Alþýðublaðið - 03.02.1940, Page 1
AIÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
XXI. ASGANGUK.
fís
LAUGARDAGUR 3. FEBR. 1940.
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKUREVN
28. TÖLUBLAÐ
F.U.J
Fimleikaæfingar í stúlknaflokkn-
um falla niður í kvöld, en æf-
ingar pilta verða kl. 9 eins og
venjulega.
TrúnaðarmannaráÖ félagsins
heldur fund á morgun kl. IV2
te. h. í afgreiðslu Alþýðublaðsins.
Nýju verkamannabústaðirn
ir eru nú komnir undir ris.
Vlnnan vlð innréttlngu húsanna hefst nú þegar.
f DA
Næturlæknir er Ólafur Þ. Þor-
steinsson, Mánagötu 4, simi 2255.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-apóteki.
OTVARPIÐ:
19,20 Hljómplötur: Kórlög. 19,50
Fréttir. 20,15 Minningarorð um
dr. Rögnvald Pétursson (Sigfús
Halldórs frá Höfnum), 20,45 Ot-
varpskórinn syngur alþýðulög.
21,05 Otvarpstríóið: Einleikur og
trió.
A MORGUN:
Helgidagslæknir er Kristján
Grimsson, Hverfisgötu 39, sími
2845.
Næturlæknir er Páll SigurÖs-
son, Hávallagötu 15, sími 4959.
Næturvörður er í Reykjavíkut-
og Iðunnaf-apóteki.
OTVARPIÐ:
9,45 Morguntónleikar (plötur):
Ófullgefða symfónian og Rosa-
mundeforleikurinn, eftir Schubert.
10,40 Veðurfregnir. 11,00 Messa í
dómkirkjunni (séra Bjarni Jóns-
son). 12,15—13,00 Hádegisútvarp.
15,30—16,30 Miðdegistónleikar
(plötur): Létt klassisk lög. 18,30
Barnatími. a) Sænskar barnasög-
ur (Aðalsteinn Sigmundsson kenn-
ari). b) Sænsk lög (plötur). 19,10
Veðurfregnir. 19,20 Hljómplötur:
Dansar eftir Dvorák. 19,50 Frétt-
ir. 20,15 Bellmanns-kvöld. 200
ára minning: a) Inngangur og
athugasemdir (Jón Magnússon fil.
kand.). b) Kórsöngur c) Einsöng-
ur (Guðm. Marteinsson) 21,25
Danslög. 21,50 Fréttir. 23,00 Dag-
skrárlok.
* TVT ú ÉR LOKIÐ VIÐ að steypa hina nýju verkamannabú-
staði. Allri utanhússsteypu er lokið og verið er að
setja upp risin á húsin.
í dag og á morgun verða fánar á húsunum.
öllum framkvæmdum við * .... " ”
verkamannabústaðina hefir verið
hraðað eins og mögulegt hefir
verið. Þó að lítið hafi veriö um
frost hér í bænum pað sem af er
vetrínum, þá hefír pó vinna við
bústaðina tafist nokkuð vegna
frosta, pví að ekki er, eins og
vitað er, hægt að vinna að
steypuvimiu pegar frost eru.
Vinnan hefir pó gengið betur
en nokkur gat vonað, og lítur út
fyrir að 'allar íbúðimar, 40 að
tölu, verði tilbúnar síðast í maí.
Má pað teljast gott áframhald,
pegar pess er gætt, að ekki var
fiægt að Byrja á bústöðunum fyr
en um mánaðamótin október og
nóvember.
Næstu daga byrja múrarar að
vinna að ínnanhússpússningu, en
siðan byrja innréttingar jafnóð-
um og húðun er lokið.
Mestallt efni til bústaðanna er
pegar fengið, og er pess fastlega
vænzt, að bústaðimir purfi ekki
að fara fram úr áætlun.
Enn er ekki hægt að segja meö
neinni vissu um pað, hvort hægt
verður að byrja á nýjum bygg-
ingum verkamannábústaða. Sam-
kvæmt samningum Alþýðuflokks-
ins, þegar samstjómin var mynd-
uð, eiga peningar að vera fyrir
hendi til bygginga, en ófriðar-
ástandið veldur pví, að bæði er
ákaflega erfitt að fá efni í bú-
staöina og svo verður pað svo
dýrt, að telja verður vafasamt
að pað sé til hagsbóta fyrir fé-
lagana að kaupa íbúðir með pví
verði, sem yrði á þeim.
6eFSimi!ííl aðsókn
að kvðldvðku biaða
manna.
KVÖLDVAKA Blaðamanna-
félagsins er í kvöld að
Hótel Borg og hefst kl. 9 stund-
víslega.
Um klukkan ellefu í dag
voru allir aðgöngumiðar upp-
seldir, og hefir aðgöngumiðasal-
an verið miklu örari að pessari
kvöldvöku en peirri fyrstu. S-trax
í gær á örskömmum tíma seldust
300 aðgöngumiðar.
öll skemmtiatriðin fara fram á
palli, sem verður milli salanna, í
dyrunum. Er petta gert til þess
að forðast prengsli. Þá hefir
Blaðamannafélagið hætt við að
nota hátalara hússins, en fengið
í þess stað hátalara frá ríkisút-
varpinu, og verður þeim komið
ifyrir í öllum sölum og herbergj-
um niðri. Verður pví hægt að
heyra allt pað, sem fram fer,
hvar sem setið er í húsinu.
Gestimir em beðnir að mæta
stundvíslega, svo að flestir verði
.komnir í sæti sín pegar skemmti-
atriðin hefjast.
Flnyvélinni hvolfdi f
moronn á Skerjafirði.
----4-----
Flugmaðurinn og farþegarnir björguð-
ust, en flugvélin marar i kafi.
P LUGVÉLINNI T.F. Örn
hívolfdi í morgun um
kl. 11 á Skerjafirði, þegar
húti var að íeggja af stað á-
leiðis upp á Mýrar.
Mjög slæmt var í sjóinn og
allhvasst. Þetta slys .yildi til
um 500 metra undan landi,
að sjá milli tangans og
bryggjunnar.
Tveir farþegar voru í flug-
vélinni og var annar þeirra
Bjarni Ásgeirsson alþingis-
maður. Tókst honum að
synda til lands. Hinn farþeg-
inn var ósyndur, en örn
Johnson, flugmaðurinn, hélt
honum uppi á sundi og
stéfndi til lands, cn bátur
kom og bjargaði þeim í þeim
svifum.
Flugvélin marar í hálfu
kafi og er verið að reyna að
ná henni upp.
Málfundaflokkur
Alþýðuflokksfélagsins heldur
æfingu á morgun í Alþýðuhús-
inu, 6. hæð, kl. 3,30.
Á dansleik
knattspyrnufél. Valur í Odd-
fellowhúsinu í kvöld syngja
þeir Ágúst Bjarnason og Jakob
Hafstein Gluntarne. Frk. Elly
Þorláksson sýnir listdans. Einn-
ig munu tveir nýir gamanleik-
arar segja „brandara“.
Skömmtnn á elds-
neyti i Noregi og
Svfþjóö.
KHÖFN í morgun. FÚ.
¥ NOREGI hefir verið ákveðið
að taka upp stranga skömmt
un á öllu eldsneyti. í Svíþjóð
hefir éinnig verlð tekin upp
eldsnéytisskömmtun.
f Kaupmannahöfn er nú svo
mikill eldsneytisskortur, að til
vandræða horfir, og er orsökin
samgönguerfiðleikar þeir, sem
stafa af ísalögnum á dönsku
sundunum.
Danski landbúnaðarráðherr-
ann hefir lagt til að ríkis-
stjórninni verði heimilað að
taka eignarnámi svarðarmýrar
og brúnkolanámur í landinu, til
þess að vinna þar eldsneyti í
stað erlends eldsneytis.
Útsvarssknldalisti
lagðnrfram.
BÆJARRÁÐ ákvað nýlega
að gerður skyldi listi yfir
útistandandi útsvör, sem ekki
eru greidd fýrir 1. marz.
Skuldalist; þessi verður lát-
inn liggja frammi á bæjarskrif-
stofunni og er hverjum sem vill
frjálst að kynna sér hann.
Rússneskt stórskotalið að verki á Kyrjálanesi
Rússar urðn enn frð að
hverfa ð Kyrjðlanesl.
__—_—4—..
Brynvörðu sleðarnir brugðust, Finnar hafa nú
gefið þeim nafnið „rússnesku likkisturnar".
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun.
T_IIN æðisgengnu áhlaup Rússa á Mannerheimlínuna hafa
A algerlega mistekizt. Brynvörðu sleðarnir komu ekki
að neinu haldi. Skriðdrekar Rússa urðu að draga þá til bæki-
stöðva sinna, eftir miklar blóðfórnir. Finnar hafa nú gefið
sleðunum nafn og kalla þá „rússnesku líkkisturnar.“
Aðaláhlaupin voru þessu sinni gerð á Mannerheimlínuna
miðja og tóku.um 200 rússneskar flugvélar þátt í henni með skrið-
drekunum og sleðunum, En allt kom fyrir ekki. Meginárásinni var
hrundið strax í fyrrakvöld og það voru aðeins minniliáttar skærur,
sem háðar voru á Kyrjálanesi í gær.
Finnska þingið kom saman á ♦
fund í Helsingfors í gær, en
hvar í borginni er ekki látið
uppi. Það var þó ekki í þinghús-
inu, af þ.ví að það er allt of aug-
ljós skotspónn fyrir árásarflug-
vélar Rússa.
Kallio forseti ávarpaði þing-
ið og sagði, að ef Finnar sýndu
áfram sama þrek og hingað til,
þyrftu þeir ekki að óttast það,
að þjóð, sem stæði á lægra
menningarstigi en þeir, tækist
nokkurn tíma að undiroka þá,
hversu f jölmenn, sem hún væri.
Brezka verkalýðssendinefnd-
in, sem verið hefir á Finnlandi
að undanförnu, lagði af stað
heimleiðis í gær, um Stokkhólm
og Kaupmannahöfn. Áður en
nefndin lagði af stað, gekk hún
á fund Ryti forsætisráðherra
Finnlands. í einni fregn segir,
að nefndarmenn hafi orðið að
fara úr bifreið sinni tvívegis á
leið til hafnar vegna loftárása.
Áður en nefndin lagði af stað,
sagði Noel Baker, einn nefndar-
manna, í viðtali við blaðamenn,
að það, sem nefndarmenn hefðu
heyrt og séð í Finnlandi, hefði
sannfært þá um, að það væri
rétt, sem haldið hefir verið fram
í ýmsum fregnum, að rússneskir
flugmenn geri árásir af ásettu
ráði á óvíggirtar borgir og varn-
árlausa borgara, og liti út fyrir,
að þetta væri gert 1 hefndar--
skyni vegna þess, hversu vel
Finnum hefir gengið að verjast
innrás Rússa.
Sænskl sbip ferst i
Norðirsjó með allri
STINSKA eimskipið Sylvia
hefir annaðhort verið skot-
ið í kaf eða sprungið á tundur-
dufli á Norðursjó,
Á skipinu vóru 20 manns og
fórust þeir allir.
Hætt að ðtvarpa
leikriti, af pvi að
einn leikarinn byrj
aði að sjrngja tékk
neska pjóðsðnginn!
LONDON í morgun. FÚ.
ÞEGAR útvarpað var
leikriti í gær frá út-
varpsstöðinni í Prag, byrj-
aði einn leiklenda að syngja
tékkneska þjóðsönginn. Út-
sendingu var þegar í stað
hætt og heyrðist ekki til
stöðvarinnar í 3 mínútur.
Var því næst haldið á-
fram að útvarpa, en ekki
framhaldi leikritsins, held-
ur fyrirlestri um Norður-
íshafið og löndin þar.
Balkanráðstefnan hald
in fyrlr luktum dyrum.
----■», —---
Fréttir aðeins birtar af fyrsta fundín-
um sem haldinn var fyrripartinn í gær
LONDON í morgun. FÚ.
P UNDIR Balkanráðstefn-
unnar fara nú fram
fyrir luktum dyrum og loft-
skeytastöðin í Belgrad hefir
tilkynnt, að engar ályktanir
verði birtar fyrr en á sunnu-
dag, að fundinum loknum.
Balkanráðstefnan var sett í
gærmorgun. Samþykkt var, þeg
ar er ráðstefnan hafði verið sett,
að sáttmálinn, sem gerður var
1934, skuli vera áfram í gildi.
Sáttmáli þessi var geröur til
aukins öryggis og verndar þeim
ríkjum, sem að honum standa,
en þau eru: Grikkland, Tyrk
land. Rúmenía og Júgóslavía,
eða þau fjögur ríki, sem eru í
Balkanbandalaginu.
Forseti ráðstefnunnar var
kosinn Gafencu, utanríkisráð-
herra Rúmeníu, en aðrir full-
trúar á ráðstefnunni eru:
Metaxas, forsætisráðherra
Grikklands, Saradjoglu, utan-
ríkismálaráðherra Tyrklands,
og Markowits, utanríkismála-
ráðherra Júgóslavíu,