:
1. að ráða bót á þeirri óstjórn
á félaginu, sem ríkt hefir s.l.
ár, meðal annars með því að
lagfæra brot á gildandi
samningum og taxta félags-
Amerika býðnr Mandi
og ððram NorðnrMnm lán
■ . ♦ ..
Finnland á að fá 15 millj. doilara og Nor
egur 10 millj. til vörukaupa í Ameriku
KHÖFN í morgun. FÚ.
TOT IN f járhagslega endur-
reisnarstofnun í Ainer-
íku hefir boðið Finnlandi 15
milljón dollara lán og Noregi
10 milljónir dollara til að
kaupa fyrir amerískar vörur.
Búizt er við að svipað boð
verði sent Danmörku og Sví-
þjóð.
Við setningu norska stór-
þingsins, sem fór fram í gær,
sagði Hákon Norgegskonungur,
að Noregur hefði haldið uppi
vinsamlegu sambandi við öll
ríki, en þó neyðst til að senda
ýmsum ríkisstjórnum mótmæli
vegna skerðingar á hlutleysi
Noregs. Hann lét í ljós von um
frið í Finnlandsstríðinu. Þá
kvaðst hann telja það hlutverk
stórþingsins að stuðla að sam-
vinnu Noregs og hinna hlut-
lausu landa, einkum Danmerk-
ur og Svíþjóðar, í því skyni að
tryggja friðinn.
Skorinorð ræða Hambros
Hambro stórþingsforseti flutti
einnig ræðu við setningu stór-
þingsins, sem vakið hefir at-
hygli vegna þess, hve einbeitt-
lega hann mælti með því, að
Finnum yrði veitt öll sú hjálp,
sem mögulegt væri.
Hann kvaðst vona, að hættur
Frh. á 4. síðu.
PaBSbránarmenn!
Atbngíð hvort hið
eruð á
EITT sterkasta vopn
kommúnista í þeim
kosningum, sem standa fyr
ir dyrum, er að hafa samið
kjörskrána og að hafa um-
ráð yfir henni.
í morgun neituðu kom-
múnistar algerlega að lofa
andstæðingum sínum að
sjá kjörskrána. Vitanlega
er þetta eindæma ofbeldi
og ættu Dagsbrúnarmenn
að svara því með því að
hópast í skrifstofuna og
heimta að fá að sjá skrána.
Þá eru þeir verkamenn,
sem enn eiga ógreidd gjöld
sín, áminntir um að greiða
þau fýrir næsta fimmtu-
dag.
ins, lögum þess og reglum,
og sjá um að samþykktum
þess sé framfylgt út í æsar.
2. að vinna að því að ná samn-
ingum við ríkisstjórnina,
bæjarstjórn Reykjavíkur og
aðra atvinnurekendur, sem
ekki eru samningar við nú, á
ekki lakari grundvelli, en
gildandi samningar eru.
3. að rétta við fjárhag félags-
ins eftir því, sem framast má
verða.
Báðir aðilar skuldbinda sig
til með undirskrift sinni, að
vinna að því á allan hátt, að
svo geti tii tekist að fram-
kvæmd þessara atriða verði
sem hagkvæmust fyrir Dags-
brúnarmenn, og heita því
jafnframt að standa vel á
verði um önnur hagsmuna-
mál þeirra.
eimng gegn
Noskóvltnm.
Þó að þau atriði, sem hér
hafa verið nefnd, séu sérstak-
lega tekin fram, er fjölda
margt annað, sem liggur fyrir
til úrlausnar í málum Dags-
brúnar — og það verður snúið
sér að því af festu og einurð
að kippa í lag hinum mörgu á-
göllum, sem hafa verið í stjórn
félagsins undanfarin ár, og
liggur þar mikið verkefni fyrir
höndum.
Kommúnistar óttast mjög þá
samvinnu, sem hefir tekist
gegn þeim. Þetta samkomulag
er fyrsti vísirinn að þjóðlegri
(Frh. á 4, síðu.)
Þýzkir stríðsfangar á Englandi,sem hafast við í gamalli höll, ui íkringdri af gaddavírsgirðingu.
Brezbar flngvélar yflr Anst-
nrriki og Tékbóslóvakii!
...
Fyrsta skipti í stríðinu, sem þær hafa
flogið svo langt suður yfir Þýzkaland.
Frá fréttaritara Álþýðublaðsins ♦
KHÖFN í morgun.
13 REZKAR hernaðarflug
vélar flugu í gær og í
nótt könnunarflug suður um
allt Þýzkaland og komust
alla leið suður yfir Austur-
ríki og Tékkóslóvakíu og
tóku þar víðs vegar myndir
úr lofti af þýðingarmiklum
stöðum.
Það er í fyrsta skipti í stríð-
inu, að brezkar hernaðarflug-
vélar hafa flogið svo iangt suð-
ur yfir Þýzkaland og vekur af-
rek þeirra mikla athygli úti um
heim.
Þá varð það og kunnugt í
gærkveldi, segir í FÚ-skeyti, að
brezkar hernaðarflugvélar
höfðu flogið yfir Hamborg,
Frankfurt am Main, Bremen og
Ruhrhérað á fimmtudagskvöld-
ið og einnig yfir flugbátastöð
Þjóðverja á Sylteyju, þar sem
varpað var niður 6 sprengikúl-
um.
Flugbátar þeir, sem Þjóðverj-
ar hafa notað til þess að varpa
úr tundurduflum, hafa þarna
bækistöð.
Loftvarnabyssur Þjóðverja
voru teknar í notkun og kast-
ljós og ein af flugvélum Breta
var um tíma umsveipuð slíku
ljósi, en tókst að komast á brott
áður Þjóðverjum heppnðist að
koma á hana skoti. Komst hún
heim heilu og höldnu eins og
hinar.
Það er gizkað á að í flugleið-
angri sem þessum sé flogið um
2500 km. eða slíka vegalengd og
yfir Atlantshaf milli íslands og
Nýfundnalands.
Sonnr Krnpps fallinn.
LONDON í gærkveidi. FÚ.
Þýzka herstjórnin tilkynnti í
gær, að sonur Kmpps, hergagna-
framleibanndans fræga, hefði
þeðið bana í lofttomstu s. 1. mið-
vikudag.
1
Dingeyjar- og Eyja-
I
GÆRMORGUN snemma
varð vart nokkurra jarð-
skjálftakippa í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslu. Munu þeir hafa
orðið einna harðastir á Húsa-
vík.
Fyrsti kippurínn kom klukk-
an rúmlega 6. En harðasti kipp-
urinn kom kl. 8,40 og var svo
snöggur, að hlutir færðust úr
stað.
Ennfremur fundust jarð-
Birgðir af skömtnnj
arvðrnm I landinn.
SKÖMTUN ARSKRIF-
STOFA ríkisins hefir
sent Alþýðublaðinu eftir-
farandi bráðabirgðatölur
um verzlunarbirgðir af
skömmtunarvörum 31.
desember 1939:
227 smálestir kaffi.
1104 smálestir sykur.
1483 smálestir hveiti.
1212 smál. rúgmjöl og
rúgur.
867 smál. hafragrjón,
hrísgrjón og aðrar kom-
vörur.
skjálftakippir í Bárðardal og
Köldukinn.
Þá varð jarðskjálftakippa
vart á Akureyri, en þeir voru
ekki mjög harðir.
Kippirnir virtust koma úr
suðurátt.
B»ði Eússar og Finnar
fá llðsstjrrls við Salla.
—---»----—
Orustan heidur áfram í algleymingi.
Frá fréttaritara Alþýðuhlaðsins.
RUSTAN VIÐ SALLA er enn
Kaupmannahöfn í morgun.
ORUSTAN VIÐ SALLA er enn í algleymingi og engar
greinilegar fréttir hægt að fá af því, hv'ernig hún stendur.
En vitað er, að Rússar hafa sent mikið lið, eða um 20 þúsund
manns, að því er ætlað er, frá landamærunum áleiðis til Salla til
þess að reyna að rjúfa herkví Finna um hið rússneska herfylki,
sem þar er króað inni. En Finnar draga einnig að sér allan
þann liðstyrk, sem þeim er unnt.
Rnssar farnir að læra
af Finnnm.
LONDON í miorguin. FO.
Það er sagt, að Rússar séu nú
farnir að lœra af Finnum; her-
mennirnir eru búnir að fá hvíta
jakka, og brynvörðu bifreiðarnar
eru hvítmálaðar.
Á föngum hafa fundizt pésar,
sem innihalda leiðbeiningar
handa skíðamönnum.
Rússar gerðu loftárás á Éangö
í gær, enn fremur á Ábo og á
ýmsa staði á suðvesturströndinni
og á eyjar i Kyrjálabotni.
1 Kaupmannahafinarfrétt segir
einnig, að flugvélar Rússa hafi
verið á sveimi yfir Petsamovig-
stöðvunum. Sáust 16 flugvélar í
ihóp, og 3 eru sagðar hafa flogið
iinn yfir norsku landamærin.
Fátt markverðra tíðinda hef-
ir borizt frá Finnlandi í dag.
Brezkra útvarpið birtir þó við-
töl nokkur við rússneska fanga
(Frh. á 4. síðu.)