Alþýðublaðið - 15.03.1940, Side 1

Alþýðublaðið - 15.03.1940, Side 1
Alþýðuflokksmenn! Munið ÁRSHÁTÍÐINA annað kvöld. RITSTJÓRI: F R. VALDEMARSSON ÓTGKFANÐI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRQANGUH FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1940. 63. TÖLUBLAÐ Kaupið aðgöngumiða á ÁRSHÁTÍÐ Alþýðu- flokksfélagsins sem fyrst. Skípin hafa selt ísfisk fyrir 20 millj. kr. siðan í október. ... Meðalsala hvers togara í hverri ferð 88 þú&und krón- ur, meðalsala línuveiðara og vélbáta 54 þúsund krónur. TOGARAR, línuveiðarar og vélbátar hafa alls farið 155 * ísfisksöluferðir á tímabilinu frá 1. janúar síðastliðn- um til 11. marz. Alis hafa þessi skip selt afla sinn fyrir 490 348 sterl- ingspund, eða í íslenzkum krónum, reiknað með 25 lcróna gengi, 12 258 700. í janúar voru alls farnar 56 ferðir og selt fyrir 195 009 sterlingspund, í febrúar voru farnar 74 ferðir og selt fyrir 231708 sterlingspund og frá 29. febr. til 11. marz voru farnar 25 ferðir og selt fyrir 63 631 sterlingspund. Af þessum 155 ísfisksöluferðum síðan um áramót hafa togar- arnir farið 114 ferðir, en línuveiðarar og vélbátar 41 ferð. Togararnir hafa alls selt fyrir 402 176 stpd, eða 10 054 300 íslenzkra króna. Að meðaltali hafa togararnir selt í ferð fyrir 3528 sterlingspund, teða 88 108 krónur. Línuveiðararnir og vélbátarnir hafa selt alls fyrir 88 176 sterlingspund, eða 2 204 400 krónur, eða í ferð að meðaltali 53 766 krónur. Þetta eru að vísu háar upp- hæðir, en þess b'er um leið vel að gæta, að frádráttur er mjög mikill og ekki nema tiltölulega lítiii hluti gjaldeyrisins kemur heim. Alþýðublaðinu hefir ekki tek- izt að fá nákvæmar tölur um sölu skipanna síðustu mánuðina fyrir áramót, en í nóvember og desember nam heildarsalan um 6 milljónum króna, en skipin seldu einnig meirihluta októ- bermánaðar, og er því ekki of hátt áætlað að telja. að ísfiskur hafi vterið seldur síðan stríðið brauzt út fyrir um 20 milljónir íslenzkra króna, Þetta fé kemur vitanlega í mjög góðar þarfir, eftir öll hin erfiðu ár útgerðarinnar, en þess her vel að gæta, að árin hafa um leið verið erfið fyrir sjó- mannastéttina og maður skyldi þó ætla af þessum fsfisksölum, að hægt væri að búa eitthvað betur að henni en áður. Hún setur líka líf sitt og limi í mikla hættu, eins og við höfum kom- izt að raun’um. Á það hefir vilj- að bresta, að útgterðarmenn hafi sýnt nógu góðan skilning á rétti hennar og þörfum. Kviknar í línnveið- ara frð Akranesi. IGÆRMORGUN kviknaði í línuveiðaranum „Sigrún“, sem skráður er á Akranesi. Yar hann staddur 12 sjómílur út af Akranesi, þ'egar þetta vildi til. Menn bbenndust töluvert, en skipið komst að landi. Slysið vildi til á þann hátt, að olíubrúsi, sem stóð óskorð- aður á káetugólfi, valt um koll, og skvettist olían á glóandi kolaofn og varð strax stórt bál. Frh. i 'L sööu. Hæstiréttur; Démur fi máli út af sundi milli húsa. IMORGUN var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í málinu Sigurþór Jónsson og ísleifur Jakobsson, sem eigendur Veltu- sunds 1 og Hafnarstræti 4 gegn Austurstræti 3 h/f. Héraðsdóminn kváðu upp dómendur í merkjadómi Reykja víkur, þeir Lárus Fjeldsted hrm., Sigurður Thoroddsen verkfræðingur og Georg Ólafs- son bankastjóri. í dómi Hæstaréttar segir svo: ,. Aðaláf rýj endur, Sigurþór Jónsson og ísleifur Jakobsson, sem skotið hafa máli þessu til hæstaréttar með stefnu 22. sept. f. á., hafa krafizt þess aðallega, að viðurkenndur verði óskorað- ur eignarréttur þeirra að gang- ræmu þeirri, sem liggur afgirt austanvert á lóðinni Austur- stræti 5 frá Austurstræti að sunnan og að lóðamörkum Austurstrætis 3 annars vegar og Veltusunds 1 og Hafnarstrætis 4 hins vegar að norðan, en til vara, að þeim verði dæmdur ó- skoraður umferðarréttur yfir téða gangræmu. Þá krefjast þeir þess, að niður verði fellt ákvæði merkjadómsins um umferðar- rétt gagnáfrýjanda yfir fram- hald gangræmu þessarar frá áð- urnefndum lóðamörkum og yfir í Hafnarstræti. Svo krefjast að- aláfrýjendur málskostnaðar fyr- ir báðum dómum eftir mati hæstaréttar. Gagnáfrýjandi, Austurstræti 3 h/f., sem skotið hefir málinu til hæstaréttar með stefnu 23. sept. f. á., hefir aðallega krafizt Frk. á 4. Brynjólfnr Bjarnason fékk kinnbest ð al- þingi i gær. Forsætlsráðherrann poldl kögursveini Stalins ekkl köpuryrðin. CÁ ÓVENJULEGI atburð- ur gerðist í sölum al- þingis í gær, að Hermann Jónasson forsætisráðherra rétti Brynjólfi Bjarnasyni al- þingismanni og aðalfor- sprakka kommúnista snögg- an kinnhest með flötum lófa — svo að Brynjólfur riðaði við. Nokkrir þingmenn voru — utan fundar í þinginu — að ræða um Finnlandsmálin, og sló Hermann Jónasson þvi fram, að kommún- istaforsprakkarnir hér ættu allir að taka upp ættamafnið Kuu- sinen og kenna sig með þvi við hinn fræga flokksbróður sinn frá Terijoki. Brynjólfi • mun hafa sámað samanburðurinn við þennan fé- laga, enda kvað nú Stalin vera búinn að láta drepa hann, og mun hann því i augum Brynjólfs vera orðinn „upplagður svikari". Rauk Brynjólfur upp og svaraði forsætisráðherra um • heimsku. Kvað hann forsætisráðherra vera frægan að heimsku, en þó hefði hann sjálfur ekki talið hann vera svona heimskan. Þeir alþingismennimir stóðu sitt hvoru megin við borð, og rétti forsætisráðherra hinum kinn- hestinn yfir borðið og mælti eitt- hvað til Brynjólfs um leið. Ýfðist Brynjólfur afskaplega við þetta og varð svo hvumsa að hann kom engu orði upp um stund og vissi ekki hvað til bragðs skyldi taka, en rauk svo út. 1 dag ber Þjóðviljinn sig mjög illa undan kinnhestinum, sem Brynjólfur fékk, og er bersýni- legt, að Kommúnistaflokkinn sviður allan sárt undan honum. fiDllhringnm stolið úr búðarglngga. ¥ FYRRINÓTT var brotin rúða í sýningargulugga Árna Björnssonar á horni Austur- strætis og Lækjargötu og stolið 35 gullhringum. Lágu 36 gullhringar á bakka í glugga öðrum megin við hurð- ina. Hafði glugginn verið möl- brotinn og hringirnir gripnir af bakkanum. En einn hringurinn fannst í rúðubrotunum undir glugganum. . Ein af þeim mörgu, sem nú eru heimilislausir á Finnlandi. Finnar flýja úr héraðunum, sem Russar eiga nú að fá. — —».... 400 Búsund manns taka sig npp til að forða sér nndan rússneskri ógnarstjórn. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun, UM 400 þúsund manns eru nú að flýja úr þeim héruð- um, sem Rússar eiga að fá á Kyrjálanesi og norðan og vestan við Ladoga. Það vill ekki búa við rússneska stjórn og tekur sig upp með allri búslóð sinni til þess að leita nýrra bú- staða inni í Finnlandi. Rússar fá ekkert nema landið, autt og yfirgefið af öllu fólki. Finnska stjórnin hefir sent alla þá járnbrautarvagna og bif- reiðar, sem hún hefir yfir að ráða, til Kyrjálaness, til þess að flytja fólkið á brott þaðan. Enn fremur verður allur búpening- ur þeirra, húsmunir og annað, flutt á brott. Er það gífurlegt verkefni, sem hér þarf að vinna, og þó einkanlega, að koma fólk- inu fyrir í öðrum landshlutum. íbúar Helsingfors flykkjast nú einnig aftur til höfuðborgar- innar. En eiiis og kunnugt er, hvarf mikill hluti íbúanna á brott þaðan vegna loftárása Rússa á borgina. Allar járn- brautarlestir, sem til Helsing- fors fara, eru troðfullar af fólki, og færri en vilja komast þangað loftleiðis frá Svíþjóð. Flnnar verða fyrir ópr- lep fjárhagslegu tjóni. KHÖFN í morgun. FÚ. Það er nú verið að íhuga, hvert fjárhags- og viðskiptatjón Finnar muni bíða vegna friðar- samninganna og hversu úr verði bætt. Um VS hluti af útflutningi Finna fór um Viborg, sem Rússar fá samkvæmt friðar- samningunum, og 10% um Hangö. Á Kyrjálanesi, sem Rússar fá, eru fjölda margar sögunarmylnur og verksmiðjur, sem framleiða trjákvoðu, og er Finnum mikill hnekkir að því, að missa þær. Svfar hjóða Finnum 18 millj. kr. viðreisnarlán. að upphæð 18 millj. sænskra króna. Hjálparnefndin í Svíþjóð , hefir óskað eftir 9000 sjálfboða- liðum til þess að vinna viðreisn- arstörf í Finnlandi. 256 danskir málmiðnaðar- menn fóru í gær í vinnuþjón- ustu til Finnlands. Finnlands- hjálpinni dönsku verður haldið áfram með sama sniði og und- anfarið þrátt fyrir friðinn, og engin ákvörðun hefir enn verið tekin um hvað gera skuli við hina dönsku sjálfboðaliða í Finnlandi, Kallio Finnlandsforseti hefir simað Herbert Hoover fyrrver- andi Bandaríkjaforseta, formanni Frh. á 4. sföu. Rússar hafa misst 200 þús. manns, 1590 skriðdreha og 700 fingvolar! KHÖFN í gærkv. FO. ÞAÐ er haft eftir Mann- erheim hersböfðingja, að manntjón Fiana l styrj- öldinni hafi alls numið 15 þúsund manns, en að mann- tjón Rússa muni hins vegar hafa orðið um 200 þúsund manns. Ennfremur segir Manner- heim, að Rússar hafi orðið að láía 1500 skriðdreka fyr- ir Finnum, og að Finnum haíi tekizt að eyðileggja fyr- ir Rússum 700 flugvélar. Finnski herinn stendur uppi ósigraður og óbrotinn, ssgir Mannerheim, en iandið er ofiítið og varaliðið of takmarkað til þess, að fært | hefði verið að halda styrj- : öldinni lengur áfram án að- : stoðar. Svíþjóð hefir boðizt til þess að veita Finnum viðreisnarlán Svíar og Miena reiðabnnir að gera varnarbandaiag við Finna. --------------------•.+... Danir verða ekki með í bandalaginu. -------»■..... Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun, STJÓRNIR NOREGS OG SVÍÞJÓÐAR hafa nú lýst því yfir, að þær séu reiðubúnar til þess að ræða rnögu- leika á varnarbandalagi milli Noregs, Svíþjóðar og Finn- iands, þannig, að hvert þessara ríkja ábyrgist landamæri hinna tveggja og komi til liðs við hvort þeirra, sem á kynni að verða ráðizt. Frh. & 4. sföu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.