Alþýðublaðið - 28.03.1940, Qupperneq 1
ALÞTÐUBLAÐ
EITSTJÓKI: F. R. VALDfcMÆRSSON
ÚTGRFANÐI: ALÞtÐUFLOKKIHHNM
XXI. ASGANQUX
FIIVIMTUDAGUR 28. MARZ 1940.
71. TÖLUBLAÐ
Bretar gerast
vlð landhelgi
nærgöngulir
Norðmanna.
H@il brezk tundurapllladeildi 8-9 skip eltir pýzk
kaupfðr langt inn f landhelgl úti fyrir Jaðrinum.
Um 2000 toinaf
efn! ti! hitaveit-
unar kom með
„Randa“
SAMKVÆMT upplýsinguœ,
sem blaðið hefir fengið hjá
v'erkfræðingum hitaveitunnar,
hefir ,.Ronda“, skipið, sém kom
með efnið í hitaveituna, komið
með um 2000 tonn af vörum.
Meðal annars komu um 250
tonn af stálpípum, sem notaðar
verða í götukerfið, og 12 tonn
af pípuhólkum.
í aðalleiðsluna frá Reykjum
komu um 240 tonn, en í hana
fara um 5000 tonn. Þá komu
um 1000 tonn af sementi.
Enn fremur komu um 33 000
teningsfeí af timbri í steypumót
og ýmislegt fleira.
Sverri var bjarg
að af eyrinni.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun
T\T ORÐMENN kvarta nú mikið undan því, að brezki flot-
■^ inn gerist nærgöngull við norsku landhelgina. Heldur
norska utanríkismálaráðuneytið því fram, að Bretar hafi
brotið þannig hlutleysi á Noregi oftar en einu sinni síðustu
viku. Laugardaginn fyrir páska hafi brezk tundurspilladeild,
samtals 8 eða 9 tundurspillar verið á sveimi úti fyrir Jaðr-
inum og elt tvö þýzk kaupför langt inn á Tosfjörð, milli Líð-
andisness og Farsunds, en að vísu snúið aftur til hafs, þegar
hún átti eftir aðeins eina mílu inn fjörðinn.
Daginn áður, á föstudaginn langa, segir utanríkismálaráðu-
neytið að brezkur tundurspillir háfi skotið aðvörunarmerki að ♦-
þýzku skipi undan Ovrestad, inni í norskri landhelgi, og hafi
kúlan komið niður uppi á ströndinni skammt frá jámbrautarstöð-
inni Varhaug, en þó ekki gert neitt tjón.
Norska seíidiherranum í London hefir verið falið að mót-
mæla þessu hlutleysisbroti.
Brezkir tundurspillar í Norðursjónum.
Atvinna 900 byggingar
iðnaðarmanna er fi veði
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
VESTM.EYJUM í morgun.
Vélbátnum „Má“ héðan úr
bænum tókst um kl. 4 að draga
„Sverri“, sem strandaði í gær,
á flot, og litlu síðar komst skip-
ið upp að bryggju. ,.Sverrir“ er
mikið skemmdur og lekur.
Uppskipun á kolunum hófst
strax og heldur hún áfram í dag.
í þýzkum fréttum er mikið
gert úr þessum hlutleysisbrot-
um Breta og því haldið fram, að
Bretar muni framvegis yfirleitt
ekki virða landhlegi Noregs né
Danmerkur, heldur senda kaf-
báta sína inn í hana til þess að
ráðast á þýzk skip. Er því hald-
ið fram af Þjóðverjum í því
sambandi, að menn óttist það í
Kaupmannahöfn, að Bretar
mimi ráðast inn í landhelgi
Dana til þess að hertaka þýzka
skipið „Ostpreussen“, sem
sigldi í land á Jótlandi til þess
að forða sér undan brezkum
kafbát, og hafi danska stjórnin
sent herskip á vettvang til þess
að afstýra því.
Eíbb skipi Bergeaska
iélagsios sSkkt.
OSLO í morgun. FB.
Eimskipið „Cometa", 3794 smá-
léstir, eign Bergenska, er nú tal-
ið af. Menn ætla, að annaðhvort
hafi skipið farizt á tundurdufli
eða skipilað í
hásnæðismálDm bæjarbúa?
--------
Ef Magmús Jénssmn femgl að ráða
mjmúí básaleiga stérbækka og
hásabrask komast í algleyming.
■p* RUMVARP félagsmála-
ráðherra um ný húsa-
leigulög hefir nú verið af-
greitt frá efri deild til neðri
deildar.
Við umræðurnar í efri
deild voru gerðar nokkrar
smávægilegar breytingar á
frumvarpinu.
Samkvæmt þeim á húsaleigu-
nefndin hér í Reykjavík að vera
skipuð samkvæmt tilnefningum
hæstaréttar, Fasteignaeigendafé-
lagsins og Alþýðusambandsins.
Ennfremur var sú breyting gerð
á frumvarpinu, að húsaleiga
mætti hækka sem svaraði aukn-
um eldiviðarkostnaði, þegar í-
búðir eru leigðar með hita, og
einnig sem svamði auknum við-
haldskostnaði. En um virðingu á
þessum atriðum hlýtur húsa-
leigunefnd að fjialla, og verður
að telja þettia mjög sanngjarnt.
Magnús Jónsson prófessor
barðist gegn frumvarpinu i efri
deild og vildi hann auðsjáanlega
Frh. á 4. síðu.
eða verið skotið í kaf með tund-
urskeyti. Áhöfn og farþegum var
bjargað, og eru skipbrotsmenn
væntanlegir til Kirkwall á brezku
herskipi.
HollenzMr togarar hrakt-
ir af miöam linnm.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
Hinar sífelldu árásir Þjóðverja
á óvopnuð skip hafa leitt til þess,
að sikipshafnrr á 10 hollenzkum
togurum hafa neitað að láta úr
höfn.
Áhafnir á tveimur hollenzkum
toguram, sem nýlega komu í
höfn, hafa skýrt frá því, að skip
þeirra hafi verið . stöðvuð og
flutt til eyjunnar Borkum, þar
sem öll skjöl og vegabréf voru
rannsökuð, og vora skipstjórarnir
aðvaraðir um, að vera ekki að
veiÖum austan 4. gr. austlægrar
lengdar. Með öðrum orðum:
hollenzku skipunum er meinað að
veiða á sínum eigin miðum.
Menn óttast, að hollenzka skip-
ið „Saba“, 400 smál., hafi farizt.
Það átti að vera komið í höfn
fyrir viku.
Fyrir þrem vikum varð „Saba“,
sem hefir 7 manna áhöfn, fyrir
þýzkri flugvélaárás á Norðursjó
og varð þá fyrir skemmdum. Nú
hafa komið fram tilgátur um, að
skipið hafi skemmzt svo mikið,
að það hafi sokkið á leiðinni, er
það var að reyna að komast
heim.
Þingmenn Rvíkur bera fram þingsálykt-
unartillögu um innfl. á byggingarefni.
Altmark kemin íii
ÞfizkalawU.
Var prjör vlkor á leiðinni
LONDON í morgun. FÚ.
AjTMARK“, sem var
rent á land í Jössingfirði
eftir orustuna við brezka tund-
urspillinn „Cossaek,“ er nú
komin til Kiel. Skipið þræddi
meðfram Noregsströndum og
var 3 vikur á leiðinni.
TkA ÁLALEITUN bygginga
■*“ iðnaðarmanna til þing
manna Reykjavíkur hefir nú
borið þann árangur, að þeir
hafa nú borið fram þingsá-
lyktunartillögu í sameinuðu
þingi um innflutning á bygg-
ingarefni og atvinnu fyrir
byggingaiðnaðarmenn.
Er þingsályktunartillagan
svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni:
1. Að liðka svo til um inn-
flutning á byggingarefni, að
ekki þurfi að taka fyrir bygg-
ingu nýrra húsa af skorti á
byggingarefni.
2. Að sjá um, að jafnan geti
vegna innflutnings- og gjaldeyr-
ishaftanna, verið til nægilegt
efni til viðhalds húsa og til verk-
stæðisvinnu, enda sé frjáls sala
á því.
3. Að nota, eftir því, sem við
verður komið, faglærða iðnað-
armenn við þá iðnaðarvinnu,
stem ríkið lætur framkvæma eða
styrkir.
í greinargerð segir:
Það er fyrirsjáanlegt, þótt
ekki væri nema af því, hve verð
hækkar á byggingarefninu, að
byggingar í Reykjavík hljóta að
stöðvast að mestu eða öllu leyti.
En á undanförnum árum hafa
verjð reistar hér 200—250 íbúð-
ir á hverju ári, auk fjölda ann-
arra húsa. Um 900 faglærðir
menn hafa starfað í bygginga-
iðnaðinum, með um 4000 manns
á framfæri sínu. Auk þess hefir
fjöldi annarra haft vinnu við
þessar húsabyggingar, svo sem
við grjót- og sandnám, akstur á
byggingarefni, lögun lóða og
margs konar aðstoð við verkið.
Hér eru því bersýnileg vand-
ræði fram undan fyrir fjölda
manna. Og þessi vandræði, sem
leiðir af óviðráðanlegum atvik-
um, aukast svo við það, að opin-
berar ráðstafanir hindra bæði
innflutning á byggingavörum
og gera ýmis konar trafala í
verzluninni með þær.
Við þingmenn Reykjavíkur
berum því fram tillögu þessa til
þingsályktunar, þar sem farið er
fram á, að þingið hlutist til um,
að greitt verði eftir föngum fyr-
ir því, að þeir, sem ráðast vildu
í einhverjar framkvæmdir,
þrátt fyrir hið háa verðlag, geti
gert það. Er sérstaklega ástæða
til að halda, að ýmis konar að-
gerðir á húsum gætu dregið
nokkuð úr átvinnuleysi bygg-
ingariðnaðarmanna. Slíkar við-
gerðir eru ekki mjög frekar á
byggingarefni, en gefa á hinn
bóginn töluverða vinnu. Er þá
nauðsynlegt, að fyrir liggi sem
allra f jölbreyttast úrval af þeim
vörum, sem þarf til viðgerð-
anna. Svo er og um ýmsa verk-
stæðisvinnu, að vinnan er þar
hlutfallslega mikil borið saman
við efnið, sem flytja þarf inn.
Þá teljum við og rétt og sjálf-
sagt, að ríkið dragi úr atvinnu-
leysi faglærðra iðnaðarmanna
með því að nota þá sem mest við
þau verk, þar sem það hefir
hönd í bagga með um fram-
kvæmdina og getur haft áhrif á
mannaval.
Frjálslpdi flokknr-
inn fékk jfirgnæf-
andi meirihlnta í
Kanada.
Formaðnr Ibaldsílobkslns
féil i kjðrdæmi sina.
P RJÁLSLYNDI flokkur-
É inn í Kanada vann
glæsilegan sigur í þingkosn-
ingunum, sem fram fóru á
þriðjudaginn. Kingstjórnin
heldur því völdum og hefir
hún fengið yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða á þingi.
Frjálslyndi flokkurinn hefir
samkvæmt fregnum síðdegis í
dag fengið 177 þingsæti af 245,
íhaldsflokkurinn 39. Samvinnu-
sambandið 8. Nýi lýðræðisflokk-
urinn 7 þingsæti og aðrir flokk-
ar 9. Vafasamt er enn um úr-
slit í 9 kjördæmum.
Enginn kommúnisti, sem í
kjöri var, náði kosningu, og hinn
svonefndi Social-Creditflokkur
hélt aðeins 1 af 15 þingsætum.
Dr. Manion, leiðtogi íhalds-
flokksins, beið ósigur fyrir
frambjóðanda frjálslynda
flokksins í Fort Wiliiam, Ontar-
io.
Allir ráðherrarnir í stjórn
McKenzie King héldu þingsæt-
um sínum.
Engin kona á sæti á hinu
nýja sambandsþingi. Átta konur
voru í kjöri, en engin náði
kosningu, (FÚ.
Engirbyggingariðnað
armenn héðan til
Finniands.
UNDANFARIÐ hafa Finnar
farið fram á að fá bygg-
ingaiðnaðarmenn frá Norður-
Frh. á 4. sí&u.
Borgarstjórlnn vildl hafa
nppbætnrnar mlnni en engar
.....-9...
Frumvarpið um uppbæturnar á elli-
laun og örorkubætur ti! efri deildar.
P* RUMVARPIÐ um hækk
un slysabóta og uppbót
á ellilaun og örorkubætur er
nú komið til efri deildar. Var
það afgreitt frá neðri deild
til efri deildar í fyrradag.
Nokkrar umræður urðu um
málið við 3. umræðu í sam-
bandi við breytingartillögur,
sem fram höfðu komið,
Önnur þessara tillagna hafði
komið fram við 2. umræðu, en
var frtestað til 3. umræðu.
Var hún frá Pétri Halldórs-
syni borgarstjóra og átti hún
víst að merkja það, að uppbæt-
ur bæjanna og sveitarfélaga
lækkuðu um helming frá því,
sem til er ætlast í frumvarpinu.
En í tillögunni stóð hins veg-
ar að borga skyldi í uppbætur
hálfan hundraðshluta vísitölu
kauplagsnefndar, sem hefði þýtt
það, að uppbótin hefði orðið
minni en ekki neitt(H).
Á þetta var Pétri Halldórs-
syni bent af félagsmálaráð-
herra og Vilmundi Jónssyni.
Skoruðu þeir á hann að taka
þessa fjarstæðu tillögu aftur, en
Pétur varð ekki við þeirri á-
skorun og kom því hin fárán-
lega tillaga hans til atkvæða og'
var felld með yfirgnæfandi
meirihluta.
Önnur breytingartillagá kom
og fram, frá Skúla Guðmunds-
syni, um að uppbætur á slysa-,
örorku- og’ dánarbótum skyldu
aðeins verða % hlutar af auk-
inni dýrtíð.
Frh. á 4. siðu.