Alþýðublaðið - 20.05.1940, Síða 1

Alþýðublaðið - 20.05.1940, Síða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANGUR MÁNUDAGUR 20. MAI 1940. 114. TÖLUBLAÐ SökD DjMveija færist ifí vestir ð bóginn. Þeir hafa verið stððvaðir sunnan við Sedan, en reyna nú að brjðtast i gegn til hafnarborganna við Ermarsund. ------------ Weygand tebnr við yffrstjérn alls Bandamannaberslns f stað Gamelin C ÓKN ÞJÓÐVERJA í Norður-Frakklandi hefir nú færzt vestur á bóginn frá Sedan og breytt um stefnu. Reyna þeir nú með ægilegum skriðdrekaárásum, eins og í lok vikunnar sem leið, fyrir sunnan Sedan, að brjóta sér braut í gegnum vígstöðvar Frakka í vestur- og suðurátt, frá Maubeuge, Avesnes og Vervins og eru komnir þaðan álíka leið inn í Frakkland eins og hjá Rethel. í gær voru þeir búnir að ná þarna bæjunum Landreeies, Guise, efst við fljótið Oise, á sitt vald og sóttu fram í suðurátt til La Fére og Laon, og í vesturátt til St. Quentin, efst við fljótið Somme, sem er frægt úr heimsstyrjöldinni, og Cambrai og standa stórorustur yfir fyrir norðan og austan þessa bæi. Frakkar veita hvarvetna harðvítugt viðnám og öflugar vélahersveitir Breta hafa ráðizt á hægri fylkingararm Þjóðverja, að norðan og vestan, til þess að stöðva sókn þeirra. Er tilgangur hinnar þýzku sóknar á þessum slóðum talinn vera sá, að brjótast til frönsku hafnarborganna við Ermarsund, Dunquerque, Calais og Boulogne, til þess að króa her Bandamanna í Belgíu inni og hindra herflutninga Breta yfir Ermarsund. Sunnan við Sedan virðist sókn Þjóðverja hafa verið stöðvuð, að minnsta kosti í bili, hjá Rethel um 70 km. norðaustan við París .Voru þeir á einum stað komnir yfir fljótið Aisne, einnig frægt úr heimsstyrjöldinni, en voru hraktir til baka og hafa Frakkar tekið tvö þorp af þeim aftur, sitt hvorum megin við Rethel. Þjóðverjar eru nú byrjaðir að bú- ast fyrir í varnarstöðvum á þessum slóðum norðan við Aisne og þykir það benda til þess, að þeir geri sér ekki lengur von um að geta brotizt í gegn suður af Sedan. Suðaustur af Sedan, við Montmedy, við enda hinnar eiginlegu Maginotlínu, hefir öllum áhlaupum Þjóðverja verið hrundið. Frönskum fallbyssum ekið fram á vígstöðvarnar. Citurchilí vongóður m að sókn Hitlers verði stððvnð. -----♦----- 3-4 milljóna her verður ekkl yfirbug- aður á nokkmm dðgum segir hann. Weygand, aðalráðunaufur Fochs, og Pétain marskálkur, sem varði Verdun. Weygand. Tilkynnt var í París í gærkveldi, að Weygand hershöfð- ingi, sem undanfarið hefir haft yfirstjórn Bandamannahers- ins fyrir botni Miðjarðarhafsins, hafi verið skipaður yfir- hershöfðingi Bandamanna í Frakklandi og á öllum vígstöðv- um, í stað Gamelin. Tilskipun um þetta var undirrituð af Lebrun Frakk- landsforseta eftir að Reynaud hafði tekið ákvörðun um her- foringjaskiptin á fundi, sem hann átti með Petain mar- skálki, sem nú er kominn til Parísar til þess að taka sæti í frönsku stjórninni. Ekkert er kunnugt um það, hvaða starf er framvegis ætlað Gamelin. Pétain. „Sendið eitir Weypnd, ef Frakkland er i hættn“ Hinn nýi yfirhershöfðingi, Wey Igand, er 73 ára að aldri og einn af fræg'ustu og þaulreynd- stu hershöfðingjum Frakka. Hann var í heimsstyrjöldinni að- alráðunaufur Fochs, sem síðasta ár styrjaldarinnar tók við yfirstjóm alls Bandamannahersins á vest- urvígstöðvunum. ; Eftir heimsstyrjöldina var hann 1920, sendur til Póllands til þess að skipuleggja vörn Pólverja, sem þá áttu í stríði við Sovét-Rúss- land og vora mjög hætt komn- ir. Weygand stöðvaði sókn Rússa á næstu grösum við Varsjá og sneri vörn Pólverja upp í sókn, Frh. á 4. síðu. VU’INSHON CHURCHILL, * * hinn nýi forsætisráð- herra Breta, flutti áhrifa- mikla útvarpsræðu í gær- kveldi og var það í fyrsta skipti, sem hann ávarpaði þjoð sma x utvarpið, ettir að hann myndaði stjórn. Churchill sagði, að Þjóðverj- um hefði tekizt að brjótast inn í Frakkland með því að tefla fram ógurlegum skriðdreka- fjölda og flugvélum og án þess að skeyta um manntjón. Hann kvað það heimskulegt, að neita því, að horfurnar væru hinar alvarlegustu, en það væri jafn heimskulegt að missa kjarkinn. Hann kvaðst bera hið mesta traust til Frakka og franska hersins og það væri ekki ástæða til að ætla, að þótt Þjóðverjum hefði tekizt að ryðjast inn í Frakkland með vélahersveitir sínar, að mótspyrna prýðilega skipulegs hers, sem hefði á að skipa 3—4 millj. hermanna, yrði brotinn á bak oftur á örstuttum tíma. Slíkur her yrði ekki bugaður á nokkrum mánuðum, hvað þá heldur á nokkrum dög- um, þótt ægilegar árásir væru gerðar á hann. Churchill kvaðst gera sér góðar vonir um það, að hægt yrði að stöðva sókn Þjóðverja á Frakklandi og skapa fastar vígstöðvar þar. — Lebrun ríkisforseti og Reynaud forsætisráðherra hefðu gefið sér hátíðlegt loforð um það, að Frakkar myndu heldur berjast til hinzta manns, en að láta kúgast. Churchill sagði, að upplýsingar væru fyrir hendi um það, að Þjóðverjar hefðu teflt fram næst- um öllum vélahersveitum sínum, og það væri sannað, svo að ekki Frh. á 4. síðu. líilja Þjóðverjar Ið að fiytja her yfirj SyEþjðð til Narsík? AMERIKSKA ÚTVARP- jj IÐ fullyrti um hádegið jj í dag, að Þjóðverjar hefðu jj ;j farið þess á leit við Svía, j !: að fá að flytja her yfir Sví- j; I; þjóð til Narvíkur. !; ;j Svíar era sagðir hafa mik- ;j ;j inn viðbúnað til þess að ;j ;j mæta þýzkri árás á hafnar- borgirnar við Helsingjabotn, jj j; ef Þjóðverjar skyldu reyna j! j; að setja þar her á land í j; !; þessu skyni. ;;

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.