Tíminn - 03.01.1963, Page 16
DREIFDU SORPI
fl STRANDGÖTU
Eggert
Stefánsson
látinn
Söngvarinn og rithöfundurinn
Eggert Stefánsson andaðist að
heimili sínu í Schio á Norður-
Ítalíu þann 29. desember síðast
liðinn. Eggert hafði kennt nokk-
urs sjúkleika á síðastliðnu hausti,
en var nú kominn heim og virt-
ist við góða heilsu. Virðist andlát
hans hafa borið brátt að, en blað-
inu er ekki kunnugt um dánaror-
Framhald á 15. síðu.
KB-Reykjavík, 2. jan.
Samkvæmt upplýsingum lög
reglunnar I HafnarfirSi voru
ólæti þar í bæ um áramótin
sízt meiri en þau hafa stund-
um verið áður og búast mátti
við. Voru þó ærsl töluverð í
unglingum og hávaði, nokkuð
bar á að verið væri með kín-
verja og aðrar ólöglegar
sprengjur, en engin slys eða
skaðar urðu af þeim völdum.
Einna hvimleiðast atferli ærsla
belgjanna var að þeir fluttu nokk-
uð af fullum sorptunnum niður á
Strandgötu, flestar úr næsta ná-
grenni, en þó jafnvel ofan af
Hverfisgötu, og helltu úr þeim á
götuna. Einnig kom fyrir að kveikt
væri í sorpinu, og þurfti einu
sinni að kalla slökkviliðið á vett-
vang. Benzíni eða öðrum eldvaka
var þó ekki beitt, eins og kom
fyrir á gamlárskvöld fyrir ári,
enda hafði lögreglan áminnt allar
benzínsölustöðvar að selja ekki
eldsneyti á brúsa. Það mun hafa
ýtt undir þetta óþrifnaðaratferli,
að sorphreinsun hefur að mestu
legið niðri yfir hátíðarnar, sakir
skorts á mannafla til starfans.
Voru því öskutunnur Hafnfirðinga
flestar velfullar og hafa greini-
lega gengið í augun á unglingun-
um.
Á gamlársdag urðu tvö umferð-j
arslys skammt fyrir sunnan Hafn-
arfjörð. Varð hið fyrra við Hvassa
hraun um hádegisbil, þar rákust
saman tveir bílar, annar úr Reykja
vík, hinn keflvískur. Skemmdust'
bílarnir nokkuð, en slys urðu eng-'
in á mönnum.
B ramhald á 15. síðu. 1
Búnaöarmálastjóri í rúm 27 ár
MB-Reykjavík, 2. jan.
f dag Iét Steinigrímur Stcin-
þórsson formlega af embætti
búniaöa rm ál a stj ó ra og við tók
dr. Halldór Pálsson. Blaðamað
ur frá Tímanum hitti Stein-
grím sem snöggvast að 'máli í
kvöld, þegar hann ætlaði að
fara að snætu kvöldverð ásamt
eftirmanni sínum og stjórn
Búnaðarfélags fslands í Hótel
Sögu.
— Já, ég lét formlega af
störfum í dag. Ég tók við störf
um búnaðarmálastjóra fyrsta
júní 1935, af Metúsalem Stef-
ánssyni. Þeir höfðu gegnt starf
inu tveir um hríð, hann og
Sigurður Sigui-ðsson. Sigurður
lét af störfum á Búnaðarþlngi
árið 1935, þá tók Metúsalem
við starfinu öllu og gegndi því,
þar tU ég tók við því. Sfðan
hef ég gegnt starfinu til þessa
dags, nema þau rúm sex ár,
sem ég gegndi ráðherrastörf-
um, 1950—56, þá gegndi Páll
Zóphóníasso,n starfinu.
— Áður en óg tók við þessu
starfi hafði ég verið skólastjóri
á Hólum í sjö ár og þar áður
fjögur ár kennari á Hvanneyri.
— Jú, það liefur vissulcgia
mikið breytzt öll þessi ár, cins
og allir vita. Þær breytingar
þekkir hvert mannsbam. Eitt
dettur mér í hug ,núna á stund
inni, sem sýnir tírnana tvenna.
Árið 1932 var Iialdið hátíðlegt
fimmtíu ára afmadi Hólaskóla,
og þá kom fjölmenni á staðinn.
Þá varð að reiða alla samkomu
gestina heim, því að ómögulegt
var að komast á bil; það var
svona rétt hægt að segja, al
þangað væri vagnfært.
— Það merkasta í landbún
aðarmálum síðustu áratugina?
Þar ber tvímælalaust hæst hina
miklu jarðræktaröldu, sem
hófst með setningu jiarðræktar
laganna, sem gengu í gildi ár-
ið 1924, og hefur staðið síðan.
Framh. á 15. síðu
Dr. Halldór Pálsson og Steingrímur Steinþórsson.
Börn í Grænlandi
meö kynsjúkdóma
Aðils—Kaupmannahöfn, 2. jan.
Þær fregnir hafa borizt frá
Grænlandi, að 10% skója-
barna í bænum Narssaq hafi
smitazt af lekanda. í bænum
eru 225 skólabörn undir ferm-
ingaraldri.
Frá þessu greinir í skýrslu hér-
sðslæknisins í Narssaq, en hann
hefur haft málið til meðferðar.
Hefur honum tekizt að grafast
fyrir um orsakir sjúkdómsins hjá
börnunum, en eins og kunnugt er,
er þag næsta fátítt, að börn fái
þennan kynsjúkdóm. Sjúkdómur-
Ópelbílarnir í Happdrætti
Framsóknarflokksins komu
á þessi númer: Nr. 36563
Hvítur með bláum toppi.
Nr. 27642 Blár með hvítum
toppi. í stað hvors bílsins
sem er getur vinningshafi
fengið FARMAL-dráttarvél
tneð sláttuvél, ámoksturs-
tækjum og öðrum tækjum
eftir vali fyrir samtals 180.
000,00 krónur. Skrifstofan
er í Tjarnargötu 26, sími
12942.
inn barst frá tveimur fullorðnum
mönnum í bænum, sem gerzt
höfðu sekir um að nauðga fjór-
um stúlkubörnum og smitað þær
af lekanda. Lekandinn breiddist
S'ðan út meðal barnanna, því að
þessar fjórar telpur áttu kynferð-
ismök við jafnaldra sína og er hér-
sðslæknirinn hóf rannsókn á skóla
börnunum, reyndust 10% þeirra
vera með lekanda, en samtals eru
225 börn i barnaskólanum í
Narssaq — öll undir fermingar-
aldri.
Mjög erfiðlega hefur gengið að
útrýma kynsjúkdómum í Græn-
landi og eru þeir hin versta plága
þar í landi Á árinu 1962 breidd-
ist lekandinn mjög út í Grænlandi
Fyrstu mánuði ársins skráðu lækri
ar í Grænlandi 3609 tilfelli en ú
sama tíma árið áður voru þau 2515
ABERANDIMIKIÐ UM KÍNVERJA, - EINN TEKINNMEÐ 350
80 HANDTEKNIR
Á SLYSAVARÐSTC
BÓ-Reykjavík, 2. janúar.
Þa8 er mál manna, að
áramótagleðskapur I
Reykjavík hafi verið með
fjörlegasta móti og styðja
það frásagnir lögreglu,
slökkviliðs og yfirlæknis
slysavarðstofunnar. Engir
stórskaðar hlutust þó af
galsanum.
Erlingur Pálsson yfirlögreglu
þjónn skýrði blaðinu frá störf-
um lögreglunnar, sem voru ær
in á gamlárskvöld og fram eft-
ir nóttu. Um 100 brennur voru
í umsjá lögreglu og slökkviliðs,
og var kveikt í þeim flestum
kl. 10 og þeim stærstu klukku
stundu síðar. Stærst var brenna
borgarinnar á Klambratúni og
safnaðist þar mikill fólksfjöldi
Þá voru stórar brennur í Laug
ardal og við Ægissíðu. Umferð
milli þessara staða var gífur-
leg, en lögreglan hafði góða
stjórn á henni enda varð ekk-
ert slys í bílaumferðinni, en þó
talsverð hálka.
Unglingar hópuðust saman í
miðbænum og lótu þar ófrið
lega, brutu glugga í Herrabúð-
inni, hjá Eymundsen og Jóni
Brynjólfssyni, hjá Hrátt og
soðið, og sýningarkassa brutu
þeir við Lækjartorg. Þá voru
brotnir upp fimm stöðumælar
og hvellsprengjur látnar inn i
þá. Lögreglan handtók níu
stráka með sprengjubirgðir
þar af einn með 350 stykki
smyglaðra kínverja, en drengur
viðurkenndi síðar að hafa ver-
ið búinn að selja slatta af vör
unni, sem hann kom sjálfur
inn í landið. Tvær þungar
sprengjur sprungu i miðbæn-
um, önnur á tröppunum hjá
Reykjavíkurapóteki. Tveir pilt-
ar voru staddir þar, þegar
sprengjan spraks, og annar
fékk málmflís í t'ótinn Aðspurð
ir sögðu piltarnir. að þeir
hef'ðu ekki sprengt bombuna.
heldur hefðu aðrir gert það
Gamall kunningi lögreglunn
ar var tekinn úr umferð fyrir
að slást upp á fólk i Austur-
stræti, en strákavaður fylgdi að
lögreglustöðinni og lét ófrið-
lega þar fyrir utan Lögreglan
kastaði þá þrem litlum táragas-
Framh á 15. síðu