Alþýðublaðið - 10.04.1940, Side 1
/
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN
XX. ARGANGUR
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL1940
tu stjórn allra
a I slnar bendur.
Einróma sampyiikt sam
alfiingis i nótt.
SAMEINAÐ ALÞINGI samþykkti á fundi í nótt kl. 2,50
eftirfarandi tillögur til þingsályktunar frá ríkisstjórn-
inni um æðsta vald í málefnilm ríkisins og um meðferð ut-
anríkismála óg landhelgisgæzlu:
„MeÓ því að ástand það, sem nú hef-
gr skapazt, hefir gert konungi islands ó-
kieift að fara me® vald þa$, sem honum
er fengió í stjórnarskránni, iýsir Aiþingi
yfir því, að það feiur ráðuneyti íslands
að svo stöddu meðferS þessa valds^
,,¥@gná þess áStánds, er nú hefir skaíp-
azt, getur Danmörk ekki rækt umbod til
meöf erðar utanríkismála íslands áátti-
kvæmt 7í gr. dansMslenzkra sambands-
laga né Íandhelgisgæzlu samkvæmt 8, gr.
téðra Saga, og lýsir AEþángi þess vegna yf-
tr því, að ðsland tekur að syo stoddú
férð hiáíá þessara að ölht léýti f sínar
■ ■■■■" ■ r ti- •■! ; 'lif-. *.TiT*í K-v
hendur.“ ; .. ,f; ..*tv .
; ■ ’’ : ’ ý-’ ' *( l"Vr ... .■•■ ■.£ .•> - ,v- v, v' «i.í t 'í . ■-'
Báðár þessar tillögur vþrji samþykktár !að yiðhöfðn
nafnákálii méð 46 samhljóða atkvæðum, en þrír þingmenn
yoru fjarveirandi: Finnur Jónsson, seim hu dvelur í Nþ^
egi; Gísli Guðmuhdssori og Pétur Halldórssoni sem háðir
eru veikir. áu../A
Jéornsta útl fyr-
Ir vesturstrðnd Soregs.
----4----«...
Brezk og þýzk berskip berjast þar
á lóngn svæði í stormi og baugasjó.
ST 0 R S J 0 O R U S T A STENDUR NÚ YFIR MILLI BRETA OG ÞJÓÐVERJA í
STORMI OG HAUGASJÓ Á LÖNGU SVÆÐI ÚTI FYRIR VESTURSTRÖND NOR-
EGS OG TAKA FLUGVÉLAR AF BEGGJA HÁLFU ÞÁTT í HENNI.
ENGAR ÁREIÐANLEGAR FREGNIR HAFA BORIZT ENN UM GANG ORUST-
UNNAR OG BREZKA FLOTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ LÝSTI ÞVÍ YFIR, AÐ EKKERT
YRÐI LÁTIÐ UPPI UM ÞAÐ ÁF ÞESS HÁLFU FYRR EN ORUSTAN VÆRI Á ENDA.
Brezkar og franskar flugvélar gerðu í morgun milda loftárás á hérskip Þjóðverja á
Oslpfirði og eru á sveimi inni yfir Oslo, en ókunnugt er um árangurinn af árásinni. Loftá-
r.ás var einnig gerð á hprskip Þjóðverja í Bergen.
Oslð OQ
á vest-
' Þegar það varð kunnugt hér i
í gærmorgun, að þýzkur her!
var að leggja undir sig Dan- 1
mörku og að danska stjórnin
„BrenetT
íkaf af Bretnm!
Lundúnaútvarpið
skýrði frá því um
hádegi í dag, að þýzka
hafskipið ,,Bremen“ hefði
1 nótt verið skotið í kaf í
nánd við Bergen.
Talið er víst að skipið
hafi verið notað til her-
flutninga til Noregs.
— Þýzka beitiskipinu
„Karlsruhe“ var einnig
sökkt af Bretum við Nor-
egsstrendur síðdegis í
gær.
og konungurinn höfðu tekið við
vernd ■ Þýzkalands, var fundum
alþingis frestað, en fundur taf-
arlaust settur 1 ríkisstjórninni.
Strax að þeim fundi loknum
vár uíanrikjsþuálánefndin köll-
uð saman á ,ýpnd,: og sat ríkis- ,
stjórnin einpig þann fund.
Á þessuni fundum voru hin
nýju viðhorf rædd gaumgæfi-
lega, en að þeim loknum var
boðaður fundur með öllum
stuðningsmönnum stjórnarinn-
ar og málin rædd þar.
Þegar þessir aðilar voru orðn-
ir sammála um hvernig mæta
skyldi hinu nýja viðhorfi, var
boðaður sameigiplegur fundur
með miðstjórnum allra flokk-
anna og þmgflokkunum, ásamt
Bændaflokksmönnum og Héðni
Valdimarssyni.
Hófst þéssi fundur kl. 10 í
gærkveldi og stóð óslitið til kl.
Frh. á 2. slðu.
Þýzki landgönguherinn í Noregi náði Oslo á sitt vald seinnipartinn í gær, og hefir
hin þýzka herstjórn tekið við öllum völdum í horginni. í viðureigninni, sem varð milli
þýzka flotans og strandvarnavirkisihs Oscarsborg úti með Oslofirðinum, áður en Þjóð-
verjum tókst að setja herinn á land í Oslo, var einu stærsta herskipi þeirra, sennilega
beitiskipinu ?,Gneisenau“, 26 000 smálestir, sökkt.
'Norðmenn viðurkenna, að þýzkum herskipum hafi einnig tekizt að setja her á land í
gærmorgun í nokkrum helztu hafnarborgunum á vesturströnd landsins, þar á meðal Stav-
anger, Bergen, Þrándheimi og Narvík, og þykir augljóst á því, hve fljótir Þjóðverjar voru
að ná þessum borgum á sitt vald, að árásin hafi verið fyrir löngu undirbúin og þýzkt herlið
sennilega leyrizt í vopnuðum þýzkum flutningaskipum undanfarið innan skerja í Noregi.
Brezk herskip gerðu tilraun til þess að ná Narvík á sitt vald í nótt, en tilraunin mis
tókst. Einn brezkur tundurspiilir strandaði og annað sökk, en hin skipin urðu frá að hverfa.
Þýzku herskipi var þó sökkt í viðureigninni.
áfram með Bandamönnum.
Útvarpsstöðin í Helsingfors tilkynnti í morgun, að Nygaardsvold forsætisráðherra
Norðmanna hefði tilkynnt í norska stórþinginu, sem kom saman á fund skammt frá
Hariiar seinnipartinn í gær, að Norðmenn væru ráðnir í því að halda vörninni áfram
og að norski herinn væri að búa um sig milli Oslo og Hamar.
Dpinberar tilkynningar
norsku stjórnarinnar eru nú.
fluttar í útvarpinu í Iielsing-
fors, sem finnska stjórnin er
sögð hafa leyft norsku stjórn-
inni að nota, þar eð útvarps-
stöðin í Oslo er nú i höndum
*
Þjóðverja.
Brezki sendiherrann í Nor-
egi, sem nú er kominn til Ha-
mar, hefir símað þjóð sinni, að
Norðmenn séu hugrakkir og á-
kveðnir í ,því að berjast áfram
við hlið Bandamanna þar til yf-
ir lýkur.
Þýzka herstjórnin tilkynnir,
að hún hafi orðið að láta varpa
sprengikúlum á ýmsa staði í
Norður-Noregi, en ókunnugt er,
hvaða staðir það hafa verið eða
hvaða tjóni þær hafa valdið.
Per Albin Hansson forsætis-
ráðherra Svía lýsti því yfir á
Frh. á 2. síðu.