Alþýðublaðið - 17.02.1940, Qupperneq 4
lAUOAHnAOUR 17. FEBR. 1940.
B9P.GAMLA BlO BSB
Borgarvlrki.
Meíro-Goldwyn Mayer-stór-
mynd gerð eftir hinni frægu
samnefndu skáldsögu enska
læknisins og rithöfundarins
A„ J. Cronins.
Aðalhlutverkin leika:
Robert Donat og
Rosalind Russe).
Sýnd í kvöld kl. 7,15 og |
9,30.
Drengjaföt, matrosföt, jakka-
föt, frakkar, skiðaföt. Sparta,
Laugavegi 10, sími 3094.
3$8$8£3$8$8$8$8$8$8S8g8$
Bogglasmjðr
Harðfiskur, % I íl
Eiklingur, f'
Bjúgu, { |
Egg, I
Valdar Kartöflur og
Gulrófur.
BREKKA
Ásvallagötu 1. Sími 1678.
TJARNARBÚÐIN. Sími 3570.
S88$S3$S38SS8S388g3S6S888E»8g
fsgarnsokkar
komnir aftur í
Verzl. Goðafoss, Laugav. 5-
Dansleik
heldur Félag Harmonikuleikara
i Oddfellowhúsinu sunnudaginn 18. þ. m. kl. 10 e. h.
Sú nýbreytni verður á þessum dansleik að frá kl.
12—2 verður dömufrí.
Hljómsveit Aage Lorange og harmonikuhljómsveitir
leika undir dansinum.
Eldri dansarnir uppi. Nýju dansarnir niðri.
Aðgöngumiðar frá kl. 4.
HVAÐA AFLEIÐINGAR HEFIR
STRÍÐIÐ FYRIR ENGLAND
Frh. af 3. síðu.
koma á þjóðfélagslegu réttlæti
í heiminum. Það er ekki vafi á
því, að Englendingar, sem geta
lagt allan sinn styrkleika 1
stríðið, verða stöðugt meir og
meir að grípa til ríkiseftirlits.
í því liggtxr sú hætta, að þetta
eftirlit geti leitt til þess, að
meðan við berjumst fyrir frels-
inu út á við, getum við misst
það heima fyrir. Verkalýðurinn
— sem lagt hefir alla áherzlu á
það, að fullnægja þeim kröfum,
sem þjóðfélagið leggur honum á
herðar á þessum tíma, er fast-
ákveðinn í því að berjast gegn
öllu því, sem leitt gæti til ein-
ræðis. Það verður að fylgja
reglum lýðræðisins. Frjálsar um
ræður í þinginu eru ágætt meðal
gegn öllum einræðisaðferðum.
Verkamennirnir, sem leggja líf
og limi í hættu til þess að
berjast fyrir þjóð sína gera það
ekki sem undirmenn, heldur
sem jafningjar. Þeir krefjast
lýðræðis á öllum sviðum. Það
verður að varpa fyrir borð hin-
um gömlu kröfum um það, að
aðeins menn af séðri stéttunum
skipi þau réttindi vbgké vbgké
skipi þau embætti, sem ábyrgð
íylgir. Sú eldskírn, sem við
verðum nú að ganga í gegn um
er allt of alvarleg til þess, að
hægt sé að leyfa óhæfum mönn-
um að stjórna, jafnvel þó að
þeir gangi í fínum fötum. Og
framar öllu öðru er enska
verkalýðnum það fullkomlega
Ijóst fyrir hvað hann er að
berjast. Hann berst fyrir frelsi
og lýðræði og heiðri sínum gegn
myrkravaldi því, sem kallast
Hitlerismi. Hann veit hvaða
þjóðskipulag hann vill hafa í
Englandi. Hann óskar eftir ör-
yggi til handa hverjum manni
og hverri konu án tillits til
kynþáttar, trúar eða litar.
Verkalýðurinn berst fyrir full-
komnun mannlegs lífs, og hann
er ákveðinn í því að sjá svo um,
að England geti gefið heiminum
dæmi til eftirbreytni, bæði í
innanríkis- og utanríkispóli-
tík.
Auglýsið í Alþýðublaðinu!
ELLILAUN OG ÖRORKUBÆT UR
Frh. af 3. síðu.
til ellistyrkja ca. kr. 200,000, en
árið 1936, þ. e. fyrsta árið sem
úthlutað var skv. alþýðutrygg-
ingaiögunum kr. 924 00, en fyrir
árið 1940 eins og áður er sagt
kr. 1582 900.
HÚSALEIGUNEFNDIN
Frh. af 1. síðu.
með íbúðirnar óleigðar jafnvel i
langan tíma. En þetta hlýtur vit-
aniega að hafa það í för með
sér, að leigusali reyni að ná
þessu tapi upp aftur á öðrum
skilvísum leigjendum.
— Þér er kunnugt um hin fyr-
irhuguðu húsaleigulög félags-
máiaráðherra?
„Já, ég tel, að ef þau ná fram
að ganga, þá séu þau mikil bót
frá því, sem nú, er. Þau eiga að
bæta úr ýmsum göilum, sem fram
hafa komið á núverandi lögum.“
SJÁLFSMORÐ
Frh. af 1. síðu.
hefta sandfok þar að mestu leyti,
Hann endurbyggði kirkjuna á
staðnum og gerði ýmsar umbæt-
ur á jörðinni. Varði hann til
þessa miklu fé og var ætlun hans
að koma hingað á næsta sumri til
þess að afhenda gjöfina og hefði
gert það, ef honum hefði orðiö
lengra lifs auðið. FO.
ERLENDI GJALDEYRIRINN
OG SJÓMENNIRNIR
Frh. af 1. síðu.
herra fengið skilaboð frá aðal-
blaði Sjálfstæðisflokksins. Ef til
vill svarar viðskiptamálaráð-
herra þessum skilaboðum með
því að styðja sanngirniskröfur
sjómanna á hendur útgerðar-
mönnum.
Aðalfundi S. !. F.
var slitið í nótt. Stjórnin var
endurkosin að öðru leyti en því,
að Elías Þorsteinss-on, Keflavík,
kora í varasætti I stað Jóns Kjart-
anssonar. Endurskoðendur voru
líka endurkosnir að öðru en því,
að Sveinbjöm Oddsson, Kothús-
um, varð varaendurskoðandi í
stað Júlíusar Guðmundssonar.
Leikfélagiö
sýnir Fjalla-Eyvind tvisvar á
morgun. Fyrri sýningin byrjar
ki. 3>/2, en sú seinni byrjar kl. 8.
íþróttaráð
Reykjavíkur.
Á síðasta fundi Í.S.Í. var
skipað íþróttaráð Reykjavíkur
fyrir yfirstandandi ár. Skipaðir
voru:
Stefán Runólfsson, form.,
Karl Vilmundarson, Sigurður
Ólafsson, Jón Jóhannesson og
Jón Þórðarson.
Varamenn voru skipaðir:
Baldur Möller, Jóhann Bern-
hard, Guðjón Runólfsson og
Guðmundur Sigurjónsson.
Kvðldvaba Snæfell-
inga.
O ÍÐASTLIÐIÐ fimmtudags-
^ kvöld héldu Snæfeilingar og
Hnappdælir kvöldvöku að Hótel
Borg, og kom hún í stað hinnar
venjulegu árshátíðar, er haldin
hefir verið undanfarin ár. Sú
venjubreyting, að hafa kvöldvöku
í stað hófs með áti og ræðu-
höldum, sýndist vinsæl. Var
skemmtiatriði mörg og valin og
nægju öllum er hana sóttu, enda
skemmtiatriði mörg og valin og
svo dreifð allan tímann, meðan
vakan stóð yfir, að aldrei varð
eyða í né neitt svo á langinn
dregið, að þreytu gæti valdið. Á
Félag Snæfellinga og Hnapp-
dælinga og stjórn þess þakkir
skyldar fyrir að riða á vaðið ineð
nýbreytni þessa í sambandi við
héraðsmót okkar Reykvíkinga,
enda þeir timar að meta ber
hvern hóflega sparaðlan eyri.
Snæfellingur.
KAFBÁTAÁRÁSIRNAR
Frh. af 1. síðu.
inberan stjórnarboðskap, og
hefir hann gert fyrirspurn í
Berlín um hina nýju hótun í
garð hlutlausra þjóða.
Dýzkum kafbátum sSkt.
Þýzkum kafbát var að lík-
indum sökkt í gær. Ein af
brezku hernaðarflugvélunum,
sem var á eftirlitsflugi, kom
auga á hann er hún var í hálfr-
ar mílu fjarlægð og stefndi þeg-
ar í áttina til hans, en kafbáts-
menn bjuggust til þess að fara í
kaf hið skjótasta. Aðeins turn-
inn var upp úr er flugvélin fór
yfir og varpaði tveimur sprengi-
kúlum, sem báðar komu niður
fyrir framan turninn. Olía kom
upp á yfirborð sjávar og er því
líklegt, að tekizt hafi að granda
kafbátnum. Reynist jþetta rétt,
hefir Bretum tekizt að granda
5 og ef til vill 6 kafbátum und-
angengna 6 daga, a. m. k. ef
fregn frá Noregi um að brezkt
herskip hafi grandað kafbát
reynist rétt. Kafbátur sá hafði
sökkt norsku skipi.
sökkt norsk uskipi.
SUNDMÓT S. R. R.
Frh. af 1. síÖu.
100 m. bringusund, drengir inn-
an 16 ára:
1. Einar Steinarsson (KR)
1:29,2. 2. Georg Th. Óskarsson
(KR) 1:30,4. 3. Einar Davíðsson
(Á) 1:31,9.
50 m. bringusund, stúlkur innan
14 ára:
1. Kristín Mar (Á) 45,2 sek.
2. Sigríður Jónsdóttir (KR) 45,8.
3. Ásdís Erlingsdóttir (Á) 46.
Smábátafélagið Björg
heldur framhaldsstofnfund á
morgun kl. 2 í G.-T.-húsinu.
f DAG
r"~
Næturlæknir er Karl S. Jónas-
son, Sóleyjargötu 13, sími 3925.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,20 Þingfréttir. 19,50 Fréttir.
20,15 Leikrit: „Vítamín og klassík'*
eftir Loft Guðmundsson (Brynj-
ólfur Jóhannesson, Arndís Bjöms
dóttir, Þóra Borg). 20,55 Otvarps-
tríóið: Einleikur og tríó. 21,25
Danslög. 21,50 Fréttir. 24,00 Dag-
skrárlok.
A MORGUN:
Helgidagslæknir er Páll Sig-
urðsson, Hávallagötu 15, sími
4959.
Næturlæknir er Halldör Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
ÚTVARPIÐ:
9,45 Morguntónleikar (plötur):
Symfónía í d-moll, eftir Cesar
Frank. 10,40 Veðurfregnir. 12,00
—13,00 Hádegisútvarp. 14,00
Messa í fríkirkjunni (séra Árni
Sigurðsson). 15,30—1630 Mið-
degistónleikar: Létt klassisk lög
(plötur). 18,30 Barnatími: a) Sög-
ur o. fl. (Helgi Hjörvar). b) Sam-
leikur á píanó og mandólín.
(Tjær telpur). 19,10 Veðurfregnir.
19,20 Hljómplötur: Lagaflokkur
eftir Schreker. 19,40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir. 20,15 Upplestur og
söngur: Ástakvæði (V. Þ. G. —
Útvarpskórinn). 21,30 Danslög.
21.50 Fréttir. 23,00 Dagskrárlok.
MESSUR Á MORGUN:
I dómkirkjunni kl. 11 séra Bj.
Jónsson. altarisganga, kl. 2 barna
guðsþjónusta, séra Fr. H., kl. 5
«*» «•1 !«■
I frikirkiunni kl. 2 séra Á. Sig.
í Laugarnesskóla kl. 5 séra G.
Svavarsson. Bamaguðsþjónusta
kl. 10 f. h.
I fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2 séra Jón Auðuns.
Landakotskirkja: Lágmessa kl.
6V2 og 8 árd. Hámessa kl. 10
árd. Bænahald og predikun kl. 6
síðd. '
V. K. F. Framsókn
heldur skemmtifund þriðjudag
20. febr. í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu kl. 8V2. — Mörg
skemmtiatriði. — Nánar auglýst á
mánudag.
Á dansleik
glímufélagsins Ármanns í Iðnó
í kvöld kl. 10 syngur og leikur
hið snjalla og skemmtilega Blá-
stakkatríó; auk þess skemmtir
hinn vinsæli skopleikari Láms
Ingólfsson. Hinar. tvær ágætu
hljómsveitir: Hljómsveit Iðnó og
Hljómsveit Hótel íslands spila
fyrir dansinum.
AðalCundur
Alþýðuflokksfélags Reykjavík-
ur verður haldinn innan skamms.
Nokkrir félagar eiga enn eftir
að greiða ársgjald sitt til fé-
lagsins fyrir 1939. Em þessir fé-
lagar beðnir að greiða gjöld sín
sem fyrst, svo að sem allra
fæstir séu skuldugir við félagið
þegar reikningum þess verður
lokað. Starfsemi Aiþýðuflokksins
þarf að vera öflug á tímum eins
og nú em,en það er aðeins hægt
að hafa öflugt félagsstarf, ef fé-
lagamir greiða skilvíslega gjöld
sín.
F.U.J.
Fimleikaflokkur stúlkna hefir
æfingu í kvöld kl. 8.
I. O. G. T.
BARNASTÚKAN ÆSKAN. Fund-
ur á morgun kl. 31/2- Hjálp
í viðlögum: Mætið öll, því við
æfum á fundinum. 2. Vikivak-
ar. Mætið einnig, því við æfum
eftir fundinn. 3. Þjóðdanzar.
Þar vantar okkur börn til við-
bótar. Komið þess vegna öll
Æskuböm á fundinn. 4. Skemti
atriði? — Gæzlumenn.
Smábátafél. Bjðrg
heldur framhaldsstofnfund
sunnudaginn 18. febrúar í Góð-
templarahúsinu uppi kl. 2 e. h.
Skorað á alla smábátaeigendur
og formenn þeirra að mæta.
m nyja bio h
Á heljarslóðnm
(Hell’s Kitchen).
mikilfengleg sakamálakvik-
mynd er gerist I hinu íll-
ræmda skuggahverfi New
York-borgar er kallast Hell’s
Kitchen.
Aðalhlutverkin leika:
Vicfor Mc Laglen,
Paul Helly,
Beatrice Roberís o. fl.
Aukamyndir:
Fræðimynd frá Hollandi og
Oswald tiiknimynd.
Böm fá ekki aðgang.
Dansleik
heldur glímufélagið Ármann í Iðnö í kvöld klukkan 10.
Hinar tvær vinsælu hljómsveitir:
Hljóir sveit Iðnó. Hljómsveit Hótel fslands spila
Skemmtiatriði: Blástakka tríóið syngur og leikur
og hinn góðkunni Lárus Ingólfsson skemmtir.
Vegna mjög mikillar aðsóknar, er vissara að trygga sér
aðgang, sem fyrst.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó frá kl. 6.
ÁRSHÁTÍÐ
rakara og Iiárgreiðslukvenna
verður haldin að Hótel Borg miðvikudaginn 21. febrú-
ar og hefst með borðhaldi kl. 8V2 síðdegis.
Aðgöngumiða má vitja á þessum stöðum: Rakara-
stofu Óskars Árnasonar, Kirkjutorgi 6, og í hárgreiðslu-
stofunum Pirola og Marci.
Munið að skrifa yður á lista sem fyrst.
LEIKFELAG REYKJAVÍKUR.
TVÆR SÝNINGAR Á MORGUN. '
„Fjalla- EyvindurM
Fyrri sýningin byrjar kl. 3% á morgun. Seinni sýningin
byrjar kl- 8 annað kvöld.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag og eftir kl. 1
á morgun. .
Fyrsta klukkutímann eftir að sala hefst verður ekki svarað
í síma.
Tilkynning.
Það tilkynnist hér með, að ég undirritaður hefi selt
H/f Keilir vélsmiðju mína á Nýlendug. 15. Um leið og ég
þakka öllum viðskiptamönnum mínum fyrir viðskiptin,
vonast ég eftir, að þeir láti hina nýju eigendur njóta sömu
viðskipta og þeir hafa sýnt mér.
Virðingarfyllst.
j Kristján Gíslason.
Samkvæmt ofanrituðu höfum vér undirritaðir keypt
Vélsmiðju Kristjáns Gíslasonar, Nýlendugötu 15 og mun-
um starfrækja hana áfram undir nafninu H.f. Keilir. Von-
umst við til að hinir fyrri viðskiptamenn vélsmiðjunnar
láti okkur njóta sömu viðskipta og hinn fyrri eiganda.
Félagið tekur að sér allskonar viðgerðir á vélum, vél-
arhlutum og skipum og framkvæmir allskonar nýsmíði.
Framkvæmdarstjóri okkar er Guðfinnur Þorbjömsson.
Virðingarfyllst.
Stjórn H.f. Keilir.
- W VJD
Magnús Guðmundsson-
m*«- - — mrnrmmiim—imí——hiw
Marteinn Kristjánsson. Jón Sveinbjörnsson,