Alþýðublaðið - 12.04.1940, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 12.04.1940, Qupperneq 1
XX. Á&GAN&WR FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1940 83. TÖLURLAÐ. RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN alla leiö frá Gautaborg til Bergen. ------*----- T> SIEZSCA FLÖTAMÁLARÁÐÍINÉYTIÐ tilkynnti um hádegi í dag, a$ brezki flotinn væri að léggja tund- ^ urdaifium yfir þvert Hattegat ©g Skagerak og meSfiam suSvestursfrönd Noregs, aila ieið frá strönd Sviþjó&ar, noröan við Gaufaöorg, og norSur undir Bergen. ÁÖeins mjóum siglingaieiöum er haldig opnum á þessum siööum undir ströngu eftirliti brezkra herskipa. Þar mei virðist sambandi Þýzkalands við Nor- eg sjóSeiðina vera algerlega slitið. Samkvæmt öðrum síðustu fréttum frá London halda sjóorusturnar úti fyrir og inni á fjörðum Noregs enn áfram og er talið sennilegt að þær standi yfir nokkurn tíma enn. Þykir bersýnilegt, að brezki flotinn ætli að hreinsa hafið og firðina umhverfis hina löngu, vogskornu strönd lands- ins af öllum þýzkum skipum. Brezkar flugvélar eru einnig á stöðugu sveimi yfir Kattegat og meðfram ströndum Noregs og láta sprengikúlum rigna yfir hvert einasta þýzkt skip, sem þær méeta. Stórt þýzkt hergagnaskip, 8000 smálestir að stærð, sprakk í loft upp eftir eina loftárásina í Kattegat í nótt. Meira en helmingurinn afi beitlskipa flota Þjóðverja pegar á hafsbotnL - ■ • . Þjóðverjar hafa orðið fyrir ógurlegu tjóni í sjóorustunni í Skagerak og Kattegat undanfarna daga, enda taldi Churchill hana í ræðu sinni í gær stærstu sjóorustu allra tíma. Fjórum af beitiskipúm Þjóðverja var sökkt, og er þá síðan stríðið byrjaði búið að sökkva meira en helmingnum af öllum beiti-kipafloía Þjóðverja. Auk þess hafa Þjóðverj- ar misst í sjóorustunum síðustu dagana þrjá ítmdurspilla, tólf herflutningaskip og tvö orustuskip þeirra skemmst stórkostlega. Bretar telja sig hafa misst fjóra tundurspilla, tveir tundurspillar hafi skemmst al- varlega og eitt orustuskip lítillega. Sví'ar flytja fólk burt úr Gautaborg O VÍ AR byrjuðu í morgun að flytja fólk burt úr Gauta- ^ borg. Aðvaranir um loftárásir hafa þegar oftar en éinu sinni verið gefnar í borginni, en í hvert skipti hefir komíð í ljós að um sænskar flugvélar var að ræða. Sýnir þetta þó að Svíar eru við því búnir, að árás verði gerð á þá á hverri stundu. Landgðngulið Þjóðverj- a í Marvik kréal iemi. NORSKAR HERSVEITIR hafa nú umkringt Narvik á landi, og brezki flotinn á sjónúm þannig að landgöngu- lið Þjóðverja er inni króað og engar líkur taldar til, að því verði undankomu auðið. Brezku herskipin hafa lagt tundur- duflum þvert yfir Vestf jörðinn til þess að loka sjóleiðihni að og frá horginni. Síðustu fregnir a£ sókn Þjóð- verja'í Suður-Noregi imn í land- ið frá Oslo herma, að Norðmenu haldi hæði Elverum ®g Hamri ©g þýzku hersveitirnar hafi orð- ið að hörfa undan nokkrar mil- ur vegar hjá Hamri. Þjóðverjar vörpuðu í gær- kveldi eldsprengjum úr flugvél- um sínum niður yfir Elverum og loftárásir voru í fyrsta sinni gerðar af Þjóðverjum á varnar- lausa staði víðsvegar um landið seinni partinn í gær. Hervæðingunni 1 Noregi er allsstaðar haldið áfram og er hún sögð ganga greiðlega- Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að leggja hindranir í veg Þjóðverja á ýmsum stöðum á þjóðbrautum landsins, sem þeir verða að fara til þess að komast inn í landið. Einnig hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að sprengja brýr hingað og þangað í loft upp. Norska stjórnin hefir loft- skeytastöðvarnar í Bodö og í Tromsö á sínu valdi og hefir verið útvsjrpað, fyrirskipunum frá þessum stöðvum til þjóðar- innar. Meðal annars hefir verið útvarpað tilkynningum þess efnis, að útvarpsstöðin í Oslo sé í höndum Þjóðverja. og megi menn ekki hlýða neinum fyrir- mælum, sem gefnar séu frá henni. Norðmem ikveðnir 1 al verja frelsi sitt. Tt ht utanríkismálaráðherra itt útvarpsræðu og sagði hann, að öll þjóðin hefði sterk- an vilja til að vernda frelsi sitt og sjálfstæði, og hótanir, loft- árásir og skothríð úr fallbyss um myndi engu breyta um þessa afstöðu þjóðarinnar. Nor- egur á í styrjöld við Þýzkaland, sagði hann, og Norðmenn eru því bandamenn állra þeirra, — sem berjast við Þjóðverja. Nazistar í Noregi, undir for- ystu Quislings. eru stimplaðir sem landráðamenn. Svíar hafa lagt tundurduflum úti fyrir Gautahorg og öllum höfnum í Suður-Svíþjóð. Ljós á vitum voru alls staðar slökkt í gærkveldi. Þjéðverjar saka sæosk blðð um hlittleysisbrot. BERLÍN í gærkveldi. FÚ. Þýzk blöð fara allhörðum orð- um um afstöðu sumra sænskra blaða í Svíþjóð til síðustu at- burða og ásaka þau um að fara með áróður 1 þágu Vesturveld- anna. Segja þýzku blöðin, að þessi afstaða samrýmist illa þeirri sanngjörnu afstöðu, sem Svíar hafi yfirleitt til þessa tekið í deilumálum Þjóðverja og Vest- urveldanna, og benda á, að her- Frh. á 2. síðu. bPveijðr og Bðssar safna mikln liði vlð landamæri Ungverjalands og Rnmenin. .. ■ - — AVstaða Italfu taliu vera tortrygglleg. LUNDÚNAÚTVARPIÐ SKÝRÐI FRÁ ÞVÍ KL. iy2 í DAG, AÐ GÍFURLEGUR LIÐS- SAFNAÐUR FÆRI NÚ FRAM AF HÁLFU ÞJÓÐVERJA VIÐ LANDAMÆRI UNGVERJALANDS OG AF HÁLFU RÚSSA VIÐ LANDAMÆRI RÚMENÍU. ERU MENN VIÐ ÞVÍ BÚNIR, AÐ ÁRÁSIR VERÐI GERÐAR Á BÆÐI ÞESSI LÖND MEÐ LEIFTURHRAÐA ÞÁ OG ÞEGAR. BANDAMANNAHERINN FYRIR BOTNI MIÐJARÐARHAFSINS BÝR SIG UND- IR ÞAÐ AÐ GETA KOMIÐ RÚMENÍU TIL HJÁLPAR ÞEGAR í STAÐ, EN HEFIR JAFNFRAMT VAKANDI AUGA Á AFSTÖÐU ÍTALÍU, SEM TALIN ER VAFASÖM.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.