Alþýðublaðið - 25.01.1940, Side 1
XXI. ÁRGANGUR.
FIMMTUDAGUR 25. JAN. 1940.
20. TÖLUBLAÐ
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLÖKKUEÍNN
RITSTJÓRi: F. R. VALDEMARSSON
Er það þetta, sem Þjóðviljinn vill að íslenzku millilandaskipin og togararnir fái að komast í kynni
við? — Þýzkur kafbátur að Verki á einni siglingaleiðinni til Englands.
andráðaskrlf kommnn
stablaðslns i morg
Það fer með tilhæfulaus ósannindi
um samning milli islenzku og brezku
stjórnarinnar, er ekki hefir verið gerður
----4---
Visvitandi tllrann til að fram«
kalla ihlutun annarra éfriðarþjóða
skilið hvaða hættu slík skrif
geta haft fyrir okkar litlu og
einangruðu þjóð. Með slíkum
skrifum er vísvitandi verið að
egna til átaka um þjóð okkar,
verið að kalla á afskifti ófrið-
arþjóðanna og gefa þeim átyllu
til íhlutunar. Það er raunveru-
lega sama framferðið og Stalin
lét Kuusinen hafa gagnvart
Finnum.
Það hlýtur að vera öllum
ljóst eftir þetta, að við höfum
landráðamenn meðal okkar,
sem ekki skirrast við að
nota tilhæfuláusar lygar
í viðleitni sinni til að skaða
landið og þjóðina.
! Þýzkar saddavirs-
irðingar við sviss-
neslrn Iandamærin.
LONDON í morgun. FÚ.
TK ÝZKALAND hefir
lokað landamœrum
sínum gegnt Svisslandi
frá kl. 8 á kvöldin til 6 á
morgnana og er verið að
koma upp gaddavírsgirð-
ingum frá Rín til sviss-
nesku landamæranna.
Slita Bretar stjórnmála-
sambandi við Rfissland?
Fyrirspurn og svar í enska þinginu i gær
fTk FT hafa kommúnistar
og blöð þeirra gengið
langt í landráðastarfsemi
sinni, en í dag birtir blað
flokksins, Þjóðviljinn, grein,
sem slær öll met í slíkum
skrifum þess hingað til.
Þessi grein blaðsins í dag
fjallar um samning, sem
blaðið segir að gerður hafi
verið milli íslenzku og
brezku ríkisstjórnarinnar.
Og jafnframt segir blaðið að
með þessum samningi hafi
ríkisstjórnin gerzt sek um
landráð. Það þarf varla að
taka það fram, að allt, sem
blaðið segir um þessi mál,
er tilhæfuíaus ósannindi.
Milli brezku og íslenzku rík-
isstjórnarinnar hefir yfir-
leitt enginn samningur verið
gerður um verzlunarviðskipti
milli landanna meðan á stríð-
inu stendur.
En gerð kommúnistablaðsins
er hin sama fyrir því, og ef
hægt er að fremja landráð, þá
er það gert með skrifum eins
og þessum. Blaðið segir að þessi
„samningur“ sé „mikil hætta“
fyrir „sjálfstæði, lýðræði og
hlutleysi þjóðarinnar“. Segir
blaðið að samkvæmt kröfu
Breta sé ekki hægt að flytja út
vörur frá íslandi nema með
leyfi „leynilegrar nefndar", sem
sé sett yfir ríkisstjórnina, og sé
þetta gert til þess að „hindra
að vörur komist til Þýzka-
lands“.
Greinin er öll í þessum anda
og þó að hér sé um tilhæfulaus
ósannindi að ræða, þá geta allir
LONÐON í gærkveldi. FÚ.
HAMBERLAIN forsætis-
ráðherra var spurður í neðri
málstofunni, hvort stjórnin teldi
ástæðu ,til að slíta stjórnmála-
sambandi við Rússa vegna inn-
rásarinnar í Finnland.
Chamberlain svaraði því, að
það þyrfti hinnar víðtækustu
athugunar við frá öllum hlið-
um áður en ákvörðun væri tek-
in um sííkt skref,
Chamberlain forsætisráðherra
Bretlands gerði einnig að urntals-
efni í dag í neðri málstofunni
loforð Breta um stuðning við
Belgíu, ef á hana væri ráðizt,
og ábyrgð þá, sem Bretar hefðu
tekið á sjálfstæði og öryggi
Belgíu.
Minníi hann á Locarnosamning-
inn frá 1935, samkomulag gert i
London 1936, brezk-franska yfir-
lýsingu 1936 og yfirlýsingu, sem
Leopold konungur gaf brezka
sendiherranum í Brussel 27. ág.
s. 1. Hvernig hin gefnu loforð
Frh. á 4. síðu.
Kommúnistar boða nú nýja
iínti i verkalýðsfélögunum.
---4---
©11 sasisfylidiBff úr stlgsaiaiii, verkamenii eiga aH
faefja kyitingarsinnaða karátta og pélitisk verk~
fðli, iivaé sem stjérnir verkaiýésfélaganna segja!
RYNJÓLFUR
BJARNASON,
formaður kommúnistaflokks-
ins gefur félögum Dagsbriin-
ar í Þjóðviljanum í dag
nýja línu um það, hvernig
þeir skuli starfa innan Dags-
brúnar framvegis. Þessi lína
er í fullu samræmi við hina
nýju línu, sem Alþjóðasam-
band kommúnista í Moskva
hefir nýlega gefið kommún-
istaflokknum og er svipuð
lína og Alþjóðasamband
kommúnista hafði áður en
það tók upp samfylkingar-
línuna.
En hún gekk út á það, að
b'erjast á móti Alþýðuflokkun-
um sem „höfuðfjendum verka-
lýðsins“, neita að beygja sig
fyrir meirihlutasamþykktum
verkalýðsfélaganna, kljúfa þau
og efla hinn hreina byltingar-
áróður sem mest.
Nú á Sameiningarflokkur al-
þýðu — sósíalistaflokkurinn —
að taka upp þessa nýju línu af
fullum krafti, enda segir þessi
nemandi Kuusinen í upphafi
greinar sinnar í dag:
„Milli verkalýðsflokksins ann
ars vegar og Aiþýðuflokksins
og Framsóknarflokksins, sem
nú hafa breytzt í afturhalds-
flokka, hins vegar er engin sam-
fylking möguleg framar. Því
meiri nauðsyn er á samfylkingu
hins vinnand fólks, án tillits til
flokkaskipunar."
brúnar. Sigurinn væri fyrir-
fram unninn. Svo vonlaus væri
málstaður ríkisstjórnarinnar, að
ekki er víst að það þyrfti einu
sinni að koma til verkfalls.“
Þannig krefst Br. B. að Dags-
brún leggi nú út í harövítugar
deilur við ríkisvaldið út af mál-
um, sem Héðinn Valdimarsson
og kommúnistar snertu ekki við,
meðan þeir voru í stjórn eg réðu
öllu. — En broslegt er það í
mesta máta, þegar þessi glópur
heldur því fram, að allir Dags-
brúnarmenn myndu leggja með
gleði út í slík æfintýri, og öll
verkalýðsfélög á landinu myndu
með hrifningu taka sér stöðu við
hlið Dagsbrúnar!!
Hvers vegna gerði þá fyrver-
andi kommúnistastjórn í Dags-
brún 'ekki þetta meðan hún var
við völd?
Hvers vegna „barði hún ekki í
Frh. á 4. síðu.
Kommúnistar og |
nazistar fitilok-
aðir ðr verkalýðs
félðgnm i Svipjðð |
Frá fréttaritara Alþýðubl.
KHÖFN í morgun. jl
ANDSSÁMBAND \
verkalýðsfélaganna í j!
!: Svíþjóð hefir ákveðið, að !
j! kommúnistar og nazistar !:
j! skuli útilokaðir úí öllum !;
j! þeim verkalýðsféíögum, !;
!; sem í landssambaudinu jj
;; eru. jj
H’efir verkalýðsfélögun- jj
:j um verið send samþykkt jj
jj iandssambandsins þar að j!
! iútandi. !:
Sókn Rfissa hrnndlð nerð-
an #a snnnan við Ladoga.
------------
Rússar ætluðu að komast að baki
Mannerheimlinunnar á Kyrjálanesi.
• ♦—-—.—•—
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
TJT.NNI stórkostlegu sókn Rússa, sem hafin var í fyrra-
dag samtímis bæði fyrir norðan Ladogavatn og sunn-
an við það, á Kyrjálanesi, hefir hingað til alls staðar verið
hrundið, þrátt fyrir það ofurefli liðs, sem Finnar hafa átt
við að etja.
Virðist tilgangur Rússa með sókninni vera sá, að komast
með fram Ladogavatni að norðan og vestan að baki Manner-
h'eimlínunni á Kyrjálanesi, sem þeim hefir ekki tekizt að vinna
með áhlaupum að framan. En jafnframt halda þeir þeim áhlaup-
um áfram.
Dagsbrfin i að befja verk
fSll gegn rfbisvaldinn!
Brynjólfur Bjanrason bobar
hina nýju línu í grein um Dags-
brún, og kosningarnar í Dags-
brún eru notaðar sem tilefni til
breytinganna á pólitík kommún-
istaflokksins og í fyrirskipunum
Br. B. til flokksmanna sinna í
Dagsbrún felst hin breytta iína.
Hann krefst þess, að Dagsbrún
hefji byltingasinnaða baráttu
gegn ríkisvaldinu. Um það segir
hann:
„Með einum pennadrætti
geta hinir raunverulegu ráða-
menn Dagsbrimar framkvæmt
það, sem fyrir þá er lagt.
Gerum eitt augnablik ráð fyrir
því, að þeir séu fulltrúar Dags-
brúnarmanna, en ekki fulltrúar
Ólafs Thors og Stefáns Jóhanns.
Ef svo væri þyrftu þeir ekki
annað en berja í borðið og segja:
Þessa kröfu berum við fram
fyrir hönd verkamannafélags-
ins Dagsbrún og við munum
f^amfylgja henni og beita til
þess mætti samtakanna ef á
þarf að halda. Öll Dagsbrún
myndi standa óskipt að baki
þeirra. Og öll verkalýðsfélög á
landinu myndu með hrifningu
taka sér stöðu við hlið Dags-
Fjórar loftðrfisir fi flnnsk
sjfikrabds i gær.
KHÖFN í gærkveldi. FÚ.
Rússar gerðu fjórar loftá-
rásir í gær á sjúkrahús í Finn-
landi og drápu einn lækni og
sjö hjúkrunarkonur.
Það er í frásögur fært og
þykir ótrúl'egt afrek, en hefir
þegar verið staðfest, að einum
finnskum flugmanni, Sarvarto,
tókst í gær að skjóta niður 6
rússneskar flugvélar úr sveit,
sem í voru 7, og gerði það á
fjórum og hálfri mínútu.
Maður þessi er ekki hernað-
arflugmaður og hefir aldrei
tekið þátt í loftorustum eða
æfingum þar að lútandi, en að-
eins flogið í póstflugum.
Einn af dönsku sjálfboðalið-
unum í Finnlandi, Matthias
Madsen, er dáinn af sárum
þeim, er hann fékk, er Rússar
gerðu loftárás á herbúðir
dönsku sjálfboðaliðanna. Danski
hjúkrunarleiðangurinn í Finn-
landi hefir nú komið sér upp
hjúkrunarstöð fast við sjálfar
vígstöðvarnar, til þess að veita
særðum mönnum fyrsta um-
búnað.
Skólum verður lokað
ð morgno í tilefni
af mlnningaratkðfu
um EinarBendiktssen
MORGUN f'er fram minn-
ingarathöfn um Einar
skáld Benediktsson í dóm-
kirkjunni, en eins og áður hefir
verið sagt frá hér í blaðinu, —
Frh. á 4. sí&u.