Alþýðublaðið - 03.05.1940, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.05.1940, Blaðsíða 1
 Hópganga fulltrúaráös verkalýðsfélaganna neðst á Laugavegi, Átarlfamikíl hátíðataiiid verka~ lýðsins hér í Reykjavík 1. anaí. ----«---- IMAÍ bar þess greinilega vott, að eftir sundrungu und- • angenginna ára eru alþýðusamtökin hér í Reykjavík aftur að styrkjast. Þátttakan í hátíðahöldum Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna var mjög góð, var þeim og fyrir komið og stjórnað af myndarskap og festu af fjölmennri nefnd úr Fulltrúaráðinu, sem í voru fulltrúar frá mörgum stéttar- félögum. Um morguninn var drungi í lofti og rigndi nokkuð þá um morguninn, en upp úr hádeg- inu stytti upp og hélst svo þurrt veður næstum alveg, — nema hvað eitt sinn gerði dá- litla dembu. Það var líka margt fólk á götunum allan daginn frá því um hádegi; miðbærinn var svartur af fólki. Alþýðuflokksmenn söfnuðust saman við Iðnó kl. IV2 og var þar skipað í gönguna. Þarna setti formaður 1. maí-nefndar- innar, Guðjón B. Baldvinsson, hátíðahöldin með stuttri ræðu, en síðan talaði Sigurður Einars- son — og mæltist vel að vanda. Gangan var þannig skipulögð, að fremst var borinn fáni Al- þýðusambandsins, þá kom ís- lenzki fáninn og síðan samhliða fánar Norðurlandaþjóðanna: Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Færeyja. Klukk- an rúmlega 2 var lagt af stað frá Iðnó og haldið vestur Von- arstræti, um Suðurgötu, Tún- götu, inn í Aðalstræti, Hafnar- stræti, Hverfisgötu, gangan staðnæmdist fyrir framan danska sendiherrabústaðinn og var þar leikinn danski þjóð- söngurinn „Det er et yndigt Land“ og hrópað: „Lengi lifi Danmörk.11 Sendiherrahjónin stóðu á svölum hússins meðan þetta fór fram og hrópaði sendiherrann: „Lengi lifi ís- land.“ Var nú haldið áfram inn Hverfisgötu að bústað norska sendiherrans. Þar var leikinn norski þjóðsöngurinn — „Ja, vi elsker dette Landet, som det stiger frem,“ en síðan var haldið upp Vatnsstíg, um Laugaveg og í Bankastræti. Var þar staðnæmst neðst, -en ræðustól hafði verið komið fyr- ir inni á túninu, við hlið gamla- bakarísins, gegnt Lækjargötu, þarna voru og nokkrir hátalar- ar. Félagar úr Félagi ungra jafnaðarmanna, sem gengu í göngunni framarlega, hlið við hlið og voru í Alþýðuflokks- skyrtum, mynduðu fánaborg fram undan ræðupallinum, auk þess stóðu þar aðrir fánaberar með fána sína, þar á meðal Frh. á 4. siðu. Stefán Jóh. Stefánsson talar á útifundinum við Bankastræti. Það var flutt frá Dombás niður í Romsdalsfjörð og um borð i her flutningaskip Bandamanna þar. -----4---- Jámtíraiitlii tii PráudlieÍBiBS ®f| ALVARLEGUSTU FRÉTTIRNAR, sem hingað til hafa borizt frá styrjöldinni í Noregi, bárust hingað í gær- kveldi. Þær voru á þá leið, að það væri nú opinberlega viðurkennt í London, að Bandamenn hefðu orðið að hörfa með landgöngulið sitt úr Guðbrandsdal og við járnbraut- ina milli Dombás og Stören, niður að Romsdalsfirði, þar sem herflutningaskip Bandamanna hafi tekið við því. Þar með hafa Bandamenn gefið upp þá fyrirætlun, að verja Þjóðverjum járnbrautina til Þrándheims að sunnan og Þjóðverjar að því er virðist náð Noregi sunnan Þránd- heims alveg á sitt vald. Þjóðverjar segjast hafa komizt með lið sitt niður að Ándalsnesi við Romsdalsfjörð kl. 3 í gær, jafnframt til- kynna þeir að lið þeirra, sem sótti upp með Bergensbraut- inni bæði frá Bergen og Oslo, hafi nú náð saman og hafi það því alla járnbrautina á sínu valdi. Ókunnugt er um fyrirætlan- ir Bandamanna í Noregi eftir þetta, en líklegt þykir, að þeir setji liðið, sem farið var með frá Romsdalsfirði, á land norð- ar, og þá sennilega fyrst og fremst við Namsos, fyrir norð- an Þrándheim. Þau orð, sem Chamberlain forsætisráðherra Breta viðhafði í ræðu í gær um styrjöldina í Noregi, að Bandá- menn hefðu með brottflutningi liðsins frá Ándalsnesi hætt við að reyna að taka Þrándheim að sunnan, þykja að minnsta kosti benda í þá átt. Engar fregnir hafa enn bor- izt um það lið, sem Bandamenn settu nýlega á land við Norð- fjörð um 100 km. sunnan við Romsdalsf jörð. Af hálfu Bandamanna er bent á það, áð slgiiir Þjóðverja í Suð- Ur-Noregi hafi ekki þá þýðingu, sem virðast mætti í fljótu bragði. Aðaltakmarkið með árás þeirra á Noreg hefði verið það, að tryggja Frh. á 4. síöu. Sjómenn veita enn priggja sélarhringa frest til njrra —- - - samkomitagstilranna. —....■» .... Ríkisstjórnin skipar sáttanefnd FULLTRÚAR stéttarfélaga sjómanna ákváðu 1. maí að veita enn þriggja sólarhringa frest til nýrra samkomu- lagstilrauna í deilunni um áhættuþóknunina. Var það gert með tilliti til þess, að ríkisstjórnin skip- aði þann dag tvo menn í sáttanefnd til þess að reyna, ásamt sáttasemjara ríkisins, að koma á samkomulagi milli aðil- anna. Ríkisstjórnin skipaði þá Emil Jónsson, vitamálastjóra og Pétur Magnússon hæstaréttarmálafærslumann til að hafa þetta starf með höndum. Bæði Tíminn og Morgunblaðið hafa ráðist hatramlega á sjómenn undanfarna daga og hirt villandi tölur til að reyna að sýna fram á, að sjómenn bæru fram ósann- gjarnar kröfur. Það skal tekið fram, að með bráðabirgðasam- komulaginu, sem gert var 7. sept. var því lofað, að áhættuþóknun Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.