Alþýðublaðið - 16.04.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.04.1940, Blaðsíða 1
RITSTJORI: F. R. VALDEMARSSON UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGlíR ÞRIÐJUDAG 16. APRIL 1940 86. TOLUBLAÐ enn hafa sett fier á land á 6 stöðum i Noregi. Þar á meðal ern hersveitir frá Englandl, Frakklandi, Kanada og Nýja SJálandi. ÞÓ að ekki hafi verið gefnar neinar opinberar yfirlýsingar í London enn um það, hvar og á hve mörgum stöðum Bandamenn hafa sett lið á land í Noregi, þá er þó fullyrt í London í dag, að lið hafi verið sett á land á sex stöðum, þar á meðal í Narvík, sem nú sé alveg á valdi Bandamanna. Landgöngulið Þjóðverja þar hafi flúið upp í fjöll, en verið tekið til fanga af Norðmönnum, aðeins örfáir þýzkir hermenn hafi komizt yfir sænsku landa- mærin og verið kyrsettir þar. Samkvæmt yfirlýsingu brezka útvarpsins um hádegi í dag eru það ekki aðeins brezk- ar hersveitir, sem settar hafa verið á land í Noregi, heldur og franskar og kanadiskar her- sveitir og hersveitir frá Nýja Sjálandi. Talið er hugsanlegt, að Chamberlain gefi nánari skýrslu um herflutningana til Noregs í ræðu, sem hann flytur í neðri málstofu enska þingsins í dag, þó er það hvergi nærri víst, þar eð hern- aðarlegar ástæður geta vel orsakað það, að því verði í bili haldið leyndu hvar herliðið hefir verið sett á land. Tilkynningarnar um þa&, að Bandamenn hafí sett her ó land ví'ðs vegar á strönd Noregs, hafa vakið mikinn fögnuð meðal norsku þjóðarinnar. Héraðs- stjórnum og bæjarstjórnum svo •og embættismönnum öllum hefir verið fyrirskipað að veita land- gönguliðinu alla pá aðstoð, sem hægt er að láta í té, og taka meðal annars við þeim gjaldeyri, sterlingspundum og frönkum, sem það hefir yfir að ráða, þar sem timi vinnist ekki til þess að koma honum í norska mynt. Það er ekki dregin nein dul á það af hálfu Bandamanna, að aðstaða landgönguhersins hljóti að vera erfið til að byrja með, þar eð Þjóðvérjar hafí á sínu valdi endastöðvar aðaljárnbraut- þnna í Oslo, Bergen og Þránd- heimi, og auk þess eigi land- gönguliðið á hættu að verða fyrir stórkostlegum loftárásum. Lðtlausar loftðrásir Breta á Stmaier. Brezkar flugvélar eru þó stöð- ugt á sveimi yfir norsku strönd- inni og gera hverja loftárásina af annari á þá staði, sem Þjóð- verjar hafa á valdi sinu. Hrika’egastar eru loftárásirnar á flugstöðina við Stavanger, sem |er sú stærsta í Noregi, og hafa Bretar nú samtals gert sex loft- árásir á hana síðan Þjóðverjar gengu þar á land. Siðasta loftárásin var gerð í hriðarveðrl i gær, og tökst Bret- um að eyðileggja tvo þýzka flug- báta og valda miklum skemmd- úm á flugstöðinni sjálfri, þar á meðal á flugvélum Þjóðverja, sem þar voru saman komnar. Þjöðverjar segjast halda her- flutningum sínum til Noregs á- fram sjóleiðina, en í London er sagt, að tilraunir þeirra í þá átt hafi mistekist síðan tundurdufl- unum var lagt i Eystrasalt og Kattegat. Tvö þýzk herflutninga- skip hafi rekizt á tundurdufl undan Marstrand i gær og tveimur þýzfum ferf’utningaskip- um verið sökkt af brezkum kaf- bátum. Tiindordnfiin í Eysíra saiti byrja að verha. Líthauen frestar vlðshlfta- samningum við hjóðverja. LONDON í morgun. FO. Fregnirnar um tundurdufla- lagningar Brefia í Eystrasalti hafa hvarvetna vakið hina mestu at- hygli, ekki sízt í Eystrasaltslönd- unum, þar sem menn skilja vel, hverja erfiðleika tundurdufla- lagningarnar muni baka Þjóð- verjum. Samkomulagsumleitunum urn nýjan viðskiptasmning milli Lit- hauen og Þýzkalands hefir verið frestað. Þjððverjar lafa sett lepp- stjórn Qaislings i ðslo af! Ný leppstjórn sett á laggirnar, sem á að reyna að ná sambandi við konunginn. -------ii—------- FREGN frá London í morgun hermir, að Quislingstjórnin í Oslo hafi verið látin fara frá, þar eð fylgi hennar reyndist ékkert og Þjóðverjar töldu hana einskis virði fyrir sig lengur. Skýrði Quisling sjálfur frá því í útvarpinu í Oslo í gærkveldi, að hann hefði sagt af sér, og færði fram þá ástæðu fyrir því, að barátta hans fyrir norsku þjóðina hefði verið misskilin og van- þökkuð! í stað Quislings hefir þýzki sendiherrann í Oslo, Bráuer, skipaí nefnd manna þar í borginni til þess að fara með stjórn í þeim hér- uðum, sem Þjóðverjar liafa tekið, og er I. E. Christensen fylkis- stjóri í Akerhus og Oslofylki, áður fyrr þingmaður íhaldsflokksins í Noregi, talinn vera forseti hennar. Einnig er D. A. Seip, rektor háskólans í Osló sagður eiga sæti í nefndinni. og loks er því lýst yfir af Þjóðverjum, að nefndin hafi verið skipuð í samráði við O. P. Berg, forseta hæstaréttar í Oslo. og hafi hann tekið þátt í þessari nefndarskipun í því trausti, að Hákon Noregskonungur fallizt á hana. Þykir augljóst, aö hér sé um nýja tilraun af hálfu Þjöðverja .aö ræða, til þess aÖ komast í samband viÖ Noregskonung og reyna að koma inn einhverjum Frh. á 3. síðu. l.-maí-nefnd Fulltrúaráðsins. Munið nefndarfundinn í kvöld kl. 8,30 á skrifstofu Alþýðuflokks- íélagsins. Mætið stundvíslega! 111 ifsiiiisai- iornsson Ollum íslendingum í Kaupmanna- böfn líður vel, segir sendiherrann. —!------o--------- RÍKISSTJÓRNIN sendi síðastliðinn laugardag símskeyti til Sveins Björnssonar, sendiherra íslands í .Kaup- mannahöfn, tvær leiðir. Annað skeytið var sent yfir England og ætlazt til að það færi til Belgíu um Þýzkaland og til Danmerkur. Hin leiðin var sú, að sænski aðalræðismaðurinn hér var beðinn að síma sænska utanríkismálaráðuneytinu og biðja það fyrir skilaboð til sendiherrans. Bað ríkisstjórnin Svein Björnsson sendiherra að gera ráðstafanir til hjálpar Íslendingum í Danmörku og aðstoða þá til heimferðar, ef þeir óskuðu þess og möguleikar væru á að komast brott úr landinu. Svar kom í morgun frá sendi- herranum. Er skeyti hans sent frá Kaupmannahöfn í gær. Segist hann hafa tekið á móti skeyti ríkisstjórnarinnar — og myndi hann gera allt, sem mögulegt væri tii að verða við beiðninni. Skeyti sendiherrans lýkur með þessum orðum: „Öllum íslendingum, sem hér eru, líður vel.“ Bannið á bækknn hása- leifl» orðið að Iflgmn. Esb lelga á ©iaastaklIaagsBaerbergj-' aaan að saekkru eandanþegin* P RUMVARP félagsmála- ráðherra um húsaleigu- lög varð að lögum í gær. — Þessi lög eru mjög þýðingar- mikii fyrir Reykvíkinga, þar sem þau setja skorður við hækkun húsaleigu. Þó var sú breyting gerð á frumvarpinu, að einstaklingsherbergi eru undanþegin, og er það stór- galli á lögunum, en þettá settu Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn inn í frum- varpið í bróðurlegri sam- vinnu. En þetta gefur líka tæki- færi síðar til samanburðar á húsaleigu á íbúðum og ein- staklingsherbergjum. Þar sem gera má ráð fyrir, að fjöldi manna telji sér nauðsyn- legt að vita sem gleggst deili á þessum nýju lögum, er hér á eftir skýrt frá aðalatriðum þeirra, en lögin ganga í gildi, þegar ríkisstjórnin hefir staðfest þau. Óheimilt er áÖ hækka leigu eftir húsnæði frá því, sem gold- iÖ og umsamið var, þegar lög þessi öðlast gildi. Þó er heimilt að hækka eftir mati leigu eftir húsnæði sökum aukins viðhalds- kostnaðar, eldsneytis, sem inni- falið er i leigunni, vaxta- og skattahækkana af fasteignum og annars þess háttar, svo og hús- næði, sem af sérstökum ástæðum hefir verið leigt lægra en sam- bærilegt húsnæbi á . þeim stað (kaupstað, kauptúni eða sveit). Verði hækkun metin á leigu, kemur hún til framkvæmda 14. maí eða 1. október. Lö.g þessi taka ekki til leigu á einstökum herbergjum, sem leigu- taki eða húseigandi leigir ein- hleypum út frá íbúð sinni. Leigusala er óheimilt að segja upp leigusamningum um hús- næði, nema hann þurfi á því að halda fyrir sjálfan sig eða vanda- menn sína. Þó heldur leigusali óskertum rétti sínum til þess að slíta leigumála vegna vanskila á Frh. á 2. síðu. RAmenfa stððvar Atfintnino á oiín og hveiti. LONDON í morgun. FÚ. RÚMENAR hafa bann- að útflutning á olíu um stundarsakir og safna nú olíubirgðum á alla hern aðarlega mikilvæga staði. Ennfremur hefir verið bannaður útflutningur á hveiti, nema eftir samn- ingum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.