Alþýðublaðið - 18.03.1940, Síða 1

Alþýðublaðið - 18.03.1940, Síða 1
XXI. ÁRGANGUR MÁNUDAGUR 18. MARZ 1940. 65. TÖLUBLAÐ EITSTJÓEX: F. B. VALÐEMABSSON ÓTGEFANÐI: ALÞÝÐUFLGIDKUMNN KORT AF ÍTALÍU. Ofarlega á myndinni, beint suS- ur af Miinchen, sést Brenner- skarð. Eftlrspll „sameii ingarinnar“: Eiaar og Brpjélfar (ara í mál við Háðiit Ifj AÐ hefir komið mikið á Þjóðviljaim við þann áburö Héðins Valdimarssonar, að blaðið þiggi fjárstyrk frá þýzkum naz- istum, og fór það I gær hinum mestu ókvæðisorðum um Héðin út af þessu. Blaðið segir, að miðstjórn kommánistaflokksins muni hefja mél gegn Héðni Valdimarssyni fyrír ummeeli hans. Samtímis lætur aðalræðismaður Þjóðverja* hér Mgbl. birta þá yf- Frh. á 4. síSu. Fundarstaðurinn Italíu megin við sagður vera Brennerskarð —--------«-------- Slýjar f riðar nmleitanir? —--------*-------- Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. AÐ var tilkynnt bæði í Rómaborg og Berlín í gær, að Hitler og Mussolini myndu hittast árdegis í dag, og hefir kvisast, að fundarstaðurinn muni verða Ítalíu megin við landmærin í Brennerskarði. Nokkrum klukkustundum áður en þessi frétt barst, var Mussolini farinn frá Rómaborg, og voru í fylgd með hon- um Ciano greifi, utanríkismálaráðherra hans, og fimm aðrir fulltrúar úr utanríkismálaráðuneytinu. Hitler fór einnig af stað frá Berlín í gær, og var von Ribbentrop, utanríkismálaráðherra, í för með honum. Þessi frétt vekur gífurlega eftirtekt um allan heim. Þýzka ♦ fréttastofan s'egir. að samkomulag hafi náðst um þennan fund, þegar von Ribbentrop var í Rómaborg á dögunum. En fréttir frá Rómaborg þykja hinsvegar henda til þess, að ekkert hafi verið ákveðið um hann, fyrr en eftir að Sumner Welles, erindreki Roosevelts, kom til Rómaborgar frá París á föstudaginn, Ræddi hann þá strax við Ítalíukonung og á laugardaginn bæði við Ciano greifa og Mussolini og geta menn tekki varizt þeirri hugsun, að fundur þeirra Mussolinis og Hitlers standi í einhverju sambandi við ferðalag Sumner Welles. Brottför ítalska hafskipsins, „Conte di Savoia“ frá Neap'el, sem Sumner Welles ætlaði með heim til Ameríku á morgun, hefir verið frestað um óákveðinn tíma. Stjórnmálamenn í London eru helzt á þeirri skoðun, að Hitler Frh. á 4. slða. Miklar bollaleggingar eru um það meðal stjórnmálamanna um allan hteim, hvað á seiði sé. — Nokkuð af efni til hitaveit* unnar kemur næstu daga. . ^ ------■'— Pípur í innanbæjarkerfið, dálitið af rörum i aðalleiðsluna frá Reykjum, sement og timbur. Helta vatnið hefir aukizt. .......♦ ------- . A LÞÝÐUBLAÐIÐ fékk þsér fregnir í dag, að næstu daga sé væntanlegur hingað nokkur hluti af efni til hita- veitunnar. Þetta munu vera pípur í innanbæjarkerfið, eitthvað af pípum í aðalleiðslurnar til bæjarins ásamt sementi og timhri til framkvæmdanna. Þetta mun mörgum þykja gleðitíðindi, því að gera má ráð fyrir því, að undir eins og þetta efni er hingað komið, verði hægt að setja fullan kraft á framkvæmdirnar, það er að segja ef veður leyfir og frostlaust verður. En þó að þetta efni komi liingað núna fyrir páskana, þá vant- ar þó enn allmikið af efni og má vænta þess að takast megi að ná því hingað hið allra fyrsta, enda mun allt vte-rða gert til þess, sem stendur í valdi þeirra manna, sem hafa framkvæmdirnar með höndum. Eins og kunnugt er lögðu Bretar hinn 4. desember síð- astliðinn bann við öllum flutningi frá Þýzkalandi, hvernig sem á stæði. En samningar tókust um það á sínum tíma í haust, að engin hindrun skyldi lögð á flutning efnis til hitaveitunnar, en mikið af efninu, og þá fyrst og fremst pípurnar í innanbæjar- leiðslurnar ’er keypt frá Þýzkalandi. Steypupípurnar, sem eiga að fara í aðalleiðslurnar frá Reykj- um að Öskjuhlíð, verða steyptar í Danmörku, ten lítið mun vera búii af því verki og er óttast að aðallega standi á þeim, en svo lítill hluti af þeim mun þó vera á leiðinni meðal þess efnis, sem að ofan greinir. Heita vatnið á Reykjum ter nú orðið um 220 lítrar á sekundu og hefir það aukizt nokkuð upp á síðkastið. Eins og kunnugt er hefir verið reiknað með að til að hita upp allan bæinn þurfi 207 lítra á sekúndu, og er það mið- 'að við 10 gráðu frost, en síðustu 11 árin hafa komið aðeins 5—6 dagar, - sem meðalsólarhrings kuldi hefir orðið meira en 10 stig. Goðafoss fer frá New Yorfe í dag eða á morguo. GOÐAFOSS hefir ltegið ferð- búinn til heimferðar í New York síðan á föstudag, en honum var bannað að sigla úr höfn, nema hann tæki póst. En þetta eru deilumál milli Breta og Bandaríkjamanna. Hafa brezk yfirvöld ákveðið að skip frá Norðurlöndum, sem Frh. á 4. síðu. HITLER. MUSSOLINI. Þýzk loftárás á herskipa- lægi Breta I Scapa Flow. —■— ♦ — Fjórtán flugvélar tóku þátt í árásinni og vörpuðu niður 100 sprengikúlum. —.—.—»—-------- Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun. FJÓRTÁN ÞÝZKAR SPRENGJUFLUGVÉLAR gerðu á- rás á herskipalægi Breta í Scapa Flow í Orkneyjum á laugardagskvöldið og vörpuðu niður 100 sprengikúlum og íkveikjusprengjum. Árásin stóð í 85 mínútur. Þjóðverjar halda því fram, að þeir hafi valdið miklu tjóni á þremur herskipum, en Bretar segja, að aðeins eitt herskip hafi orðið fyrir lítilsháttar skemmdum og hafi sjö sjóliðsmenn á því særst. Loftvarnabyssur brezku her- skipanna og strandvamarvirkj- anna hófu þegar skothríð á árás- arflugvélarnar, og innan skamms V'oru einnig brezkar flugvélar komnar á loft, og barst leikurinn pá fljótt ’inn yfir eyjarnar. Fimm hús í þorpi á ströndinmi urðu fyrir mikium skemmdum, einn maður beið bana og sjö særðust, þar af tvær konur. Segja Bretar, að það sé í fyrsta skipti, sem manntjón hafi orðið á sjálfum Bretlandseyjum af völdum þýzkr- ar loftárásar. Ein þýzka árásarflugvélin var skotin niður, og vafasamt er tal- ið, að hinar hafi verið svo ferðafærar eftir loftorustuna, að þær hafi allar komizt heilu og höldnu heim. Þýzkar flugvélar höfðu sig ínjög í frammi í fyrrakvöld og gær við strendur Skotlands og reyndu að komast inn yfir land. Heinkelsprengjuflugvélar reyndu að komast inn yfir brúna á Firth of Forth, en tókst ekki. Tvær af fjórum þýzkum Hein- kelflugvélum skemmdust svo i loftbardögum við Skotiands- strendur, að sennilegh aefiT Iwor- ug komizt heim, að minnsta kosti ekki önnur þeirra, Þjóðverjar settu upp griðarstór áletruð merki yfir vígstöðvum sínum nálægt Svisslandi í gær. Á þau var letrað: „Fórnið yður ekki fyrir Breta.“ Franska stór- skotaliðið hxnum megin skaut merkin niður þegar í stað. np HULEMÓTIÐ hófst í fyrra- dag og var lokið í gær. í fyrradag var keppt í 18 km. göngu og vann Skíðafélag Siglufjarðar gönguna, en fyrst- ur varð Guðmundur Guðmunds- son, Sk. Sigl.) á 1 klst. 5,14 mín. Hafa þá skíðafélögin á Siglu- firði unnið hann tvisvar sinnum hvort. I gær var svo keppt í sítökki og svigi. Veður var ágætt þar til kl. 4, en þá kom ofurlítill úði, sem þó kom ekki að sök. I stökki var keppt í A-flokki og B-flokki. I Á-flokki urðu jafnir Helgi Sveinsson, Skíðaborg, og Jón Þorsteinsson, Skíðafél. Siglu- fjarðar, meðaltal 17,8. Þriðji varð Jónas Ásgeirsson, Skíðaborg, með meðaltal 17,3. Jón Þorsteinsson stökk 22 m. og 26V2 m, Helgi Sveinsson 25 m og 24Va m, og Jónas Ásgeirs- son 23 m og 251/2 m. Keppt var um bikar og vann Jób Þorsteinsson hann í fyrsta sinn í fyrra, en í ainnað sinn t Kvenfélag Alþýðn-! flokksins í kvðld. VENFÉLAG Alþýðu- i; flokksins heldur í ; ;j kvöld skemmtifund í Iðnó ;j jj uppi og er fastlega skorað j jj á félagskonur að fjöl- jj jj menna á fundinn. jj j Á fundinum verður sam- j jj eiginleg kaffidrykkja, er- j j; indi verður flutt af frú j: ;; Kristínu Ólafsdóttur lækni. : þá verður upplestur, söng- :j lj ur og margt annað til ; ;j sktemmtunar. Tekið verður ;j ; á móti nýjum félagskonum j jj á fundinum. j: Bríet Bjarnhéðins- tfðttirjátin. A ÐFARANÓTT laugardags andaðist frú Bríet Bjarn- héðinsdóttir að heimili sínu hér í bænum, 83 ára að aldri. Frú Briet Bjarnhéðiínsdóttir var landfræg kona vegna gáfna sinna og skörungsskapar. Einkum varð hún fræg af baráttu sinni fyrir kvenf rel sismálunum. Þessarar merku konu verður nánar getið hér í blaðinu innan skamms. Selma Lagerlðf lézt að heimili sínu Nðr- backa ð laagardag. SKÁLDKONAN SELMA LAGERLÖF er dáin. Hún andaðist að heimili sínu Már- backa milli klukkan 7 og 8 á laugardagsmorgupinn og hlaut rólegt og hægt andlát. núna og Helgi í fyrsta simn. t B-flokks-keppninni vann Bjöm Blöndál, K. R„ stökk 21 m og 241/2 m, meðaltal 18,1, ann- ar varð Erlendur Stefánsson, Skíðaborg, stökk 17 m og 22 m, meðaltal 15,7, og þríðji Stefán Stefánsson, Árm., stökk 17 og 17,5 m„ meðaltal 14,3. 1 svigi var líka keppt í tveim flokkum, A- og B-flokkum sam- an og C-flokki. !■ A- og B-flokki föru leikar þannig. 1. Helgi Sveinsson, Skíðaborg, 95 sek. 2. Jón Þorst., Skíðafélagi Siglufj., 100 sek. 3. Jónas As- geirsson, Skiðaborg, 100,1 sek. 4. Gísli Ólafsson, K. R„ 100,6 sek. 5. Einar Eyfells, 1. R„ 100,7 sek. Keppt var um bikar, og vann skíðafélagið Skíðaborg hann, í C-flokki urðu úrslrt þessi: 1. Ásgrímur Stefánsson, Skíða- fél. Siglufj., 77 sek. 2. Jóhannes Jónsson, Skíðaborg, 77,6 sek. 3. Stefán Stefánsson, Árm„ 83,5 sek. Skiðafél. Siglnfjarðar vann Thnlemðtið I annað sinn. .....1 , Guðmundur Guðmundsson vann gðnguna

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.