Alþýðublaðið - 01.05.1940, Síða 1

Alþýðublaðið - 01.05.1940, Síða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR. MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1940. 99. TÖLUBLAÐ Sýnnm bræðrapjóðunnm á Norðnrlðnd- nm samúð okkar og vlrðingn I dag. --4--- Mætum öll við Iðnó kl. 1,30 og tökum pátt í hópgöngunni og útifundinum í Bankastræti. Hátíðahöldin fara fram und- ir forustu Fulltrúaráðs verka- lýðsfélaganna og verður fyrir- komulag þeirra þannig: KI. 1,30 safnast fólk saman við alþýðuhúsið Iðnó (ekki við Al- þýðuhúsið við Hverfisgötu eins ■og í fyrra og hitteðfyrra). Þar fala Guðjón B. Baldvinsson f@r- maður 1. maí nefndar Fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna og^Sig- urður Einarsson dósent. KI. 2 hefst hópganga frá Iðnó og verður farin stutt lejð um Vonarstræti, Suðurgötu, Túngötu, Ægisgötu, Vesturgötu, Hafnar- stræti, Hverfisgötu og Ingólfs- stræti inn í Bankastr. Þar flytja ræður Stefán Jóh. Stefánsson fé- lagsmálaráðherra, forseti Alþýðu- sambands fslands, Sigurjón Á. Ólafsson, formaður Sjómannafé- íágs Reykjavíkur, Soffía Ingvars- dóttir, bæjarfulltrúi, Stefán Pét- ursson, ritstjóri og HaraldurGuð- mundsson, varaforseti Alþýðu- sambands fslands. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur í göngunni og milli ræðanna alþjóðasöng jafnaðarmanna, þjóðsöngva Norð urlanda og ýms önnur lög. — f göngunni verður borinn í fylk- ingarbr'ósti fá”>i A]] ýðusambands ins, íslenzki fáninn og þjóðfán- ar allra hinna Norðurlandanna. 1, hópgöngunni og hátíðahöld- urum taka þátt danskir og sænsk ir sjómenn af þeim skipum, sem hingað hafa leitað og nú liggja hér. \ f kvöld verða skemmtanir í al- þýðuhúsinu Iðnó og Alþýðuhúsi Reykjavíkur. Þar tala Jóhanna Egilsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Mjög vel hefir verið vandað til þessara skemmtana og er flokks- fólk hvatt til að sækja þær. (Há- tíðahöldin eru auglýst nánar á 2. síðu hins tbl. blaðsins í dag). Gætið vel að því að merki dagsins er: aliir Norður- landafánarnir með rauðri slaufu. Kaupið aðeins það merki. 1. naf blaðið. 1. maí blaðið er að þessu sinni Árroði, blað Félags ungra jafn- aðarmanna. Er það prýðilegt að öllum frágangi. Á forsíðu er luynd af ungum verkamanni með haka og rauðan fána með þrem- ur örfum. Forsætisráðherrar Danmerkur Noregs og Svíþjóðar í dag. DAG fylkir aiþýða Reykjavíkur liði undir hinum al- þjóðlega fána verkalýðshreyfingarinnar og þjóðfánum allra Norðurlanda til þess að bera fram kröfur sínar um bætt kjör og votta bræðraþjóðunum á Norðurlöndum inni- íega samúð á alvarlegustu tímunum, sem yfir þær hafa gengið. Það er náið samband milli baráttu verkalýðsins fyrir bættum kjörum og hinnar heitu samúðar hans með bræðra- þjóðunum á Norðurlöndum, því að hvergi hefir verkalýðs- hreyfingin borið glæsilegri ávöxt en hjá þeim. Sú barátta, sem þær heyja í dag gegn utanaðkomandi ofbeldi, er því ekki aðeins barátta fyrir frelsi þeirra og sjálfstæði, heldur og fyrir verkalýðshreyfingunni og öllu því, sem hún hefir fært alþýðu Norðurlanda. Um leið og við hyllum bræðraþjóðir okkar á Norður- löndum á þessari stund hættunnar, látum við því í Ijós tryggð okkar við hugsjónir verkalýðshreyfingarinnar sjálfrar, bæði hér á landi og annars staðar. Látum engan vanta í fylkinguna í dag. Fjórir forvígismenn verkalýðs- hreyfingarinnar á Norðurlöndum August Lindberg, forseti sænska Alþýðusamb. Váinö Tanner, forseti finnska Alþýðuflokksins Thorvald Stauning. Hedtoft-Hansen, forseti danska Alþýðuflokksins. Oscar Torp, forseti norska Alþýðuflokksins. Johan Nygaardsvold. Per Albin Hansson. /

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.