Alþýðublaðið - 03.05.1940, Side 1
Hópganga fulltrúaráös verkalýðsfélaganna neðst á Laugavegi,
Átarlfamikíl hátíðataiiid verka~
lýðsins hér í Reykjavík 1. anaí.
----«----
IMAÍ bar þess greinilega vott, að eftir sundrungu und-
• angenginna ára eru alþýðusamtökin hér í Reykjavík
aftur að styrkjast. Þátttakan í hátíðahöldum Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna var mjög góð, var þeim og fyrir komið
og stjórnað af myndarskap og festu af fjölmennri nefnd úr
Fulltrúaráðinu, sem í voru fulltrúar frá mörgum stéttar-
félögum.
Um morguninn var drungi í
lofti og rigndi nokkuð þá um
morguninn, en upp úr hádeg-
inu stytti upp og hélst svo
þurrt veður næstum alveg, —
nema hvað eitt sinn gerði dá-
litla dembu.
Það var líka margt fólk á
götunum allan daginn frá því
um hádegi; miðbærinn var
svartur af fólki.
Alþýðuflokksmenn söfnuðust
saman við Iðnó kl. IV2 og var
þar skipað í gönguna. Þarna
setti formaður 1. maí-nefndar-
innar, Guðjón B. Baldvinsson,
hátíðahöldin með stuttri ræðu,
en síðan talaði Sigurður Einars-
son — og mæltist vel að vanda.
Gangan var þannig skipulögð,
að fremst var borinn fáni Al-
þýðusambandsins, þá kom ís-
lenzki fáninn og síðan samhliða
fánar Norðurlandaþjóðanna:
Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar,
Finnlands og Færeyja. Klukk-
an rúmlega 2 var lagt af stað
frá Iðnó og haldið vestur Von-
arstræti, um Suðurgötu, Tún-
götu, inn í Aðalstræti, Hafnar-
stræti, Hverfisgötu, gangan
staðnæmdist fyrir framan
danska sendiherrabústaðinn og
var þar leikinn danski þjóð-
söngurinn „Det er et yndigt
Land“ og hrópað: „Lengi lifi
Danmörk.11 Sendiherrahjónin
stóðu á svölum hússins meðan
þetta fór fram og hrópaði
sendiherrann: „Lengi lifi ís-
land.“ Var nú haldið áfram
inn Hverfisgötu að bústað
norska sendiherrans. Þar var
leikinn norski þjóðsöngurinn
— „Ja, vi elsker dette Landet,
som det stiger frem,“ en síðan
var haldið upp Vatnsstíg, um
Laugaveg og í Bankastræti.
Var þar staðnæmst neðst, -en
ræðustól hafði verið komið fyr-
ir inni á túninu, við hlið gamla-
bakarísins, gegnt Lækjargötu,
þarna voru og nokkrir hátalar-
ar. Félagar úr Félagi ungra
jafnaðarmanna, sem gengu í
göngunni framarlega, hlið við
hlið og voru í Alþýðuflokks-
skyrtum, mynduðu fánaborg
fram undan ræðupallinum, auk
þess stóðu þar aðrir fánaberar
með fána sína, þar á meðal
Frh. á 4. siðu.
Stefán Jóh. Stefánsson talar á útifundinum við Bankastræti.
Það var flutt frá Dombás niður í
Romsdalsfjörð og um borð i her
flutningaskip Bandamanna þar.
-----4----
Jámtíraiitlii tii PráudlieÍBiBS ®f|
ALVARLEGUSTU FRÉTTIRNAR, sem hingað til hafa
borizt frá styrjöldinni í Noregi, bárust hingað í gær-
kveldi. Þær voru á þá leið, að það væri nú opinberlega
viðurkennt í London, að Bandamenn hefðu orðið að hörfa
með landgöngulið sitt úr Guðbrandsdal og við járnbraut-
ina milli Dombás og Stören, niður að Romsdalsfirði, þar
sem herflutningaskip Bandamanna hafi tekið við því.
Þar með hafa Bandamenn gefið upp þá fyrirætlun, að
verja Þjóðverjum járnbrautina til Þrándheims að sunnan
og Þjóðverjar að því er virðist náð Noregi sunnan Þránd-
heims alveg á sitt vald.
Þjóðverjar segjast hafa komizt með lið sitt niður að
Ándalsnesi við Romsdalsfjörð kl. 3 í gær, jafnframt til-
kynna þeir að lið þeirra, sem sótti upp með Bergensbraut-
inni bæði frá Bergen og Oslo, hafi nú náð saman og hafi
það því alla járnbrautina á sínu valdi.
Ókunnugt er um fyrirætlan-
ir Bandamanna í Noregi eftir
þetta, en líklegt þykir, að þeir
setji liðið, sem farið var með
frá Romsdalsfirði, á land norð-
ar, og þá sennilega fyrst og
fremst við Namsos, fyrir norð-
an Þrándheim. Þau orð, sem
Chamberlain forsætisráðherra
Breta viðhafði í ræðu í gær um
styrjöldina í Noregi, að Bandá-
menn hefðu með brottflutningi
liðsins frá Ándalsnesi hætt við
að reyna að taka Þrándheim að
sunnan, þykja að minnsta kosti
benda í þá átt.
Engar fregnir hafa enn bor-
izt um það lið, sem Bandamenn
settu nýlega á land við Norð-
fjörð um 100 km. sunnan við
Romsdalsf jörð.
Af hálfu Bandamanna er bent
á það, áð slgiiir Þjóðverja í Suð-
Ur-Noregi hafi ekki þá þýðingu,
sem virðast mætti í fljótu bragði.
Aðaltakmarkið með árás þeirra á
Noreg hefði verið það, að tryggja
Frh. á 4. síöu.
Sjómenn veita enn priggja
sélarhringa frest til njrra
—- - -
samkomitagstilranna.
—....■» ....
Ríkisstjórnin skipar sáttanefnd
FULLTRÚAR stéttarfélaga sjómanna ákváðu 1. maí að
veita enn þriggja sólarhringa frest til nýrra samkomu-
lagstilrauna í deilunni um áhættuþóknunina.
Var það gert með tilliti til þess, að ríkisstjórnin skip-
aði þann dag tvo menn í sáttanefnd til þess að reyna, ásamt
sáttasemjara ríkisins, að koma á samkomulagi milli aðil-
anna. Ríkisstjórnin skipaði þá Emil Jónsson, vitamálastjóra
og Pétur Magnússon hæstaréttarmálafærslumann til að hafa
þetta starf með höndum.
Bæði Tíminn og Morgunblaðið
hafa ráðist hatramlega á sjómenn
undanfarna daga og hirt villandi
tölur til að reyna að sýna fram
á, að sjómenn bæru fram ósann-
gjarnar kröfur. Það skal tekið
fram, að með bráðabirgðasam-
komulaginu, sem gert var 7. sept.
var því lofað, að áhættuþóknun
Frh. á 4. síðu.