Alþýðublaðið - 10.02.1940, Síða 1
Miinið
skemmtikvöld Hörpu
í Alþýðuhúsinu.
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
flBBBl í
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR.
LAUGARÐAGUR 10. FEBR. 1940.
34. TÖLUBLAÐ
AlMðnflofcksfólk!
Sækið Hörpuskemtun*
ina í kvöld.
Nýr ráðsmaðnr
Dagsbrúnar.
Hver verðor skákmeist
ari Revkjavfknr 1940?
s^mkeppmi milll prffjila
pekkfra skáksnillinga.
URSLITIN á skákmóti
Reykjavíkur fara nú óðum
að nálgast. Aðeins er eftir að
tefla eina umferð. Þrátt fyrir
það er samt enganveginn víst
hver úrslitin verða í meistara-
flokki, þar sem þrír efstu
keppinautarnir eru jafnir. —
Næsta og síðasta umferð verður
tefld á miðvikudag. Mun mörg-
um verða forvitni á að vita
hver úrslitin verða. Vinningar
hjá keppendum standa þannig
fyrir síðustu umferð.
Meistaraflokkur: Eggert Gilf-
er, Ásmundur Ásgeirsson og
Guðm. S. Guðmundsson 514
vinning hver. Sæmundur Ólafs-
son, Hafsteinn Gíslason og
Benedikt Jóhannsson 4 vinn-
inga hver. Sturla Pétursson 2Vz
vinning. Áki Pétursson og Her-
mann Jónsson 3 vinninga hvor
og Hannes Arnórsson með 2
vinninga.
I. flokkur: Sigurður Gissur-
arson hefir 7 vinninga. Magnús
Jónasson 6 vinninga. Óli Valdi-
marsson 5 vinninga. Ingimund-
ur Guðmundsson 4 vinninga,
Aðalsteinn Halldórsson og Pét-
ur Guðmundsson 2tú vinning
hvor. Geir J. Helgason og
Kristján Sylveríusson 2 vinn-
inga hvor og Ragnar Pálsson
með 1 vinning.
Síðustu umferð í I. flokki er
lokið, eftir er aðeins að tefla
nokkrar biðskákir.
II. flokkur A: Friðbjörn
Benónýsson og Ólafur Einars-
son hafa 6Vz vinning hvor. Ás-
kell Kjerúlf og Lárus Johnsen
5V2 vinning hvor. Þorsteinn
Þorsteinsson, Stefán Jóhanns-
son og Þorleifur B. Þorgrímsson
4 vinninga hver. Gestur Pálsson
3V2 vinning. Áskell Nordahl 3
Frh. á 4. siðu.
MARTEINN GÍSLASON
Q TJÓRN DAGSBRONAR hefir
^ ráðið nýjan ráðsmann fyrir
félagið. Varð fyrir valinu Mar-
teinn Gísiason verkamaður, Ljós-
vallagötu 12. Marteinn Gíslason
er ungur maður, aðeins 30 ára
gamall. Hann hefir alls staðar
þar sem hann hefir unnið, notið
mesta trausts. Hann er mjög
reglusamur og duglegur.
Kommúnistastjórnin í Dags-
brún hafði ráðið ráðsmann fé-
lagsins með 6 mánaða uppsagn-
arfresti. Var pað gert til að gera
þeirri stjórn, sem við tæki, erfið-
ara fyrir.
Starf ráðsmanns er hins vegar
svo þýðingarmikið, að nauðsyn-
iegt er að fullt samræmi og til-
trú sé rnilli stjórnar félagsins og
ráðsmanns þess.
Hefir þessum málum nú verið
Jjannig fyrir komið, að Dagsbrún
fær ekkert fjárhagslegt tjón af.
Starfsstúlknr á priónastofum stofn
uðnmeð sér stéttarf élag í gærkveldi
¥ GÆRKVÖLDI komu sam-
an nokkrar stúlkur, sem
vinna á prjónastofum hér í bæn
um og stofnuðu með sér félag
til þess þar, að vinna sameigin-
lega að bættum hagsmunum
sínurn og annarra stúlkna er
vinna í þessari starfsgrein.
í bráðabirgðastjórn voru
kosnar þær: Sigríður Jóhannes-
dóttir, Bergþóra Hólm og Sig-
ríður Eggertsdóttir,
Stúlkur þær, sem vinna við
prjónastörf hafa aldrei haft með
sér félagsskap, en vitanlega
sjálfsagt fyrir þær, eins og fólk
í flestöllum starfsgreinum öðr-
um, að hafa sitt eigið stéttar-
félag, til þess þar að vinna að
sameiginlegum hagsbótum.
Enda segir svo 1 lögum um
,,stéttarfélög og vinnudeilur,“
að verkafólk hefir rétt til þess,
að stofna með sér stéttarfélög
— og ennfremur, að um leið og
stéttarfélag er stofnað, er það
lögformlegur samningsaðili um
kaup og kjör meðlima sinna.
Þá segir þar um, að atvinnu-
rekendum eða umboðsmönnum
þeirra er óleyfilegt að hafa áhrif
á afstöðu starfsfólks síns, til
stéttar eða stjórnmálafélags
með: uppsögn úr vinnu eða
hótunum um slíka uppsögn,
með loforðum um fjárgreiðslur,
eða neitunum um réttmætar
greiðslur. Þegar þessa er gætt,
þurfa stúlkurnar ekki að óttast,
að þær verði fyrir ofsóknum eða
óþægindum af hálfu atvinnu-
rekenda, þótt þær taki þátt í
slíkum félagsskap, sem stofn-
að var til í gærkveldi.
Til þess að sýna hversu mik-
il nauðsyn var á, að félagið væri
stofnað, má geta þess, að sam-
kvæmt gengislögunum ber at-
vinnurekendum engin skylda til
að hækka kaup þess fólks, sem
ekki er stéttarfélagsbundið.
Frh. á 4. síðu.
Vetrarhörkurnar í Danmörku: Alísað skip inni í Kaupmannahöfn.
ísalögin í Danmörku hafa
stöðvað alla flutninga á sjó.
♦
Stérkostfteg vandræói fi Kaiapiiaaiiiialiiifn og víðar
sðkuni skorts og verðhœkkunar á Ififsnauðsynjuin
KHÖFN í morgun.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins,
SAMGÖNGUVANDRÆÐIN af völdum ísalagna við
Danmörku náðu hámarki sínu í gær. Allar siglinga-
íeiðir milli dönsku eyjanna og milli þeirra og Jótlands eru
nú lagðar svo þykkum ís, að allar skipaferðir hafa stöðvazt.
Allt Kattegat er lagt norðan frá Skagen og sitja 30
skip föst í ísnum hingað og þangað. ísinn er orðinn svo
þykkur, að starfsemi íshrjótanna, sem þó hingað til hafa
getað haldið opnum rennum á stöku stað fyrir skipaferðir,
er að verða með öllu ómöguleg.
Kuldarnir vour óskaplegir í fyrrinótt. Frostið náði 23 stig-
um á Celsius í Gribsskógi, 22 stigum í Álaborg og 20 stigum
víðs vegar annars staðar. Það er þó talið útlit fyrir að frostið
eigi enn eftir að vaxa.
Samgönguvandræðin hafa ♦
skapað mjög alvarlegt ástand í
Kaupmannahöfn og fleiri borg-
um. StÖðvun aðflutninga á öll-
um lífsnauðsynjum hefir haft
það í för méð sér, að vörur
hækka óðfluga í verði. Og elds-
neytisskorturinn vei'ður með
degi hverjum tilfinnanlegri.
Stjórnin hefir gefið út strang -
ar reglur um eldiviðarsparnað
og ganga þær í gildi á mánu-
daginn.
Samkvæmt þeim skal loka
fyrir heitt vatn í eldhúsum, bað-
herbergjum og snyrtiherbergj-
um. Allir gildaskálar skulu loka
kl. 24. Sömuleiðis er fjölda
skemmtistaða, íþróttahúsa og
kvikmyndahúsa algerlega lok-
að.
Hiti í íbúðum einstakra
manna má að viðlögðum sektum
ekki fara yfir 18 stig og í kirk.j-
um og fundahúsum og öðrum
samkomuhúsum skal ekki hita
upp yfir 10 stig. Ráðgert er, að
með þessum ráðstöfunum geti
Danir sparað sér 22 500 smá-
lestir af kolum á mánuði.
í Noregi er og víða orðinn
mikill eldiviðarskortur. Kola-
skömmtunarnefndin norska hef-
ir fengið heimild stjórnarvald-
anna til þess að flytja eldivið-
arbirgðir úr einum stað í annan
og koma á algerðri skömmtun.
Mörgum skólum í Oslo er lokað
vegna eldiviðarskorts.
Norðnr-Atlantshafs
fluiift með fiðkomn
á Islaidi trjjggt?
KHÖFN í gærkveldi. FÚ.
"O LUGMÁLANEFND sú
frá Norðurlöndum, sem
fyrir nokkru fór til Bandaríkj-
anna til samninga við stjórnar-
völd þar, skýrir frá því opinber-
lega, að póstflugferðir milli A-
meríku og Norðurlanda muni
bráðlega geta hafizt, og verða
amerískar flugvélar notaðar til
flugsins.
í tilkynningu þessari er gert
ráð fyrir viðkomustað á íslandi.
Merfcjasala Ranða
fcrossins fcomst npp
í hátt á 8. pás. fcr.
O ÖFNUN Rauöa krossins sí'ð-
^ astliðinn miðvikudag fór
víða fram á Iandinu og tókst svo
vel, að hún varð 6—7 ' sinnum
meiri en í fyrra.
I Reykjavík söfnuðust 4656 kr.,
á Akranesi 298 kr., í Borgarnesi
142 kr., á ^safirði J350 kr., á
Hvammstanga 50 kr., á Akureyri
700 kr., á Siglufirði 258 kr. og í
Vestmannaeyjum 500 kr., eða
samtals á þessum stöðum 6936
krónur,
Enn hefir þó ekki borizt skila-
grein frá nokkrum stöðum, og
gera má þvi ráð fyrir, aö söfn-
unin, sem aðallega var rnerkja-
sala, hafi komizt upp í hátt á
áttunda þúsund krónur.
t DAO
Næturlæknir er Þórarinn
Sveinsson, Ásvallagötu 5, sími
2714,
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,20 Hjómplötur: Kórlög. 19,40
Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15
Leikrit: „Gesturiim", útvarpsleik-
rit eftir Kristmann Guðmundsson
(Brynjólfur Jóhannesson). 20,40
Danshljómsveit útvarpsins leikur
og sy.ngur. 21,10 Útvarp frá Ár-
nesingamóti að Hótel Borg. Á-
vörp og ræður. Söngur. 21,50
Fréttir. 22,00 Danslög. 24,00 Ðag-
skrárlok.
Á MORGUN:
Helgidagslæknir er ólafur Þ.
Þorsteinsson, Mánagötu 4, sími
2255.
Næturlæknir er Eyþór Gunn-
arsson, Laugavegi 98, sírni 2111.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
9,45 Morguntónleikar (plötur):
Cellósónata í g-moll og píanósó-
nata í o-moll, eftir Beethoven.
10,40 Veðurfregnir. 11,00 Messa í
dómkirkjunni (séra Fr. H.) 12,15
—12,30 Hádegisútvarp. 15,30—
16,30 Miðdegistónleikar: Létt
klassisk lög (plötur). 18,30 Barna-
tími: a) Sögur o. fl. (H. Hjörv.).
b) Drengur, 13 ára, leikur á píanó.
19,10 Veðurfregnir. 19,20 Hljóm-
plötUr: Lög eftir Delius. 19,50
Fréttir. 20,15 Erindi: Frá manni
til guðs, III: Alheimskirkjan (Gr.
Fells rithöf.). 20,40 Hljómplötur:
Feuermann leikur á celló. 20,50
Upplestur: Úr sögum herlæknis-
ins, eftir Topelíus (Pálmi Hann-
esson rektor). 21,15 Tónleikar
Tónlistarskólans: Sónata fyrir
fiðlu og píanó, G-dúr, Op. 13,
eftir Grieg (Björn Ólafsson og
Árni Kristjánsson). 21,30 Danslög.
Fundur
verður haldinn í Varðarhúsinu
á morgun kl. 1 eftir hádegi,
til þess að stofna félag með
trillubátaeigendum í bænum og
formönnum þeirra. Er þess fast-
lega vænzt, að formenn trillu-
bátanna og eigendur þeirra mæti,
þar sem bráð nauðsyn er að ráða
bót á þeim hrakningi, sem trillu-
bátarnir verða fyrir.
Tveimnr kafhátam
sðfcfct af brezknm
tnndirspiili.
B
LONDON í morgun. FÚ.
REZKA flotamálaráðu-
n'eytið tilkynnti í gær-
kveldi, að tveimur þýzkum kaf-
bátum hefði verið sökkt. Höfðu
þeir gert tilraun til árásar á
kaupskipaflota, sem herskip
fylgdu.
Sami tundurspillirinn sökkti
báðum kafbátunum.
Koma engir vélbát-
ar til Reykjaviknr?
T SAMBANDI við fjárhagsáætlun Rteykjavíkur báru
fulltrúar Alþýðuflokksins fram tillögu þess efnis, að
atliugaðir yrðu möguleikar fyrir því að fá hingað 10 vélbáta
til útgerðar. Tillagan náði fram að ganga og voru skipaðir í
nefnd til að athuga þetta, Jón Axel Pétursson, Hafsteinn
Bergþórsson og Sveinn Benediktssen. Þessir menn hafa dag-
lega nú í heilan mánuð unnið að þessu og aflað sér marg-
víslegra upplýsinga um skilyrði fyrir því, að fá hingað vél-
bátana, en allt virðist hingað til hafa strandað á bönkunum
og fulltrúum þeirra í innflutnings- og gjaldteyrisnefnd.
Þetta er ótrúleg saga, en þó er hún sönn. Nægilega marg-
ir menn, sem liafa peninga og vilja gerast kaupendur að bát-
unum eru til, en það strandar á aðalatriðinu, að innflutnings
leyfi fáist fyrir bátana. — Yrði þetta þó mikið bjargræði fyrir
bæjarmenn, bæði nú á vertíðinni og þó sérstaklega á síld-
veiðitímanum næsta sumar,
Það 'er von manna, að nú verði gerð úrslitatilraun til að
hrinda þessu máli í framkvæmd. Ríkisstjórnin ætti að geta
ráðið þessu máli til úrslita á ráðitneytisfundi.