Alþýðublaðið - 06.05.1940, Page 1

Alþýðublaðið - 06.05.1940, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON UTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1940. 103. TÖLUBLAÐ Islendingar á Norð nrfðsdnn heim til RIKISSTJÓRNIN mun hafa fengið tilkynn- ingu eða vitneskju um það, að möguleikar séu á því, að íslendingar, sem dvelja nú á Norðurlöndum, geti komizt til hafnar I Norður- Finnlandi og þaðan heim, ef hægt sé að fá skip til að taka þá þar. Ríkisstjórnin hefir nú til athugunar, hvort hægt muni vera að fá skip til þess að sækja landana. Drengjahlaup Hafn- arfjarðar hðð i gær. T GÆR fór fram drengjahlaup Hafnarfjarðar. Vegalengdin var 2V2 km. Fyrstur varð að marki Gunnar Bjarnason á 8 mín. og' 13 sek. Annar varð Guðm. Marteinsson á 8 mín. 15 sek. Priðji varð Svein- björn Pálmasön á 9 mín. 18 sek. Fjórði varð Ríkharð Kristjáns- son á 10 mín. Er þetta í 3. sinn, sem hlaup þetta er háð að tilhlutun íþrótta- ráð.s Hafnarfjarðar. Undanfarin tvö ár hefir Haraldur Sigurjóns- son unnið hlaupið, en var nú orð- inn of gamall. Fimleikafélag Hafnarfjarðar sá um hlaupið. Halvdan Koht i' London til að ræða við brezkn stiórnlna Flutfl brennandi ávarp tll norsku pféð- arinnar í brezka útvarpinu siðd. 1 UALVDAN KOHT prófessor, utanríkismálaráðherra ■*■ ■“■ norsku stjórnarinnar, og Ljungberg landvarnamála- ráðherra komu til London í gær til þess að ráðgast við brezku stjórnina um áframhald stríðsins í Noregi. í fylgd með þeim var brezki sendiherrann í Oslo. Frá London er tilkynnt að Koht og Ljungberg muni fara til Parísar til viðtals við frönsku stjórnina. En þaðan halda þeir aftur heim til Noregs til þess að taka þátt í frelsisstríði norsku þjóðarinnar gegn innrásarher Þjóðverja. Prófessor Koht notaði tækifærið í London í gær til þess að ávarpa þjóð sína í brezka útvarpinu. Avarpið var þungur áfellisdómur yfir árás Þjóðverja á Noreg og brenn- andi hvöt til norsku þjóðarinnar um að verja frelsi sitt. Fer ávarpið hér á eftir: „Landar mínir hvarvetna í Nor- (egi. Ég tala til ykkar frá London, þar sem ég mun dvelja í nokkra daga, til þess að ræ'ða við stjórn- arvöld Bretlands baráttuna gegn ofbeldismönnunum, sem ráðizt hafa á land vort. Síðan mun ég hverfa aftur heim til Noregs, og taka upp störf mín. Mx kalla pað lietludáðlr Ég hefi séð þýzkar sprengju- flugvélar þjóta yfir friðsamlegar byggðir og borgir, varpa niður eldsprengjum og skjóta úr vél- byssum á íbúana. Ég hefi séð hervirki þau, er Þjóðverjar hafa (unnið í Guðbrandsdai, séð bæinn Molde standa í björtu báli eftir sprengjuregn þýzkra flugvéla. Ég hefi séð grátandi konur og börn flýja undan hinum þýzku flug- vélum út í skóga eða niður í kjallara. Ég hefi sjálfur dögum saman orðið að hafast við úti á víðavangi í snjó og kulda á með- an flugmennirnir létu kúlnahríð- ina dynja umhverfis okkur. Á þýzku, eru þetta kallaðar lietjudáðir. Það, sem Þjóðverj- ar hafa ekki árætt að fremja hæ Ar250° o ■pp f 300 01 o Lifrarhlutur sjómanna hækkar allt ---—t---- En farmannadeilan er ennpá að 30° éleyst. SAMKOMULAG í sjómannadeilunni náðist í fyrrinótt um miðnætti og voru undirritaðir nýir samningar milli stéttarfélaga sjómanna og togaraútgerðarmanna. Hinsveg- ar hafa samningar enn ekki verið undirritaðir milli eigenda verzlunarskipanna og stéttarfélaganna. Samningurinn milli stétt- j arfélaganna og togaraeig- ! enda er birtur í heild hér í | blaðinu í dag, ásamt yfirlýs- ! ingu frá báðum aðilum, en . til frekari skýringar á samn- j ingnum skal þetta tekið ; fram: ! Breytingarnar, sem feng- ist hafa á kjörum sjómanna, eru þessar: 1) Áhættuþóknunin hækkar úr 250% upp í 300% af 232 kr. á skipum, sem veiða og 2) 3) sigla, og af 270 kr. á skip- um, sem kaupa aflann eða flytja út fyrir aðra. Áhættu- þóknunin hækkar því úr kr. 19,32 á dag upp í kr. 23,19 fyrir veiðiskipin, en hin úr kr. 22,50 upp í 27 krónur (lifrarhlutur hjá þeim síð- artöldu er enginn). Nú er skylt að hafa 19 manna áhöfn á ísfisksveið- um (áður 17). Nú eru fæðispeningar einn- ig greiddir, auk fastakaups- 4) 5) ins fyrir þá, sem eru í landi meðan skipið siglir út, en þeir eru kr. 2,50 á dag auk dýrtíðaruppbótar, sem frá 1. apríl er því alls kr. 2,90, en þetta verkar aftur fyrir sig frá 1. marz og verða fæð- ispeningar því greiddir frá 1. marz. (Engir fæðispening- ar voru greiddir áður.) Lifrarhlut skal ekki skipta nema í 13 staði, live margir sem eru á skipinu. Ber út- gérðarmönnum að borga þeim, sem umfram eru, jafnháa upphæð og lifrar- hlutur hvers hinna 13 manna nemur. Sjómenn fengu kröfu sína Frh. á 4. sföu. Halvdan Koht. gagnvarí Stóra-Bretlandi og Frakklandi, það vinna þeir nú á hinni varnarlausu norsku þjóð, sem óskaði einskis frekar, en að vera hlutlaus. Eins og villimenn herja þeir á land vort, brenna byggðir og bæi. Hina norrænu og germönsku, norsku þjóð, sem ekki hefir viljað taka við kenningum naz- ismans, ætla þeir nú að gera að þrælum sínum. Ég minnist þess, að einn af stjórnmálaerindrekum vorum erlendis sagði við mig með beizku brosi, að ef til þess skyldi koma, að Norðmemi yrðu að taka af- stöðu með einhverju stórveldanna, þá myndi að líkindum verða bezt þð ganga í lið með Þýzkalandi, því að England og Frakkland myndu reynast miskunsamari féndur. Hann vissi hvað Jhann var að segja, hann Vissi að minnsta kosti að Þýzkaland myndi reynast miskunarlaUs ó- vinur. ' Þjóðverjar vildu með ofbeldi neyða okkur út í styrjöldina með sér. Þeir vildu fá tilefni til að fara með her inn í land- ið. 1 orðsendingu þeirri, sem sendiherra Þjóðverja í Oslo af- henti norsku stjórninni þann 9. apríl, klukkustundum eftir að þýzka stjórnin hafði ráðizt inn í Noreg, var sagt, að þýzka síjórnin hefði ekki í hyggju að hagnýta sér Noreg sem bæki- stöð styrjaldaraðgerða gegn Englandi og Frakklandi. En enginn, sem les þær 13 kröfur, á hendur Noregi, getur verið í vafa um það, a?j tilgangur Þjóðverja var einmitt sá, að fá þarna bækistöð fyrir hernað sinn á hendur Vesturveldun- um. Þess var krafizt, að þýzki her- inn fengi viðnámslaust að taka í sínar hendur allar hernaðarlega þýðingarmiklar stöðvar, virki og ÍNorskn konmAnist jamiF f pjénnstu inn irásarliersiis |$zka |hh AÐ var upplýst 5 ^ Lundúnaútvarpinu á laugardagskvöldið, að hin þýzku nazistayfirvöld í Os- Io létu blað kommúnista þar í borginni koma út eins og áður og virtust líta alla starfsemi þeirra vinsamleg- um augum. Er gefið í skyn, að kom- múnistum sé ætlað það hlut- verk af innrásarhernum, að ; „endurskipulegigia“ norsku \ verkalýðshreyfinguna, með J öðmm orðum að sundra ! henni og sveigja til hlýðni ; við hin nazistisku yfirvöld. : slíkt. Noregur átti að verða hjól í hinni þýzku stríðsvél. Járnbraut- ir, gufuskipasamgöngur, póstur sími átti að leggjast undir yf- irstjórn Þjóðverja. Hvorki bréf né símskeyti skyldi mega senda frá Noregi til nokkurs ríkis í vestri, hvort sem það væri hlut- laust eða þátttakandi í styrjöld. Er hægt að hugsa sér miður hlutlausa afstöðu Noregs en þessa, ef gengið hefði verið að framangreinum kröfum? Er hægt að efast um, að Bretland og Frakkland hefði skoðað okk- ur se.m óvini sína? Nei, þetta hefði verið stríðsyfirlýsing áhend ur Vesturveldunum. Þjóðverjav hafa sagt, að yfirlýsingar Vest- urveldanna um vináttu og samúð með smáríkjunum væru hræsnin ein. En er hægt að hugsa sér meiri hræsni en þá, sem fram Jkemur í þessu kröfuskjali? loglon KorðmaDar vill vera örælí. Það er ótrúlegt að nokkur Norðmaður skuli láta blekkjast af þeirri yfirlýsingu Þjóðverja, að þeir hafi ekki í hyggju, hvorki Frh. á 4. síðu. Dýzkt III á leið til Naruíkiir? SAMKVÆMT þýzkum fregnum, sem sagt var frá í útvarpinu í Washing- ton um hádegið, eiga þýzlt- ar hersveitir á mótorhjólum að vera komnar langt norð- ur fyrir Þrándheim á leið til Narvíkur. I sænskum fregnum er einnig sagt frá því, að sézt hafi til 100 þýzkra flug- véia á leið til Norður-Nor- egs.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.