Alþýðublaðið - 18.05.1940, Blaðsíða 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
LAUGARDAGUR 18. MAI 1940.
113. TÖLUBLAÐ
Sókn íjóáveria nlí aftor f alglevmingi.
ÞJóðverJar hafa brotizt Inn í virkja-
linu Frakka suðvestnr af Sedan.
Ástandið er alvarlegt, segja Bandamenn
en ekki alvarlegra en í heimstyrjoldinni.
-------*------
ÞJÓÐVERJAR hófu æðisgengnar árásir á ný í gærmorgun á
vígstöðvar Bandamanna bæði í Belgíu og Norður-Frakk-
iandi.
Á Norður-Frakklandi sækja þeir fram fyrir vestan, sunnan
og austan Sedan, á 70—80 km. breiðu svæði milli Avesnes og
IVIontmedy, og hefir tekizt með látlausum skriðdrekaárásum og
loftárásum áb brjóta sér braut inn í varnarvirki Frakka, um
40-50 km. leið þar sem þeir eru lengst komnir, norðaustur af
Rethel.
Látlausir bardagar héldu áfram á þessum slóðum allan dag-
inn í gær og í morgun. Voru bardagarnir harðastir í nótt vest- f
ur af Sedan, milli Avesnes og Vervins, en seinnipartinn í gær
var áhlaupum Þjóðverja austur við Montmedy hrundið.
þjóðverjar eru að reyna að breikka fleyginn, sem þeir
hafa rekið inn í varnarlínu Frakka til þess að geta komið við
hinu mikla ofurefli liðs^sem þeir hafa á að skipa. Það er viður-
kennt f tilkynningum Bandamanna, að ástandið á þessum víg-
stöðvum sé alvarlegt, en þó ekki alvarlegra en það hafi oft verið
í heímsstyrjöldinni.
KjSrorðið er nn: Sigra eða
deyja, segir Gamelin.
-------4.-----
Gamelin yfirhershöfðingi Frakka og alls Bandamannahers-
ins á vesturvígstöðvunum, gaf út dagskipun til frönsku her-
mannanna í gær, sem þykir benda á það, hve mikið sé nú í húfi.
Hún er svohljóðandi:
„Örlög föðurlands okkar, bandamanna þess og framtíð
alls heimsins er undir þeim orustum komin, sem nú eru
háðar. Brezkir, belgískir og pólskir hermenn og erlendir
sjálfboðaliðar herjast við hlið okkar, og hrezki flugflotinn
tekur fullan þátt í bardögunum. Þeir hermenn, sem ekki
geta sótt fram, verða heldur að láta drepa sig, en víkja um
cinn þumlung af þeim bletti ættjarðarinnar, sem þeim hefir
verið trúað fyrir að verja. Eins og á öllum alvarlegum tím-
um í sögu okkar, er kjörorðið nú, að sigra eða deyja. Og við
verðum að sigra.“
Bandameim irfirgefa BrOssel
-------4------
Norðaustur af Briissel náðu Þjóðverjar Louvain og
Malines við ána Dyle á sitt vald snemma í gær. Bandamenn
héldu her sínum undan úr vígstöðvunum þar vestur fyrir
Briissel, en áður hafði stjórn Belgíu verið flutt þaðan til
Ostende, vestur á ströndinni. Seint í gærkveldi tilkynntu
Þjóðverjar að Briissel væri tekin.
Frh. á 4. síðu.
Bréfaskipti milli islenzka
og brezkn stjóraarinnar.
....♦
Mánuði áður en Bretar hertóku landið.
GAMELIN.
Norsk íléttaBauM-
skip víð Ejfjar.
SJÓMENN úr Vestmanna*
eyjum urðu í fyrrakvöld
varir við tvo allstóra báta, sem
voru á leið frá Noregi méð
flóttafólk.
Flóttafólkið hafði tal af sjó-
möhnuhum, sem voru að veið-
um og fékk hjá þeim fisk í soð-
ið. Frh. á 4. síðu.
A LÞÝÐUBLAÐINU harst
í dag frá ríkisstjórn-
inni afrit af tveimur hréfum,
sem fóru milli íslenzku og
brezku ríkisstjórnarinnar
mánuði áður en Bretar settu
hér her á land. Áður hafa
verið birt hér í blaðinu mót-
mæli íslenzku ríkisstjórnar-
innar gegn hertöku landsins
og svar brezku ríkisstjórnar-
innar við þeim mótmælum.
Bréf bre?ku ríkisstjórnarinn-
barst ríkisstjórninni
ar
um
brezku aðalræðismannsskrif-
stofuna hér og er bréfið svo-
hljóðandi:
Brezka aðalkonsúlatið, Rvík.
9. apríl 1940.
Herra ráðherra,
Ég leyfi mér að tilkynna yð-
ur, að það hefir verið lagt fyrir
mig af brezka utanríkismála-
ráðherranum að tilkynna ís-
lenzku ríkisstjórninni án tafar,
að með tilliti til þýzku innrás-
arinnar í Noreg og hertöku
Frh. á 4. síðu.
Miklir liðsflutniogar
úr brezku skipunum.
O TÖÐUGIR liðflutning-
ar stóðu yfir í gær-
kveldi frá kl. 6 og fram yfir
miðnætti í nótt úr flutninga-
skipum Breta á ytri höfn-
inni. Eitthvað af íslenzkum
skipum, þar á meðal „Arc-
tic“ voru tekin af Bretum til
að aðstoða við flutningana.
Auk liðsins, sem flutt var á
land í stórum stíl, var mikið
flutt í land af matvörum, fatn-
aði, ýmsum Öðrum útbúnaði og
tækjum, sem fylgja hermönn-
unum.
í gær voru 40 vöruflutninga-
bifreiðar í þjónustu hersins ,og í
dag eru einnig 40 bílar önnum
kafnir.
Hinir erlendu hermenn hafa nú
lagt hina stærri bamaskðla alveg
undir sig, auk þess Þjóðlcikhúsið
og ýms önnur hús, þar sem hægt
er að koma mörgum mönnum
fyrir. Þá munu þeir og hafa tekið
nokkrar lausar íbúðir í bænum
og búið um sig þar.
í gær og í morgun hefir fjöldi
hermanna farið um götur bæj-
arins og hafa bæði þeir og bif-
leiðar flutt mikið af vistum
Frh. á 4. slðu.