Alþýðublaðið - 22.01.1940, Page 1
Theresia Guðmnndson
Ðjtur erinðl i kvöld
á fnnði Kveuiélaos
Alhýðoflokksins.
ins heidnr ionð i kvöld
L'iUfðBhisiBi.
m&'
XXI. ARQANGUH.
MANUDAGUR 22. JAN. 1940.
17. TÖLUBLAÐ
ÚTGEFANÐI: ALÞÝÐUFLOKKUEINN
RITSTJÓRI: F. R. VALÐEMARSSON
Vðldn
ovita
Listi lýðrœðisflokkanna sigraði bæði við
kosnlngu stjórnarinnar og trúnaðarráðs.
Hæstaréttardómar út
af árekstri 2 slipi.
IMORGUN var kveðinn upp
í hæstarétti dómur í málinu
Guðmundur Pétursson gegn
eigendum og vátryggjendum
e/s. „Stabil“.
Reis mál petta út af árekstri
milli es. „Stabil“ og vb. „Liv“ á
Siglufjarðarhöfn, er leiddi til
þéss, að vb. „Liv“ rak upp á
land.
Dómur var á pá leið, að eig-
endUr og vátryggjendur es. „Sta- Einar Björnsson,
Frh. á 4. siðu. hinn nýi formaður Dagsbrúnar.
Sjémenn í Keflavik vinna
ðeilnna við étgerðarmenn.
...■» ----
Um 200 manns á fnndf ¥erka«
lýðs og s]émannafélagsins í gær.
Hln nýja stjérn tók vlð
á aðalfnndinuni i gær
--------------
"O -LISTINN sigraði við kosningarnar í Ðagsbrún.
Stjórn félagsins og allar trúnaðarstöður verða þetta
féiagsár skipaðar Alþýðuflokksverkamönnum og Sjálf-
stæðisverkamönnum. Þegar tekið er tillit tii allra aðstæðna,
má það teljast kraftaverk fyrir andstæðinga kommúnista
að vinna kosningarnar, og það er fyrir fram gefið mál, að
nú hafa kommúnistar og Héðinn Valdimarsson tápað stjórsi
þessa fjölmennasta verkamannafélags landsins fyrir fullt
og allt. Héðinn Valdimarsson hefir verið formaður félags-
ins um 15 úra skeið, og það var eingöngu fyrir framkomu
hans og bandalags við kommúnista síðastliðin tvö ár, að
Dagsbrúnarverkamenn felidu hann frá kosningu nú.
Talning atkvæði hófst klukkan 1 á laugardaginn og var
henni lokið um klukkan 4. Úrslitin urðu þau, að B-Iistinn
hlaut við stjórnarkosninguna 729 atkvæði og fékk alla
kosna. A-listinn hlaut 636 atkvæði. Þannig munaði 93 at-
kvæðum á listunum. Við kosningu trúnaðarráðs fékk B-
listinn 717 atkvæði og fekk alla kosná, en A-listinn hlaut
622 atkvæði. Þar munaði 95 atkvæðum. Við stjórnarkosn-
inguna voru 24 seðlar auðir og 7 ógildir, en við kosningu
trúnaðarráðs voru 42 seðlar auðir og 9 ógildir. Sex seðlar
komu ekki fram við stjórnarkosninguna.
Tlh EILA hefir eins og
kunnugt er, staðið und-
ahfarið milli Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur
og Útvegsbændafélags Kefla-
víimr.
Samkvæmt ákvæðum
gengislaganna kröfðust sjó-
menn hlutaskipta í stað
premíu, sem var í fyrra, en
útgerðarmenn neituðu því,
að félagið gæti krafizt þess.
Allir Keflavíkurbátarnir hafa
stöðvast vegna þessarar deilu, en
nú hefir Útvegsbændafélagið með
bréfi viðurkennt, að neitun þeirra
um hlutaskipti hafi ekki haft við
rök að styðjast og viðurkennir að
krafa verkalýðsfélagsins um
hlutaskipti sé fullkomlega lög-
mæt. Hins vegar hefir Útvegs-
bændafélagið tjáð Verkalýðsfé-
laginu, að útvegsbændur treystu
sér ekki til að gera út bátana
með þeim hlutaskiptasamningum,
sem eru milli féláganna, og hefir
félagið farið þess á leit, að fá 27
lduta skipti í stað 24, sem samn-
ingurinn kveður á um.
Verkalýðs- og sjómannafélagið
heldur sér við þá samninga, sem
i gildi eru, en þá hafa útvegs-
bændur reynt að semja við hvern
einstakan sjómann bak við fé-
lagsskapinn, en ekkert orðið á-
gengt í því efni.
1 gær var lögskráð á 4 bátá
samkvæmt hlutaskiptasamningn-
urn — og má vænta þess, að
deilan sé þar með að leysast og
að bátarnir fari nú út hver af
öðmm.
í þ*ssari deilu hafa sjómenn
staðið saman eins og einn maður.
1 gær boðaði verkalýðs- og sjó-
mannafélagið til fundar með ör-
stuttum fyrirvara, og mættu á
honum um 200 sjómenn. Á
fundinum mætti Jón Sigurðsson,
erindreki Alþýðusambands Is-
lands.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
REZKA flotamálaráðu-
neytið tilkynnti í dag, að
íundurspillinum „Grenville“
hefði verið sökkt á Norðursjó.
Það er enn vafi á því, hvort
herskipið rakst á tundurdufl
eða skotið var á það tundur-
tundurskeyti. S'ennilega hefir
einn þriðji liluti skipshafnar-
innar farizt.
Það er kunnugt. að 8 menn
biðu bana, en 73 er saknað. 118
menn af skipshöfninni voru
settir á land í dag í hafnarborg
á austurströnd Bretlands.
Tundurspillirinn er þriggja
ára gamall og var forystuskip
tundurspilladeildar. Kostnaður
við smíði skipsins var Vz millj.
sterlingspunda.
í stríðsbyrjun átti Bretland
í stjórn Dagsbrúnar eiga því
sæti þetta ár:
Einar Björnsson formaður.
Sig. Halldórsson varaform.
Gísli Guðnason ritari.
Torfi Þorbjarnarson gjaldk.
Sveinn Jónsson fjármálarit.
í varastjórn eiga sæti Jón S.
Jónsson, Kristinn Kristjánsson
174 og 24 í smíðum. Þetta er
þriðji tundurspillirinn, sem
Þjóðverjar hafa sökkt í yfir-
standandi styrjöld.
Sjö skigum sðkkt.
Alls var sjö skipum sökkt í
gær, þar á meðal 10 000 smálesta
brezku skipi, „Protebisus", sem
rakst á tundurdufl við vestur-
strönd Englands. Skipshöfnin, 60
menn, þar af 45 Kínverjar, bjarg-
aðist.
Þá fórst Aberdeenskipið „Ferry,
Hill“ á tundurdufli við norð-
austurströnd Skotlands, og fórust
12 menn.
Þá er eistlenzka skipið „Na-
duk“, sem férst á tundurdufli við
Skotlandsströnd. Skipshöfninni
var bjargað.
og Sigurbjörn Maríusson. End-
urskoðendur voru kosnir Auð-
unn Auðunsson og Eggert Jó-
hannesson. í stjórn Vinnudeilu-
sjóðs eru Sigurður Guðmunds-
son, Freyjgötu 10, formaður,
Bjarni Sæmundsson og Ágúst
Jósefsson.
Trúnaðarráð er skipað 100
mönnum. Eiga sæti í því 50 af
hvorum flokki, Þetta trúnaðar-
ráð á að kjósa trúnaðarmanna-
ráð, sem skipað er 9 mönnum,
og verður það gert á fyrsta
fundi ráðsins, sem mun verða
haldinn um miðja þessa viku.
Þar munu og verða tekin til
umræðu ýms mál, sem snerta
framtíð félagsins og stöðu.
Um 3 gúsnnð kr. halii
á rekstti félagsins.
Aðalfundur Dagsbrúnar var
haldinn í gær í Gamla Bíó, og
var hann mjög fjölsóttur. Þar
gaf Héðinn Valdimarsson skýrslu
fyrir hönd fráfarandi stjórnar.
Þá voru og lesnir upp reikningar
félagsins.
Samkvæmt reikningunum hefir
orðið halli á árinu, sem nemur
rúmlega 2900 krónum. Alls hefir
verið innheimt í félagsgjöld-
Um 22 þúsund krónur. En allar
tekjur félagsins á árinu vöru
27 847 krónur. Auk ráðsmanns fé-
lagsins, sem ekki er hægt að
segja að hafi haft of hátt kaup,
hefir verið ráðinn til félagsins
annar fastur starfsmaður fyrir
3300 kr. á ári. Virðist ráðning
hans hafa orðið eftir kröfu kom-
múnistaflokksins á hendur Héðni,
Frh. á 4. síðu.
Brezkn tondarspiOi var
sökkt í NoröorsjðiDi
i gær.
Þetta er þriðji tundurspiliirinn, sem
Bretar hafa misst í þessari styrjöld.
Kallio, hinn aldraði Finnlandsforseti, í kynnisför á vígstöðvunum
á Kyrjálanesi,
Ægilegar loftárásir Kðssa
i Finnland á laugardaginn
----————
Loftárásin á Ábo sem olli mestu tjóni
var sá þrítugasta á þá borg í stríðinu
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
iyr ÖRG HUNDRUÐ RÚSSNESKAR FLUGVÉLAR tóku
þátt í loftárásum á finnskar borgir á laugardaginn
og taldist mönnum svo til, að um 3000 sprengikúlum væri
varpað niður á varnarlausa staði víðs vegar um landið. Yfir
sumum borgunum voru taldar 60 rússneskar árásarflugvél-
ar á lofti í einu.
Ægilegasta Ioftárásin var gerð á Ábo á suðvesturströnd
landsins og var þrítugasta loftárásin, sem gerð hefir verið á þá
borg síðan stríðið byrjaði. 200 sprengikúlum var varpað niður á
hana eina á Iaugardaginn og kveikt í henni á mörgum stöðum.
Manntjón var sagt minna af
loftárásunum en ætla mætti, en
um 100 byggingar voru eyði-
lagðar víðs vegar um landið.
Þykir sýnilegt, að Rússar leggi
nú aðaláherzlu á það að valda
sem mestum skemmdum í hafn-
arborgum og á járnbrautar-
stöðvum Finnlands til þess að
'eyðileggja samgöngukerfi Finna
og hindra aðflutninga á vopn-
um og vistum.
Finnskar loftárðsir á flng
stöðvar Rússa úElstlandi.
Það er nú talið sannað mál,
að bækisjöðvar rússnesku flug-
vélanna, sem halda uppi loftá-
rásunum á Finnland, séu á
strönd Eistlands, sunnan við
Kyrjálabotn.
Finnar gerðu loftárásir á
þessar flugstöðvar Rússa í gær,
þar á meðal á hafnarbæinn Bal-
tiski, flugvöllinn fyrir sunnan
höfuðborg Eistlands, Tallinn,
svo og á herskipastöð Rsúsa,
Kronstadt, innst í Kyrjálabotni.
Tóku um 20 finnskar flugvélar
þátt í þessum loftárásum, en ár-
angur af þeim er ókunnur.
jttMI.gaM.IH
stofnnð ð FinBlandlj
i; Frá fréttaritara Alþ.bl.
KHÖFN í morgun.
TLENDIN G AHER-
DEILD eða alþjóða- ;i
herdeild hefir nú verið jl
síofnuð af erlendum sjálf- !;
boðaliðum á Finnlandi á !;
sama hátt og á Spáni. Er !;
liún skipuð mönnum af ;;
mörgmn þjóðum, þar á
m'eðal Frökkum, Bretum,
ítölum, Þjóðverjum, Pól- ;j
verjum og Eistlendingum. ;j
Herdeildin er sögð ágæt- j!
lega vopnum búin og búast j!
menn við miklu af henni.
<!
í einni fregn frá Finnlandi
er viðureigninni á Sallavígstöðv
unum lýst sem miskunarlausri
orustu. Sumir fréttaritarar bú-
ast við, að Finnar vinni þarna
enn meiri sigur en við Suomus-
salmi.