Alþýðublaðið - 02.02.1940, Page 1
RITSTJÖRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANÐI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR. FÖSTUDAGUR 2. FEBR. 1940. 27. TÖLUBLAÐ
Rússar hefja æðisgengin á-
hlaup á Mannerheimlínuna.
- - ■ ----
Beita fypir sig nýju tæki: brynvörðum
sleðum, sem eru útbúnir með vélbyssum
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins.
KHÖFN 1 morgun.
jD IJSSAR hófu í gær ný og æðisgengin áhlaup á víg-
*" girðingar Finna á Kyrjálanesi, að undangenginni
stórskotahríð, sem stóð í sex klukkustundir samfleytt.
Rússar beita fyrir sig í áhlaupunum nýju stríðstæki,
brynvörðum sleðum, sem eru með hlífiskildi úr stáli, en
á bak við hann eru hermennirnir, vopnaðir vélbyssum, og
láta þeir kúlunum rigna yfir framverði Finna, þegar þeir
eru komnir í næsta nágrenni við þá.
Finnar hrundu öllum áhlaupunum í gær. Brezkar
flugvélar tóku í fyrsta skipti ^þátt í vörn þeirra og létu
sprengjurnar dynja á hinum brynvörðu sleðum Rússa.
Orostan við austurlandamær-
in, í grennd við Rasty, er enn í
algleymingi, og sækja Finnar
fram hjá þorpinu Kuhmo. Segir
í einni fregn, að þeir séu komnir
þar yfir landamærin og inn í
Rússland. Það er þó ekki búizt
við úrslitaviðburðum á þessu
svæði í bráð.
Blóðugir bardagar standa nú
einnig yfir fyrir sunnan Pet-
samo.
Amerískur maður, staddur í
Finnlandi, hefir lýst nýrri teg-
und íkveikjusprengja, sem
Rússar nota. Sprengjan er í lag-
inu eins og tunna, 8 feta löng
og 2% fet í þvermál. Inni í
sprengjunni eru 6 íkveikju-
spr'engjur, en þegar henni er
varpað út, dreifast íkveikju-
sprengjurnar í allar áttir. Geta
því hæglega orsakast mai*gar í-
kviknanir af sömu sprengjunni.
Brezka verkalýðsnefndin, sem
er í Finnlandi, er nú komin aft-
ur til Helsing'fors. Hefir hún m.
a. verið á Kyrjálanesi, en þar
P YRSTA FEBRÚAR var
fækkað í atvinnubóta-
vinnunni um 100 manns. Er
það illa farið, því að full
nauðsyn var á að atvinnu-
bótavinnunni yrði haldið á-
fram fyrir jafnmarga og und-
anfarið, fyrst um sinn.
Blað kommúnista notar og
tækifærið og segir í dag að
þessi fækkun sé ein fyrsta af-
leiðingin af úrslitum stjórn-
arkosninganna í Dagsbrún.
Það var ákveðið fyrra
fimmtudag að fækka um 100
menn, en fyrir atbeina stjórnar
Dagsbrúnar var þeirri fækkun
frestað um viku, og er það betra
en verið hefir undanfarin ár
meðan kommúnistar stjórnuðu
Dagsbrún.
í fyrra voru í atvinnubóta-
vinnu frá 5. janúar til 1. marz
300 menn. Núna hafa verið í at-
hefir verið fremur kyrrt að und-
anfömu, eða þangað til hin nýju
áhlaup hófust á Mannerheim-
víggirðingarnar, þau, sem frá er
sagt hér að framan.
HoraniúBlstlskir erindrek
ar i vigstððvnnam ttl að
stappa stálinu i Rússa.
Útvarpið í Moskva birtir í
gær fregn, sem vekur mikla at-
hygli. Það segir frá því, að
rússneski kommúnistaflokkur-
inn hafi nú sent erindreka á
vettvang á öllum vígstöðvum í
Finnlandi og fái allur rússneski
herinn leiðbeiningar og upp-
fræðslu, morguns og kvölds og
um miðjan dag 1 kommúnistisk-
um fræðum. Meðal annars séu
þeir fræddir um tilgang og
,,nauðsyn“ styrjaldarinnar gegn
Finnlandi og hvers vegna út-
rýma verði ,,hinum hvíta fána“
Finnlands.
vinnubótavinnu frá 7. desem-
ber til 31. janúar 400 manns. í
fyrra var þó engin vinna við
hitaveituna, en öllum er það
ljóst, að sú vinna hlýtur að
hafa áhrif á það, hve mikil at-
vinnubótavinnan er. Það hlýtur
vitanlega að verða reynt af
stjórn Dagsbrúnar eins og
mögulegt er að koma í veg fyrir
öra fækkun í atvinnubótavinn-
unni fyrst um sinn. En geypi-
yrði kommúnista nú, þegar þess
er gætt, að meðan kommúnist-
er voru við stjórn í Dagsbrún,
var ástandið miklu verra, eru í
mesta máta fyrirlitleg.
Annars verða mönnum ljós ó-
heilindi kommúnista í verka-
lýðsmálum enn einu sinni, þeg-
ar þeir lesa slík skrif í blaði
þeirra. Og óskir þeirra um að
allt gangi sem verst eru alveg
augljósar.
Þýðingarmikil ráð-
stefna B.ilkanrífej-
anna í Beigrad.
LONDON í morgun. FÚ.
AÐ er hvarvetna mikið
rætt um Balkanríkjafund-
inn, sem hefst í Belgrad í dag.
Fylgjast menn af miklum áhuga
með öllu, sem þar gerist.
Ekki er vitað með vissu hvað
tekið verður til umræðu. Balk-
anfréttaritari ,.Times“ segir, að
þær þjóðir, sem í Balkanbanda-
laginu eru, Grikkland, Tyrk-
Iand, Júgóslavía og Rúmenía,
muni ræða sameiginlega hlut-
leysisstefnu.
Blöðin i Balkanríkjunum eru
þess mjög hvetjandi, að Balkan-
ríkin séu áfram hlutlaus og vinni
saman.
Það hefir vakið mikla athygli,
■að í gær, rétt áður en Balkanráð-
stefnan hefst, birtir griskt blað
viðtal við von Ribbentrop, ut-
anrikismálaráðherra Þýzkalands,
og segir hann, að hvorki Þýzka-
land né Rússland óski eftir að
styrjöldin breiðist út til Balkan-
skagans.
Mikil naoðsyn ð að
aufea atvinnnbðta-
vinnn fyrir konur.
BÆ JARST J ÓRNAR-
FUNDI, sem haldinn var
í gær, hóf Soffía Ingarsdóttir
umræður um atvinnuleysi
kvenna og nauðsynina á því að
bætt væri úr því.
Soffía Ingvarsdóttir benti á
það, að nú væri miklu verra út-
lit um atvinnu fyrir konur, en
áður hefir verið. Engin vinna er
við upsa og ekki er útlit fyrir
neina vinnu við saltfisksverk-
un. Þá tók hún það fram, að
engin upphæð hefði að vísu
verið ætluð til atvinnubóta-
vinnu kvenna í fjárlögujn, en
hún hefði vissu fyrir því, að rík-
isstjórnin hefði í hyggju að
leggja fram allt að 25 þús. kr.
til þessarar vinnu gegn jafn-
miklu framlagi annars staðar
frá. Soffía sagði að nú væru að-
eins 8 konur í saumastofu Vetr-
arhjálparinnar. Vel væri hægt
að efna til atvinnubótavinnu
fyrir konur við tóvinnu, sem nú
væri og bæri að aukast.
Frú Soffía flutti tillögu um
þetta mál þess efnis, að bæjar-
stjórn samþykkti að fela bæjar-
ráði að auka þessa atvinnubóta-
vinnu nú þegar. Var tillögunni
vísað til bæjarráðs.
Jóhann Sæmundsson
læknir flytur heilbrigðisþátt í
útvarpið í kvöld.
Fleíri neia í atvinnubótavinnn und
anfarið en á sama tíma í Ipra.
-----4-----
Stjérn Dagsbrúnar kom í veg
fyrlr fækkun fyrra fimmtudag.
Kort af Kyrjálanesi. Svarta línan þvert yfir nesið sýnir landa-
mæri Finnlands og Rússlands þar. Mannerheimlínan, sem barizt
er um, nær þvert yfir nesið frá Koivisto til Sakkola. Á kortinu
sést Terijoki og herskipahöfn Rússa við 'eyjuna Kronstadt úti
fyrir Leningrad.
Vorn að hrekjast i björg-
onarbát síðan á snnnndag.
Þrettán af grjátfu og premur,
sem I bátnum voru, frusu í hel.
LONDON í morgun. FÚ. ♦-—————-—~—
TUTTUGU grískum sjó-
mönnum, s'em voru að
hrekjast í skipsbát sínum und-
an írlandsströnd, var bjargað í
gær, Skipi þeirra var sökkt
með tundurskeyti s.l. sunnudag.
Höfðu þeir þjáðst mjög#mik-
ið af vosbúð, hungri og kulda
þessa daga, sem þeir hafa verið
að hrekjast í björgunarbátnmn.
13 menn, sem í bátnum voru,
frusu í hel.
Lík tveggja þýzkra flug-
manna rak á land á Skotlands-
ströndum í gær. Talið er að
flugmenn þessir hafi verið á-
höfn Heinkelsprengja, sem
brezk flugvél skaut niður fyrir
2 dögum.
Líkin verða jarðsett í'dag
með venjulegri hernaðarlegri
viðhöfn.
Sjáiand því nær ein-
angrað aí ísaiðgam.
KHÖFN í morgun. FÚ.
JÁLAND er nú nærri því
einangrað frá öðrum hlut-
um Danmerkur vegna ísalagna
og komast jafnvel íshrjótarnir
'ekki leiðar sinnar. Eru miklir
erfiðleikar á skipasamgöngum
milli Danmerkur og Þýzka-
lands.
Kiðldvaka biaða-
manna, jafnvel enn
betri en si fyrsta.
0NNUR kvöldvaka Blaða-
mannafélags íslands verð-
ur annað kvöld að Hótel Borg.
Eru aðgöngumiðar seldir í dag
í afgreiðslum Morgunblaðsins
og Fálkans.
Mjög vel hefir verið vandað
til þessarar kvöldvöku og má
segja að hún verði enn betri en
sú fyrsta, og tókst hún þó fram-
úrskarandi vel.
Aðalatriði skemmtiskrárinnar
eru annars þessi: Bjarni Björns-
son leikari verður kynnir
kvöldsins (conferencier). Ámi
Jónsson frá Múla hjalar um
daginn og veginn. Dr. Viktor
von Urbantschitsch leikur
Straussvalsa, Mozartlög og lög
eftir Lehar úr operettunni
,,Brosandi land“, sem Tónlistar-
félagið er að æfa. Hallbjörg
Bjarnadóttir söngkona, sem nú
er nýkomin heim frá útlöndum,
syngur nýtízku lög. Brynjólfur
Jóhannesson segir söguna um
hvarf séra Odds í Miklabæ og
les kvæði Einars Benediktsson-
ar um það efni. Soffía Guð-
laugsdóttir les upp kvæði Rune-
bergs: Sveinn dúfa og Stúlkan í
kotinu. Swingtríóið leikur og
syngur. Brynjólfur Jóhannes-
son syngur nýjar gamanvísur
eftir „rjóh“. Einnig verður
sungin gamanvísa eftir Einar
Benediktsson frá aldamótum.
Elly Þorláksson danskennari
sýnir listdans og loks leikur
hljómsveit Jacks Quinet ný-
tízku lög við og við.
Fólk er áminnt um að geyma
ekki að kaupa aðgöngumiða,
því að síðast seldust þeir upp á
skammri stundu.
Fjörutíu sænskir þingmenn
hafa lagt fram tillögu um
það, að friðarverðlaun Nobels
verði veitt Lindhagen fyrrver-
andi borgarstjóra. (FÚ.)
Kosoingar starfsmaoia og
fastra oefoda i bæjarstjöro
64 skípom sðkkt I jan-
ðar, par af 36 hlntlausum
Samkvæmt skýrslum, sem
hollenzkt blað birtir, fórust 64
skip í janúar af völdum stríðs-
ins, og er þetta lægsta tala fyrir
einn mánuð síðan styrjöldin
byrjaði.
36 voru skip hlutlausra þjóða,
og hefir aldrei verið sökkt jafn-
mörgum skipum hlutíausra
þjóða á einum mánuði.
Fjórtán af þessum 36 voru
norsk.
Skip Sameinaöa gufuskapafé-
lagsins, „Vidar", hefir rekist á
tundurdufl og farizt, 15 menn af
áhöfninni fórust, en 7 var bjarg-
að.
Norðmenn hafa misst 37 skip
af völdum styrjaldarinnar, og
hafa 225 menn farist með þeim.
fk BÆJARSTJÓRNARFUNDI
í gær fóru fram kosningar
á starfsmönnum fastra nefnda.
Forseti var kosinn Guðmundur
Ásbjörnsson, varaforsetar Jakob
Möller og Bjarni Benediktsson.
Skrifarar voru kosnir Jón Axel
Pétursson og Guðmundur Eiríks-
son, en til vara Soffía Ingvars-
dóttir og Helgi H. Eiríksson.
I bæjarráð voru kosnir: Af lista
Alþýðuflokksins Stefán Jóhann
Stefánsson, af lista Sjálfstæðis-
flokksins: Guðmundur Ásbjörns-
son, Jakob Möller, Bjarni Bene-
diktsson og Guðmundur Eiríks-
son. Listi Sósíalistaflokksins með
Birni Bjarnasyni fékk 2 atkvæði.
Varamenn vom kosnir: Jón Axel
Pétursson, Jón Björnssom, Helgi
H. Eiríksson, Valtýr Stefánsson
og Gunnar Thoroddsen.
I byggingarnefnd voru kosnir:
Guðmundur Eiríksson og Guð-
mundur Ásbjörnsson innan bæj-
arstjórnar, en Tómas Vigfússon
og Hörður Bjarnason utan bæjar-
stjórnar.
í hafnamefnd voru kosnir Jón
Axel Pétursson, Jón Björns&on
og Jakob Möller innan bæjar-
stjórnar, og til vara Stefán Jóh.
Stefánsson, Guðmundur Eiríksson
og Valtýr Stefánsson. Utan bæj-
arstjórnar vom kosnir: Hafsteinn
Bergþórsson og Sigurður Sigurðs
son, en til vara Þórður Óiafsson
og Geir Thorsteinsson.
I búnaðarmálanefnd voru kos-
in: Soffía Ingvarsdóttir, Guð-
rnundur Eirfksson, Guðrún Jónas-
son, Helgi Hermann og Valtýr
Stefánsson.
í sóttvarnarnefnd voru kosin
Guðrún Jónasson, í stjórn Fiski-
mannasjóðs Kjalarnessþings var
kosinn Guðmundsson, til að sem-
ja verðlagsskrá Þorsteinn Þor-
steinsson hagstofustjóri.
Frh. á 4. síðu.