Alþýðublaðið - 04.03.1940, Page 1

Alþýðublaðið - 04.03.1940, Page 1
RXTSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÓTGEFANÐI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ARGANGUR. "" ' M ' """ 1 ■'' , ■ m u r ; MÁNUDAGUR 4. MARZ 1940. 53. TÖLUBLAÐ Barizt með handspreng|nm og byssnstlngjnm inni i Viborg. ■ ------— Suðurhluti borgarinnar er nú þegar á valdi Rússa. ————»■.■ ■ -— Finnar taala orðlð fyrir ðgurlegn manntjéni. Hin glæsilega járnbrautarstöð í Helsingfors. Verður hún einnig lögð í rústir af Rússum áður en lýkur? Ægileg loffárásá brezkt farpegaskip I fyrradag ——■—■—————- Sprenglkúlurnar drápu 108 manns, en skipið komst við illan leik til hafnar. LONDON í morgun. FÚ. ’fj ÝZK sprengjuflugvél gerði árás á brezka far- þegaskipið ,,Ðomala“ í Erm- arsundi í fyrradag með þeim árangri, að 108 manns biðu bana. Brezka flotamálaráðuneytið tilkynnir, að Hinkelflugvél hafi ráðist á skipið skömmu eftir að það fór frá Antwerpen, en þar stigu á skipsfjöl 143 indverskir þégnar, sem verið höfðu í Þýzkalandi og fengið h'éimfarar- leyfi. Þetta gerðist kl. 1—3 laugardaginn 2. marz. Fjórum sprengjum var varp- að niður og lentu þrjár á skip- inu. Skipstjórinn beið hana. — Eldur gaus upp miðskipa. Sjór var mikill og erfitt um björgun. 20 brezkra manna af 48 og 88 indverskra af 143 er saknað, og óttast menn, að þeir hafi far- izt. Eldinn tókst að slökkva. Skipið liggur nú í höfn fyrir akkeri. „Domala“ er 8400 smálestir að stærð. Skipsmenn á tveimur hol- lenzkum flutningaskipum skýra frá því, að á föstudagsmorgun hafi flugvélar gert árásir á skip- in með vélbyssuskothríð. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. RÚSSAR hafa nú náð suðurhluta Viborg- ar og járnbrautarstöð horgarinnar á sitt vald eftir blóðuga bardaga með byssu- stingjum og handsprengjum í úthverfum hennar. En noröurhíuti borgarinnar er enn á valdi Finna og er bariszt um svo aö segja hverjar einustu húsarústir. Ann- að er ekki efftir af hinni stóru borg. Finnar halda hægt og hægt undan til nýrra varnar- * stöðva fyrir norðan Viborg og eru þær sagðar vera þriðja virkjaröð Mannerheimlínuunnar. Austan á Kyrjálanesi verja Finnar enn fyrstu virkjaröð hennar, og húizt er við því, að þeir verði að yfirgefa hana eftir að Viborg er fallin til að verða ekki umkringdir af Rússum að vestan. Mannfallið hefir verið ógurlegt á báða bóga í bardög- unum um Viborg síðustu dagana, og hafa Finnar orðið fyrir meira manntjóni en nokkurs staðar áður í ófriðnum. Sænsk- ar fréttir herma, að um 17 000 manns muni hafa fallið eða særst í liði þeirra. Er ástæðan til þéssa mikla mannfalls talin vera sú, að þeim hafi verið nauðugur einn kostur að verja aðra virkjaröð Mannerheimlínunnar á þessum slóðum löngu eftir að það var orðið vonlaust, til þess að tími ynnist til að treysta þriðju virkjaröðina, sem þeir eru nú að taka sér stöðu í. Sérfræðingar deila um það, hvernig þriðja röð Mannerheim- línunnar muni reynast. Hefir hún nýlega verið byggð og ótt- ast margir, að Finnar muni ekki geta varið hana til lengdar. Hlutlausir fréttaritarar á Finnlandi eru á einu máli um það, að herstjórn Finna og vörn hermannanna hafi Verið frábær, en þá hafi vantað tilfinnanlega bæði mannafla og stórskotalið. ■ jomilagstilfaoDaiB slitið lilli siðaaina ei itierðanaiaa! ——--♦—■—-—- Aðaldellnmállð er áhættupéknunln. S|ð stéttarfélðg sjómanna allsherjaratkvæðagreiðsln ■ - ■ ■+■... OAMKOMULAGSTILRAUNUM milli útgerðarmanna, ^ bæði togaranna og verzlunarskipanna annars vegar og stjórna stéttarfélaga sjómanna hins vegar, hefir nú verið slitið án þess að nokkurt samkomulag hafi fengizt. Snérist deilan aðallega um stríðsáhættuþóknun á sjónum. Stjórnir stéttarfélaganna ákváðu á fundi, sem þær héldu síðdegis í gær, að láta fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu möðal allra sjómanna um borð í skipunum um það, hvort segja skuli upp samningnum um áhættuþóknun þá, sem nú gildir. Mun þessi allsherjaratkvæðagreiðsla hefjast næstu daga. Nugildandi samningar um stríðsáhættuþóknunina á verzl* unarskipunum voru gerðir 7. október síðastliðinn, en samn- efna nú til á skipnnum. ingurinn um álxættuþóknun há- seta á togurunum var gerður 10. sama mánaðar og um svipað l'eyti voru gerðir samningar um hana, sem náðu til vélstjóra og loftskeytamanna. Þegar bráðabirgðasamkomu- lag var hins vegar gert í byrjun stríðsins varð það að samkomu- lagi, að áhættuþóknun íslenzkra sjómanna á stríðshættusvæðum skyldi ekki vera minni en hún væri lægst á Norðurlöndum. Þegar samningarnir voru svo gerðir var miðað við það, sem **. á 4. Mu. 10. herfvlkl Rdssa ger- Blóðugir bardagar standa nú einnig yfir norðan við Ladoga. Finnska herstjórnin tilkynnir, að s.l. föstudag hafi finuskar hersveitir unnið fullnaðarsigur þar á 10. rússneska herfylkinu, en það átti upphaflega að hjálpa öðrum aðþrengdum rússneskum hersVeitum á þeim slóðum. Finn ar tóku mikið herfang, um 100 skriðdreka, 200 eldhúsvagna, margar byssur og skotfæri. Gizkað er á, að Rússar hafi misst um 2000 manns á þessum vígstöðvum. Yfirmaður rvíss- nesku hersveitanna féll. Noregnr, Svípjðö eg Damnðrk fá nú líka stérlán i ðmeríkn. OSLO í morgun. FB. I^TOREGUR heíir fengið 10 millj. dollara Ián í Banda- ríkjunum. Jafnframt hefir út- flutnings- og innflutningsbank- inn veitt Svíþjóð 16 millj. doll- ara lán. Búizt er við að Dan- mörk fái innan skams lán í Bandaríkjunum að upphæð 10 millj, dollara. Það var útflutnings- og inn- flutningsbankinn, sem einnig veitti Finnlandi 20 millj. dollara lánið nýlega. Asinunfíor vaun ein vígið við Giifer. AiMUNDUR ásgeirs SON vann fyrstu þrjár skákirnar í einvíginu við Eggert Gilfer um skák- meistaratitil Reykjavíkur. Ásmundur ber því heitið skákmeistari Reykjavíkur 1940. Síðasta og þriðja skákin fór fram í gær og vann Ás- mundur hana eins og tvær þær fyrstu, eins og áður segxr. Þýzfct heriii ð leið tii Kankases? LONDON x morgun, FÚ. TTj' REGNIR hafa borizt um, að þýzkt herlið verði sent til Rússlands, og í seinustu fregnum segir, að tvö herfylki frá Þýzka- iandi séu á leið til Kauka- sus. Reynist þetta rétt, verð- ur fróðlegt að heyra, segir í brezkri fregn, hvemig Rússar skýra það, að þéir .þurfi á þýzkri hernaðarað- stoð að halda þar. i Sklðamét f litlum sn|é vlð slæm veðursfedlyrðl K.R.-ingar beztu skíðamenn bmjarins. —.——— Lelt að eliiMHi pátttakendauma. S5ÍÐAMÓTI REYKJAVÍK- UR lauk að Kolviðarhóli í gærdag, þrátt fyrir mjög slæm veðurskilyrði til keppni. Varð að hætta við stökkin af þfeim or- sökum. Á laugardag var keppt í göngum í þremur aldursflokk- um. 18 km., 10 km. og 5 km. brautir, og í gær fór fram keppni í svigi í tveimur aldurs- flokkum. Úrslitin urðu þau, að K.-R.- ingar áttu alla 1. verðlaunamenn- ina, og má því segja, að K. R. eigi nú alla beztu skíðamenn bæjarins. Úrslitin í svigi urðu þessi: 1. Björn Blöndal, K. R. 2. Stefán Stefánsson, Á. 3. Georg Lúðvígsson, K. R. 1 keppni drengja í svigi urðu úrslitin þessi: 1. Haraldur Björnsson, K. R. 2. Þórir Jónsson, K. R. 3. Eiríkur Helgason, í. R. I gærmorgun áttu stökkin að fara fram, en þá var ofsarok og rigning og því ekki viðlit fyrir keppendur að stökkva. Ákvað því mótsstjórnin að fresta stökkunum þar til eftir svigkeppnina, í von um betra veður þá. En svo varð þó ekki, og hélzt sama rokið all- an daginn og varð því ekkert úr stökkkeppninni, esnda voru víst allir fegnastir þvi að komast í húsaskjól strax þegar sviginu var íokið. Á laugardag fór fram keppni 5 göngum í þremur aldursflokk- um og urðu úrslit þessi: I 18 km. göngu (brautin var sty.tt um 20°/o og brautirnar í hinurn flokkunum einnig): 1. Gunnar Johnsen, K. R., 64,24 2. Bjöm Blöndal, K. R., 67,04 3. Georg Lúðvlgsson, K. R., 67,07 I 10 km. göngu: 1. Guðbjöm Jónsson, K. R., 46,21 2. Ásgeir Guðjónsson, K. R., 4633 3. Guðbjörn Árnason, l{. R., 46,45 I 5 km. göngu: 1. Lárus Guðmundsson, K-R-25,25 2. Haraldur Bjömsson, K.R., 26,16 3. Gunnar Bergsteinsson.Á., 26,54 Það sögulega skeði í 10 km. göngunni, að einn keppendanna villtist og fannst tíkki fyrr en tveim klukkustundum eftir að allir keppendur voru komnir til Prh. á 4. «4Bu. Fra mhaldsaðalf Bnd nr Alttýðnflokks- félagsiis. FRAMHALDSAÐAL- FUNDUR Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur verður haldinn annað kvöld í Alþýðuhúsinu víð Hverfisgötu. Á fundinum verður skýrt frá úrslitum stjóm- arkosningarinnar, en taln- ing atkvæða fór fram eftir að fundinum um daginn var lokið. Þá verða ræddar á fram- haldsaðalfundinum laga- breytingar, sem nefnd hef- ir undirbúið. Félagsmenn eru beðnir að fjölmenna á fundinn og mæta stundvíslega. 1

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.