Alþýðublaðið - 14.02.1940, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 14.02.1940, Qupperneq 1
r XXI. ARGANGUR. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBR 1940 37. TÖLUBLAÐ. Finnar gerðu gagnáhlaup á Kyrjálanesinu i gærdag. —--♦--- Mannerheimlfnan er enn érofin, en það er barizt um fremstu virki hennar. Héðinn tapar enn einn máli. GÆR var í bæjarþingi kveðinn upp dómur í málinu Byggingarfélag Alþýðu gegn Byggingarsjóði verkamanna og Byggingarfélagi verkamanna. Krafðist stefnandi þess, að viðurkennt yrði með dómi rétt- arins, að Byggingarfélag alþýðu hefði eitt félaga rétt til láns eða lána úr Byggingarsjóði verka- manna. Var stefndur algerlega sýkn- aður. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. TTIN blóðuga viðureign á Kyrjálanesi hélt áfram allan * daginn í gær. Það er mjög erfitt að sjá, hvernig or- ustan stendur. Þó lítur út fyrir það, að Rússum hafi tekizt með áhlaupunum undanfarna daga að ná nokkrum varn- árstöðvum Finna í fremstu röð Mannerheimvíggirðinga. Því í gærkveldi tilkynntu Finnar, að þeif hefðu gert gagn- áhlaup og náð aftur af Rússum þeim stöðvum, sem komn- ar hefðu verið á vald þeirra. Því neita þó Rússar, en við- urkenna, að gagnáhlaup Finna hafi átt sér stað. Finnar segja, að Mannerheimlínan sé alls staðar enn órofin, en viðurkenna að þeir þurfi á skjótri hjálp að halda, ef þeir eigi að geta stöðvað Rússa. Ógnrlegnr liðsmnnur. Liðsmunurinn í orustunni á Kyrjálanesi er ógurlegur. Rúss- Tvær nýjar bækur frá M. F. A. flrunadans heimsveldanna, bðfe- in nm heimspólitífe siðustn ára. -— ----♦------— Fluglisiin, nm siigu og préun flugmáfiannu frá upphafi. 'T’ VÆR SÍÐUSTU BÆK- UR Menningar- og fræðslusambands alþýðu fyrir 1939 eru nú komnar út. Þéssar bækur eru „Hruna- dans heimsveldanna“ eftir brezka blaðamanninn Dou- glas Reed og „Fluglistin“ eft- ir norska prófessorinn Edgar B. Schieldrop. Útkomu bók- anna seinkaði vegna erfið- leika á því að fá pappír til landsins. Báðar þessar bækur eru hin- ar glæsilegustu. Hrunadans heimsveldanna er heimsfræg bók, sem selst hefir í milljóna- upplagi. Hún er rituð af brezka blaðamanninum Douglas Reed, en hann var fréttaritari enska stórblaðsins „Times“ í Þýzka- landi og víðar um Mið-Evrópu. Eru lýsingar hans á valdatöku nazismans og nazismanum yfir höfuð ákaflega athyglisverðar, svo og lýsingar hans á Austur- ríki, Tékkóslóvakíu og Balkan- ríkjunum. Hann fór og með Anthony Eden til Moskva og er skýrt frá þeirri för í bókinni. Hinn enski titill bókarinnar er „Insanity Fair“, og er bókin spennandi sjálfsæfisaga manns, sem lifað hefir mitt í hringiðu hiniia stóru heimsviðburða. Má óefað fullyrða. að þessi bók sé einhver hin athyglisverðasta, seín út hefir komið hér á landi á síðustu árum. Sá, sem les hgna, skilur betur en áður þá viðburði, sem hafa verið að ger- ast og eru nú að gerast daglega. Hrunadans heimsveldahna er rúmar 22 arkir að stærð, prýði- Douglas Reed, höfundur „Hrunadans heims- veldanna“. leg að öllum frágangi. Magnús Ásgeirsson hefir íslenzkað hana. Fluglistin eftir Schieldrop er raunverulega saga fluglistar- innar, og er þar getið allra stærstu viðburða í sögu þessar- ar einna mestu uppfinningar nútímans. Bókin er prýdd mikl- um fjölda af myndum, sem sýna á ljósan hátt gerð flugvéla af ýmsum tegundum að utan og innan allt frá upphafi til vorra daga. Er bókin ómissandi hverjum þeim, sem áhuga hafa fyrir fluglistinni, en þeim fer sí- fellt fjölgandi með hverjum degi. En auk þess er hún svo ljóst og skemmtilega skrifuð, að allur almenningur hefir hennar full not. Þessar bækur, ásamt síðara bindinu af Borgarvirki, koma í bókaverzlanir í dag. Auk þess Frb. á 4. síðu. ar eru taldir hafa þar um 300 þúsundir manna, eða hér um bil jafnmikið lið og Finnar samtals á öllum vígstöðvum í landinu. í áhlaupunum, sem nú eru búin að standa yfir svo að segja óslitið í 13 daga, h'efir mann- fallið í liði Rússa hins vegar verið gífurlegt, og telst svo til, að þeir muni alls hafa misst 33 þúsundir, sem annaðhvort hafa fallíð eða orðið óvígir af sárum. Aðalviðureignin stendur enn við Summaa, en þaðan er stytzt frá vígstöðvunum til Viborgar. Beita Rússar nú fyrir sig stærri skriðdrekum en nokkru sinni áð- ur, og eru þeir með þremur fall- byssutumum. Seint í fyrrakvöld Iögðu Finnar til blóðugrar návíg- isorustu við Rússa á Summaavíg- 'stöðvunum með handsprengjum og byssustingjum og náðu af þeim 23 skriðdrekum. VirðiSt sú viðureign hafa verið byrjunin að gagnáhlaupi þeirm í gær. Rússar telja sig hafa tekið tölu- vert herfang af Finnum í áhJaup- unum síðustu daga, þar á meðal 230 vélbyssur og 80 fallbyssur, en engin staðfesting hefir fengizt á því frá öðrum heimildum. Þrátt fyrir hina frækilegu vöm Finna gegn ofureflinu gerir nú mikill kvíði vart við sig útí um allan heim um úrslit orustunnar á Kyrjálanesi. Menn óttast að Finn- ar, sem enga hvíld fá fyrir á- hlaupum Rússa, þreytist smásam- an og neyðist til þess að víkja fyrir hinum nýju og óþreyttu her- sveitum, sem Rússar geta stöðugt teflt fram sökum hins mikla mannfjölda, sem þeir hafa á að skipa. Því er nú einnig haldið fram, að þýzkir herforingjar séu komn- ir til rússneska hersins á Kyxjála- nesi, og jafnvel ekki talið óhugs- andi, að Þjóðverjar sendi þangað her, Rússum til aðstoðar. Norðurlönd búin að missa samtals 88 skip. BERLIN i morgun. FÚ. Notðuriöndin þrjú, Danmörk, Noregur og Svíþjóð, hafa misst 88 skip af völdum stríðsins þann 51/2 mánuð, sem það hefir staðið. Þar af hafa Danir misst 16 skip, samtals 34 þúsund smálest- Frh. á 4. sfðú. Sjúkralest rauða krossins á járnbrautarstöðinni í Viborg aðeins 30 km. frá vígstöðvunum. Tveimur sænskum skip um taefir enn verið sökt Annað þeirra var slcotið i kaf af þýzkum kafbát fyrirvaralaust. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHÖFN í morgun. NN hafa borizt fregnir af tveimur sænskum skipum, sem nýlega hefir verið sökkt. Annað þeirra, „Orania“, 1800 smálestir, var skotið í kaf af þýzkum kafbátum í fyrrinótt, án nokkurs fyrir- vara, og sökk skipið á þrem- ur mínútum. Um hitt, „Dalarö“, 4000 smálestir, er ekki kunnugt, hvort það var skotið í kaf eða rakst á tundurdufl. Á „Orania“ var 24 manna á- höfn, og komust skipverjar með haumindum í tvo björgunarbáta. Var öðrum þeirra, sem í voiu 10 menn, bjargað af brezku herskipi. En hinn bátinn vantar. Voru i honum 14 manns, þar á meðal skipstjórinn og kona hans. Á „Dalarö“ var 26 manna á- höfn, og var henni bjargað af belgiskum togara. En skipstjórinn andaðist skömmu eftir að hann hafði verið tekinn um borð í tog- a'fenn. í gær fréttist einnig, að á sunnudag hefði norska skipið „Sæestad", 4100 smálestir, farizt á leið frá Noregi til New Ýork. Skipið var tómt, en átti að taka farm vestra. Áhöfninni var.bjarg- að. Það er ekki kunnugt, hvort skipinu var sökkt með tundur- skeyti eða það rakstátundurdufl. Skáfemót Reykjavikar Hðrð samkeppni, tvi- sýn Arslit. EINS og getíð var um hér f blaðinu á laugardaginn. Verður síðasta umferð á skák- móti Reykjavíkur tefld í kvöld. Vinningar hjá keppendum í meistaraflokki standa þannig fyrir síðustu umferð: Eggert Gilfer. Ásmundur Ásgeirsson og Guðmundur S. Guðmundsson 5Ý2 vinning hver, Sæmundur Ólafsson, Hafsteinn Gíslason og Benedikt Jóhannsson 4 vinn- inga hver. Áki Pétursson og Hermann Jónsson 3 vinninga hvor. Síurla Pétursson 2% vinning og Hannes Arnórsson 2 vinninga. í I. flokki hefir síðustu um- ferð þegar verið lokið og eru heildarúrslítin á þessa leið: 1. Sigurður Gissurarson 7 vinn- inga. 2. Magnús Jónasson 6 vinninga. 3. Óli Valdimarsson 5Ý2 vinning. 4. Ingimundur Guðmundsson 4 viiminga. 5. Geir J. Helgason 3% vinning. 6. Aðalsteinn Halldórsson 3 vmninga. 7.-8. Pétur Guð- mundsson og Kristján Sylveri usson 214 vinning. 9. Ragnar Pálsson með 2 vinninga. Það má með sanni segja, að sjaldan hafi úrslitin í meistara- flokki verið jafn tvísýn og ein- mitt nú, þar sém þrír keppend- ur hafa jafn marga vinninga. Tveir þessara manna, þeir Eggert Gilfer og Ásmundur Ás- geirsson, eru fyrir löngu al- þekktir bæði hér í Reykjavík og um land allt fyrir afrek sín á skákbörðinu bæði innan lands og utan. Þarf því ekki að fjöl- yrða meira um þá, því á skáít- borðinu eru þeir, ef svo mætti að orði kveða, gamlir og slægir refir, sem virðast alltaf hafa ráð undir rifi hverju. Þriðji maður- inn, Guðm. S. Guðmundsson. getur aftur á móti ekki talizt þrautreyndur meistari, þar sem þetta er í fyrsta sinn, sem hann teflir í meistaraflokki. Frammi- staða hans er því afar eftirtekt- Frh. i 4. sá»u. ALÞINGl SETT Á MORGUN: Fjárlðgin og launamál opin« berra starfsmanna aðalmálin* «■ Félagsm álaráðherra skýrir frá nokkrum frum- vörpum, sem hann mun leggja fyrir þingið. —■———.♦ ——— A L Þ I N G I verður sett á morgun. Hefst athöfnin með því að þingmenn ganga í kirkju. Séra Friðrik Rafnar prédikar. Talið er að kosningar á forseta sameinaðs þings, skipting í deildir og kosningar á starfsmönnum deilda geti farið fram, enda munu nær allir þingmenn komnir til þings- Alþýðublaðið hafði í morgun tal af félagsmálaráðherra um störf þessa alþingis. „Aðalmál þingsins verða fjár- lögin og launakjör opinberra starfsmanna. Annars hlýtur þetta þing alveg að mótast af ástandinu i heiminum. Það gera þing allra þjóða nú. Erfiðustu mál þingsins verða vitanlega innflutnings og /útflutnings- málin. Á þessum málum veltur bókstaflega öll aflcoma þjóðar- innar.“ — Hefir félagsmálaráðuneyt- ið undirbúið frumvörp til flutnings á þinginú? „Jú, það hefir undirbúið húsaleigulög, breytingar á lög- unum um alþýðutryggingar, frumvarp til laga um hækkun á dánar- og slysabótum, ellilaun- um og örorkubótum. Þá hef ég látið undirbúa frumvarp til laga um eftirlit með bæja- og sveita- félögum og um lyffræðingaskóla íslands.“ Frli. á 4. si4u.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.