Tíminn - 03.01.1963, Side 7
Utgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjónsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs-
mgastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur I Eddu
húsinu. Afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka-
stræti 7. Símar: 18300—18305 - Auglýsingasimi: 19523 Af.
greiðslusími 12323. — Askriftargjald kr 65.00 á mánuði innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h.f. —
Áramótaræða Ólafs
Ólafur Thors lagði mikla áherzlu á það í áramóta-
ræðu sinni, að hann ætlaði ekki að segja nema sann-
ieikann um áhrif „viðreisnarinnar" Það skal ekki
vefengt, aO þetta hafi verið ætlun hans og sumt viður-
kenndi hann, sem stjórnarblöðin hafa borið á móti áður.
Ólafur viðurkenndi t. d. það, að „viðreisninni“ hefði
ekki tekizt að stöðva verðbólguna, en einmitt það var
talið höfuðtakmark hennar á sínum tíma. Það var líka
höfuðloforð stjórnarflokkanna fyrir seinustu kosningar.
Ólafur taldi beint og óbeint, að í þessum efnum væri
staðan ekki betri en áður. ,Viðreisnin“ hefði m. ö. o.
misheppnazt á því sviði, er mestu skipti.
Þetta er meiri hreinskilni en menn hafa átt að venj-
ast úr þessum herbúðum áður og ber vissulega að láta
Ólaf njóta viðurkenningar fyrir það,
Þegar Ólafur fór svo að færa fram það, sem telja mætti
jákvæðan árangur „viðreisnarinnar", varð honum hins
vegar helzt til hrösunargjarnt á sannleiksbrautinni.
Ólafur hélt því fram, að gjaldeyrisstaðan út á við
hefði batnað um 1200 millj. kr. Þetta er slæmt frávik
frá sannleikanum. í þessum efnum er vitanlega rangt við
að miða viö febrúar 1960, þegar bú^ •’ð auglýsa
gengislækkun með margra mánaða tv •-< og menn
höfðu því keppzt við að flytja sem mesi ínn áður og
dregið að yfirfæra erlendan gjaldeyri. Rétt er að miða
við desemberlok 1958, þegar núv. valdasamsteypa kom
lil valda. Eins og Eysteinn Jónsson sýndi fram á í ára-
mótagrein sinni, er heildarstaðan í gjaldeyrismálunum
nú mjög svipuð því og hún var í árslokin 1958.
Þá hélt Ólafur því fram, að sparifjáreign landsmanna
hefði nær tvöfaldazt síðan „viðreisnin11 kom til sögunn-
ar. Þetta er rétt, ef menn miða við krónutöluna. En skekkj-
an er sú, að íslenzka krónan er nú nær helmingi verð-
minni en áður. Ef menn ætla að finna út raunverulegt
verðmæti sparifjárinneignarinnar og miða við erlendan
gjaldeyri eða verð framleiðslutækja, eins og skip, land-
búnaðarvéla rog iðnaðarvélar, þá kemur í ljós að raun-
verulegt, verðmæti hennar hefur ekkert aukizt á þess-
um tírna, heldur tæplega staðíð í stað. þótt krónu-
talan hafi nær tvöfaldazt. En vitanlega er það hið raun-
verulega verðmæti. sem máli skiptir
Þegar allt feemur til alls, er það kannski mesti sorgar-
báttur ,.v’ðreisnarinnar“, að eftir hið mesta góðæri, sem
vfir landið hefur gengið. skuli gjaldeyrisstaðan út á við,
þegar allt er talið með. ekki vera neitt betri en í árs-
lok 1958 og raunveruiegt verðmæt' sparifjárinneignar-
innar ekki hafa aukizt neitt. Þetta verður enn ískyggi-
iegra, þegar þess er gætt. að ekki hefur verið haldið í horf-
inu hvað endurnýjun og aukningu atvinnutækja snertir.
Mrasanir Bjarna
Þótt Ólafi Thors yrði hált á sannleiksbrautinni um ára-
mótin, reyn'dist. Bjarni Benediktsson þó enn hrösunar-
gjarnari.
Ilér er ekki rúm til að telja upp ailar þær missagnir.
sem er að finna í áramótagrein Biarna heldur skal aðeins
bent á eina sem sýnishorn. Bjarm teíur, að fylgi stjórnar-
flokkanna hafi haldizt óbreytt í bæiarstjórnarkosning-
unum s.l. vor. Þó tapaði Sjálfstæðisflnkkurinn milli 4—
5% af heildarfylgj sínu 'og missti bæ.iarfulltrúa i Reykja-
vík og á Akureyri og meirihlutann i Keflavík. Alþýðu-
flokkurinn beið hinn stórfelldasta ósigur Samt segir
Ejarni, að stjórnarflokkarnir hafi haidið óbreyttu fyigi!
T í M I N N, fimmtudagur 3. janúar 1963.
„Viðreisnin" hefur afnumið
átta stunda vinnudaginn
Athyglisverð viðurkenning í áramótagrein Emils Jónssonar
Eins og margir aðrir, las ég
yfirlitsgreinar stjórnmálaleiStog-
anna um áramótin og hlýddi á
áramótaræðu forsætisráðherr-
ans og forsetans. Margt er að
finna athyglisvert í þessum
greinum og ræðum.
Það, sem mér fannst þó einna
athyglisverðast af öllu, fann ég í
áramótagrein Emils Jónssonar,
formanns Alþýðuflokksins. Þar
er m.a. reynt að skýra ósigur
Alþýðuflokksins í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningunum á
síðastl. ári. Sú skýring Emils
hljóðar á þesSa leið:
„Alþýðuflokkurinn hefur átt
því láni að fiagna, að eiga inn-
an sinna vébanda marga áhuiga
menn og konur, sem ekki hafa
talið eftir stundirnar og störf-
in fyrir flokkinn. En með hin-
um langa vinnudegi, sem flest-
ir Ieggja nú á sig, til að bæta
afkomuna, verða tómstundirn-
ar færri oig flokksstarfið
minna hjá mörgum."
Hér skal ekki xætt um, hvort
þetta sé hin rétta skýring á ó-
sigri Alþýðuflokksins. I-Iitt er
hins vegar laukrétt hjá Emil
Jónssyni, að vinnutíminn er nú
orðinn svo langur hjá fjölda-
mörgum, að tíminn til að sinna
félagsstörfum er sáralítill, jafn-
framt því, sem aukin vinnu-
þ^^a dregur úr félagsmálaáhug
r \
Atta stunda vinnudag
ur ur sögunni
Emil Jónsson hefur með fram-
angreindum orðum sínum vakið
athygli á því, — án þess að hafa
sennilega ætlað að gera það, —
að átta stunda vinnudagur er
raunverulega úr sögunni hjá
launastéttum landsins, hvað þá
hjá bændastéttinni.
Það var lengi eitt helzta bar-
áttumál verkalýðsflokka um all-
an hinn frjálsa heim að koma
á átta stunda vinnudegi. Víða
hefur þetta tekizt og sums stað-
ar betur. Hér á landi hafði Ai-
þýðuflokkurinn lengi vel for-
ustu í baráttu fyrir átta stunda
vinnudegi og átti mikinn þált '
að fá hann viðurkenndan.
Nú er hins vegar svo komið,
að fjarri fer því, að átta stunda
vinnudagur hjá ýmsum stærstu
launastéttum landsins nægi til
þess að tryggja sæmilega lífsaf-
komu. Hér i Reykjavík gildir
þetta um meginþorra allra laun-
þega. Menn verða að vinna
miklu lengur, og gera þó ekki
meira en rétt að bjargast. Alveg
sérstaklega hefur þessi öfugþró-
un magnazt seinustu misserin
siðan „viðreisnin“ svonefnda
kom til sögu. Nú lifir enginn
launþegi lengur sæmilegu lífi á
því kaupi, sem fæst fyrir átta
stunda vinnudag.
„Viðreisnin-1 er raunverulega
búin að afnema átta stunda
vinnudaginn. Það er eitt ömur-
legasta dæmið um hin beizku ör
lög Alþýðuflokksins, að sú ríkis-
stjórn, sem hann hefur átt flesta
ráðherra í, skuli hafa unnið
markvisst að þvj að gera aí
engu árangurinn af baráttu
hinna gömlu leiðtoga flokksins
*EMIL JÓNSSON
er fengu átta stunda vinnudag-
inn viðurkenndan.
10% rýrnun síðan
árið 1958
Alþýðusamband íslands hefur
látið þekktan hagfræðing gera
athyglisverða skýrslu um kaup-
mátt tímakaupsins hjá verka-
mönnum á undanförnum árum
Þessi samanburður sýnir m.a.,
að kaupmáttur tímakaupsins er
nú um 10% minni en hann var í
október 1958.
Þetta þýðir að kaupmáttur
launa eftir 8 stunda vinnudag er
nú raunverulega um 10% minni
en hann var í október 1958. Þetta
er skýringin á því, að menn
verða nú að vinna mikla eftir-
vinnu, ef þeir eiga að geta bjarg-
azt.
Það er vottur um einhverja
mestu öfugþróun og hina rang-
lálustu efnahagsmálastefnu, að
kaupmáttur launa eftir átta
stunda vinnudag skuli rýrna um
10% á sama tíma og þjóðartekj-
urnar hafa stóraukizt af völdum
óvenjulegs góðæris
1000 eftirvinnii“
stundir á ári
Gylfi Þ. Gíslason hefur nýlega
birt lölur um það, sem hann tel-
ur hcildarlaunatekjur verka-
fólks, þ.e, sjómanna, verka-
manna og iðnaðarmanna, á nokkr
um undanförnum árum. Hann
telur að samkvæmt þessu^ hafi
kaupmáttur heildarlaunatekna
aukizt síðan 1958 hjá þeim f.iöl-
skyldum, er njóta fjölskyldu-
bóta. Hjá öðrum launþegum,
sem eru alltaf um tveir þriðju
allra launþega, hefur kaupmátt
ur heildariaunatekna minnkað
Gylfi Þ. Gíslason heíur hins
vegar ekki haft fyrir því, að
reikna það út, hve langan vinnu-
tíma verkamenn,. eins og t.d
Dagsbrúnarmenn og tðjuverka-
menn, hafa þurft að vinna til að
ná þeim meðallaunatekjum, sem
hann telur þá muni hafa haft á
árinu 1962. Sá útreikningur lítur
hins vegar þannig út, að þeir
hafa þurft að vinna auk átta
stunda vinnudagsins, röska þrjá
eflirvinnutíma alla virka daga
ársins eða milli 900—1000 eftir-
vinnutíma á árinu.
Dagbrúuarmenn og Iðjuverka-
menn þurfa með öðrum orðum
11—12 stunda daglegan vinn-
tíma, ef þeir eiga að ná þeim
meðaltekjum, sem Gylfi ætlar
þeim og þeir þurfa að hafa, ef
þeir eiga rétt að geta bjargazt.
Vinnutími hinna
„gömlu, góðu daga”
Þegar „viðreisninni" var á sín-
um tíma hleypt af stokkunum,
lét forsætisráðherrann svo um-
mælt á Alþingi, að það væri von
hans, að aftur skapaðist hér á-
stand hinna „góðu, gömlu daga“.
daga“.
„Viðreisnin“ hefur vissulega
náð því marki, að við búum nú
við ástand hinna „gömlu. góðu
daga“, hvað vinnutímann snertir.
Nú þurfa langflestir launþeg-
ar landsins að hafa ellefu til
tólf stunda vinnudag, ef þeir
eiga að geta bjargazt.
Svo gífurlega hefur dýrtíðin
vaxið seinustu misserin.
Slíkur er nú árangurinn af
starfi þeirra Héðins Valdimars-
sonar, Jóns Baldvinssonar og
annarra slíkra, sem börðust fyr-
ir átta stunda vinnudegi. „Við-
reisnin" er búin að gera þennan
árangur að engu. Ástandið er nú
orðið líkast því og á hinum
„góðu, gömlu dögum“. þegar
verkalýðssamtökin hófu fyrstu
baráttu sína, a.m.k. hvað vinnu-
tímann snertir.
Lágt kaup tefur
vinnuhagræðingu
Þau rök heyrast nú talsvert,
að ekki megi hækka kaupið svo.
að átta stunda vinnudagur tryggi
verkafólki lífvænlega afkomu,
nema áður hafi verið komið á
aukinni vinnuhagræðingu hjá at-
vinnufyrirtækjunum. Það er
rétt, að vinnuhagræðingu þarf
að auka, og um það atriði þari
að komast á gott samstarf milli
atvinnurekenda og launþega En
það ber jafnframt að hafa í
huga, að reynslan annars sta5ar
sýnir ólvírætt, að þar sem kaup
ið er lægst, er vinnuhagræðingm
minnst, en þar sem kaupið er
hæst, er vinnuhagræðingin mest
Sæmilega gréitt kaup er atvinnu-
rekendum hvatnmg til að auka
vinnuhagræðinguna.
Það er líka annað, sem stend
ur nú meira í vegi vinnuhagræð
ingar en kaupið Til þess að
koma á vinnuhágræðingu. þari
oftast nokkra f.járfesmgu Láns
féð, sem Oarf til slíkra frarn
kvæmda, er nú annaðhvori frysi
í Seðlabankanum eða lánað út
með okurvöxtum. Meðan svo
liáttar til, blæs ekki byrléga fyr
ir aukinni vinnuhagræðingu á
íslandi.
Hvað gerir verka-
lýðshreyfingin?
Þeir menn, sem hófu baráttu
verkalýðssamtakanna á íslandi
Framh a ^3 sif'
imwiim nnn iir>"i i i ii i
/