Alþýðublaðið - 19.01.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.01.1940, Blaðsíða 1
ÐassbrAnarmenn! Látið ekki drag- ast að kjðsa. Ejðs- ið B-listann. RITSTJÓRX: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: AI,ÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR. FÖSTUDAGUR 19. JAN. 1940. 15. TÖLUBLAÐ KOSNINGASKEIFSTOFA Alþýðuflokksverkamaima Alþýðuhúsirm, 6. hæð. Sími 3020. \ Bðmlega 900 bðnir bðnlr að kjósa. KLÚKKAN 2 í dag, þegar blaðið var að fara í pressuna, voru um 250 Dagsbrúnarmenn bún- ir að greiða atkvæði síðan í morgun, eða rúmlega 900 síðan kosningin hófst í gær. Dagsbrúnarmenn! Herð- ið sóknina. Yfir 800 eiga enn eftir að greiða at- kvæði. Kjósið áður en það er um seinan. Farið eins fljótt og unnt er á kjör- | stísðinn, Hafnarstræti 21, Í og kjósið B-listann. Hæstaréttardómnr i fnorgnn fyrir ðivnn iið abstir, er siys blaizt af. W MORGUN var kveðinn upp A í Hæstarétti dómur í málinu \ aldstjórnin gegn Þorsteini <íuðm\mdssyni bifreiðarstjóra fyrir öívun við akstur, sem slys Idauzt af. Málavextir eru í stuttu máli jæir, að sunnudaginn 24. júlí s.l. ók kærði bifreiðinni S.H. 28 frá Vtgamótum í Miklaholts- 1 ireppi áleiðis að Grund í Kol- 1 ieinsstaðahreppi með 31 far- l>ega. Er kærði var kominn að svo- nefndum „Stöpum“ norðan Haffjarðarár, nam hann staðar, fór út úr bifreiðinni og talaði við fólk, sem var þar á ferð ríð- andi. Bar þá á því, að kærði var mjög ölvaður. Er hann hafði atanzað ofurlitla stund hjá fólk- inu, fór hann aftur inn í bílinn og ók af stað. En rétt strax eftir að hann fór af stað, valt bíllinn og urðu allir farþegar undir honum nema 2—3, sem stóðu á burðarborði bifreiðarinnar. Fimm menn meiddust, en þó Frh. á 4. síðu. Dagsbrúnarkosniisgin er á enda klukkan ellefu í kvðld. ----»-- Hver einastl félagsmaöur. sem vlll gera enda á vöMum Siinna rússnesku erind- rekffl, verður að kjósa fyrlr pann tfma. ---4.-- KJéslð sem fyrst og kjðsið B^listannS T TM 660 Dagsbrúnarmenn greiddu atkvæði um framtíð- arstjórn félags síns í gær, þótt kosningin stæði ekki nema sex klukkustundir og væri slitin sundur af fundi þeim, sem Héðinn og kommúnistar boðuðu til í því skyni að tefja hana. Það er meira en þriðjungur allra þeirra, sem á kjörskrá eru. Kosningin hófst aftur klukkan 9 í morgun og stendur óslitið til klukkan 11 í kvöld. Þá er hún á enda. Eftir þann tíma er of seint að koma á kjörstað (Hafnarstræti 21). Hver einasti Dagsbrúnarmaður, sem vill gera enda á þeirri hættu og þeirri smán, að erindrekar Rússa hér fari með völd í stærsta verkalýðsfélagi landsins og noti það sem verkfæri sitt, verður því að greiða atkvæði í dag með B-listanum, lista lýðræðisflokkanna, og það sem allra fyrst. var i minnlhluta á Dagsbrúnarfundinum i gær. Héðinn og kommúnistar voru í algerum minnihluta á Dagsbrúnarfundinum, sem haldinn var í gærkveldi klukkan 6—8. Fór því þetta fundarhald á allt annan veg en kommúnistar ætluðust til. Til þess var efnt í þeim tilgangi að tefja kosninguna og æsa upp eigið lið og smala fylgismönn- unum að kjörstað, þegar kosn- ingin átti aftur að hefjast kl. 8. Fundarboðun þessi var, eins og áður hefir verið sagt hér í blaðinu, algert einsdæmi og raunverulega íreklegt ofb'eldi. Það hefir aldrei heyrst fyrr, að kosningu væri slitið í miðjum klíðum af öðrum aðila, sem hef- ir hluttöku um kosninguna, til þess eins að halda æsingafund út af kosningunni. Þetta var þó ekki nema efir öðru um stjórn kommúnista á Dagsbrún og þó sérstaklcga um framkomu þeirra í sambandi við kosning- arnar í fyrra og þá ekki síður nú. Gefst síðar tækifæri til að ræða þau mál nánar. Funðnr fylgismanna i- iistans. Fylgismenn B-listans ákváðu undir eins og þeir fengu — af leynifundi Iiéðins fregnir um þetta fyrirhugaða fundahald, að Sókn Rússa vestur að Hels- ingjabotrd hefir mistekizt. —--»--- Allur her þeirra hjá Salla er nú á undanhaldi. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun. O ÍÐUSTU FREGNIR frá Finnlandi herma, að sókn ^ Rússa á vígstöðvunum vestan við Salla, þar sem Rúss- i r ætluðu sé að hrjótast þvert yfir Finnland vestur að Hels- iugjahotni, hafi nú verið stöðvuð og allur rússneski herinn á þeim slóðum sé á hröðu undanhaldi. ílersveitir Rússa, sem voru komnar hér um bil miðja vegu inn í Finnland á þessari leið, voru stöðvaðar við Jout'iijárvi rétt hjá hinni þýðingarmiklu borg, Kemijárvi, sem. er í járnbrautarsambandi við Helsingjabotn, og hrakt- ar aítur alla leið austur að Márkajárvi. Hafa Finnar sótt þarna fram samtals 45 kílómetra. Gífurlegur fögnuður var í Helsingfors í gær yfir þessari frétt, og er talið víst, að Rússar muni ekki reyna neina frekari spkn á þessum slóðum aftur, fyrr en eítir að ísa leysir í vor. AnnarsstaSar en á Salla vig- stöðvunum var lítið barist í gær vegna hinna ógurlegu kulda, sem nú eru í Finnlandi. En í einni fregn segir, að um 1000 rússneskir hermenn hafi frosið í hel á Kyrj- 'álanesi síðustu dagana. Flugvélar Rússa halda hó á- fram loftárásum á varnarlausa staði á Finnlandi eins og áður, og gerðu þeir í gær loftárásir m. a. á Hangö og Björkö. Óvíst er enn um tjón af þessum loftá- rásum en Finnar segjast á síð- asta sólarhring hafa skotið niður 11 rússneskar flugvélar. Frh. á 4. síðu. boða til annars fundar með fylgismönnum B-listans í sama húsi, einni klukkustund eða svo — áður en fundur kommúnista átti að hefjast. Og fundur fylgismanna B- listans hófst stundvíslega kl. 4,30 í gær í Nýja Bíó. Fundur- inn varð mjög fjölmennur. Tíminn var mjög óhentugur fyrir verkamenn, en við því varð ekki gert, þar sem ekki var um annan tíma að ræða. Á þess- um fundi mættu á 4. hundrað manna, var húsið fullskipað niðri og töluvert af mönnum uppi. Á þessum fundi töluðu Einar Björnsson, Sigurður Halldórs- son, Torfi Þorbjörnsson, Sveinn Sveinsson og Arngrímur Kristj- ánsson. Var öllum ræðumönn- unum tekið prýðilega vel, og var auðfundinn hinn ákveðni vilji fundarmannanna að út- rýma nú yfirráðum kommún- ista úr félagsslcap verkamanna fyrir fullt og allt. Klukkan rúmlega 5 ¥2 var út- runninn tími sá, er fundarboð- endur höfðu húsið og véku þeir því út fyrir dyrnar, en um kl. 6 var húsið opnað fyrir Dagsbrúnarfund. Streymdu þá þegar allir þeir, sem á fyrri fundinum voru inn í húsið aftur og tóku upp salinn niðri og nokkuð uppi, en kommúnstar komust jafnhliða inn og á eftir. Fundurinn hófst þegar í stað og kom strax í ljós, að tilefni hans var ekkert annað en það, að ræða um kosningarnar. Er þa§ svo sem ekki í fyrsta skipti, sem kommúnistar leyfa sér að eyða þannig úr sjóðum Dags- brúnar í óþarfa og vitleysu. — Eins og spáð var hér í blaðinu í gær, endurtóku kommúnistar enn lygar sínar um lækkun kaups í Krísuvíkurvegi og skerðingu á réttindum vega- vinnumanna að öðru leyti. Annars varð andúðin á kom- múnistum og Héðni Valdimars- syni svo áþreifanleg þegar í byrjun fundarins, að jafnvel þessum þaulæfðu æsingamönn- um féllust hendur. Þó æptu þeir — stöppuðu og skræktu, þegar fylgismenn B-listans töluðu, hins vegar fengu hinir að tala í friði, enda var sá munur á, að fylgismenn B-listans hafa aldrei getað lært skrílsframkomu kommúnista. Til máls tóku af hálfu B-list- ans: Einar Björnsson, Sigurður Halldórsson, Torfi Þorbjörns- son, Sveinn Sveinsson, Arn- grímur Kristjánsson og Þórður Gíslason. ' Kvað við dynjandi Frh. á 4. síðu. Hlutlaust skip að sökkva við austurströnd Englands eftir að hafa rekizt á tundurdufl. Á neðri myndinni sést skipshöfnin í björg- unarbátunum. Þremur norskum skip- um sðkkt síðustu daga ------»■.. Hafa rekizt á timdurdufl eða verið skotin í kaf af þýzkum kafbátum. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHÖFN í morgun. Ihfc REMUR norskum skip- um hefir verið sökkt síðustu dagana, annaðhvort af þýzkum kafbátum eða af tundurduflum, sem þau hafa rekizt á, og er það mesta skipatjónið, sem Norðmenn hafa orðið fyrir í stríðinu á svo stuttum tíma. Eitt þessara skipa, „Fager- Iieim“, frá Tönsberg, sökk í Bis- kayafióa, norður af Spáni, en ókunnugt er, hvort það var skotið í kaf, eða það rakst á tundurdufl. Skipið sökk á að- eins tveimur mínútum og hafði ekki einu sinni tíma til þess að senda út neyðarmerki. Nokkr- ir menn af sltipinu eru komnir til Vigo á Spáni, en talið er, að 14 manns a£ skipshöfninni hafi farizt. Annað skipið, „Emil“ frá Þrándheimi, var skotið í kaf af þýzkum kafbáti skammt frá Sh'etlandseyjum. Skipið var stórt, 11 þús. smálestir, og vant- ar enn 9 manns af skipshöfn- inni. Nokkrum var bjargað af brezkum togára og 8 menn kom- ust í skipsbátnum til Shetlands- eyja. Þriðja skipið. sem ekki er enn vitað hvað hét, sökk austur af Skotlandi og er álitið, að það hafi verið skotið í kaf. Óvíst er enn, hvort tekizt hefir að bjarga nokkrum af skipshöfninni. Eimskipið Olga frá Kaup- mannahöfn, eign útgerðarfé- lagsins .,Progress“, hefir farizt við Noregsstrendur. Hafði svo mikill sjór komizt í skipið, að drepizt hafði undir kötlunum og eldstæðin voru orðin alklökuð. Skipshöfninni tókst að bjarga sér í bátana. Daglegar appreisn- ir í Danmðrko, segir Atvarpið í Moskva!! KHÖFN í gærkveldi. FÚ. ¥ FREGN frá Kaup- mannahöfn segir, að útvarpið í Moskva haldi áfram harðvítugum árás- um á Norðurlöndin fyrir stuðning þeirra við Finn- land og telur það, að með honum séu Norðurlöndin að ganga erindi Breta og vinna fyrir heimsyfir- drottnunarstefnu þeirra. Er árásunum í dag sérstak- lega beint gegn Dan- mörku. Útvarpið í Moskva held- ur því fram í dag, að stjórnarfarið í Danmörku sé svo bágborið, að daglega séu uppreisnir bældar nið- ur með grimmd og blóðs- úthellingum. Mönnum sé ógnað til þess að gerast sjálfboðaliðar í Finnlandi. Loks er gefið í skyn, að Rússland rnuni verða að hlutast til um þetta ástand til þess að bjarga hinni kiiguðu dönsku þjóð.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.