Alþýðublaðið - 07.05.1940, Side 1

Alþýðublaðið - 07.05.1940, Side 1
XXI. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAG 7. MAf 1940 104. TÖLUBLAÐ ítalskar hernaðarflugvélar í Libyu, við landamæri Egyptalands, þar sem í óða önn er nú verið að búa allt undir stríð. Samkomulag í nétt um áhættu péknunina á kaupskipunum. ----4.- Ábættapóknunin hækkar fyrir alla nm 4 kr. en það er nm 50*1* fyrir háseta. "p\EILUNNI milli sjómanna á kaupskipunum og útgerð- arfélaganna er lokið. Þrátt fyrir það þó að svo liti út í gærkveldi, að alger- iega slitnaði upp úr samningum og vinnustöðvun yrði, tókst samkomulag í nótt og voru samningar undirritaðir kl. 4 í morgun. Úrslit deilunnar urðu þau, að nýtt áhættusvæði er komið í samningana og að áhættuþóknunin hækkar fyrir háseta úr 250% upp í 300%. Sömu upphæð fá aðrir skipverjar án tillits til kaups þeirra, og verður hækkunin hlutfallsleg eftir því. Nýjar breytingar á brezkn stjórninni i aðsigi? Chamberiain Ujrtnr ræðu sína um strlðið i Noregi í brezha ginginu i dag. CHAMBERLAIN flytur ræðu sína um styrjÖIdina í Noregi í brezka þinginu í dag, sennilega kl. 4, og er hennar beðið með mikilli eftirvænt- ingu um allan heim. Búizt er við því, að miklar umræður verði á eftir, og að stjórnin verði fyrir alvarlegri gagnrýni fyrir brottflutning hersins frá Suður-Noregi. Mun leiðtogi Alþýðuflokksins, Att- lee, talá næstur á eftir forsæt- isráðherranum, en síðan Sir Archibald Sinclair, foringi frjálslynda flokksins. Það er ekki gert ráð fyrir því, að um- ræðunum verði lokið í kvöld, og sennilega talar Churchill ekki fyrr en á morgun. Sum ensku blöðin gera ráð fyrir því, að breytingar hljóti að verða á brezku stjórninni að þessum umræðum loknum. „Times“ virðist vilja auka völd Churchills enn. En „Daily Te- legraph" krefst þess, að jafn- aðarmenn taki nú einnig sæti í stjórninni. Samningurinn er viðbótar- samningur við samninginn frá 7. október 1939, sem er fram- lengdur. Viðbótin er í 4 grein- um og er svohljóðandi: 1. gr. Fyrir siglingar á svæðinu milli 63° og 45° N. br. og austan 20° V. 1. greiðist viðbótaráhættu- þóknun kr. 4,00 pr. sólarhring hverjum skipverja, sem samning- ur pessi nær til. Þessi aukaþókn- un greiðist frá byrjun þess dæg- urs ,er skipið kemur inn á á- hættusvæðið og til loka þess dægurs, er skipið kemur til hafn- ar (miðað við kl. 12 eða 24). Á sama hátt reiknast aukaáhættu- þóknun þessi frá byrjun þess dægurs, er skipið fer úr hðfn á þessu áhættusvæði og til loka þe«s dægurs, er það fer út af því. Fyrir þann tíma, sem skip liggur i höfn greiðist ofanrituð aukaþóknun ekki. 2. gr. Á svæðinu milli 8. og 3Q° A. 1. og milli 65.° og 72.° N. br. greiðist sama áhættuþóknun og í Ameríkuferðum. Ef skip liggur í norskri höfn greiðist þó sa-ma áhættuþóknun og í öðrum höfnum ófriðaraðila. 3. gr. Samningurinn gildir til næstu áramóta, þó þannig, að ef veruleg breyting, miðað við und- anfarna mánuði, verður á á- hættunni, að áliti nefndar, sem aðilar koma sér saman um, þá hefir hvor aðili fyrir sig rétt ti) þess að krefjast endurskoðunar á samningnum, og náist eigi sam- komulag innan 14 daga, þó ajp þeim fresti liðnum að segja hon- um upp með 14 daga fyrirvara, að því er snertir þau svið, þar sem nefndin telur' að veruleg breyting hafi orðið. \ Ef hvorugur aðili hefir sagt upp samningi þessum fyrir 15. des. n. k., heldur hann áfram að gilda þar til honum er sagt upp meÖ 14 daga fyrirvara. 4. gr. Ákvæði samnings þessa skulu gilda frá og með 21. apr. s. 1. Að öðru leyti en hér er fram tekið, framlengist samning- urinn frá 7. október 1939 ó- breyttur. NorAmem eiga bezta lið sitt ósigrað í Norður-Noregi Búist við að Þjóðverjum lendi innan skamms saman við það á leiðinninorður T/’OHT UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRA NORÐMANNA ÁÁ. Sagði í viðtali í London í gær, að bezta liðið, sem Norðmenn ættu á að skipa, væri enn óþreytt og ósigrað í Norður-Noregi. Hann sagði, að Norðmenn hefðu síðan Rússar réðust á Finna haft mikinn viðbúnað þar nyrðra, af því að þeir hefðu gert ráð fyrir því, að svo gæti farið, að Rússar réð- ust á Noreg. Þangað hefði því verið sent töluvert lið og það verið æft vel í fjallahernaði og nú ættu Þjóðverjar þessu liði að mæta, ef þeir reyndu að brjóta undir sig Norður-Noreg. Þjóðverjar halda því fram, að lið þeirra hafi nú hafið sókn sína frá Grong í Þrændalögum norður á hóginn og telja það fara hratt yfir. En talið er víst, að þess verði ekki langt að bíða, að það reki sig á mót- spyrnu 6. norsku herdeildarinn- ar, sem er sögð hafa tekið sér varnarstöðu sunnarlega í Norð- ur-Noregi, þvert yfir landið, sem alls staðar á þessum slóð- um er mjög mjótt frá sjó til sænsku landamæranna, og mjög ógreitt yfirferðar. Þessi herdeild Norðmanna er talin vera vel útbúin að öllum ný- tízku vopnum. Frá Narvik berast ekki mikl- ar fregnir. Það er álitið að Þjóðverjar hafi þar um 4000 manna her, en hann er króaður þar alveg inni af brezka flotan- um og hersveitum Banda- manna. Þó er búist við því, að nokkur tími geti liðið, þangað til hann verður að gefast upp, því að hann hefir búið ramm- lega um sig á öllum beztu stöð- um umhverfis horgina. 1 þýzkum fregnum kemur það fram, að franskir Alpahermenn eru komnir til vígstöðvanna við Narvík og taka þátt í sókninni þar á hendur þýzka landgöngu- liðinu. En brezk herskip skjóta öðru hvoru á varnarstöÖvar þess frá sjónum. 1 sænskum blöðum er því haldið fram, að aðstaða Þjóðverja fari mjög versnandi þarna nyrðra. Veður er sagt mjög slæmt sem stendur á þess- um slóðum, stórhríðar og erfitt um allar hernaðaraðgerðir. Flýða ð opnum bðt frð Notegi til Skotlands. 1 norska útvarpið frá London talaði í gær norskur maður og skýrði frá för sinni og þriggja félaga sinna í opnum bát yfir Frh. á 4. síðu. 3 tnndnrspillai sðkkt fjrrir BandamðnnDm við Noreg. -----«---- Einum brezkum, einum irðnskum, og einnmpólsknm LONDON í morgun. FÚ. GÆR síðdegis og gærkveldi var tilkynnt, að sökkt hefði verið 3 tundurspillum fyrir Bandamönnum. Brezka flotamálaráðuneytið tilkynnir, að brezkum tundur- spilli hefði verið sökkt, þegar verið var að flytja herlið Bandamanna frá Namsos. Ekk- ert tjón varð á neinu herflutn- ingaskipanna. Flugvélarnar, sem árás gerðu á herflutninga- skipaflotann og verndarskipin, voru mjög margar. Komu þær .í bylgjum og má þakka það á- gætri vörn, að ekki varð meira tjón að. Skothríðin úr loft- varnabyssum herflutningaskip- anna og herskipanna var hin á- kafasta. Gátu flugvélarnar því ekki flogið mjög lágt. Tvær þeirra voru skotnar niður. Tundursplllirinn, sem sökkt var, „Afride“, varð fyrir sprengikúlu. Tundurspillirinn var 1600 smálestir og var syst- urskip tundurspillisins „Cos- sacks“. Á „Afride“ mun hafa verið um 200 manna áhöfn. í brezka flotanum voru 179 tundurspillar, er styrjöldin brauzt út. Frá þeim tíma hafa Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.