Alþýðublaðið - 11.04.1940, Page 1

Alþýðublaðið - 11.04.1940, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1940 82. TÖLUBLAÐ Bretar að gereyðileggja flota Þjóðverjja við strendur Noregs -----4.---- . Ógnrleg sjóornsta siðan I gær þvert yfir Skagerak. -----4----- Brezki flotinn brauzt í gegn um tundurduflagirðingar Þjóðverja og hefir nú gersamlega lokað fyrir þeim siglingaleiðinni til Noregs. —----4----- FRÁ stríðinu á Norðurlöndum rekur hver stórfréttin aðra síðan í gær, og eru flestar þeirra frá Stokkhólmi, en margar þegar staðfestar í London, þó að tilkynnt hafi verið, að Churchill flotamálaráðherra Breta muni ekki skýra frá þeim viðburðum, sem gerst hafa, fyrr en seinnipartinn í dag. — Helztu fréttirnar fara hér á eftir: Eftir látlausar sjóorustur og loftorustur úti fyrir vesturströnd Noregs í fyrradag og fyrrinótt, brauzt brezki flotinn í gær i gegnum Skagerak, miSIi Noregs og Jótlands, sem Þ|óðverjar töldu sig hafa girttund- urduflum, inn í Kattegat og alla leið austur undir strönd Svíþjóðar. Ægileg sjóorusta geisaði á öliu þessu svæði, frá Arendal í Noregi, sunnan og vestan við Oslofjörð, austur a'ð Marstrand í Svíþjóð, nokkru fyrir norðan Gautaborg, á meira @n 100 kílómetra svæði, alian daginn í gær. Sást frá Marstrand hvernig stórum herflutningaflota Þjóðverja, sem bersýnilega var á leið til Noregs, var ivístrað af herskipum Breta úti fyrir sænsku ströndinni og hvert skipið af öðru skotið í bál. Óg- urlegar skotdrunur heyrðust stranda á miSSi við Skagerak og Kattegat allan daginn. -- Það er fullyrt í fréttuni frá Léhdon og Stokkhóimi, að sex af nýjustu herskipum Þjóðverja hafi þegar verið skotin í kaf á þessum sBóðum, þar á meðai annað vasaorustuskipið, sem Þjóðverjar áttu eftir, „Lútzow“ (Deutsch- land) eða „Admirai Scheer" (hvort um sig 10 000 smálestir), og beitiskipið „Emden“ (5400 smálestir), auk ennþá fleiri flutningaskipa. Norska beitiskipið „OSav Tryggvason" (1600 smálestir) tekur þátt í sjóor- ustunni. Það var það, sem sökkti „Emden“ úti fyrir Horten sunnan og vestan við Oslofjörð. Samtals segja Bretar að.sökkt hafi verið meðfram ströndum Noregs í gær 9 þýzkum herskipum, 15 flutningaskipum og 6 þýzk herskip verið skemmd. En í fyrradag og fyrrinótt var þýzka beitiskipinu „Bliicher“ (10 000 smálestir) sökkt við mynni Oslofjarðarins og beitiskipinu „Karlsruhe“ (6000 smálestir) úti fyrir Kristianssand, auk fjölda annarra herskipa og flutningaskipa, sem menn vita ekki enn nöfn á. Um skipatjón Breta er ekkert vitað með vissu. Brezki flotinn virðist hafa lokað sjóleiðinni fyrir Þjóðverjum um Kattegat og Skagerak til Noregs fyrir fullt og allt, og brezk herskip voru komin langt inn á Oslofjörð seinast í gærkveldi. Síðan í morgun hafa verið háðar grimmilegar loftorustur yfir Oslo og fjöldi flugvéla hrapað niður í höfnina. Orusturnar héldu áfram þegar síðasí fréttist. . Hafa Þjóðverjar heimtað að fá að flytja her yfir Svipjóð? ----4--- Eftna leiðin, ef sjólelðin til Noregs lokast Þjóðverjar mæta magnaðri mótspyroD norska hersins. -----4 Blóðugir bardagar uppi i landi. AMERÍSKAR ÚTVARPSFREGNIR í MORGUN FULLYRÐA, AÐ ÞÝZKA STJÓRN- IN HAFI KRAFIZT ÞESS AF SÆNSKU STJÓRNINNI í GÆR, AÐ FÁ AÐ FLYTJA HER TIL NOREGS YFIR SVÍÞJÓÐ, EN SÆNSKA STJÓRNIN HAFI SETT ÞVERT NEI VIÐ ÞEIRRI MÁLALEITUN. SÖMU FREGNIR HERMA, AÐ ÞJÓÐVERJAR HAFI TEKIÐ BORGUNDAR- HÓLM, DÖNSKU EYJUNA SUÐUR AF SVÍÞJÓÐ, OG ÞYKIR ÞAÐ BENDA TIL ÞESS, AÐ ÞEIR SÉU AÐ BÚA SIG UNDIR AÐ SETJA HER Á LAND í SUÐUR- SVÍÞJÓÐ, HVAÐ SEM SÆNSKA STJÓRNIN SEGIR. MENN ÓTTAST, AD SVÍÞJÓÐ MUNI ÞÁ OG ÞEGAR DRAGAST INN í STYRJ- ÖLDINA OG ÞAÐ ÞVÍ FREMUR, SEM EKKI ER ANNAÐ SJÁANLEGT, EN AÐ ÞÝZKI LANDGÖNGUHERINN í NOREGI EINANGRIST AÐ ÖÐRUM KOSTI EFTIR HINN ÓGURLEGA ÓSIGUR ÞÝZKA FLOTANS í SJÓORUSTUNNI í SKAGERAK. Svíar hafa kvatt allt vara- lið sitt til vopna. Varalið hefir verið sent til ýmissa staða hæði í norður- og suðurliluta landsins. Aðrar varúðarráðstaf- anir hafa verið gerðar, varðandi loftvarnir og fleira. Ríkisstjórn- in leggur fram 15 milljónir kr. til loftvarnabyrgja í öllum hús- um. Umferð á járnbrautum í Hol- Frh. á 2. síðu. ÞÝZKI INNRÁSARHERINN í Noregi, sem sækir fram fyrir ofan Oslo, mætir harðvítugri vörn norska hers- ins og norskra sjálfboðaliða, sem flykkjast í þúsundatali til vígstöðvanna. Eiðsvöllur, sem liggur mitt á milli Oslo og Hamars, var þó tekinn af Þjóðverjum í gær og norska stjórnin varð að yfirgefa Hamar og flytja sig til Elverum, lítið eitt norðar og austar, um 20 kílómetra frá landamær- um Svíþjóðar. En þar hafa staðið yfir blóðugir bardagar síðan í gærkveldi og margt manna fallið á báða bóga. Norð- menn höfðu þar grafið sér skotgrafir og Þjóðverjar sækja fram með brynvörðum vögnum og flugvélum. Þýzk frétt í morgun hermir, að Elverum hafi þegar verið tekin, en sú frétt er óstaðfest annars staðar að. Bardagar standa einnig yfir hjá Kongsvinger lítið eitt sunnar og einnig ekki langt frá sænsku landamærunum. Frh. á 2. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.