Alþýðublaðið - 20.01.1940, Side 3

Alþýðublaðið - 20.01.1940, Side 3
ALÞfÐUBLAÐIÐ Fjárhagsáætlunin og ýms bæjarmál. Haoa laralds Quðmuadssonar um ráð- stafanir til bætts heilsufars i bæniin. ----------- Miklar endurbætur verða gerðar á íþróttavellin- um, en dregið úr undirbúningi íþróttasvæðisins. -----4----- Deilur um iokun hafearimiar og stiílkurnar i sklpunum. TF-v RÁTT FYRIR ÞAÐ, þó að umræður í bæjarstjórn um [járhagsáætlunina væru að þessu sinni styítri og hóg- látari en nokkru sinni áður og breytingartillögur miklu færri, komu ýms mál til umræðu og einstaka sinnum hvessti svolítið. Það verður að telja mjög líklegt að helztu tillögur Al- þýðuflokksins nái fram að ganga. Var hér í blaðinu í gær skýrt frá því að bæjarráð í heild tók upp tillögu Alþýðu- flokksins um kaup 10 vélskipa og athugun möguleika á byggingu ísframleiðsluhúsa og hraðfrystistöðvar, en aðrar aðaltillögur flokksins fóru til framfærslunefndar og bæj- arráðs til athugunar. 6arbræktio~(ekki ankin Frá miðhéruðunum í Hollandi. sem vatni hefir þegar Verið veitt á í varnarskyni, LAUGARDAGUR 20. JAN. 1940. «------------—----------- ALÞÝÐU3LAÐSÐ RrrSTJÓRI: r. r vaJjDEMARSSOn t. fjarveru hana: STEFÁN PÉTURSSON. AFGREIÐSIiA.: ALÞÝÐUHÚSINU rinnpangur frá Hverfisgötu). SfMAR: 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 1802: Ritstjóri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 4905: Alþýðuprentsmiðjan. |4906: Afgreiðsla. [5021 Stefán Pétursson (heima). 1 ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN * -----------------:-----♦ Dýrtlðaruppbót á ellllann on or- orknbætnr. VIÐ umræðurnar um fjár- hagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 1940 á bæjarstjórnar- fundinum í fyrradag, báru full- trúar Alþýðuflokksins fram þá breytingartillögu við fjárhags- áætlunina, að bæjarstjórnin samþykkti að greiða á árinu sömu hundraðstölu í dýrtíðar- unpbót á ellilaun og örorku- bætur í 2. flokki og verkafólk fengi í kaupuppbót á hverjum tíma samkvæmt hinum nýju kaupgjaldsákvæðum gengislag- anna frá síðasta alþingi, að því til skyldu, að tryggingarstofnun ríkisins greiddi sömu uppbót að sínum hluta. Ef þessi tillaga hefði náð fram að ganga, hefðu ellilaun og örorkubætur í 2. flokki hækkað nú þegar um 9% eins og kaup alls þess verkafólks, sem í gengislögunum er talið til lægsta launaflokks. En tillagan náði ekki samþykki bæjar- stjómarmeirihlutans. Henni var vísað til hinnar nýstofnuðu framfærslunefndar ríkisins, en sú nefnd hefir nú meðal margs annars til athugunar, hve mik- ið framf ærslustyrkir skuli liækka vegna dýrtíðarinnar af völdum stríðsins. I sjálfu sér er ekkert við það að athuga, þótt þéssari tillögu Alþýðuflokksfulltrúanna í bæj- arstjórn um dýrtíðaruppbót á ellilaun og örorkubætur væri vísað til framfærslunefndar ríkisins. En hins vegar verður ekki séð, hvaða skynsamlega ástæðu bæj arstj órnarmeirihlut- inn gat haft til þess að tefja málið með því. Engum manni með heilbrigðri skynsemi getur blandazt hugur um það, að alls- endis óhjákvæmilegt verði að greiða gamla fólkinu og öryrkj- unum hlutfallslega eins háa uppbót á ellilaunin og örorku- bæturnar og lægst launaða verkafólkið fær á kaup sitt vegna dýrtíðarinnar. Ellilaunin og örorkubæturnar voru þegar fyrir gengislækkun krónunnar og dýrtíðina af völdum stríðsins ekki miðaðar við annað en allra brýnustu þarfir þess fólks, sem verður þeirra aðnjótandi, og það getur því hver og einn sagt sér sjálfur, hvort nokkurt rétt- læti og nokkurt vit sé í því, að láta ellilaunin og örorkubæt- urnar standa í stað, þegar óhjá- kvæmilegt hefir reynst að hækka kaup alls verkafólks í landinu verulega vegna stór- kostlegrar verðhækkunar á öll- um lífsnauðsynjum, sem orðið hefir síðan ófriðurinn hófst. En það er ekki aðeins mann- úðar- og réttlætismál, að dýr- Alþýðuflokkurinn lagði mikla áherzlu á að fá samþykkta til- lögu sína um framlag til garð- ræktar svo að mönnum yrði hjálpað til að auka garðrækt í bænum, en þetta fékkst ekki samþykkt, og verður að telja það mikla skammsýni af hálfu bæjarstjórnarmeirihlutans. Ein- mitt nú hefði verið ástæða til að auka garðyrkjuframkvæmd- ir í bænum, en meirihlutinn vildi ekki stuðla að því með auknum fjárframlögum. SjúkraMsmálin. Tillaga Baraidar feld. Haraldur Guðmundsson bar fram tillögu um, að bæjarsjóð- ur greiddi styrk til einkasjúkra- húsanna í bænum, er næmi 2 kr. pr. legudag, að því til settu að meðlimir Sjúkrasamlags Reykjavíkur og sjúklingar þeir, sem bærinn greiðir fyrir, njóti sömu kjara á sjúkrahúsum þessum og á Landsspítalanum. Síðastliðið ár var daggjald á tíðaruppbót verði greidd á elli- launin og örorkubæturnar á sama hátt og á kaup verkafólks- ins. Það er auk þess knýjandi nauðsyn, ef koma á í veg fyíir það, að gamla fólkið og öryrkj- arnir verði hópum saman að leita til bæjar- eða sveitarfélags síns um framfærslustyrk til við- bótar til þess að geta dregið fram lífið. Bæjarstjórnarmeiri- hlutinn hér í Reykjavík hefði því átt að geta sagt sér það sjálfur, að þess gæti ekki orðið nema örskammt að bíða, að bæjarstjórnin yrði að taka þetta mál upp á ný og afgreiða það að minnsta kosti á mjög svipaðan hátt og þann, sem fulltrúar Al- þýðuflokksins fóru fram á, og öll skynsemi mælti því með því að tillaga þeirra væri tafarlaust samþykkt. En þess er að vænta, að fram- færslunefnd ríkisins, sem nú hefir þessa tillögu til athugun- ar, greiði þannig fyrir henni, að gamla fólkið og öryrkjarnir þurfi ekki að bíða þess lengi, að því sé sýnt sama réttlæti og öðrum með því að hækka við það hin litlu ellilaun og örorku- bætur á sama hátt og sjálfsagt og nauðsynlegt hefir þótt að hækka kaup alls verkafólks í landinu. Landsspítalanum kr. 6,50, en á einkasjúkrahúsunum 2 krónum hærra, eða kr. 8,50. hvort- tveggja að meðtalinni greiðslu fyrir læknisaðgerðir, lyf o. þ. h. Legudagar samlagssjúklinga á einkasjúkrahúsum sama ár voru rúmlega 30 þús.. og varð því samlagið að greiða yfir 60 þús. kr. meira fyrir sjúkrahúss- vist meðlima sinna en það hefði þurft að greiða, ef Landsspít- alinn eða jafnódýrt sjúkrahús hefði getað tekið við öllum sjúk- lingum þess. Aðrir kaupstaðir landsins, nær allir, hafa tekið á sig þung- ar byrðar til þess að bæta úr heilbrigðisástandi bæjarbúa og létta þeim sjúkrakostnað, með því að reisa sjúkrahús með miklum tilkostnaði og síðan reka þau með stöðugum, halla. Enda eru daggjöld þessara sjúkrahúsa yfirleitt svipuð og hjá Landsspítalanum, og sums staðar ennþá lægri. Erlendis víðast, t. d. í Dan- mörku, leggja hæjarfélögin svo mikla áherzlu á þetta atriði, að þau láta innanbæjarsjúklinga aðeins greiða lítinn hluta legu- kostnaðarins, víða 1—2 krónur á dag og jafnvel lægra. Telja þau sanngjarnt, að þeir, sem eru svo lánsamir að veikjast eigi svo að þeir þurfi sjúkra- hússvist, beri meira af kostnaði við sjúkrahúsin en sjúklingarn- ir sjálfir. Reykjavík hefir ekkert að- hafzt í þessu efni. Nú er þýð- ingarlaust að bera fram tillögu um að bærinn byggi sjúkrahús eða kaupi. Því var lagt til að í bili leggi bæjarsjóður fram sem svarar mismun á daggjöld- um einkasjúkrahúsa og Lands- spítalans, svo aðstaðan verði að þessu leyti jöfn og í kaupstöð- um. sem sjálfir eiga og reka sjúkrahús. Með því að leggja niður Far- sóttahúsið, sem rekið hefir ver- ið með stórkostlegum halla. 1938 yfir 60 þús. kr., og koma þeim málum annan veg fyrir, má fá mikið upp 1 þá fjárhæð, sem leggja þyrfti sjúkrahúsun- um. Ef þessi tíllaga H. G. hefði verið samþykkt, hefði eigi þurft að hækka iðgjöld til sjúkrasam- lagsins, þrátt fyrir vaxandi dýr- tíð, og hefði þá fremur mátt lánast að halda niðri öðrum kostnaðarliðum. Misskilningur er, að telja framlag bæjarins til aukinna útgjalda. Ekki er hægt að segja um með vissu, hve mikið hefir sparazt bænum af sjúkrakostn- aði vegna bæjarmanna síðan samlagið tók til starfa. En víst er að þar er um geysifjárhæðir að ræða. En meirihlutinn felldi tillögu Haraldar og þar með ríkir sama sleifarlagið áfram 1 þessum málum. A aö loka hofalnnl ? Framsóknarflokkurinn bar fram tillögu um að heimila hafnarstjórn að verja fé hafnar- sjóðs, eins og með þyrfti, „til að koma upp fullnægjandi girð- ingu, er útiloki umferð að þeim svæðum hafnarinnar, þar sem útlend skip hafast við“. Hafnarstjórn hafði fengið þessa tillögu til umsagnar, og var hún tekin til umræðu á fundi síjórnarinnar 16. þ. m. Felldi stjórnin tillöguna með samhljóða atkvæðum. Um enga tillögu urðu eins harðar umræður á bæjarstjórn- arfundinum og þessa. Jón Axel Pétursson lagði eindregið til að tillagan yrði felld. Taldi hann að slíkar girðingar hefðu enga þýðingu og sagði hann að á- standið væri sízt betra í þeim hafnarborgum erlendis, þar sem hafnirnar væru lokaðar vissa tíma sólarhringsins. Hann sagði að það væri álit þeirra manna. sem fygldu þessu máli, að hægt væri með því að draga úr hættu af samræðissjúkdóm- um, en það væri hinn mesti mis- skilningur, og reynslan annars staðar sannaði þetta. „Auk þess er ég algerlega andvígur því, að það verði farið að girða sjó- mennina frá öðirum borgurum þessa fiskimannabæjar,“ sagði J. A. P. Þá sagði hann að hann teldi, að ef girða þyrfti af höfn- ina, væri nauðsyn að girða fleiri staði. Hann kvaðst um nætur, er hann hefði næturvakt, sjá verra atferli í ýmsum portum bæjar- ins en við höfnina og meðal annars í porti við Sambands- húsið. Jónas Jónsson reiddist hafn- arstjórn mjög fyrir afstöðu hennar og taldi hana hneyksli. Hann sagðist myndi gera þetta að opinberu máli, heimta fram- kvæmdir í málinu, taka það upp á alþingi, ákveða að lög- regluþjónar skyldu hafa ljós- myndavélar til að skella af á ósómann. Þá gerði hann Flosa- port og portið við Iðnskólann að umtalsefni. Hann kvað Al- þýðuflokkinn andvígan girðrng- um við höfnina vegna þess, að verkalýðsfélögin óttuðust að léttara yrði að afgreiða skip með , verkfallsbrjótum. Hann sagði að framferðið hér við höfnina væri þjóðinní til skammar. Jón Axel Pétursson svaraði Jónasi aftur — og kvaðst ekki óttast hótanir hans, enda væru þær ekki á neinum rökum reist- ar. Tillaga Framsóknarflokksins var felld. Miklar endBrkatnr i i- próttaielliflttm. ' l - - Gunnar Thoroddsen. sem á sæti í stjórn íþróttavallarins, bar fram tillögu um að taka af fjárveitingu, sem ætluð er til undirbúnings íþróttasvæðisins í Skerjafirði, nokkra fjárhæð, sem varið yrði til endurbóta é íþróttavellinum. Sagði hann, og munu allir taka undir það, að nauðsyn væri á því að endurbæta íþróttavöll- inn. Það þyrfti að hækka hann sv'o að vatn stæði ekki á hon- um þegar rigndi, bæta þyrfti á- horfendasvæði. búningsklefa og gera ýmsar breytingar svo að betri aðstaða skapaðist fyrir þá, sem stunda frjálsar íþróttir. Frh. á 4. síðu. VINNUFATAGERB ÍSLANDS M. F. REVKJAVIK. SÍMAR — 3666 — 1091. Kaupið aldrei vinnu- fatnað án pess að at- huga að eitthvert pess ara merkja sé á hon- um: k X X "f Tm a * * * NílNKIN Vm KHÖKI Elsta ob fnllbomnasta verbsmiðja sinnar greinar áíslandi. j

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.