Alþýðublaðið - 05.03.1940, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1940»
áSlSS* W
mrtAMLA BI0 2S
Inga 16 ára 1
Áhrifamikil þýzk kvik-
mynd gerð samkv. skáld-
sögunni „Sextanerin“ eftir
V. Neubauer.
Aðalhlutverkin leika:
Rolf Wanka
og
Ellen Schwanneke.
I. O. 6. T.
ST. SÓLEY nr. 242. Fundur í
kvöld hefst kl. 8 í Bindindis-
höllinni. Inntaka, erindi og
skuggamyndir. Helgi Helga-
son stórtemplar.
ÆT.
MÍNERVA nr. 172. Fundur ann-
að kvöld. Kosning fulltrúa til
þingstúkunnar . og húsnefndar
o. fl. Áríðandi að allir félagar
rnæti. Æt.
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
miðvikudagskvöld stundvíslega
kl. 8. Að fundi loknum, kl. 10
stundvíslega hefst skenvmtun
fjáröflunarnefndar. 1. Einsöng-
ur? 2. Sprenghlægileg gaman-
saga. Fr. Á. B. 3. Listdans:
Bomps-a-Daisy. 4. Dans. —■
’ÆðstitempIar.
Sem ný saumavél er tll sBlu
með góðu verði á Grettisgötu 28.
Fundur
í Kvennadeild Slysavarnafé-
lags íslands
miðvikudaginn 6. þ. m. kl, 8Vz
í Oddfellowhúsinu.
Stjórnin.
SALA Á TVENNS KONAR
MJÓLK ,
Frh. af 3. siðu.
leiðslu. En einmitt þar er að
leita þeirra orsaka, sem hrundu
af stokkunum því skipulags-
bákni í sölu mjólkur og mjólk-
urafurða, sem nú leggst eins og
kaldur hrammur á allt at-
hafnalíf þorra bænda, er mjólk-
urframleiðslu hafa að atvinnu
fyrir bezta og stærsta markað
landsins.
Alexander Guðmundsson.
FINNLAND
Frh. af 1. síðu.
helmingur þeirra, sem slapp lífs
af, hefir veikzt.
Dauðsföllin meðal þessara
barna eru sögð tíðari en meðal
hermannanna, sem verja héruð-
in, sem börnin urðu aö flýja frá.
Vegna þessa ástands hefir Hoo-
ver-hjálparnefndin ákveðið að
senda til Finnlands sex hjúkr-
unarsveitir og lyfjabirgðir, fatn-
að og fleira.
K. R., m. flokkur.
Allir K.-R.-drengir á aldrinum
13—16 ára, sem vilja æfa knatt-
spyrnu, eru beðnir að mæta í ís-
húsinu á morgun kl. 7,15, þar
eð þá verður fyrsta æfingin.
MFA-bækurnar.
Peir áskrifendur, sem eiga eftir
að sækja síðustu bækumar fyrir
1939, verða að gera það í þessari
viku- — Þeir, sem hafa pantað
frækurnar í síðast liðnum mánuði,
en hafa ekki fengiö þær, verða
afgreiddir á morgun í þeirri röð,
sem þeir pöntuðu þær, meðan
bækurnar endast.
Þau giftu sig aftur
heitir myndin í Nýja Bíó. Er
það amerisk skemmtimynd með
Loretta Young og Tyrone Power.
SJÓMANNADEILAN
Frh. af T. síðu.
frest til athugunar á þessu og
einnig til þess að leita samþykk-
is ríkisstjórnarinnar á því að
mega semja um hækkaða stríðs-
áhættuþóknun. Svar um þetta
drógst alllengi, svo að íélögin
ákváðu með bréfi að óska svars
innan ákveðins tíma, ella myndu
þau skoða sem umræður væru
niður fallnar, og afstaða yrði
tekin til uppsagnar á samning-
unum.
Með bréfi dagsettu 24. febr.
tilkynna eimskipafélögin, að
þau óski, að umræður haldi á-
fram, og togaraeigendur óska
hins sama með bréfi dags. 26.
febr. Á fundi árdegis 26. febr.
skýra fulltrúar eimskipafélag-
anna oss frá því, að þeir geti
ekki fallizt á neina hækkun á
stríðsáhættuþóknuninni, en
töldu hinsvegar, að komið gæti
til mála, að hækka stríðstrygg-
inguna. Fulltrúar togaraeig-
enda tilkynna hið sama á fundi
28. febr. í umræðunum um þessi
mál hafa fulltrúar frá öllum
stéttarfélögum sjómanna mætt
og hefir viðleitni þeirra stefnt
að því að hrinda í framkvæmd
eftirfarandi atriðum:
A. Sameiginleg mál aiira
stéttarfélaga.
. Stríðsáhættuþóknun fyrir ís-
lenzka sjómenn verði samræmd
því, sem nú er á dönskum skip-
um. er sigla á sömu svæðum og
hin íslenzku, nánar tilgreint í
samningum.
2. Viðunandi lausn fáist á
kaupgreiðslum sjómanna í er-
lendum gjaldeyri.
3. Stríðsáhættuþóknun til
sjómanna, dánar- og örorkubæt-
ur verði undanþegnar sköttum
til ríkis og bæjar.
4. Ekki sé lagður saman sá
tími, er skip fer fram hjá
Reykjanesi eða öðrum affara-
stöðum á útleið og uppleið, þeg-
ar reikna skal áhættuþóknun.
B. Sérmðl Sjémaanafé-
laganna i Rvb, Hafnar-
lirði eg Patrebsfirði.
1. Kaupgreiðsla til allra, sem
ísfiskveiðar stunda miðað við
allt að 20 manna áhöfn, sem í
landi bíða meðan ferð skips
tendur yfir frá og til útlanda
'biðlaun). (Hér er aðeins átt við
háseta).
2. Sömu mönnum séu greiddir
fæðispeningar þann tíma, sem
biðlaun eru greidd.
3. I tölu biðlaunamanna séu
ekki taldir með yfirmenn skip-
anna. (Dæmi eru til að slíkt hafi
verið gert).
4. Kyndarar og matsveinn fái
frí með biðlaunum, ef þeir óska
frá þvx að sigla til útlanda 3ju
hverja ferð, eða eftir nánara
samkomulagi, sem gert yrði
milli aðila.
5. Hafnarfrí sé framkvæmt
eins og samningar gera ráð
fyrir, þannig, að skipsmenn
standi ekki vörð eða vinni um
borð í skipunum umfram það,
sem venja er til á friðartímum.
6. Að lifrarþóknun hækki eft-
ir nánara samkomulagi, án til-
lits til Iögboðinnar hækkunar
á mánaðarkaupi.
7. Að greitt sé fyrir umskipun
tími, er skip fer fram hjá
Reykjanesi eða öðrum affara-
stöðum á útleið og uppleið, þeg-
ar reikna skal áhættuþóknun.
9. Að greitt sé fyrir umskipun
ísfiskjar í annað skip í höfnum
eftir tímakaupi verkamanna í
Reykjavík.
Þessum kröfum hefir verið
svarað með lokatilboði togara-
eigenda dags. 3/3, og sem birt
er hér á eftir.
Lobatilbol togaraeigenda
Meðan gildandi samkomulag
um áhættuþóknun helst ó-
breytt og gegn viðurkenningu
sjómannafélaganna fyrir því
að heimilt sé að láta þá
menn, er á kaupi bíða með-
an skip það, er þeir eru skráð-
ir á siglir með aflann til út-
landa, flytja veiðarfæri skipsins
frá borði, vinna að viðg. þeirra
veiðarfæra, sem nota á í næstu
veiðiför og koma þeim aftur
fyrir í skipinu og ennfremur að
stilla upp borðum í fiskilest
skipsins, þá samþykkjum vér
eftirfarandi viðauka við núgild-
andi samninga:
1. Að miða við allt að 19
manna áhöfn í stað 17, þegar
ákveða skal tölu þeirra manna,
er halda kaupi meðan skipið
siglir með aflann.
2. Að greiða þessum mönnum
fæðispeninga yfir sama tíma,
og séu þeir ekki lægri en greiða
ber í veikindatilfellum (sbr.
gerðardóm 21/3 1938).
3. Að greiða með tímakaupi
hafnarvinnumanna í Reykjavík
fyrir losun á ísfiskfarmi í ann-
að skip er flytur fiskinn til út-
landa. Á því skipi er tekur fisk
til flutnings til viðbótar eigin
afla, skulu þeir, sem sigla í það
skipti undanþegnir vinnu við
móttöku fiskjarins síðustu sex
klukkustundirnar áður en skip-
ið lætur úr höfn.
4. Að greiða 2. stýrimanni
bátsmannakaup, á því skipi er
eingöngu kaupir bátafisk, ef þar
er enginn bátsmaður skráður.
Ofanskráð tilboð er einnig
háð því skilyrði, að samkomu-
lag náist um að lifrarþóknunin
skuli hlýta sömu reglum til
hækkunar og mánaðarkaupið.
Reykjavík, 3. marz 1940.
F.h. Félags ísl. botnvörpuskipa-
eigenda.
Kjartan Thors (sign).
Ólafur H. Jónsson (sign).
Ásgr. Sigfússon (sign).
Þórður Ólafsson (sign).
Ól. Tr. Einarsson (sign).
áthugasemdir við tiiboðið
Sem skilyrði af hálfu togara-
eigenda eru tvö atriði svo veiga-
mikil, að vér teljum að ekki sé
hægt að taka tilboði þeirra.
1. að afsala sér kröfu um
aukna áhættuþóknun, og þar
með því sem þeir hafa samþ., á-
hættuþóknun af dýrtíðaruppbót.
2. að félögin fallist á af fúsum
vilja að lifrarþóknunin hækki
eftir sömu reglum og mánaðar-
kaupið, og í
3. lagi. að ekki er neitt
sagt um frá hvaða tíma fæð-
ispeningar eiga að gilda og
krafan um frí kyndara og mat-
sveina er ekki tekin með.
Krafa stéttarfélaganna um
aukna áhættuþóknun byggist á
eftirfarandi rökum: 1. í Dan-
mörku er greitt frá 1. jan. þ.
á. 100% hærra en hjá oss eða
alls 350% fyrir undirmenn og
300% fyrir yfirmenn í stríðsá-
hættuþóknun á svæði, sem mið-
ast við 61. gr. n.br. 47 gr. n,br.
og 20 gr, v.l, Svíar fengu í des-
ember stríðsáhættuþóknun á
svipuðu svæði og Danir 300%
fyrir undirmenn og 250% fyrir
yfirmenn og í janúar þá gerðu
þeir kröfu um hækkun á sama
hátt og Danir höfðu fengið. Mál-
ið fór til sáttasemjara, úrslit
ókunn. Ókunnugt er um hvað
nú gildir hjá Norðmönnum, en
f DAG
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 12234.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iöunnar-apóteki.
OTVARPIÐ:
19,15 Þingfréttir.
19,45 Fréttir.
20,10 Veðurfregnír.
20.20 Érindi: Líf og dauði, III:
Þú flytur á einum eins og
ég (Sig. Nordal prófessor).
20,50 Tónleikar Tónlistarskólans:
Tríó, Op. 70, nr. 2, Es-dúr,
eftir Beethoven.
21.20 Hljómplötur: Brandenborg-
arkonsert nr. 1 og 4, eftir
Beethoven.
21,55 Fréttir. Dagskrárlok.
óstaðfestar fregnir herma, að
það muni hið sama og hjá Dön-
um.
2. Mikill ótti ríkir um það, að
vaxandi hætta sé fyrir hendi um
siglingar til Bretlands, meðal
annars að lengri birta og batn-
andi veður geri stríðsaðilum
kleyft að hafa sig í frammi
meir en verið hefir.
3. Að stríðsáhættuþóknun
okkar er frá byrjun bundin við
það, sem gildir á Norðurlöndum
og breytist eftir því, sem þar
gildir.
Um gjaldeyri til sjómanna í
erlendum höfnum höfum vér
skrifað viðskiptamálaráðherra
og mótmælt þéim ráðstöfunum,
sem í því máli hafa verið gerð-
ar. en það mál mun að líkum
ekki fást fullkomlega útkljáð
svo viðunandi sé nema á einn
eða annan hátt í sambandi við
hin málin, sem skýrt er frá hér
að framan.
Með þessari greinargerð höf-
um vér í stórum dráttum reynt
að draga fram um hvað er deilt.
Hinsvegar höfum vér gert okkar
ítrasta til að fá nauðsynlegar
breytingar á gildandj stríðsá-
hættusamningum án þess að til
uppsagnar þyrfti að koma. En
þar sem slíkar breytingar ekki
hafa fengist, er það samhljóða
álit stjórna stéttarfélaganna að
leggja það undir dóm þeirra,
sem undir samningunum búa,
hvort þeim skuli sagt upp eða
ekki.
Með félagskveðju.
Reykjavík, marz 1940.
F.h. Sjómannafélags Reykjavík-
ur og Sjómannafélags Patreks-
fjarðar.
F.h. Sjómannafél. Hafnarfjarð-
ar.
F.h. Vélstjórafélag íslands.
F.h. Stýrimannafélags íslands.
F.h. Fél. ísl. loftskeytamanna.
F.h. Matsv. og veitingaþjónafé-
lags íslands.
F.h. Skipstjóra- og stýrimanna-
félagsins Ægir.
óperettan „Brosandi land“
veröur — vegna veikindafor-
falla eins leikarans — ekki sýnd
fyrr en á föstudag.
Málfundaflokkur Alþýðuilokksfé-
lagsins.
Æfing í kvöld kl. 8,30 í Al-
þýðuhúsinu, 6. hæÖ.
F.U.J.
Fundur málfundaflokksins fell-
ur niður í kvöld vegna fundar
Alþýðuflokksfélagsins.
«
Skrtfstofa félagsins verður opin
í kvöld frá kl. 730—8,30.
AuglýsiO í Alþýðublaðinu!
Laxfoss
fer til Stykkishólms á morgun
síödegis. Flutningl veltt móttaka
I dag.
AFGREIÐSLA LAXFOOSS
Góð lítil íbúð óskast nálægt
miðbænxim 14. maí. Skilvísi og
góð umgengni, Sigríður Valdi-
marsdóttir. Sími 5413.
K.-R.-ingar
þeir, sem hafa æft frjálsar í-
þróttir í vetur, éru beðnir að
mæía á æfingunni í kvöld kl.
7,45. Áríðandi!
m NYJA BIO ras
Þan giftn sig aftir
Amerísk skemmtimynd frá
Fox um ástir, rómantík.
hjúskap og skilnaði. Aðal-
hlutverkin leika:
Loux-etta Yotmg og
Tyrone Power.
Aukamynd:
Pólski píanósnillingurinn
PADEREWSKí
spilar Adagio úr tungl- I
skinssónötu Beethoven ofl. I
Jarðarför bróður okkar,
Ásmundar Jóhannssonar, vigtarmanns,
fer fram frá dómkirkjunni, miðvikudaginn 6. marz, og hefst
með húskveðju frá heimili hans, Klapparstig 13, kl. 2 eftir hád.
Guðrún, IngVeldur og Kristín Jóhannsdætur.
Dansskóli
I
Elly Þorláksson
Kennslugreinar: Ballet, Akrobatik, Plastik
og Stepp. — Upplýsingar Tjarnargötu 16,
sími 4283 kl. 12—2 e.h.
Hllt Arsdansleikur
Nemendasambands Kvennaskólans í Oddfellowhúsinu n.k. föstu-
dag hefst með sameiginlegri kaffidrykkju kl. 9 e. hád.
SKEMMTIATRIÐI: Theódóra Thoroddsen: Endurminningar
frá skólaárunum. — Soffía Ingvarsdóttir: Ræða. — Carl Billich:
Píanósóló. — Ólafur Beinteinsson og Sveinbjörn Þorsteinsson:
Söngur með guitar-undirleik.
Aðgöngumiðar á kr. 4,00 (kaffi innifalið) verða seldir í Odd-
fellowhúsinu á föstudaginn kl. 12—7. STJÓRNIN.
Wðuflokbsfélag Reykiavíknr
heldur framhaldsaðalfund í kvöld klukkan 8% síð-
degis í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
DAGSKRÁ:
1. Lagabreytingar.
2. Kosningar og önnur ólokin aðalfundarstörf.
3. Erindi: Ragnar Jóhannesson.
4. Önnur mál.
Félagar, fjölmennið stundvíslega. STJÓRNIN.
Borgfirðinga- og Mýramaunamðt
verður haldið að Hótel Borg næstkornandi föstudag, 8.
marz, og hefst með borðhaldi kl. 8.
Fjölbreytt skemmtiskrá. — Borgfirzkir skemmtikraftar.
Aðgöngumiðar seldir á miðvikudag og fimmtudag í
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og á skrifstofu Hótel
Borg,
El|a,
félag prjónakvenna, heldur fund á skrifstofu Alþýðusam-
bandsins miðvikudaginn 6. þ. mán. klukkan 8Y2 e. hád.
STJÓRNIN.
Aðalfnndur
Starfsmannafélags Beykjavfkorbæjar
verður haldinn fimmtudaginn 7. marz kl. 8V2 síðdegis í
Varðarhúsinu.
DAGSKRÁ:
Aðalfundarefni.
STJÓRNIN