Alþýðublaðið - 04.05.1940, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 04.05.1940, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1940. 102. TÖLUBLAÐ Bandamenn Siverfa einnig með her sinn frá Namsos. ---,+- En halda áfram að styrkja aðstððu sina við Narvík í Norður-Noregi. Lokafrestnr sjóroanna fit- raminn kl. 12 i kvðld. ■..........-.♦--— Miðlunartillaga frá sátta- nefnd á sfðnstu stundu? 17. jiini: Mibil bátíðahðld um allt land. Stérfcðstleg skrúðganga iÐróttamanna hér i Rvik. jO' ÁTÍÐAHÖLDIN 17. júní verða að þessu sinni með nokkuð öðrum hætti en áður. Pað verður lagt enn meira kapp á að hafa meiri þ jóðhátíð- arbrag á hátíðahöldum dagsins en áður. íþróttamenn munu hafa stjórn á deginum, og hefir þrem- ur íþróttafélögum: Ármanni, I- þróttafél. Reykjavíkur og Knatt- spyrnufélagi Reykjavikur, verið falið af í. S. t. að skipuleggja og stjórna hátíðahöldunum. Hafa þessi félög síðan skipað hefnd í þessum- tilgangi og eru í henni: Jens Guðbjörnsson, Ólaf- ur Porsteinsson, Torfi Þórðarson, Óskar Á. Gíslason, Erlendur Pét- ursson og Benedikt Jakobsson. Nefndin hefir þegar ákveðið að hafa fjársöfnun um land allt til eflingar íþróttalífsins, og verða seld merki í því augnamiði. Þá er ákveðið, að þennan dag fari fram störkostleg skrúðganga íþróttamanna í íþróttabúningum. AlmenDor kirkfuadDr í Reykjavík. UNDIRBÚNINGSNEFND hinna almennu kirkjufunda á ts- landi hefir ákveðið, að á þessu sumri verði haldinn í Reykjavík almennur kirkjufundur fyrir land allt. Hefst fundurinn þriðjiu- daginn 2. júlí n. k. meÖ guðs- þjónustu í dómkirkjunni kl. 11 f. h., og stendur hann allan þann 'dag og þann næsta (miðvikudag) og væntanlega fram á fimmtudag 4. júlí. Á fundinum verða flutt erindi, og fara fram umræður um fyrirliggjándi mál. Meðal annars verða erindi flutt um: „Hlutverk kirkjunnar á ófriðar- tímum“, „tslenzkt kirkjuþing“, „Frá ferð til lándsins helga“ o. fl. Til þessa kirkjufundar, eins og hinna fyrri, verða boðaðir full- trúar frá öllum söfnuðum lands- ins, auk klerka, og verða send með næstu póstum bréf um þetta til hlutaðeigenda. — Er heitið Frh. á 4. síðu. AÐ var tilkynnt opinberlega í London í gærkveldi, að -*• Bandamenn hefðu nú einnig flutt landgöngulið sitt burt frá Namsos, norðan við Þrándheim. Ekkert var sagt um það, hvert liðið yrði flutt, en vitað er að Bandamenn hafa eftir sem áður lið við Narvik, hina þýðingarmiklu útflutningshöfn norðursænska málmsins í Norður-Noregi, og er talið víst, að þeir muni halda áfram að styrkja að- stöðu sína þar með auknum herflutningum þangað. í fregnum frá London er getið um tilraun hins inni- lokaða, þýzka landgönguliðs í Narvik til þess að rjúfa her- kví Bandamannahersins, en henni var hrundið, Þjóðverjar misstu allmargt manna og Bandamenn tóku nokkra fanga. Ekkert vopnahlé í Noregi. Það er nú orðið kunnugt, að* Norðmenn létu í samráði við Bandamenn flytja að minnsta kosti nokkurn hiuta liðs síns sunnan Þrándheims á skip í Ándalsnesi á miðvikudaginn, og er talið víst, að það hafi ver- ið gert í þeim tilgangi, að flytja það til Norður-Noregs, fyrst og frémst til Narvíkur, en ef til vill einnig til Bodö. Eitthvað af hersveitum Norðmanna verst þó enn uppi af Eystridal og víðar austur undir landamærum Svíþjóðar. Norskar hersveitir eru einnig enn norðan við Þrándheim, en þær eru sagðar hafa tekið sér nýjar bækistöðvar og sænskar fregnir um það, að yfirhérs- höfðingi þeirra, Getz offursti, hafi beðið Þjóðverja um vopna- hlé, eru bornar til baka í Lond- Howard Smith seodi- herra Breta kér. Vir senðiherra i Kbðfn er innrúsin var Afmælismðt Saodfé- I 'REZKA utanríkismálaráðu- neytið tilkynnti utanríkis- málaráðuneytinu hér með sím- iskeyti í g'ærkveldi, að óskað væri eftir viðurkenningu á Mr. Charles Frh. á 4. síðu. O ÁTTANEFNDIN, sem ríkisstjórnin skipaði til að reyna ^ að koma á samkomulagi milli sjómanna og útgerðar- manna, þeir dr, Björn Þórðarson, Emil Jónsson og Pétur Magnússon, vann sleitulaust allan síðastliðinn sólarhring að því marki. En sýnilegur árangur hefir enn ekki orðið af starfi hennar, og í kvöld kl. 12 er lokafrestur stéttarfé- laga sjómanna runninn út. Sáttanefndin kallaði í gær- ♦ ‘ —-------------- morgun kl. 10 fulltrúa útgerð- armanna á sinn fund og hafði viðræður við þá stanzlaust fram á kvöld. Kl. 8% í gærkveldi kallaði nefndin fulltrúa sjómanna á fund sinn og stóðu viðræðurnar til kl. 4 V? í morgun. Kröfur sjómanna voru ekki mikið ræddar í einstökum at- riðum, heldur rætt um málið í heild. Engin ákveðin tilboð lágu fyrir frá nefndinni eða út- gerðarmönnum. Nefndin mun að líkindum gera úrslitatilraun í dag og er líklegt að hún muni síðdegis í dag leggja fram einhverjar miðlunartiilögur. Nokkur skip hafa komið inn í nótt og í morgun. Þau stöðvast á mið- nætti, ef ekki verður komið á samkomulag, nema að þau geti komist úr höfn fyrir kl. 12. TILEFNI af 13 ára afmæli sínu heldur Sundí'élagið Ægir mjög fjölbreytt sundmót, alls 13 mismunandi sund, í Sundhöllinni mánudaginn 6. maí. Hefir félagið boðið beztu sund- mönnum úr Ármanni og K. R. þátttöku, og keppa þeir við Æg- ismenn. . Otlit er fyrir afarspennandi keppni, sérstaklega í 200 metra bringusundi, þar sem þeir Ingi Sveinsson úr Ægi og Sigurður Jönsson úr K. R. reyna með sér. I boðsundi, 4x50 metra, nægir sveit Ægis ekki minna en úrval úr K. R. og Ármanni, og telja margir, áð nú muni þeir bíða Frh. á 4. síðu. Er bungamlðia stríðslns að færast snður f Mlðiarðarhaf? Brezk tlotadelld dr Norðnrsjó kom til Alexandriu á . Egipfaiamdi i fyrradag. FLEIRI OG FLEIRÍ FRÉTTIR berast nú, sem benda í þá átt, að þungamiðja styrjaldarinnar sé að færast suð- ur í Miðjarðarhaf og þá sennilega um leið suður á Balkan- skaga. Það var tilkynnt í London í fyrradag, að brezk flota- deild, sem send hefði verið úr Norðursjó, væri komin til Al- exandríu á Egiptalandi. Og í gær var fyrirskipað að öll ljós skyldu framvegis verða slökkt eða byrgð á nóttunni á eyj- unni Malta, þar sem Miðjarðarhafsfloti Breta hefir eina af aðalbækistöðvum sínum. Á Egiptalandi hefir öllum heim- ferðarleyfum í hernum verið frestað fyrst um sinn, eins og við árás væri búizt af hálfu ítalska hersins í Libyu, við vest- urlandamæri landsins þá og þegar. on. Því var einnig neitað opin- berlega í Berlín í gær, aS nokkrar samningaumleitanir færu fram um vopnahlé í Nor- egi. ' Norska stjérnin kyr i Noregi. Flugufregnir hafa komizt á loft um það, að Hákon Noregs- konungur og norska stjórnin sé flúin frá Noregi, og er í sumum þeirra sagt, að stjórnin hafi flú- ið til Svíþjóðar, en í öðrum, að hún hafi farið með brezku her- skipi til Englands. Norska sendisveitin í Stokk- hólmi tilkynnti hins vegar í gærkv., að fyrir slíkum fréttum væri enginn fótur. Bæði Hákon konungur og ríkisstjórnin væru enn í Noregi, og hefði engar fyrirætlanir um það, að hverfa úr landi. Italir hafa mlkinn vii- húnai á Dodekaneseyjnm Af stríðsundirbúningi Itala, sem talinn er vera orsök þessara var- úðarráðstafana Bandamianna í og við Miðjarðarhaf, hefir !þó lítið frétzt síðasta sólarhring annaði en það, sem sagt er í fregnum frá Aþenu, að ítalir safni nú miklu liði á Dodekanes- eyjum úti fyrir strönd Litlu- Asíu (Tyrklands), og hafi sett um 50 þúsund manna her á land þar, auk þess sem mörg ítölsk herskip séu komin þangað, þar á meðal 15 kafbátar. Atvinnnlejfsisskrén- ingiD. O KRÁNING atvinnulausra manna stendur yfir og fer hun fram S Góðtemplarahúsinu. Síðasti skráningardagur er á mánudag. Það er sjálfsagt fyrir atvinnulaust fólk að skrá sig. Við þessa skráningu verða atvinnu- framkvæmdir meðal annars mið- vaðat' í sumar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.